Alþýðublaðið - 10.01.1989, Page 1
^TOFMAn
v
Þriöjudagur 10. janúar 1989 1919 1 . • 1
ÍH
5. tbl. 70. árg.
Ingi Björn
til Selfoss?
Bruninn að Réttarhálsi 2
Félagsmálaráðherra
óskar eftir
greinargerð frá
Brunamálastofnun
Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmáiaráðherra hefur ósk-
að eftir greinargerð frá
Brunamálastofnun rikisins
vegna brunans að Réttarhálsi
2. þann 4. janúar.
Að sögn Rannveigar Guð-
mundsdóttur aðstoðarmanns
ráðherra óskar ráðherra m.a.
eftir svari við því hvort Bruna-
málastofnun hafi látið gera
úttekt á brunvörnum í meiri-
háttar byggingum eða stofn-
unum á höfuðborgarsvæðinu.
í framhaldi að þvi spyr ráð-
herra hvort málum hafi verið
fylgt eftir í þeim tilfellum
sem úrbóta hefur verið talin
þörf.
Varaformannskandídat
Borgaraflokksins
Ingi Björn Albertsson þing-
maður Borgaraflokksins mun
liklega leika með knatt-
spyrnufélagi Selfoss næsta
keppnistímabil. í samtali við
Alþýðublaðið sagði hann
þetta ekki enn ákveðið mál,
en heimildir blaðsins á Sel-
fossi töldu málið svo gott
sem frágengið, en að horfið
hafi verið frá því að hann
tæki aö sér þjálfun eins og
rætt var um í upphafi.
„Ég hef ekki enn tekið
ákvörðun í málinu, en það er
fyrir mig vissulega mjög
freistandi, enda hefur knatt-
spyrnan verið mitt helsta
áhugamál frá því ég var 5 ára.
Maður verður jú að geta átt
sínar tómstundir, en það er
mikið að gera i stjórnmálun-
um og starfið gengur auð-
vitað fyrir. Fleira blandast inn
í þetta eins og að þaö tekur
sinn tíma að komast í viðun-
andi form, en ég hef ekki
keppt á íslandsmóti undan-
farin tvö keppnistímabil."
Ingi Björn sagði að vissu-
lega gæti það sett strik í
reikninginn ef varafor-
mennska Borgaraflokksins
kæmi i sinn hlut. „Hvað
knattspyrnuna varðar er ég
að hugleiða málið þessar
stundirnar. Það liggur ekkert
fyrir á þessari stundu að ég
verði varaformaður flokksins.
Það býður sig enginn fram í
það embætti, heldur er nú
beöið eftir tilnefningu for-
manns flokksins á næsta
aðalstjórnarfundi, sem verður
í lok janúar. Ég ætla ekkert
að fara að giska á hvern for-
maðurinn kemur til með að
tilnefna" sagði Ingi Björn.
Valur Arnþórsson stjórnarformaður og Guöjon B. Olafsson forstjóri, fulltrúar tveggja mismunandi sjónarmiða um uppstokkun SIS, við upphaf
stjórnarfundarins i gær.
Sambandið í sundur?
A-mynd/Magnus Reynir.
Stjórn SIS meltir tillögurnar
800 milljóna króna tap á síðasta ári
Stjórn Sambands islenskra
samvinnufélaga kom saman i
gær til að fjalla um tillögur
meirihluta skipulagsnefndar,
sem greint var frá i Alþýðu-
blaðinu um helgina. Stjórnin
mun halda áfram að fjalla um
málið i dag. Á fundinum
lagði Guöjón B. Ólafsson for-
stjóri fram sértillögur, en
hann var andvígur hugmynd
skipulagsnefndarinnar um
sundurlimun Sambandsins.
Þrátt fyrir að talið sé að til-
lögur skipulagsnefndar, sem
starfaði undir forsæti Vals
Arnþórssonar stjórnarfor-
manns, njóti
stuðnings meirihluta stjórn-
arinnar er ekki búist við af-
greiðslu þeirra í dag.
Á fundinum í gær var upp-
lýst að tap Sambandsins hafi
numið 775 milljónir fyrstu 11
mánuði ársins. Heildartap á
síðasta ári er talið geta orðið
yfir 800 milljónur króna.
Frétt Alþýðublaðsins um
helgina, sem greindi frá til-
lögum meirihluta skipulags-
nefndar virtist koma ýmsum
stjórnarmönnum Sambands-
ins í opna skjöldu. Nokkrir
þeirra töldu að trúnaðarbrest-
ur hefði átt sér stað, þar sem
innihald hennar hefði verið
upplýst i fjölmiólum áður en
málið kom formlega fyrir
stjórnina.
j Verkamannasambandið
RADHERRAR KALLADIR
TIL VIÐRÆÐNA
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands Islands
boðar þrjá ráðherra til fundar
við sig í dag í húsi Dagsbrún-
ar að Lindargötu 9. „Við mun-
um óska eftir að þeir skýri frá
hvaða plön þeir séu með á
prjónunum. Jafnframt verða
þeir ábyggilega spurðir um
ráðstafanir gegn atvinnuleys-
ishættunni. Þá hljóta vextirn-
ir og verðlagsmálin að koma
til umræðu. Það kæmi mér
ákaflega mikið á óvart ef ekki
yrðu harðorð mótmæli gegn
vaxtahækkunum,“ sagði
Guðmundur J. Guðmunds-
Umrœður innan BSRB
son formaöur Verkamanna-
sambandsins við Alþýðu-
blaðið i gær. Fleiri launþega-
samtök hugsa sér til hreyf-
ings þvi formenn aðildarfé-
laga BRSB hafa beint því til
félagsmanna að hafnar verði
umræöur um mótun kröfu-
gerðar í komandi samning-
um.
„Við teljum þetta nokkuð
frjálsa leiö,“ sagði Guðmund-
ur.“ Það eru ekki tveir eða
þrír menn aö ganga á ráð-
herrafund, heldurer ráðherr-
um boðið á breiðan stjórnar-
fund hjá sambandinu, —
um mótun kröfugerðar
enda tóku ráðherrarnir þessu
ákaflega Ijúflega." Ráðherr-
arnir þrír eru Jón Sigurðsson,
Halldór Ásgrímsson og Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, en
bæði Jón Baldvin Hannibals-
son og Steingrímur Her-
mannsson eru erlendis.
Guðmundur sagði mál
opinberra starfsmanna og
Verkamannasambandsins
væru ekki sambærileg. „Þeir
eru að ræða sínar kröfur.
Ekki lái ég þeim það, en við i
Verkmannasambandinu erum
með mikiö af atvinnulausu
fólki. Þetta er spurning um
vinnu eða ekki vinnu. Viö höf-
um við margháttaðri hluti aö
glíma en æviráðnir menn.
Þetta er auðvitað gerólík
þjóðfélagsleg staða.“
Verkamannasambandið,
Landssamband iðnverkafólks
og verslunarmenn eru með
bundna samninga ýmist til 1.
eða 10 apríl. „Það er stór
misskilningur að um leið og
lögin renni úr gildi 15.
febrúar séu samningar þess- *
ara stóru starfsstétta lausir.
— Það eru fleiri í Verka-
mannasambandinu heldur en
í BSRB,“ sagði Guðmundur.