Alþýðublaðið - 16.12.1988, Síða 6
r« V, v iV i' < ' » i «
Föstudagur 16. desember 1988
Frá vinslri Ástbjörg Gunnarsdóttir formaöur Trimmnefndar, Hannes Þ. Sigurðsson varaforseti Iþróttasam-
bands íslands, Þórunn Pétursdóttir úrTrimmnefnd, Sigurður Ásgrímsson frá Trimmklúbbnum, Margrét Jóns-
dóttir frá Trimmblúbbnum, Magnús Pálsson framkvaemdastjóri, Guðmundur Sigurðsson úr Trimmnefnd,
Geirlaug Karlsdóttir úr Trimmnefnd og Stefán Konráðsson starfsmaður ÍSÍ.
Trimmnefnd
ÍSÍ veitir
viðurkenningar
Nýlega veitti Trimmnefnd
ÍSÍ viðurkenningar fyrir góð
störf á sviði almennings-
iþrótta. Þeirsem hlutu viður-
kenningu að þessu sinni
voru:
Magnús Pálsson íþrótta-
kennari og viðskiptafræðing-
ur fyrir að standa að og
skipuleggja „Heilsumánuð í
Kringlunni" í janúar 1988.
Það átak heppnaðist frábær-
lega vel og var i alla staði
mjög vel skipulagt. Alla daga
mánaðarins voru ákveðin
prógröm í gangi og má segja
að flestar þær stéttir sem
vinna aó heilbrigðismálum á
íslandi hafi komið við sögu.
Hugmynd Magnúsar að
heilsumánuði sem þessum
hefur þannig haft mótandi og
hvetjandi áhrif á almenning í
að stunda íþróttir sér til
heilsubótar og ánægju.
Trimmklúbbur Seltjarnar-
ness fyrir frábært trimmstarf
á undanförnum árum. Mar-
grét Jónsdóttir iþróttakennari
og prímusmótor í klúbbnum
tók á móti viðurkenningunni
fyrir þeirra hönd. Trimm-
klúbbur Seltjarnarness var
stofnaður eftir Trimmdag
sem haldinn var á Seltjarnar-
nesi árið 1984. 20-30 manns
stunda reglulegar æfingar
sér til heilsubótar og ánægju
þrisvar sinnum í viku.
I hófi sem Trimmnefnd ÍSÍ
hélt til heiðurs þessara aðila,
sagði Ástbjörg Gunnarsdóttir
formaður Trimmnefndar ÍSÍ
að þessir aðilar hefðu með
áhuga sínum og framtaks-
semi gefið öðrum gott for-
dæmi og hvatningu.
Hannes Þ. Sigurðsson
varaforseti ÍSÍ hélt ræðu þar
sem hann þakkaði viðurkenn-
ingarhöfum fyrir frábært starf
í þágu almenningsíþrótta og
hvatti þátil áframhaldandi af-
reka.
Verðkönnun á
leikföngum og
spilum
Nú þegar jólahátíöin nálg-
ast, er kominn sá tími þegar
sala á leikföngum og ýmsum
öðrum gjafavörum er hvað
mest. Á þessum árstima mun
um það bil helmingur allra
leikfangasölu eiga sér stað.
Dagana 5. og 6. desember
sl. kannaði Verðlagsstofnun
verð á 54 leikföngum og 14
spilum í 35 verslunum og eru
niðurstöður birtar í 26. tbl.
Verðkönnunar Verðlagsstofn-
unar.
Helstu niðurstöður eru eft-
irfarandi: Mestur verðmunur
var á leikföngum í Snákahöll-
inni á leikfangaseríunni
„Masters of the universe"
sem kostaði 2.869,- kr. i þeirri
verslun þar sem hún var
ódýrust, en 4.900,- kr. þar
sem hún var dýrust, eða rúm-
lega 2.000,- kr. meira (70%
munur). í átta tilvikum var
munur á lægsta og hæsta
verði á bilinu 40-50% og í
fimm tilvikum á bilinu
30-40%.
I átta tilvikum var lægsta
verð i Hagkaupum og Kaup-
stað og í sex tilvikum í leik-
fangaversluninni Fídó og
Smáfólk.
Hæsta verð reyndist oftast
í leikfangaversluninni Liver-
pool, í 15 tilvikum af 46. Einn-
ig reyndist vera hátt verð í
Hólasporti og Bókabúð Foss-
vogs, en í þessum verslunum
voru tiltölulega fá leikföng til.
Mestur verðmunur á spil-
um var á Útvegsspilinu, en
það kostaði 900,- kr. í þeirri
verslun þar sem það var ódýr-
ast, en 1.560,- kr. þar sem
þaó var dýrast, sem er 73%
LOÐAUTHLUTUN
Til úthlutunareru 34 lóöir fyrir einbýlishús viö Aust-
urfold og Vesturfold og 14 lóöir fyrir raöhús við
Fannafold á svæöi sem nefnt er Fagrabrekka, norö-
an Foldahverfis í Grafarvogi. Gert er ráó fyrir aö lóö-
irnar verói byggingarhæfar sumariö 1989.
Nánari upplýsingarverðaveittaráskrifstofu borgar-
verkfræöings, Skúlatúni 2, 3. hæö, sími 18000. Þar
fást einnig afhent umsóknareyöublöö og skipulags-
skilmálar.
Tekiö veröur viö lóðarumsóknum frá og meö 19.
desember 1988 á skrifstofu borgarverkfræðings.
Athygli er vakin á því, aö endurnýja þarf eldri lóðar-
umsóknir.
Borgarstjórinn i Reykjavik
KRATAKOMPAN
Alþýöuflokksmenn
Jólafundur í dag, föstudag, kl. 21.00 á Hverfisgötu
8-10. Allir velkomnir, óbreyttir og háttsettir.
FUJ Reykjavík
FUJ Reykjavík
Almennur félagsfundur verður haldinn á Hverfis-
götu 8-10 i dag, föstudag 16. des. kl. 19.30.
Stjórnin
ÍSLENSKRA
STJORfÍHÁLA
Kf.VfAK'SKC^Nf>t;R
M'Sm.CUSUK fJM ftX rriSK
vkwrxu
ÖKN OC» ff ORl'AOUK
Undirheimar
íslenskra
stjórnmála
„í kjölfar „hallarbyltingar"
Hannibals Valdimarssonar í
Alþýðuflokknum 1952 hófust
einstæð pólitísk vígaferli
með margvíslegum og oft á
tíðum nýstárlegum vopna-
burði. Alþýðuflokkurinn hafði
um árabil flotið á fjárhagsað-
stoð norrænu bræðraflokk-
anna en við yfirtöku Hanni-
bals sá Stefán Jóhann Stef-
ánsson til þess að skrúfað
var fyrir alla slíka fyrir-
greiðslu til flokksins".
Þannig hefst kynning á
baksíðu hinnar nýju bókar
sem Bókaútgáfan Örn og Ör-
lygur hefur gefið út en samin
er af Þorleifi Friðrikssyni
sagnfræðingi, en hann hefur
um margra ára skeið kynnt
sér þessi mál og kannað mik-
inn fjölda gagna, hérlendis
sem erlendis. Ekki er að efa
að bók þessi mun vekja
mikla athygli og tæpast
munu allir vera sammála því
sem þar er sagt. í bókarkynn-
ingu á kápu segir ennfremur:
„Launráð að tjaldbaki."
Átökin innan Alþýðuflokksins
og verkalýðshreyfingarinnar
náðu hámarki á árunum
1953-1956, en nú voru þaö
ekki bara norrænir skoðana-
bræður sem seildust til
áhrifa í skjóli fjármálafyrir-
greiðslu. Erlendis andstæð-
ingar hins ógnvænlega
„hannibalisma“, bæði austan
hafs og vestan, tóku höndum
saman við hægri krata hér
heima og beittu gjarnan fyrir
sig næsta reyfarakenndum
aðferðum. Slík leynd lá yfir
aðgerðunum að sumir þeirra
sem stóðu mitt I hringiðunni
höfðu í raun ekki hugmynd
um hvað átti sér stað; hvaða
launráð voru brugguð að
tjaldabaki. Þeim kemur þess
vegna sumt af því sem segir
frá í þessari bók á óvart.
hærra verð. í tveimur tilvikum
var verömunur á bilinu
30-40%.
í fjórum tilvikum var
lægsta verð í Bókabúðinni
Æskunni og I þremur tilvik-
um I Máli og menningu.
í fjórum tilvikum var hæsta
verð í bókaversluninni
Ástund og I þremur tilvikum í
Kaupstað, Miklagarði, Penn-
anum og Bókaversluninni
Vedu.
Ýmsar skýringar eru á
þeim verðmun sem fram
kemur I könnuninni. Má þar
nefna m.a. mismunandi aldur
birgða og mismunandi smá-
söluálagningu. í könnuninni
var borið saman verð á ná-
kvæmlega sömu vörutegund-
um og vörumerkjum, þannig
gæðamunur skýrir ekki þenn-
an mismun.
□ 1 2 ij 4
5 □ V
6 □ 7
Ó 9
10 □ 11
□ 12
13 □
Lárétt: 1 búfé, 5 högg, 6 ætt, 7
kvæði, 8 gátu, 10 eins, 11 lækk-
un, 12 aukast, 13 stækkuð.
Lóðrétt: 1 aðstoð, 2 bróður, 3
til, 4 fjáða, 5 brokka, 7 guð, 9
tjón, 12 keyri.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 svola, 2 5 stig, 6 kál, 7
ól, 8 öldina, 10 ps, 11 lýs, 12
eitt, 13 norna.
Lóðrétt: 1 stáls, 2 vild, 3 og, 4
aflast, 5 sköpun, 7ónýta, 9 ilin,
12 er.
• Gengii
Gengisskráning 237 - 12. des. 1988
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 45,450 45,570
Sterlingspund 83,798 84,020
Kanadadollar 37,891 38,991
Dönsk króna 6,7684 6,7863
Norsk króna 7,0307 7,0493
Sænsk króna 7,5273 7,5472
Finnskl mark 11,0638 11,0930
Franskur franki 7,6367 7,6569
Belgiskur franki 1,2456 1,2489
Svissn. franki 30,9922 31,0740
Holl. gyllini 23,1204 23,1814
Vesturþýskt mark 26,0974 26,1663
ítölsk líra 0,03536 0,03545
Austurr. sch. 3,7094 3,7192
Portúg. escudo 0,3151 0,3159
Spánskur peseti 0,4018 0,4028
Japanskt yen 0,36951 0,37049
írskt pund 69,886 70,071
SDR 61,9111 62,0745
ECU • Evrópumynt 54,2423 54,3855
• Ljósvakapunktar
• RUV
23.10 I dauðafæri. Bandarisk.
Þessi með Lee Marvin i aðal-
hlutverki. Gerð 1967 af John
Boorman og þykir býsna lunk-
in sem spennumynd.
• StöS 2
18.20 Pepsi auglýsing með
myndböndum. Róttækt fram-
lag til menningarframvindu á
sjónvarpsöld.
• Sky Channel
2.00 Jazz.
• Rás 1
10.30 Maðurinn á bak við bæj-
arfulltrúann. Inga Rósa á
Egilsstöðum flettir ofan af
sveitarstjórnarmönnum.
20.15 Þeirsegjaaö hljómplötu-
rabb Þorsteins Hannessonar
sé áheyrilegt og fróðlegt I alla
staði. Þettaereinn af klassísk-
um gufubólstrum gufunnar.
• Rás 2
16.03 Dægurmálaútvarp hefst
með hátíðlegum inngangsorð-
um stjórnenda. Mikil er
mælska Stefáns J. Hafstein.