Alþýðublaðið - 14.03.1989, Qupperneq 5
Þriðjudagur 14. mars 1989
5
Menntun og endurmenntun
Umskiptin kalla á átak í mennt-
un og endurmenntun þeirra sem
starfa í iðnaðinum og er þegar farið
að vinna á þeim vígstöðvum.
Almennt má segja að þróunin
sé í átt til meiri fjölbreytni þar sem
tæknivæðing, vöruþróun og auk-
in áhersla á markaðsþáttinn fer
saman.
Stærsti óvissuþátturinn í vænt-
anlegri þróun er aukin menntun
landsmanna.
í mörgum nágrannalandanna
hafa menntamenn í ákveðnum
greinum ekki fengið vinnu og hef-
ur í vissum löndum verið um lang-
varandi atvinnuleysi að ræða og
jafnvel talað um ofmenntun þjóð-
anna. Samt sem áður hefur þörfin
fyrir menntun aukist gífurlega í
iðnvæddu löndunum og þá sér-
staklega millimenntun.
Hérlendis, hefur enn sem kom-
ið er, verið umframeftirspurn eftir
menntafólki en á þessu ári hafa
verið teikn á lofti um að sú staða
væri að breytast. Þó má vera ljóst
„Menntamönnum fjölgar stöðugt en samt sem áðúr hefur þörfin fyrir
menntun aukist gifurlega i iðnvæddu löndunum og þá sérstaklega iðn-
menntun,“ segir Óm D. Jónsson m.a. í grein sinni um tækniframfarir og
þjóðfélagsbreytingar.
EINBÝLISHÚS —
TIL SÖLU
Ríkissjóður leitareftirkauptilboðum í fasteigninaSafamýri 18 í Reykjavík. Húsið
er 2 hæðir og kjallari, u.þ.b. 290 fermetrar að stærð.
CNIN FERÐINNI?
að ekkert einhlítt svar er til við
hvað sé hagnýt menntun og hvað
ekki, það breytist á fáeinum ár-
um. Þau þjóðfélög sem hvað
lengst eru komin í iðnvæðingu
leggja mesta áherslu á menntun
og það hefur sýnt að þar er þörfin
mest. Spurningin er því hvort
menntunin skapi ekki sína eigin
þörf. Bæði í þeirri merkingu að
þeir sem hafa sérhæft sig á
ákveðnum sviðum sjái nýsköpun-
armöguieika sem öðrum eru duld-
ir (gott dæmi er tölvutæknin og
nú líftæknin) og hitt að í þjóðfé-
iagi þar sem menntað fólk er orð-
ið í nokkrum meirihluta sé þarfa-
samsetning önnur en í þeim þjóð-
félögum þar sem menntunarstig
er lágt.
ÖRN D.
JÓNSSON
Sérstaða íslensks atvinnulífs er
mikill fjöldi smárra og millistórra
fyrirtækja. Um eiginlegan stórat-
vinnurekstur er vart að ræða ef
orkufrekur iðnaður er undanskil-
inn, aftur á móti eru til öflug sölu
og dreifingarfyrirtæki á sviði
sjávarútvegs og samgöngufyrir-
tæki eru einnig nokkuð öflug. Sú
almenna regla gildir því að minni
fyrirtæki velji viðráðanlega
markaði sérstaklega ef leggja á
stund á útflutning. Skýr vöru- og
markaðsstefna er forsenda góðrar
samkeppnisstöðu.
Fjölmörg fyrirtæki hafa gert
stórátak í vöruþróun og verður
hún meira áberandi í atvinnulíf-
inu á komandi árum. Samhliða
vöruþróuninni verða gæðamál og
skiplögð markaðsstarfsemi í
brennidepli.
unnar að þörfum markaðarins.
Ætla má að hér verði ekki veru-
legt atvinnuleysi, og því verður
meginþunginn lagður á að efla þá
atvinnustarfsemi sem skilar mik-
illi framlegð. Þá kröfu verður að
gera til nýiðnaðar. Atvinnutæki-
færi er ekki sjálfstætt markmið.
Hátækni er þegar orðin nokkur
og hún hefur áhrif á allar atvinnu-
greinar: tölvutækni má nota alls
staðar, auknar kröfur eru gerðar
til efnisnotkunar og líftæknin set-
ur mark sitt á allan lífrænan iðn-
að og ræktun.
Fyrirtæki á íslandi
Fyrirtæki eru að laga sig að
breyttum starfsskilyrðum; harðn-
andi verðbólgu, breytingum á
fjármagnsmarkaði og harðnandi
erlendri samkeppni. Mörg fyrir-
tæki eru að stíga fyrstu skrefin í
markaðsfærslu erlendis. Reynslan
sýnir að umskipti í framleiðslu og
markaðsfærslu verða að fara sam-
an. Lykillinn að velgengni er sam-
hæfð fjármála- og framleiðslu-
stjórnun samhliða áherslu á vöru-
þróun.
linn
jónum
ræktarframlög og enginn geti
reiknað með framlagi fyrr en hann
hafi fengið skriflegt svar þar um.
Með breytingunni yrði loforð um
framlög greitt út samkvæmt nýsam-
þykktum fjárlögum, sem gerir þar
með kleift að greiða framlög mjög
fljótt eftir að framkvæmdum lýkur.
Meðal breytinga sem lagt er til, er
að fella niður framlag á vélgrafna
skurði og plógræsi, þ.e. vegna ný-
ræktar, á girðingar um ræktunar-
lönd. Þá er gert ráð fyrir að lækka
framlag ríkissjóðs úr 70% kostnað-
ar í 40% kostnaðar við framræslu
vegna endurræktunar. Felld verði
niður framlög til nýræktar en fram-
lög til endurræktunar lækkuð.
Framlög til korn- og fræakra
hækka, samkvæmt frumvarpinu,
þegar um frumræktun er að ræða.
Samkvæmt frumvarpinu hækka
framlög til korn- og fræakra þegar
um frumræktun er að ræða.
Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík,
í lokuðu umslagi, merkt „Tilboð-Safamýri“, fyrir kl. 17.00, miðvikudaginn 22. mars
1989.'
Fjármálaráðuneytið
_____*____Skil á staðgreiðslufé:____
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15, hvers mán-
aðar.
Ekki skiptir máli í þessu sambandi
hversu oft í mánuði laun eru greidd né
hvort þau eru greidd fyrirfram eða
eftirá.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tfmanlega
RSK
RÍKiSSKATTSTJÓRI