Alþýðublaðið - 08.03.1989, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 08.03.1989, Qupperneq 1
Minnihlutinn í borgarstiórn SAMEINING KEMUR STERKLEGA TIL GREINA Fleslir borgarfulltrúar minnihlutans sjá lítinn eða engan málefnalegan ágreining sem valdiA geti því að flokkarnir bjóði ekki fram saman við næstu borgarstjórnarkosningar. Málið er þó enn á viðræðu- stigi. Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðu- flokksins telur alla mögu- leika á sameiginlegu fram- boði til borgarstjórnar- kosninga næsta vor og tel- ur eðlilegt að boðinu verði fram einn sameiginlegur listi. Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins virðist meirihluti innan Alþýðu- flokks og Alþýðubanda- lags fylgjandi hugmyndum um sameiginlegt framboð. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsókn- arflokksins segir skiptar skoðanir innan síns flokks og fram hefur komið á öðr- um vettvangi, að meirihluti sé jafnvel innan Kvenna- lista gegn hugmyndinni. Ástæður fyrir því eru að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa Kvennalist- ans, að konur eru hræddar við að kvenpólitísk rödd þeirra drukkni og hins veg- ar það sem vegur sterkara: Andstaða þeirra við núver- andi ríkisstjórn og óttinn um að sameiginlegt fram- boð í borgarstjórn valdi þvi að Kvennalistinn verði Iát- in gjalda fyrir hugsanlegar óvinsældir ríkisstjórnar. Rætt er um hvort standa eigi að einum sameiginleg- um lista og hvernig velja skuli á hann. Sú hugmynd sem helst hefur verið rædd er, að hver flokkanna eigi tvo fulltrúa í 8 efstu sæt- um. Líklegast myndi borg- arstjóraefni verðapólitískt valinn og ætti sæti á fram- boðslistanum. Kristín Á. Ólafsdóttir og Bjarni P. Magnússon eru eindregið þeirrar skoðunar. Sjá nánar bls 3 Jón Sigurðsson um fríverslunar- málin: Forsenda efna- hagssamstarfs á jafnréttis- grundvelli Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra segir ís- lendinga verða að Ieggja áherslu á þýðingu þess að fá frjálsan aðgang að mörkuð- um í EFTA og EB fyrir mikil- vægustu útflutningsvörur, en til þess þurfi að stuðning annarra Norðurlanda. Jón segir að þetta hljóti að vera forsenda þess, að við getum tekið þátt í efnahagssam- starfi Norðurlanda á jafn- réttisgrundvelli. Sjá nánar „í miðri viku“ bls 4. Sparnaði hafnað í húsgagnakaupum Húsnœðisstofnun tók tilboðum í hús- gögn fyrir um 9,6 milljónir króna, en lœgstu tilboð hljóðuðu upp á 8 millj- ónir. Sókn 20 Sóknarkonur á atvinnuleysisbótum Húsnæðisstofnun ríkis- ins opnaði nýlega tilboð vegna kaupa á húsgögnum í nýtt húsnæði stofnunar- innar við Suðurlands- braut. Tilboðin sem tekin voru hljóða samkvæmt heimildum Alþýðublaðs- ins upp á um 9,6 milljónir króna, sem er nálægt kostnaðaráætlun stofnun- arinnar. Hins vegar bárust lægri tilboð, allt niður í 7,9 milljónir króna. Tilboð bárust annars vegar í skrifstofuhúsgögn- in í heild en hins vegar í stólana einvörðungu. Af Stjórnarfrumvörp Enn óvíst um meirihluta Lánsfjárlög og launavísi- tala virðast þau mál stjórnar- flokkanna sem mest spenna ríkir um að hafi meirihluta á Alþingi þessa dagana. Af samtölum sem Alþýðu- blaðið átti við stjórnarþing- menn í gær virðast líkur hins vegar góðar að meirihluti styðji frumvörpin um kaup- leigu og verðbréfasjóði. Stjórnarflokkarnir verða því að hafa hraðan á við að tryggja sér meirihluta, því rætt er um að þinglok verði 6. maí og páskafríið er eftir. heildartilboðunum buðu lægst Gamla Kompaníið með 7.901.800 krónur og 8.298.200 krónur (tvær af fjórum útfærslum), Penn- inn með 7.948.828 krónur, Kristján Siggeirsson með 8.299.000 krónur og Á.Guðmundsson með 8.318.340 krónur. Lang- hæsta tilboðið hljóðaði upp á 15.432.991 krónur, frá Eikinni. Nokkur tilboð bárust í stólana eingöngu. Lægstu tilboðin komu frá Biro, 2.038.030 krónur og 2.536.850 krónur og annað af tveimur tilboðum Form- ax hljóðaði upp á 3.078.720 krónur. Húsnæðisstofnun fór hins vegar þá leið að taka stólatilboði Stálhúsgagna, sem bauð upp á þýska Comforto stóla fyrir 4.121.040 krónur, en taka að öðru leyti tilboði Á. Guðmundssonar án stól- anna. Nú er verið að semja við Á.G. um verðið á hús- gögnunum án stólanna og er líklegt að umsamin upp- hæð verði nálægt 5,5 millj- ónum króna, en í tilboði Á.G. var gert ráð fyrir Biro stólum. Uppi stendur stofnunin með húsgagnakaup sem höggva nærri kostnaðar- áætlun, en á hinn bóginn var ákveðið að taka ekki tilboðum sem voru um það bil 1,5 milljón krónum lægri. Félagsfundur í Starfs- mannafélaginu Sókn tekur afstöðu til kröfugerðar á fimmtudagskvöld. Að sögn Þórunnar Sveinbjörnsdóttur formanns Sóknar eru rætt um samflot, en jafnframt er áhersla á ýmis sérmál. At- vinnuleysi hefur bitnað á Sóknarkonum og eru 20 þeirra á bótum að sögn Þór- unnar. Þetta er langmesta at- vinnuleysi sem Sóknarkonur hafa þurft að þola síðustu ár. Kröfur Sóknar hafa að undanförnu verið til um- fjöllunar í stjórn og trúnað- armannaráði. í megindrátt- um er fallist á samflot, en ennfremur er um að ræða sérmál sem snerta ákveðna vinnustaði öðrum fremur, svo sem spitalana og borgar- stofnanir. Meginkrafan er hins vegar sú sama og hjá mörgum öðrum, þ.e. að náð verði aftur kaupmætti sem var fyrir mftt ár í fyrra.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.