Alþýðublaðið - 04.03.1989, Blaðsíða 7
Laugardagur 4. mars 1989
7
ÚTLÖND
Milljarðasvindl
Talið er, að um fimmti hluti þeirra verðmæta, sem Ewr-
ópubandalagið hefur yfir að ráða — hverfi ofan í vasa al-
þjóðlegra glæpasamtaka og óprúttinna manna. þeir nýta
sér hvað löggjöf bandalagsins er götótt, og sinnuleysi rik-
isstjórna aðildarrikjanna, við að gæta aðhalds í eyðslu
fjármuna bandalagsins. Talið er að verðmætin sem hverfa,
séu notuð í verslunarviðskiptum með vopn og eiturlyf.
Hundruö milljarða
íslenskra króna,
hverfa á ári hverju úr
peningahirslum
Evrópubandalagsins
- ofan í vasa
útsmoginna svindlara.
Interpol ætlar nú að
fara ofan í saumana
á þessu.
Nú nýverið bauð Interpol (Al-
þjóðalögreglan) samstarf við þá
sem eiga að fylgjast með fjármál-
um bandalagsins. Þetta gerðist
eftir að flett hafði verið ofan af
þessu svindli á þingi Evrópu-
bandalagsins.
R.E. Kendal aðalritari, sagði
við þessar umræður, að samvinna
við Interpol yrði að fara frant,
með virðingu fyrir réttindum
hvers ríkis. Formaður rannsókn-
arnefndarinnar, Jacques Delors,
sagði ríkisstjórnir aðildarríkj-
anna ekki vera nægilega sam-
vinnuþýðar, þegar um væri að
ræða mál sem þetta „svindl á
heimsmælikvarða“. Það væri
engu líkara en þær vildu fela
ósómann.
Ef ekki yrði barist gegn þessu á
öflugri hátt, sagði Delors að setja
ætti saman, sérstakar lögreglu-
deildir á vegum bandalagsins, sem
hefði leyfi til að fara yfir landa-
mæri og ákæra borgara í ríki, sem
væri aðili að Evrópubandalaginu,
án þess að stjórnvöld í þessu sama
ríki, væru að skipta sér að aðgerð-
unum.
Rannsóknarnefndin hefur
stofnað deild, sérfræðjnga í fjár-
svindli, „því þettaerekki verk fyr-
ir frístunda-löggur“ eins og Del-
fors orðaði það.
Stórsvindl
Menn eru hér ekki að ræða um
smábóndann, sem reynir að verða
sér úti um eina til þrjár plöntur af
olífutrám ókeypis. Þessir stór-
svindlarar eru skipulagðir alþjóð-
legir bófaflokkar — af Mafiu-
stærðargráðu.
Það er einmitt Mafían, sem tal-
in er eiga stærstan hlut að máli í
þessu svindli. í bók sinni, „Hin
heilaga kýr“, skrifar Richard
Cortrell, að í aðeins Napoli „varð
bræðralag (Mafian) borgarinnar,
sér úti um eina milljón sterlings-
punda, með því að falsa pappíra
um tómata, sem átti síðan að taka
af markaðinum og eyðileggja, til
að halda verðinu háu“. Cotrell
segir einnig, að Mafian græði
milljarða á olífuökrum sem séu
ekki tii, með styrkjum, vegna
olífuolíu sem auðvitað er heldur
ekki til!
Fleiri leiðir eru til þess að
svindla, og ítalir eru langt frá því
að vera þeir einu, sem komið hafa
auga á möguleikana til að græða.
Stuðningur við útflutning, er ein
greinin, sem gefur góða mögu-
leika á svindli. Útflutningur á
Það er i birgðageymslum Evrópubandalagsins, sem m.a. virðist auövelt
að svindla ríflega í sambandi við aðstoð við landbúnað, án þess að yfir-
stjórn hafi nokkra yfirsýn yfir það sem gerist.
matvælum fær styrk, til þess að
jafna upp muninn á háa verðinu á
bandalagsmarkaðnum og lága
verðsins á frjálsu mörkuðunum
utan bandalagsins. Þá er um að
gera að flytja inn fyrsta flokks
nautakjöt frá Argentínu og kalla
það úrgangskjöt, síðan flytja
menn úrgangskjötið út, sent fínt
nautakjöt og fá í vasann útflutn-
ingsstyrk! Eitt dæmi um aðgæslu-
leysi er, þegar útflutningsaðili
flutti kjúklingaúrgangskjöt sem
nautakjöt og fékk 12 millj.
danskra króna fyrir frumkvæði
sitt!
Vandamálið virðist vera, að að-
ildarríki Evrópubandalagsins,
fari of mjúkum höndurn um
stjórn á útflutningi. Það sama
gildir um birgðastöðvarnar, þar
sem bandalagið geymir offrarn-
leiðsluna — hin svokölluðu vínút-
höf og smjörfjöll! Yfirsýn og
stjórn á þeim er allt frá þvi að vera
mjög máttlaus og engin. Sem
dæmi má nefna, að Bretland og
Frakkland láta viðkomandi
birgðastjóra og þá sem framleiða,
um að hafa yfirstjórn á gæðum og
rnagni birgðanna. Ef nú birgða-
stjóri og sá sem framleiðir vöruna
er einn og hinn sami, er t.d. mjög
auðvelt að safna birgðum af víni
sem hefur sömu gæði og edik,
sem úrgangsvín eða kaupa birgðir
á spottprísum.
„Menn geta ekki treyst opinber-
um yfirlýsingum um gæði og -
rnagn þessara framleiðsluvara . . .
sem settar eru í birgðageymslurn-
ar“, varð niðurstaða nefndar sem
rannsakaði þessi mál.
(Det fri Aktuelt.)
SMÁFRÉTTIR
Finnsk
bókakynning
Rithöfundurinn og mynd-
listarmaöurinn Rosa Liksom
veröur gestur á finnskri bóka-
kynningu, sem fer fram I
Norræna húsinu í dag laugar-
daginn 4. mars kl. 16.
Timo Karlsson sendikenn-
ari segir frá þv( markveröasta
I finnskri bókaútgáfu frá 1988
og Rosa Liksom les úr verk-
um sínum. Bókakynningin fer
fram á dönsku og Islensku.
Sama dag kl. 15 verður
opnuð sýning á teikningum
hennar I anddyri Norræna
hússins.
ímynd
víkingsins
A morgun, sunnudag 5. mars
kl. 17, flytur Christine Fell,
prófessor viö háskólann í
Nottingham fyrirlestur í
Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn, sem haldinn
er í tengslum viö Víkingasýn-
inguna sem nú stendur yfir í
Norræna húsinu og Þjóö-
minjasafninu, fjallar um
(mynd víkinga. Hann veröur
haldinn á ensku og heitir
„The Viking lmage“.
Christine Fell er prófessor
í fornenskum fræöum viö há-
skólann I Nottingham og for-
seti breska vlkingafélagsins.
Dýrin í Hálsa-
skógi komin
til Hveragerðis
Leikfélag Hverageröis
frumsýnir I dag, laugardaginn
4. mars hiö sígilda og geysi-
vinsæla barnaleikrit Dýrin I
Hálsaskógi, eftir Thorbjörn
Egner.
Sýnt veröur I nýrri stór-
glæsilegri aðstööu til leik-
sýninga I nýbyggingu Grunn-
skólans í Hverageröi, en Leik-
félagið hefur fengiö aðstööu
fyrir slna starfsemi þar.
Alls taka á milli 30-35
manns þátt í sýningunni þar
af fjöldi unglinga. 18 leikarar
fara með 20 hlutverk og
einnig eru notaöar leikbrúö-
ur.
Leikstjóri er Sigurgeir
Hilmar Friðþjófsson, söng-
stjórn, útsetningar og undir-
leik annast Anna Jórunn
Stefánsdóttir.
Sjálfan Mikka ref leikur
Hjörtur Már Benediktsson en
hinn söngelska og lífsglaða
Lilla klifurmús leikur Stein-
dór Gestsson.
Vatnslita-
myndir í Safni
Ásgríms
I Safni Ásgrlms Jónssonar
hefur verið opnuö sýning á
vatnslitamyndum Ásgrlms og
stendur hún til 28. mal. Á
sýningunni eru 27 myndir frá
ýmsum skeiðum á hinum
langa listferli Ásgríms, en
hann vann jöfnum höndum
meö vatnslitum og ollulitum
og er án efa fremsti vatnslita-
málari okkar. Elstu myndirnar
á sýningunni eru frá þvl I
byrjun aldar, en Ásgrlmur fór
að fást viö vatnsliti að ráði
áriö 1904.
Sýningin er opin þriöju-
daga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 13.30
til 16 I mars og aprll, en í maf
alla daga nema mánudaga á
sama tlma.
Verkstjórafélag
Reykjavíkur
70 ára
Verkstjórafélag Reykjavíkur
var 70 ára í gær, föstudaginn
3. mars.
Verkstjórafélagið var stofn-
aö 3. mars 1919 og hefur
starfað óslitið sem öflugt
stéttarfélag frá þeim tfma.
Starfrækir félagið nú skrif-
stofu I eigin húsnæöi aö
Skipholti 3, Reykjavík. Enn-
fremur á félagiö fjóra sumar-
bústaöi, tvo I Skorradal og
tvo I Borgarholti, Stokkseyr-
arhreppi.
Á fyrstu starfsárum félags-
ins var unniö höröum hönd-
um aö bættum aðbúnaði fé-
lagsmanna svo sem sam-
ræmdum matar- og kaffitím-
um og byggingu skýlis viö
Reykjavíkurhöfn til afnota fyr-
ir verkafólk og félagsmenn.
Verkstjórafélags Reykjavíkur.
Nú seinni árin er félags-
menn búa við allt aðrar og
betri aöstæður, er meira unn-
ið aö því aö félagsmenn haldi
þeim réttindum sem þeir
hafa þegar áunniö sér, og
mikil áhersla lögð á réttindi
þeirra til bóta úr Sjúkrasjóöi
Verkstjóra sem er geysilega
öflugur sjóöur.
Viö stofnun félagsins voru
félagar 27, en nú 70 árum
slöar eru þeir um 650.
Stjórn félagsins skipa nú:
Högni Jónsson verkstj. hjá
Mjólkursamsölunni, formað-
ur. Jörgen Már Berndsen
verkstj. hjá Slippfélaginu,
gjaldkeri. Höröur Már verkstj.
hjá Reykjavlkurborg, ritari.
Anna M. Jónsdóttir verkstj.
hjá Tinnu bf„ varaformaöur.
* Krossgátan
□ 1 2 3 r 4
5
6 □ 7
s 9
10 □ 11
□ 12 t
13 □
Lárétt: 1 mikið, 5 sníkjur, 6
kropp, 7 bardagi, 8 bátar, 10 til,
11 þjóta, 12 boröandi, 13 nem-
ur.
Lóðrétt: 1 fátæk, 2 stertur, 3
kall, 4 skelfur, 5 hæfur, 7 fjár-
munir, 9 hamagangur, 12 kind.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 smekk, 5 slök, 6 kór, 7
út, 8 orkaði, 10 Ra, 11 lin, 12
sinu, 13 asinn.
Lóðrétt: 1 slóra, 2 mörk, 3 ek, 4
kotinu, 5 skorpa, 7 úöinn, 9 al-
in, 12 Si.
• Gengií
Gengisskráning nr. 43 — 2 !. mars 1989
Kaup Sala
Bandarikjadollar 51,900 52,040
Slerlingspund 89,476 89,717
Kanadadollar- 43,342 43,459
Dónsk króna 7,2587 7,2783
Norsk króna 7,7135 7,7343
Sænsk króna' 8,2185 8,2407
Finnskt mark 12,0838 12,1164
Franskur franki 8,3060 8,3284
Belgiskur franki 1,3489 1,3526
Svissn. franki 33,0826 33,1719
Holl. gyllini 25,0452 25,1128
Vesturþýskt mark 28,2780 28,3543
ítölsk lira 0,03834 0,03844
Austurr. sch. 4,0187 4,0296
Portúg. escudo 0,3421 0,3430
Spánskur peseti 0,4514 0,4526
Japanskt yen 0,40531 0,40640
Irskt pund 75,320 75,523
SDR 68,3611 68,5455
Evrópumynt 58,6859 58,8442
IP Útboð
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í að
fjarlægja 500 m af gömlum stokk og byggja nýj-
an með tveimur 400 mm pípum.
Stokkurinn liggur frá Öskjuhlið að Miklatorfi,
og leggja 1400 m af dreifikerfi og heimæðum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Fri-
kirkjuvegi 3 Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudag-
inn 16. mars 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 28500