Alþýðublaðið - 25.08.1989, Blaðsíða 8
MMÐUMOIB
Föstudagur 25. ágúst 1989
400 umsœkjendur um fjreiðsluerfidleikalán bíöa úrlausnar:
Samband viðskiptabankanna
neitar málaleitan ráðherra
Vonir bundnar viö jákvœö viöbrögö
sparisjóöa og bankaráöa
Fulltrú&r Sambands ís-
lenskra viöskiptabanka
hafa synjaö málaleitan
félagsmálaráðherra um
að bankarnir kaupi
skuldabréf af Húsnæðis-
stofnun ríkisins tii að
fjármagna greiðsluerfið-
leikalán um 400 um-
sækjenda hjá Húsnæðis-
stofnun rikisins. Svar
liggur ekki fyrir hjá
Sambandi sparisjóð-
anna, en Jóhanna Sig-
urðardóttir segist vænta
jákvæðra viðbragða af
þeirra hálfu. Jóhanna
hefur þegar ritað banka-
ráðum sjð viðskipta-
banka bréf og óskað eft-
ir að þeir kaupi skulda-
bréf Húsnæðisstofnunar
í hlutfalli við það fé sem
runnið hefur til að gera
upp vanskil hjá bönkun-
um á síðasta einu og
hálfa ári. Félagsmálaráð-
herra væntir svara eigi
síðar en um mánaðamót-
in.
Jóhanna sagði að í raun
hefðu viðræður staðið á
annað ár við fulltrúa Sam-
bands íslenskra viðskipta-
banka og Samband ís-
lenskra sparisjóða, um að
taka þátt í fjármögnun
greiðsluerfiðleikalánanna.
A þann veg að bankarnir
kæmu inn með því að
kaupa skuldabréf af Hús-
næðisstofnun ríkisins og
með því að lengja skuld-
breytingarlán úr átta árum
í tóíf hjá þeim sem búa við
mestu greiðsluerfiðleik-
ana. Þetta hefur ekkert
gengið hingað til og segir
félagsmálaráðherra málið
orðið mjög alvarlegt.
Á tveimur fundum í sum-
ar var farið yfir stöðuna.
„Ég verð að segja að mér
fannst undirtektirnar á
þessum fundum mjög já-
kvæðar, þannig að það olli
mér miklum vonbrigðum
að Samband íslenskra við-
skiptabanka hefur synjað
þessari málaleitan. En það
hefur enn ekki borist svar
frá Sambandi íslenskra
sparisjóða um þeirra við-
brögð," sagði Jóhanna.
Jóhanna sagði að synjun-
in kæmi sér ekki síst á
óvart, vegna þess að þetta
væri bæði hagsmunamál
bankanna og viðskiptavina
þeirra í greiðsluerfiðleik-
um. Hún sagði að reynsla
síðustu ára sýndi að u.þ.b.
helmingur af greiðsluerfið-
leikalánum færi til að
greiða vanskil í bönkum og
sparisjóðum. „Ég tel að
hagsmunir banka séu aug-
Ijósir þegar litið er til þess
að vanskil, sem erfitt reyn-
ist að fá innheimt, kæmust
í skil með þessu móti.
Bankarnir myndu hafa í
staðinn trygga greiðslu-
tryggingu í skuldabréfum
Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins.“
Að sögn Jóhönnu segjast
bankarnir fúsir að auka al-
menna ráðgjöf fyrir við-
skiptavini sína. Þetta segir
Jóhanna til bóta. Þeir bera
því hins vegar við að þeir
hafi á undanförnum mán-
uðum keypt spariskírteini
ríkissjóðs fyrir verulegar
upphæðir. „Ég get ekki séð
hvers vegna þeir blanda
þessu saman, því hér er
fyrst og fremst um að ræða
að koma til móts við við-
skiptavini bankans." Jó-
hanna benti ennfremur á að
á árunum 1988 og ’89
hefðu 450 milljónir farið til
greiðsluerfiðleikalána. Um
helmingur þess fjár fór til
að greiða vanskil í bönkum
og sparisjóðum.
Jóhanna sagði að fulltrú-
ar bankanna hefðu enn-
fremur bent á að það væri
mál hvers banka fyrir sig
hvernig tekið væri á þessu
máli. „En við fórum fram á
að þeir beindu þessum ósk-
um til bankanna. Fyrst þeir
urðu ekki við því hef ég
skrifað öllum bankaráðum,
þ.e. þeirra banka sem hafa
fengið hluta af þessum 450
milljónum." Félagsmála-
ráðherra óskar eftir því að
kaup hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins miðist við það fjár-
magn sem runnið hefur til
að greiða skuldir þeirra við-
skiptavina bankans sem
hafa lent í miklum greiðslu-
erfiðleikum á árunum 1988
og ’89. Sem dæmi nefndi
Jóhanna að Landsbankinn
hefði fengið 42 milljónir
króna af þeim 250 milljón-
um sem fóru í að gera upp
vanskil hjá bönkunum. í
ósk félagsmálaráðherra
felst að þeir kaupi skulda-
bréf sem samsvari þeim
upphæðum sem runnu til
þeirra.
Um 400 umsóknir um
greiðsluerfiðleikalán liggja
hjá Húsnæðisstofnun og er
talið að um 200 milljónir
þurfi til að greiða úr þeim.
Jóhanna benti á að mun
fleiri umsóknir hefðu bor-
ist. Reglur Ráðgjafarstöðv-
ar Húsnæðisstofnunar
væru hins vegar mjög
strangar, þannig að
greiðsluerfiðleikalán væru
einungis veitt þar sem þau
leystu raunverulega vanda
viðkomandi. Umsóknirnar
400 eru því einungis þeirra
sem stofnunin telur að séu
verst staddir. „En það er
ljóst að margir þeirra munu
missa eigur sínar ef ekki
verður komið til móts við
þá í formi greiðsluerfið-
leikalána. Staða ríkissjóðs
er mjög þröng núna, enda
hefur ríkissjóður komið inn
í þetta dæmi með 450 millj-
ónir á einu og hálfu ári.
Þannig að nú tel ég að það
sé komið að bönkunum,
enda þjónar þetta bæði
hagsmunum þeirra og við-
skiptavinanna," sagði Jó-
hanna Siguröardóttir fé-
lagsmálaráðherra. Sverrir
Hermannsson, bankastjóri
Landsbankans, stærsta við-
skiptabankans, vildi ekki
tjá sig um málið í samtali
í gær, sagði það ekki kom-
ið á sitt borð.
Meðalskuldir umsækj-
endanna 400 eru 3,2 millj-
ónir, en meðalvanskil um
700 þúsund krónur.
Nýtt íslenskt leíkrit
Á miðvikudagskvöldi& var frumsýnt nýtt íslenskt leikrit
eftir Valgeir SkagfjörA á Hótel Borg sem nefnist Fangakapall.
LeikritiA fjallar um konu og mann sem kynnast eftir aug-
lýsingu f einkamáladálki svo og um son konunnar, sem er
smáglaapamaAur. AAalhlutverk feika Hanna Marfa Karlsdótt-
ir, ViAar Eggertsson og Steinn Ármann Magnússon. Leik-
stjóri er Valgeir sjálfur. A-mynd/Björg.
Niöurskuröartillögur Alþýöuflokks:
Landakotsspítala breytt
í öldrunarsjúkrahús
„TiU&gur okkar miða
engan veginn að því að
tæma sjúkrahúsin, eins og
sumir hafa látið skína í,
heldur að lækkun læknis-
kostnaðar vegna sérf ræði-
hjálpar og endurskipu-
lagningar heilbrigðisþjón-
ustunnar," sagði Sighvatur
Bjðrgvinsson alþingis-
maður um tillögur Alþýðu-
flokksins um sparnað í
ríkisrekstrinum. „Þetta
ásamt lækkun lyfjakostn-
aðar eru stærstu málin.
Inni í þeirri endurskipu-
lagningu er verið að tala um
að breyta Landakotsspítalan-
um alfarið í öldrunarsjúkra-
hús og auka samvinnu Borg-
arspítala og Landspítala og
vera ekki að gera ráð fyrir
uppbyggingu bráðaþjónustu í
spítölum sem eru í örskots-
lengd frá stærstu og full-
komnustu sjúkrahúsum
landsins.
I menntamálum erum við
t.d. að tala um fækkun ára til
stúdentsprófs, ásamt endur-
skoðun skólagjalda o.fl."
Um þá gagnrýni að Al-
þýðuflokksmenn miðuðu sín-
ar sparnaðartillögur ein-
göngu við þá málaflokka sem
önnur en þeirra ráðuneyti
færu með sagði Sighvatur að
þessu hefði á engan hátt ver-
ið skipt niður með það í huga
hvaða flokkur færi með
hvaða ráðuneyti. „Þetta eru
einfaldlega langstærstu mála-
flokkarnir.
Annars er það alrangt að
við gerum ekki ráð fyrir nein-
um niðurskurði i AJþýðu-
flokksráðuneytunum."
Samkomulag
um sorpurðun
Samkomulag milli borg-
arstjórans í Reykjavík og
oddvita Kjalarneshrepps
um urðun sorps í Álfsnesi
var samþykkt á fundi
hreppsnefndarinnar í
gær. Samkomulagið felur
m.a. í «ér að gegn urðun
sorps yfirtaki Hitaveita
Reykjavíkur Hitaveitu
Kjalarneshrepps.
ISLAND
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
EVROPA,
hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að islenskum
tima.
VEDRIÐ
ÍDAG
Hæg norðaustlæg átt
norðanlands, en austan
eða suðaustan sunnan-
lands. Súldarvottur á an-
nesjum norðanlands en
annars léttskýjað eða
skýjað með köflum og
þurrt á landinu. Fremur
kalt noröanlands, en
10—15 stig að deginum
syöra.