Alþýðublaðið - 20.01.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 2CL janúar 1989
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Arnadóttir
„Syngdu söng þinn fyrir
heiminn — og þú munt
breyta honum, svo allt hið
illa veröi að engu...“.
Poppsöngvarinn Michael
Jackson, er eitt af viðundrum
níunda áratugarins.
Nú leikur hann aðalhlut-
verk í kvikmynd, sem af
mörgum er talin stórmerkileg
og ber nafnið „Moonwalker“.
Hún er sérkennileg blanda af
raunveruleika og óraunveru-
leika eins og reyndar Michael
Jackson er sjálfur í hugum
milljóna aðdáenda.
Hvar eru takmörkin? Hvað
eru barnalegir draumar Jack-
son og hvað er vel úthugsuð
og skipulögð ímynd hans?
Til að skapa þetta gráa
svæði milli svífandi óraun-
veruleika og barnaskapar
annars vegar og byrsts veru-
leika hinsvegar, hafa fram-
leiðendur „Moonwalker",
skapað kvikmyndaverk, sem
hefur verið kallað tæknilegt
meistarastykki.
Heimur Michael Jackson
líkist barnaleik, þar sem
bangsar, sirkusapar og kynja-
verur virðast vera búnar til úr
mótunarleir, en eru raunveru-
lega allt annað en leirmyndir.
„Mooowalker", er gerð í
þessum „Jacksonska" stíl,
og I tónlistarstríði sínu gegn
hinu illa í heiminum, notar
Jackson allskonar töfrabrögð,
sem hafa ekki sést áður á
kvikmyndatjaldi.
Meðal þeirra, sem unnu að
sögunni um Michael i Ævin-
týralandi er Oscars-verð-
launahafinn Rick Baker.
Hann hefur skapað þvílík
töfrabrögð á hvita tjaldinu, að
Jackson meðal annars, breyt-
ist fyrir augum áhorfenda úr
manneskju í vélmenni. Gífur-
legur fjöldi vinnustunda fór í
þessa kvikmynd en þeir sem
unnu að kvikmyndinni út-
skýra þennan langa tima,
með því að segja að Michael
Jackson vilji aðeins það
besta, láti sér hreint ekki
nægja það næstbesta. Þeir
segja hann vera miklu
ákveðnari en menn hafa hald-
ið.
Rokkstjörnur eiga aö vera
klæddar furðufötum — það
tilheyrir. Þær eiga einnig að
haga sér sérvitringslega, og
flestar þeirra verða að sætta
sig viö að vera einskonar
kyntákn í heimintjm.
Michadel Jackson er öfga-
fullur á öllum sviðum — sem
rokkstjarna meðal rokk-
stjarna.
Klæðnaður hans er þeirrar
gerðar, aö áhorfendur undr-
ast að hann skuli geta hreyft
sig, og „stælar“ hans nálgast
það óhugnanlega.
KYNTÁKN?
Kyntákn er Michael Jack-
son ekki — nema fyrir þá
sem eru í hópi þeirra, sem
laðast kynferðislega að börn-
um. Hann virðist ætla að vera
í útliti sem barn að eilífu,
hefur þó breyst mikið frá ári
til árs, vegna þess að hann er
sí og æ að láta fara fram aö-
gerðir á nefi sínu, kinnum,
augnaumbúnaði og yfir höf-
uð öllu — sem mögulegt er
að breyta.
Þegar Jackson sveigir sig í
mjöðmunum og leggur jafn-
vel hendina á nafnlausan
stað milli fóta sinna, virðist
hann einkennilega kynlaus
og barnalegur og kannski er
það einmitt það sem hann
vill.
ILLGJÖRN PRESSA
Meðal þess illa í heimin-
um, er fjölmiðlaheimurinn,
sem gegnum tímans rás, hef-
ur sagt frá hinum furðuleg-
ustu sögum um líf Jackson.
Eins og það, að hann ætlaði
að kvænast Brooke Shields
(kvikmyndaleikkonunni) og
frá öllum andlitslyftingunum
o.s.frv.
í „Moonwalker", hæðist
Michael Jackson að sinni
eigin ímynd — en byggir
hana svo upp einu sinni enn.
í kvikmyndinni berst hann
sinu eigin „stjörnustriði“
gegn hinni miskunnarlausu
veröld hinna fullorðnu. Mönn-
um finnst það ótrúlegt, en
Michael er orðinn þrítugur!
LEIKSKÓLASÖNGVARI
' Michael Jackson fæddist
árið 1958 og stóð í fyrsta
sinn fyrir framan áhorfendur
og söng árið 1963 — í leik-
skólanum í Indiana. Þar
skemmti hann hinum börnun-
um með lögum eins og
„Climb Every Mountain".
Ári seinna var söngkvint-
ettinn „The Jackson Five“,
komin á laggirnar og Michael
og fjórir bræður hans fóru að
vinna sér inn peninga fyrir
söng sinn og tónlist.
Fram til ársins 1968 var
fjölskyldan á sífelldum ferða-
lögum, sungu í litlum hljóm-
leikasölum vitt og breitt um
Bandaríkin. Áriö 1968 unnu
„Jackson Five“, söngkeppni
áhugamanna í hinu fræga
„Apollo Theatre" í Harlem og
þá fóru hjólin heldur betur að
snúast!
Michael var 11 ára þegar
hann varð frægur og vinsæll
sem söngvari fyrir lög eins
og „ABC“, „The love you
save“ o.s.frv.
Frá árinu 1979, hefur hann
gert hverja gullplötuna á fæt-
ur annarri, samiö og framleitt
metsölulög eins og Diana
Ross lagið „Muscles" samið
tónlist fyrir kvikmyndir svo
sem „E.T.“, sungið með Paul
McCartney „The girl is mine“.
Þeir eru trúlega fáir, sem
hafa komið inn á diskótek, án
þess að heyra Jackson lögin
„Billie Jean“ „Beat lt“ eða
„Human Nature".
Allur heimurinn söng lagið
„We are The World", sem
Jackson samdi ásamt Lionel
Richie.
Michael Jackson hefur
samið tónlist fyrir heiminn,
heim, sem hann virðist eiga
erfitt með að lifa í.
í „Moonwalker" likist hann
litlum dreng, sem hefur tap-
að bangsanum sínum í
grimmri veröld. Litlum dreng
sem hefur yfirfullt af tækni-
útbúnaði — og yfirfullt af
hæfileikum.
(Det fri Aktuelt.)
í „Moon-
walker## hæð-
ist Michael
Jackson að
sinni eigin
ímynd — en
byggir hana
upp afftur.