Alþýðublaðið - 10.01.1989, Side 5

Alþýðublaðið - 10.01.1989, Side 5
Þriójudagur 10. janúar 1989 5 UMRÆÐA Bjarni Sigtryggsson skrifar Manna- breytingar í menntamála- ráðuneytinu Nú um áramótin létu af störfum í menntamálaráðu- neytinu þrír starfsmenn. Þeir eru: Sigurður Briem, deildar- stjóri, sem hóf störf í stjórn- arráðinu árið 1943. Runólfur Þórarinsson, deildarstjóri, sem hóf störf á fræðslumála- skrifstofunni árið 1956 og kom til menntamálaráðuneyt- isins árið 1969 er fræðslu- skrifstofan var lögð niður og Sigríður Þórðardóttir, fulltrúi, sem hóf störf árið 1968. Tveir starfsmenn ráðuneyt- isins voru gerðir að deildar- stjórum nú um áramótin, þær Þórveig Þormóðsdóttir og Svandís Skúladóttir. Ný fórnarlömb umhverfissinna Loðdýrabændur og feldskerar í útrýmingahættu! Þaö á ekki af íslenskri loð- dýrarækt að ganga. Dýravinir í heiminum eru ekki aðeins þeir vinir sjávarspendýra, sem hafa bundist samtökum innan Greenpeace samtak- anna um aðgerðir til að hjálpa hvölum í lífsbarátt- unni, heldur hafa nú risið upp víða um heim samtök dýravina, sem berjast al- mennt fyrir vellíðan og vel- ferð allra spendýra, og jafn- vel skorkvikinda. Nýjasta tískan sem breið- ist sem eldur í sinu út vest- anhafs sú, að nofa ekki pelsa, að minnsta kosti ekki úr ekta skinnum, og hvetja aðra til að gera slíkt hið sama. Fyrir ármót var farin ganga fólks af þessu tagi um Manhattan-eyju, miðborg New York, og til göngunnar valinn pelslaus-föstudagur, 25. nóvember síðastliðinn, eða „Fur-Free-Friday“ eins og það hét í auglýsingum þar vestra. FREKARI AÐGERÐIR Á DÖFINNI 120 samtök dýravina vest- anhafs skipuleggja nú svip-' aða göngu í 68 borgum til að fylgja eftir fordæminu frá New York.' Til að gera göngu af þessu tagi táknræna er fal- ast eftir því að göngufólk gefi pelsa slna og annan skinnfatnað, sem hlýtur við- eigandi greftrun í göngulok. Haldið er á lofti áróðurs- spjöldum gegn skinnaiðnað- inum og minnt á grimmilega fengelsun og sálardrepandi lifnaðarhætti refa og minka. Og í ræðu, sem haldin var við þetta tilefni, skýrði forvígs- maður göngumanna, Bob Berker, frá því aö á Norður- löndunum væri baráttan gegn fangelsun dýra lengst komin, og þar væri litið niöur á fólk, sem iklæddist dýra- skinnum. Jafnvel hrækt á það á götu. Eitthvað virðist hér vera frjálslega farið með frásögn af baráttu sænska rithöfund- arins Astrid Lindgren gegn ómannúölegri meðferð ali- dýra, en hvað gera menn ekki ef það þjónar málstaðnum? Forvígsmenn þessarar bar- ' áttu benda hinum ríku, sem nota dýra pelsa til að sýna þjóðfélagslega stöðu sina, að velja heldur eðalsteina til slíks. ROKKAÐ GEGN REFABÆNDUM Það er fleira í gangi en þessr göngur vestanhafs. 18. febrúar verður rokkhátíð gegn pelsum í New York á vegum samtaka sem berjast fyrir mannúðlegri meðferð dýra. „Grimmd er úr tísku, — gangið ekki í loðpelsum." er eitt af kjörorðum samtak- anna. Samtök sem nefna sig „The Humane Society of the United States" er einnig á ferðinni og hengja upp vegg- spjöld og skilti um öll Banda ríkin, þar sem þeim er sagt að skammast sín, sem ganga í skinnfatnaði. Formælandi þessara sam- taka er hollensk fyrirsæta, Jolanda Boot, sem orðin er fræg fyrir það að hafna til- boðum um háar fjárhæðir fyr- ir það að sýna sig ( loöpels- um. Það er yfirleitt þekkt fólk úr heimi sjónvarps og kvik- mynda, svo og fyrirsætur, listafólk og nafntogaðir menn í heimi vísinda og við- skipta, sem eru í forsvari fyrir samtökum af þessu tagi. Þau telja sig þegar vera farin að ná árangri eftir tólf ára bar- áttu. ÓBREYTT SALA ENNÞÁ Sala á skinnum stóð í stað ( Bandaríkjunum áriö 1987 frá árinu 1986, en þá voru seld skinn fyrir sem nemur 86 milljörðum íslenskra króna. Kannski svo fari að frægt og ríkt fólk vestanhafs neiti næst að kaupa íslenskar af- urðir eða nota íslenska ferða- þjónustu nema hætt verði að flá minka og refi hér á landi. En hafa þessar fyrstu aö- gerðir haft áhrif? Sölutölur frá þvi ( desember benda til þess að aðgerðir hópanna hafi enn ekki haft nein veru- leg áhrif, enn sem komiö er að minnsta kosti, þvi sala á pelsum virðist hafa aukist í desember frá því fyrir ári, um þetta frá 10 af hundraði upp í 25%. Og þá er átt við brúttó- sölu, sem hefur aukist, þrátt fyrir verðlækkun á minka- pelsum. ÓTTAST FREKARI AÐGERÐIR í heildina virðist sala frá framleiðendum til verslana hafa verið óbreytt frá því fyrir ári, samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins American Fur Industry Inc. Feldskerar hafa þó haft hljótt um sig og aug- lýst minna nú en áður, til að vekja síður athygli háværra hópa, sem hafa hópast að þeim verslunum, sem um- svifamestar hafa verið í skinnasölu í mörgum borgum Bandaríkjanna. En feldskerar eru samt sem áður áhyggjufullir, þótt jólasalan hafi gengið að ósk- um. Samkvæmt upplýsingum Upplýsingastofnunar skinna- iðnaðarins bandaríska, þá berast á hverjum degi sím- hringingar frá andstæðingum þessarar iðngreinar og menn óttast nýjar og harkalegri að- gerðir síðar í vetur. SKATTLAGNING ANNARRA TEKNA EN LAUNATEKNA AÐRAR TEKJUR EN LAUNATEKJUR VERÐA SKATTLAGÐAR MEÐ VERÐBÓTUM VÐ ÁLAGNINGU Skattlagning annarra tekna en launatekna sem einstaklingar höfðu á árinu 1988 fer fram við álagningu opinberra gjalda á miðju ári 1989. Hér er um að ræða söluhagnað, hreinar tekjur af at- vinnurekstri og sjálfstæðri starfsemi, leigutekjur, tekjur utan stað- greiðslu skv. 2. gr. reglug. nr. 591/1987, o.fl. Álagðir skattar á aðrar tekjur ársins 1988 en launatekjur koma til innheimtu haustið 1989 að viðbættum verðbótum. Verð- bætur eru reiknaðar í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu frá 1. júlí 1988 til 1. júlí 1989. HÆGT ER AÐ KOMAST HJÁ VERÐBÓTUM VÐ ÁLAGNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ GERA SKIL FYRIR 31. JANÚAR 1989 Samkvæmt 38. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda má komast hjá greiðslu verðbóta á álagða skatta af öðrum tekjum ársins 1988 en launatekjum með því að greiða eigi síðar en 31. janúar 1989 fjárhæð sem ætla má að samsvari sköttum af tekjum þessum. Greiðslu skal inna af hendi hjá gjaldheimtum og innheimtu- mönnum ríkissjóðs. Henni skal fylgja útfyllt eyðublað, “Skilagrein vegna 38. greinar", merkt RSK 5.22. Eyðublað þetta fæst hjá skattstjórum, gjaldheimtum, inn- heimtumönnum ríkissjóðs og ríkisskattstjóra. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.