Alþýðublaðið - 04.03.1989, Blaðsíða 3
Laugaidagur 4. mars 1989
3
FRÉTTASKÝRING
Starfshópur um starfsmenntun
VERKAFOLK STENDUR
HÖLLUM FÆTI
Starfshópur á vegum félagsmálaráð-
herra leggur fil að löggjöf verði seft um
skipulagoa starfsmenntun þannig að
launafólk geti fylgt eftir tæknivæðing-
unni i atvinnulifinu, þannig að ekki taki
við atvinnuleysi og einangrun. Fyrir-
sjáanlegt er að að öllu óbrey ttu mun ófag-
lært verkafólk sitja eftir ef það nær ekíci
að tileinka sér nyjungarnar. Fulltrúi at-
vinnurekenda telur þá ganga út frá starf s-
menntun til að auka hæfni einstaklinga
innan ákveðinna fyrirtækja, að almenna
skólakerfið verði að sjá um endurmennt-
un til nýrra starfa og að of mikil miðstýr-
ing dragi úr árangrinum.
Sérstakur starfshópur á
vegum félagsmálaráðu-
neytisins hefur komist að
þeirri niðurstöðu að setja
skuli sérstaka löggjöf um
starfsmenntun í atvinnulíf-
inu undir yfirumsjóna
ráðuneytisins. Starfshóp-
urinn hefur unnið í rúmt ár
að þvi að setja fram val-
kosti um starfsmenntun í
atvinnulífinu. Meðal
þeirra sjónarmiða sem
koma fram hjá starfshópn-
um eru að starfsmenntun
sé ein forsenda atvinnuör-
yggis og þess að hagnýta
megi breytingar í stað þess
að þær valdi atvinnuleysi
og einangrun. Að með
skipulegri starfsmenntun
geti launafólk tileinkað sér
nýja tækni og verið fært
um að mæta örri þróun í
atvinnulífinu.
Starfshópur þessi var
skipaður í janúar á síðasta
ári og mynda hann þau:
Magnús H. Berg's, þáver-
andi starfsmaður VSI, Þrá-
inn Hallgrímsson, þá
starfsmaður MFA, nú
skrifstofustjóri ASÍ, Þur-
íður Magnúsdóttir for-
stöðumaður Fræðslumið-
stöðvar iðnaðarins og
Gylfi Kristinsson deildar-
stjóri í félagsmálaráðu-
neytinu, formaður hóps-
ins. Hópurinn leitaði álits
hjá 35 aðilum er fjalla að
einhverju leyti um starfs-
menntun í atvinnulífinu.
20°/o i starfstengda
símenntun
Starfsmenntun í þessum
skilningi er ekki síst hugs-
uð sem leið til þess að lág-
launahópar samfélagsins
geti haldið í við hina öru
tækniþróun og tileinkað
sér hana, þannig að ekki
taki við atvinnuleysi og
kaupmáttarhrun. Um er að
ræða gamalt baráttumál
Alþýðuflokksins á stjórn-
málavettvanginum og ekki
síst talaði Jóhanna Sigurð-
ardóttir fyrir þessum mál-
um sem óbreyttur þing-
maður og flutti þingmál.
Helstu samkeppnis- og
viðskiptalönd okkar leggja
stóraukna áherslu á starfs-
tengda menntun, verja til
þess miklu fjármagni og
hafa sérstaka löggjöf um
þessi mál. í Danmörku
hafði sérstakur starfs-
menntunarsjóður um 7
milljarða króna til ráðstöf-
unar 1986. Hugsunin er
skýr: Það fjármagn sem
varið er i starfsmenntun
skilar sér margfalt aftur í
aukinni færni starfsfólks
og þar með aukinni fram-
leiðni.
Hér á landi hefur fram-
boð í starfsmenntunarmál-
um aukist talsvert á undan-
förnum árum, t.d. er talið
að skólaárið 1986-1987
hafi 25-30 þúsund manns
eða vel yfir 20% fólks á
vinnumarkaöi sótt „starfs-
tengda símenntun". Talið
er einnig að námsskeiðs-
stundir á árinu 1987 hafi
verið tæplega 600 þúsund
og heildarkostnaður þjóð-
félagsins við þessa fræðslu
er metinn á tæplega 500
milljónir króna.
Um er að ræða nám-
skeið að frumkvæði sam-
taka vinnumarkaðarins,
námskeið sem fyrirtæki og
stofnanir halda sjálf fyrir
starfsmenn sína, námskeið
á frjálsum markaði haldin
af einkaaðilum og fræðslu-
stofnunum og starfsskóla
og skyldunám einstakra
stétta.
Verkafólk stendur
höllum faeti
Þrátt fyrir þetta hefur
skort á allt heildarskipulag
og samræmingu. Er ástæða
til að ætla að það sé eink-
um ófaglært verkafólk sem
stendur höllum fæti á
vinnumarkaðinum, en það
er að mati starfshópsins
einmitt störf ófaglærðra
sem eru í hætti vegna auk-
innar tæknivæðingar í at-
vinnulífinu. Störfum ófag-
lærðra mun að öllum lík-
indum fækka verulega en
ýmsum störfum er krefjast
sérþekkingar og sérþjálf-
unar fjölgar trúlega að
sama skapi.
Ýmislegt takmarkar
möguleika starfsfólks til
að öðlast sérhæfða endur-
menntun. Skólakerfið hef-
ur ekki verið í stakk búið til
að mæta þessum þörfum.
Langur vinnudagur og
framfærslubyrði leiða til
þess að þörf er á tveimur
fyrirvinnum og lítill tími
aflögu til hluta sem leiða af
sér tekjumissi. Of lítið
framboð er á námsskeið-
um og þau eru mörg hver
of dýr. Yfirleitt vantar alla
hvatningu í þessa veru.
Engin skipulögð eða sam-
ræmd stefna er í endur-
menntunarmálum og
starfsfólki reynist erfitt að
skipuleggja slíkt nám á eig-
in spýtur. Og fyrirtækin
sjálf hafa of lítið gert að
því að undirbúa starfsfólk
undir tæknibreytingar með
því að gefa því kost á
starfs- eða endurmenntun.
Starfshópurinn lagði til
að löggjöf yrði sett með til-
tekin markmið í huga. Lagt
er til að fyrirliggjandi
starfsemi verði efld, að rík-
ið gangist við ábyrgð sinni
og marki opinbera stefnu
um stuðning, eftirlit og
tengingu við menntakerfið
að öðru leyti,’að í löggjöf
verði kveðið á um rétt ein-
staklinga í þessum efnum.
Náms- og kennslugögn
verði samnýtt og að gerð
verði langtímaáætlun um
starfsfræðslu í fiskvinnslu.
Fjármögnun átaks á
þessu sviði hlýtur auðvitað
að skipta öllu máli. Fjár-
magn hefur vissulega stór-
aukist til þessara hluta á
undanförnum árum og er
áætlað að kostnaður vegna
starfsmenntunar á árinu
1987 hafi numið um hálf-
um milljarði króna, en
áætlað er að heildarkostn-
aður vegna starfsmenntun-
ar muni aukast um 300
milljónir á ári fram til árs-
ins 2010. Líklegt er að ein-
hver tekjuöflun verði að
koma hér á móti.
Skilyrði fulltrúa_____
atvinnurekenda
Meðal leiða sem starfs-
hópurinn sér er, að ákveðið
starfsmenntagjald verði
inni í verði á tiltekinni vöru
eða þjónustu sem renni í
starfsmenntunarsjóð, að
aðilar vinnumarkaðarins
skattleggi sig til að standa
undir kostnaðinum við
starfsmenntun, að fyrir-
tækjum verði veittar
skattaívilnanir gegn slíkum
útgjöldum og stofnun
starfsmenntunarsjóðs sem
fjármagnaður yrði að
þriðjungi hluta af ríkis-
valdinu á móti framlögum
atvinnurekenda og launa-
fólks.
Starfshópurinn skilaði
skýrslu eftir viðræður við
35 aðila sem fyrr segir.
Flestir talsmenn þessara
samtaka höfðu ómótaðar
hugmyndir um skipulag
starfsmenntunar hér á
landi. Enn fremur er á það
að benda að fulltrúi vinnu-
veitenda í hópnum, Magn-
ús H. Bergs, var ósammála
öðrum í hópnum í ýmsum
atriðum. Varar hann við
hvers kyns miðstýringu í
þessum efnum, hún dragi
úr árangri og telur hann
vart þörf á löggjöf vegna
þessa málefnis. Segir hann
ísland hafa fylgt þróuninni
í þessum málum, án form-
legrar stefnumótunar eða
miðstýringar opinberra að-
ila og að með starfsmennt-
un sé einkum stefnt að
„aukinni hæfni viðkom-
andi einstaklings til að
vinna tiltekið starf í
ákveðnu fyrirtæki“. hvað
varðar aukna menntun
starfsfólks til nýrra starfa
hlýtur „hið almenna skóla-
kerfi að verða að svara
þeim þörfum“, þarfir þessa
fólks verði ekki leystar af
atvinnulífinu. Með öðrum
orðum: atvinnurekendur
vilja stuðla að hreyfanleika
fólks innan sinna fyrir-
tækja, en ekki að fólkið
komist í ný störf utan
þeirra.
Jóhanna Sigurðardóttir á þingi norðurlandaráðs í Stokkhólmi
VINNUVERND VERÐI EKKI LAKARI
EN Á HINUM NORÐURLÖNDUNUM
EB-löndin gera minni kröfur á vinnuverndarsviði
Jóhanna Siguröardóttir félagsmálaráöherra
sagði víð lok Norðurlandaráðsþings I gær, að
íslendingar stefndu eindregið að því að vinnu-
vernd, aðbúnaður og hollustuhættir verði ekki
lakari en á hinum Norðurlöndunum. Jafnframt
sagði hún augljóst, að önnur lönd, eins og t.d.
EB-löndin, gerðu minni kröfur á vinnuverndar-
sviðinu.
Alþýðublaðið birtir hér úrdrátt úr ræðu
Jóhönnu Sigurðardóttur:
Norræni vinnumarkað-
urinn er einn af hornstein-
um norrænnar samvinnu.
Island gerðist aðili að sam-
eiginlegum norrænum
vinnumarkaði árið 1982 og
hefur mikill fjöldi íslend-
inga notfært sér að búa og
starfa í nágrannalöndun-
um.
íbúar frá hinum Norð-
urlöndunum hafa einnig í
æ ríkara mæli sótt til starfa
á íslandi. Atvinnuástand á
íslandi hefur til skamms
tíma verið það besta á -
Norðurlöndum og atvinnu-
leysi nánast ekkert.
Aðgerðir gegn________
atvinnuleysi
Gjörbreytt ástand ríkir
nú á vinnumarkaðinum
miðað við undanfarin ár.
Nú er merkjanlegt at-
vinnuleysi sem ekki hefur
verið lengi. Ríkisstjórnin
hefur orðið að grípa til
margháttaðra aðgerða til
að hamla gegn frekara at-
vinnuleysi. Orsakir vand-
ans eru margþættar og má
stofa sveitarfélaga. Er já-
kvætt að horfa til reynslu
hinna Norðurlandanna af
starfi slíkra stofnana.
Jóhanna Sigurðardóttir
þar nefna að sjávarafli hef-
ur dregist saman og sam-
tímis hefur orðið verðfall á
sjávarafurðum á helstu
mörkuðum íslendinga.
Hin breytta staða krefst
aðgerða stjórnvalda, m.a.
er ljóst að efla verður starf-
semi vinnumiðlunarskrif-
Vinnuvernd til______
samræmis við________
Norðurlönd
Vinnuverndarmál eru
nátengd vinnumarkaðs-
málum og þar höfum við
íslendingar notið góðs af
hinu mikla brautryðjenda-
starfi sem unnið hefur ver-
ið á hinum Norðurlöndun-
um. Við stefnum eindregið
að því að vinnuvernd og
aðbúnaður og hollustu-
hættir verði ekki lakari á
íslandi en á hinum Norður-
löndunum.
Norræni samningurinn
um vinnuvernd sem liggur
fyrir þessu þingi undir-
strikar enn frekari sam-
vinnu Norðurlandanna á
sviði vinnuverndar. Hann
er til þess fallinn að efla
vinnuvernd og með sam-
vinnu landanna á þessu
sviði erum við betur í stakk
búin til að stuðla að þróun
vinnuverndarmála í heim-
inum. Samningurinn mun
stuðla að samræmingu og
hagkvæmni í prófunum og
rannsóknum. Samstarfs-
áætlanir sem byggja á þess-
um samningi eiga síðan að
stuðla að eflingu starfs að
vinnuverndarmálum jafnt
í hverju landi fyrir sig sem
og á norrænum vettvangi.
Það hefur verið mjög já-
kvætt í sambandi við „und-
irbúningsstarfið hversu
sammála ríkisstjórnir hafa
verið um að ná góðum
árangri í vinnuverndarmál-
um.
Frumkvæði Svia________
Ég vil hér færa fram sér-
stakar þakkir til sænska
vinnumálaráðherrans Ing-
ela Thaláen fyrir frum-
kvæði og leiðandi hlutverk
í að gera miklar kröfur í
vinnuverndarmálum og að
við höfum fengið vinnu-
verndarsamning, sem
byggir á miklum kröfum á
þessu sviði. Þess vegna er
samningurinn svo mikil-
vægur, þar sem önnur
lönd, eins og t.d. EB-lönd-
in gera minni kröfur á
vinnuverndarsviði. Hér er
staðfesting þess að Norð-
urlönd gera meiri kröfur í
vinnuvernd en önnur lönd.
Rétturinn til vinnu og
góðs aðbúnaðar á vinnu-
stað eru grundvallarrétt-
indi hvers einstaklings. Það
er von mín að Norðurlönd-
in beri gæfu til að eyða at-
vinnuleysi og efla enn frek-
ar aðbúnað, hollustuhætti
og öryggi á vinnustöðum.