Alþýðublaðið - 20.01.1989, Side 6

Alþýðublaðið - 20.01.1989, Side 6
6 Föstudagur 20. janúar1989 SMAFRETTIR Ráðstefna um tónlistar- fræðslu Laugardaginn 21. janúar næstkomandi gengst menntamálaráðuneyti fyrir ráðstefnu um tónlistar- fræðslu sem haldin verður að Borgartúni 6, 4. hæð og hefst kl. 10.00 með ávarpi mennta- málaráðherra. Á dagksrá ráð- stetnunnar eru tramsöguer- indi um listuppeldi, um stöðu tónmenntar- og tónlistar- fræðslu í skólum landsins og kynnt verður samþætt starf í tónlistar- og grunnskóla. Nokkrir kennarar svara spurn- ingunni: Hvernig væri tónlist- aruppeldi á íslandi best fyrir komið? Að framsöguerindum loknum verða pallborðsum- ræður. Tilgangur ráðstefnunnar er að efna til skoöanaskipta um stöðu og framtíðarhorfur á sviði tónlistarfræðslu i land- inu. Þátttöku skal tilkynna í síma 687840 fyrir 18. janúar. Þátttökugjald er kr. 1000. Gráðuslípivél til Iðnskólans Nýlega afhenti ístækni Iðnskólanum í Reykjavík að gjöf gráðuslípivél af gerðinni RSA RASAMAX-ST sem er af fullkomnustu gerð. Vélin hreinsar gráður af klipptum málmplötum. Gráðuslípivélin spararvinnu, minnkar slysahættu og bætir frágang við smiði og suðu einkum á ryðfríu stáli. Með þessari gjöf til Iðn- skólans hyggst Istækni stuðla að eflingu málmiðnað- ar í landinu. Skólinn þakkaði þessa veg- legu gjöf og fagnaði því að fá tækifæ'ri til að taka þátt í því að nýta þessa tækni sem er nýjung hér á landi. □ 1 2 3 4 5 □ V 6 n 7 e 9 fTo □ 11 □ 12 13 □ □ Lárétt: 1 hljóðfæri, 5 toga, 6 klampi, 7 samstæðir, 8 hópur, 10 skóli, 11 álasi, 12 gubbar, 13 skrafhreifin. Lóðrétt: 1 megnir, 2 ill, 3 eins, 4 smáir, 5 sefur, 7 ráin, 9 slæmi, 12 pípa. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 furða, 5 feta, 6 æra, 7 kg, 8 linnir, 10 il, 11 æsa, 12 æö- ur, 13 notar. Lóðrétt: 1 feril, 2 utan, 3 Ra, 4 angrar, 5 fælinn, 7 kisur, 9 næöa, 12 æt. • Gengið Gengisskráning nr. 13 — 19. jan. 1989 Kaup Sala Bandaríkjadollar 49,950 50,070 Sterlingspund 87,727 87,938 Kanadadollar 41,904 42,005 Dönsk króna 6,8968 6,9134 Norsk króna 7,3885 7,4063 Sænsk króna 7,8723 7,8913 Finnskt mark 11,5974 11,6253 Franskur franki 7,8384 7,8572 Belgiskur franki 1,2780 1,2811 Svissn. franki 31,4606 31,5362 Holl. gyllini 23,7005 23,7574 Vesturþýskt mark 26,7470 26,8112 ítölsk lira 0,03651 0,03660 Austurr. sch. 3,8082 3,8173 Portúg. escudo 0,3259 0,3267 Spánskur peseti 0,4274 0,4284 Japanskt yen 0,38661 0,38754 írskt pund 71,571 71,743 SDR 65,4150 65,5722 ECU ■ Evrópumynt 55,8016 55,9357 * Ljósvakapunlttar • RUV 20.35 í askana látiö. Þáttur um Islendinga til forna. í dagskránkynningu er ekki tilgreint hvort þátturinn sé úr smiöju Baldurs Her- mannssonar. Áhorfendur ættu þó að vera viö öllu búnir. 22.30 Woody Allen-Mr. Manhattan. Bandarískur viðtalsþáttur þar sem Hellmuth Karasekræðir við gamanleikarana og kvik- myndagerðarmanninn Woody Allen. • Rás 1 21.00 Þorravaka á bónda- dag. Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur segir frá þorrablótum fyrr á tið og kynnir söng Kórs Kennara- háskóla íslands sem syng- ur gamla þorrablóta- söngva. Stjórnandi er Jón Karl Einarsson. • Rés 2 18.03 Þjóðarsálin. Nöldur- seggirlátagamminn geysa. Stefán Jón Hafstein tekur endalaust við. • RÓí 17.00 í hreinskilni sagt. Úr heilabúi Péturs Guðjóns- sonar. Eldviðvörunarkerfi á Vífilsstaðaspítala Innkaupastofnun ríkisinsf.h. Ríkisspítalaóskareftir tilboðum í örtölvustýrt eldviðvörunarkerfi og upp- setningu þess fyrir Vífilsstaðaspítala. Stærð: Stjórnstöð: 200 skynjarar, stækkanleg í 400 skynj- ara. Reyk- og hitaskynjarar: 140 stk. Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, á kr. 2.000,- Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 10. febrúar 1989 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 e LANDSVIRKJUN Samkeppni um gerð útilistaverks við stjórnstöð Landsvirkjunar Landsvirkjun býður til samkeppni um gerð útilista- verks við stjórnstöð Landsvirkjunar, Bústaðavegi 7, Reykjavík. Allir islenskir listamenn hafa heimild til þátttöku. Heildarverðlaunaupphæð er allt að kr. 500.000,- Þar af verða 1. verðlaun ekki lægri en kr. 300.000,- í dómnefnd eru: Dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkj- unar, Guðmundur Kr. Kristinsson, arkitekt, Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, Halldór B. Runólfsson, listfræðingur og Þór Vigfússon, mynd- höggvari. Keppnisgögn verða afhent af trúnaðarmönnum dóm- nefndar, Jóhönnu S. Einarsdóttur, framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra myndlistarmanna, Ás- mundarsal, Freyjugötu 41, Reykjavík, alla virka daga kl. 12.00-15.00 og Ólafi Jenssyni, framkvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, frá og með mánudeginum 23. janúar 1989. Skila- trygging er kl. 1.000,- Skila skal tillögum til annars hvors trúnaðarmann- anna fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 21. mars 1989. Reykjavík, 20. janúar 1989 Landsvirkjun. Stjórnarráð íslands Nýtt símanúmer Frá mánudeginum 23. janúar 1989 hefurStjórnarráó íslands símanúmerið 60 90 00 KRATAKOMPAN Skagakratar Bæjarmálafundur mánudaginn 23. jan. kl. 20.30 í Röst. Fundarefni. Gerð fjárhagsáætlun. Við eigum von á Eiði í heimsókn. Flokksstjórnarfundur Fundur í flokksstjórn Alþýðuflokksins verður hald- inn mánudaginn 23. jan. 1989 kl. 17.00 í Iðnó v/Vonar- stræti. Dagskrá: 1. Stjórnmálaástandið. 2. Kosning þinglóðs. 3. Skipun milliþinganefndar um fiskveiðistofn. 4. Önnur mál. Alþýðuflokkurinn. Leshringur um Borgarmál Á fundinum laugardaginn 21. jan. mun Snorri Guðmundsson hafa framsögu um íþrótta- og tóm- stundamál. Fundurinn hefst kl. 10.30. Halló! — Halló! Fundur verður næstkomandi mánudag 23. jan. kl. 20.30 hjá FUJ Reykjavík að Hverfisgötu 8-10. Stefán Friðfinnsson aðstoðarmaður Jóns Baldvins í tveimur síðustu ráðuneytum svarar fyrirspurnum. Allir velkomnir. Stjórnin. FUJ Reykjavík stendur nú á næstunni fyrir námskeiði I framsögn. Leiðbeinandi verður Gunnar Eyjólfsson skátahöfð- ingi og leikari. Sjá nánar auglýst síðar. Stjórnin. Borgarmálafélag jafnaðarmanna Áríðandi fundur um fjárhagsáætlun borgarinnar ofl. kl. 20.30 þriðjudaginn 24. jan. í Félagsmiðstöðinni, Hverfisgötu 8-10. Allir velkomnir.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.