Alþýðublaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 11.04.1989, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 11. apríl 1989 Minning STEFÁN ÖGMUNDSSON Prentari F. 22. júlí 1909 — D. 4. apríl 1989 Stefán Ögmundsson, heiðurs- félagi Félags bókagerðarmanna lést í Reykjavík þann 3. apríl s.l. áttræður að aldri. Stefán fæddist í Reykjavík þann 22. júlí 1909 og ólst upp á Grímsstaðaholtinu. Hann hóf prentnám í Gutenberg þann 14. febrúar 1924 og varð fé- lagi í Hinu íslenzka prentarafélagi þann 22. ágúst 1929. Stefán var ötull baráttumaður verkalýðs- stéttarinnar allt sitt líf og gegndi fjölmörgum störfum í hennar þágu fram á síðasta dag. Stefán var formaður Hins ís- lenzka prentarafélags 1944-45 og 1947, meðstjórnandi 1032-33 og 1941-42. Ritari HÍP 1965-69, for- maður fasteignanefndar 1943, meðstjórnandi Byggingasam- vinnufélags prentara 1944-50. Rit- stjóri Prentarans 1931-32, í bóka- safnsnefnd frá 1945. Var í fyrstu stjórn Prentnemafélagsins, sem stofnað var 14. febrúar 1926. í trúnaðarmannaráði HÍP frá 1969-80. Stefán var varaforseti Al- þýðusambands íslands 1942-48. í stjórn listasafns ASI frá stofnun 1961. Formaður Menningar- og fræðusambands Alþýðu frá stofnun 1969 og starfsmaður þess um árabil. Störf Stefáns í þágu verkalýðs- stéttarinnar voru svo mörg og margvísleg að hér hefur aðeins það helsta verið nefnt. Á aðal- fundi Hins íslenzka prentarafé- lags þann 10. maí 1980 var Stefán kjörinn heiðursfélagi HÍP. Við- horf Stefáns komu afar vel í ljós í þakkarávarpi hans og lýsa þau vel hversu einlægur og stéttvís verka- lýðssinni hann var, en hann sagði: „Mer er í raun og veru mikill vandi á höndum, þegar ég vel þakkarorð fyrir þá viðurkenn- ingu, sem félag mitt er að veita mér. Ég er sem sagt óvanur öllu slíku sem þessu. Hef þó síður en svo farið varhluta af gæðastimplum af ýmsu tagi. Ég vil segja ykkur það nú á þessari sérstæðu stund að enn er ég sömu skoðunar og fyrr um það, hvað vandmeðfarin er öll viðurkenning á störfum og verðleikum fólks. Ég þykist t.d. vita það manna bezt, að það sem á skortir verðleika mína er mikið. Einkum á það við um þau störf sem ég aldrei vann. Allt sem ég á ógert, og hefði viljað vinna félagi okkar en mun aldrei leysa af hendi. Hið íslenzka prentarafélag er mitt félag í þeim skilningi að markmið þess og störf hafa verið samofin lífi mínu og minna, allar götur síðan ég lærði Helgakver undir fermingu á altaninu í Gut- enberg 13 ára gamall. Þess vegna er það, að ég met viðurkenningu HÍP á störfum mínum meir en nokkurs annars aðila í þjóðfélagi okkar. Þessvegna er mér það kær- ara en orð fá sagt, að taka við sæmd frá ykkur mér til handa og þá ekki síst úr hendi þess manns, sem nú er formaður HÍP. Vegna alls þessa er ég ykkur þakklátur fyrir þá viðurkenn- ingu, sem ég veit mesta og besta. Heill sé ykkur og félagi okkar og þeim, sem eiga eftir að bera hug- sjónir þess fram á veginn.“ Ég sem þetta rita fyrir hönd samtaka okkar bókagerðar- manna kynntist því afar vel hversu einl.æg.ur og ósérhlífinn verka- lýðssinni Stefán var. Þó Stefán hafi ekki átt sæti í stjórn eða trún- aðarmannaráði Félags bókagerð- armanna, en það varð til við sam- runa Bókbindarafélags íslands, Grafiska sveinafélagsins og Hins íslenzka prentarafélags árið 1980, eru störf hans í þágu þess félags ótrúlega mikil. Hann sat í bóka- safnsnefnd félagsins og vann þar mikið starf enda var hugur hans afar tengdur því sem féll undir þessa nefnd en það er auk bóka félagsins allt sem snertir sögu þess. Og Stefán sinnti ekki einasta þessum verkþáttum í okkar sam- tökum. Hann var einn af upp- hafsmönnum stofnunar Sögu- safns verkalýðshreyfingarinnar og hann hafði frumkvæði að stofnun Félags áhugafólks um verkalýðssögu og sat í stjórn þess félags frá upphafi. Auk þess sem Stefán gegndi störfum i bókasafnsnefnd félags okkar sinnti hann fjölmörgum verkum nú hin síðari ár í þágu þess. Hann aðstoðaði okkur við útgáfu Prentarans i svo ríkum mæli að óhætt er að fullyrða að færri blöð hefðu komið út ef hug- sjóna hans og ósérhlífni hefði ekki notið við. Hann sat í 90 ára afmælisnefnd samtaka okkar 1986-87 og skráði þá merkt yfirlit úr sögu samtakanna „Sú var tíð- in“. í þessu riti er afar greinargóð lýsing á því helsta sem einkennir söguna. Á hátíðarsamkomu í til- efni 90 ára afmælisins flutti Stefán ræðu eins og honum var einum lagið til heiðurs brautryðj- endunum og flutt var söguleg dagskrá í samantekt hans undir stjórn Baldvins Halldórssonar. í afmælisblaði Prentarans frá þess- um tíma svara heiðursfélagar nokkrum spurningum, í svari Stefáns við spurningunni: Er verkalýðshreyfingin á réttri leið? segir hann m.a.: „...Það þóttu aldrei góðir kostir á íslandi, þegar kaupmannavaldið réði bæði verð- lagi á erlendri og innlendri vöru. Það var kallað verslunarólag. Því ástandi breytti dugandi verkálýðs- og samvinnuhreyfing. Nú drúpir hún höfði í auðmýkt fyrir ofur- valdi fjármagns og valdníðslu og hafnar þeim einu ráðum sem duga: baráttu. Baráttu og sam- stöðu með þeim sem vilja berjast og endurheimta þau réttindi, sem best hafa náðst vegna samstöðu; sem ekki lætur samþykktir nægja heldur safnar liði og berst, ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur alltaf þegar ráðist er á kjörin. Þá kemst verkalýðshreyfingin aftur á rétta leið.“ Þessi orð endurspegla vel það baráttuþrek sem ein- kenndi Stefán fram á síðasta dag. Þann 1. maí 1934 gengu þau Stefán og Elín Guðmundsdóttir í hjónaband, Val dagsins er tákn- rænt fyrir þær hugsjónir sem þau Elín og Stefán hafa alla tíð barist fyrir. Um leið og ég votta Elínu og öðrum aðstandendum Stefáns einlæga samúð vil ég þakka þér Elín fyrir störf þín í þágu samtaka okkar, þau eru mikil eins og Stefáns og verða aldrei fullþökk- uð. Með þakklæti og virðingu í garð hugsjónamannsins og sósíal- istans Stefáns Ögmundssonar, prentara. Þórir Guðjónsson, formaður Félags bókagerðar- manna. Fyrir tuttugu árum var ég staddur í kjallara húss FBM í bækistöðvum Prentnemafélags- ins. Ég taldi að ég væri einn í kjall- aranum og brá því óneitanlega þegarég heyrði einhvern fyrirgang úr öðru herbergi. Ég ákvað að kanna málið og hitti þá fyrir Stef- án Ögmundsson, sem var þarna að vinna í bókasafni prentara í sínum frítíma eins og hann gerði um margra áratuga skeið. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hitti Stef- án, en þann tíma sem í hönd fór sætti ég lagi að vera staddur í kjallaranum þegar Stefán ætlaði sér að vinna í bókasafninu og þeir voru fleiri prentnemarnir sem það gerðu. Þessar stundir voru á þann veg að ég gleymi þeim aldrei. Við hljótum að hafa truflað Stefán svo þaulsetnir sem við vorum, en það lét hann okkur aldrei finna. Hugsjónamaðurinn, sósíalistinn Stefán átti nógan tíma fyrir okkur unglingana, hann varð felagi okk- ar og vinur. Orðið kynslóðabil hvarf úr orðabókinni. Áður en ég kynntist Stefáni og við urðum félagar og vinir þekkti ég hann vel af afspurn og hafði lengi langað til að hitta hann. Um hann var oft rætt á bernskuheim- ili mínu, enda mamma og hann þremenningar og bæði uppalin á Grímsstaðaholtinu, en þar voru m.a. saman í kommúnistasellu Stefán og Eðvarð bróðir mömmu. Stefáns var þó fyrst og fremst get- ið í stjórnmálaumræðunni, pabbi sem var afar pólitískur og Sjálf- stæðismaður að auki talaði alltaf með virðingu um hann og hina helv. kommana. Ég mat því Stef- án mikils áður en ég kynntist hon- um þrátt fyrir að ég hafði aðallega heyrt Sjálfstæðismenn fjalla um hann, svo mikla virðingu báru bæði pabbi og mamma fyrir hon- um. Ég fæ aldrei fullþakkað þær stundir sem ég átti með Stefáni. Það var ævintýri fyrir mig prent- nemann, þegar Stefán bað mig að hjálpa sér við prentverkið og lögð var nótt við dag til að koma Nýrri Dagsbrún út. Eldmóðurinn var þvílíkur að enginn var ósnortinn, en spaugið var þó aldrei langt undan og oft var brosað yfir þeirri umræðu sem stundum gat orðið í ætt við keisarans skegg varðandi innihald blaðsins. Árið 1970 fór ég með Stefáni til Austur-Þýskalands á Eystrasalts- vikuna, við vorum herbergisfélag- ar. Það var ótrúleg ferð og í minn- ingunni finnst mér eins og við hefðum aldrei sofið. Við vöktum altént frameftir öllu þó fundir byrjuðu snemma og við vöktum yfir skáldunum. Stefán hafði slíkt yndi af ljóðum að hann opnaði mér nýja sýn, hann kenndi mér meira að segja að meta Matthías Jochumsson, sem ég í barnaskap mínum taldi ekki viðeigandi að kommi gerði. Og skáldin fylgdu okkur. Á heimleiðinni stoppuð- um við í Kaupmannahöfn og fór- um á slóðir Jónasar, sem Stefán mat afar mikils. Ég minnist þess að þar sem við stóðum á götunni og virtum fyrir okkur gömlu hús- in, kom til okkar fullorðinn mað- ur og spurði hvort þetta væri ekki Stefán, hann sagðist ekki geta gengið framhjá án þess að heilsa honum. Þessi maður hafði búið allt sitt Iíf í Kaupmannahöfn og þekkti Stefán einungis af orð- spori. Um þriggja ára skeið bjó ég í Svíþjóð þann tíma skrifaði Stefán mér bréf, sem ég las aftur og aftur og geri enn. Þau voru snilldarlega skrifuð og lýstu atburðum svo vel að þau virkuðu á mig eins og kvikmynd. Ungt fólk leitar á ný mið til að afla sér reynslu og til að upplifa eitthvað nýtt. Eitt það eft- irminnilegasta frá þessum tíma er þó þegar Stefán og Elín, dvöldu hjá mér í nokkra daga og hvað ég var upp með mér þegar þau komu í heimsókn í prentsmiðjuna sem ég vann í og fékk tækifæri til að segja stéttvísum vinnufélögum mínum frá þessum mikla baráttu- manni verkalýðsins á Islandi, sem jafnframt væri vinur minn og fé- lagi. Kynni okkar Stefáns leiddu strax til náins og mikils samstarfs í samtökum okkar bókagerðar- manna og því samstarfi lýkur aldrei. Af þessum vattvangi er svo sannarlega margs að minnast. Árið-1974 átti HÍP í sjö vikna verkfalli og var mikill ágreiningur uppi í stjórn félagsins sem lyktaði með því að formaðurinn sagði af sér og kosin var sérstök samninga- nefnd. í miðju verkfalli tapaði svo formaður nefndarinnar áttum og sagði sig úr henni. Þá var Stefán valinn í nefndina með okkur og eftir það bar ekki á óeiningu og félagið kom sterkt út úr þessari deilu. Það er harður skóli að standa í löngu verkfalli, ekki síst fyrir þá sem bera ábyrgð á sjálfri samningsgerðinni og Iíkast til hefði það orðið okkur yngri mönnum ofraun ef við hefðum ekki notið samstarfs jafn stétt- vísra og mætra manna og Stefáns og Jóns Ágústssonar. I þessari deilu sem og endranær var aug- ljóst og áberandi að skoðanir okkar Stefáns fóru saman. Á fundum var ég kallaður sendi- sveinn Stefáns, sjálfsagt í því augnamiði að reka fleyg í sam- vinnu okkar og samstöðu, ég minnist þess að ég svaraði þessu í fullri einlægni að mér væri það heiður og víst er að við sentumst töluvert hvor fyrir annan og ég naut leiðsagnar hans alla tíð og fyrir það er ég þakklátur. Það bar aldrei skugga á þetta samstarf. Eftir að við stofnuðum Félag bókagerðarmanna hélt samstarf okkar áfram þó Stefán ætti hvorki sæti í stjórn þess né trúnaðarmannaráði. Ég held mér sé óhætt að fullyrða að sem for- maður FBM hafi ég aldrei tekið ákvörðun í erfiðum málum án þess að hafa fyrst rætt málin við Stefán. Fljótlega lentum við í hörðum átökum við atvinnurek- endur og m.a. afar löngu verkfalli árið 1984. I þeirri hörðu deilu var gott að geta leitað til vinar síns og hugsjónamannsins Stefáns og oft hafði hann samband, víghreifur og hress og ósjaldan þegar öll sund virtust lokuð. Hugsjóna- maðurinn Stefán sofnaði aldrei á verðinum, hann var að í þágu verkalýðsins til síðasta dags. Ótrúleg störf hans í þágu okkar unga félags bera þess glöggt vitni. Áhugi hans og skilningur á varð- veislu sögunnar var mikill. Sam- tök áhugafólks um verkalýðssögu urðu til að miklu leyti fyrir hans tilstuðlan og það var ánægjulegt að njóta samvista við hann á þeim vettvangi, en hann átti sæti í stjórn samtakanna frá stofnun þeirra. „Pólitík, pólitík er bara brauð og magarín“ sagði Mangi frá Lambhól á fundi í HÍP er á hann var ráðist fyrir að blanda um of stjórnmálum í starfsemi félagsins. Stefán vitnaði oft í þessi orð Manga í mín eyru. Það var að sönnu ekki létt fyrir Stefán sem vissi betur en aðrir hversu mikil- vægt það er fyrir verkalýðsstétt- ina að eiga sér pólitískan málsvara að upplifa þá útþynningu og flat- neskju sem hrjáir þá stjórnmála- flokka sem kenna sig við alþýð- una í þessu landi, þar sem hug-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.