Tíminn - 06.01.1968, Blaðsíða 2
2
LAUGAROAGUR 6. janáar lStíS.
TÍMINN
Vinsælustu enskukennararnir
Enskukennsla sjónvarpsins'
hefur mælzt mjög vel fyrir, og
eru þeir, sem á hana hlýða og
horfa yfirleitt á einu máli um.
að form hennar sé sérlega
skemmtilegt og vænlegt nem-
eridunum til framfara. Þau
heiðurshjónin Walter og Conn
ie eiga hér sennilega drýgstan
hlut að máli, og þar sem okk
ur hér á Tímanum hefur bor
izt um þau dálítili greinarstúf-
ur, þykir okkur ekki úr vegi
að kynna þau örlítið nánar fyr
ir nemendum sínum.
Rjéttum nöfnum heita þau
Brian MoDermott og Ann
Lawsom. Reyndar er hún ekki
lengur Lawson, þar sem hún
er nýgift og hefur samkvæmt
siðum og venjum tekið upp eft
irnafn eiginmannsins, sem heit
ir Alexandér Davion. Ea 1
kennslukvikmyndunum er hán
alltaf kölluð Lawson, enda var
hún ógift, þegar þær voru tekn
ar.
Connie hefur eldrautt hár
og stór blá augu. Walter er
mjór eins og þvengur. i>au
haía eitt sameiginiegt —
mikla persónutöfra. í viðtali
við danskan blaðamann fyrir
skömmu, sögðust þau ekki hafa
minnstu hugmynd um, hvers
vegna þau voru valin til að
leika í kenmslukvikmyndun-
um. Þau voru þá mjög lítt
þekfctir leikarar, en talið er,
að góður aldur, útlit og fram
sögn hafi ráðið miklu um
val þetta. Þau bafa bæði írsk
an máitoreim, en þau ólust að
eintoverju leyti upp á Eyjunni
grænu.
Þegar Connie var yngri,
dreymdi hana að sjiálfsögðu
stóra og fagra framtíðardrauma
og húm setti sér markið svo
hátt, að hún ætlaði að verða
önnur Garbo. En örlögin hög-
uðu þessu á annan veg, hún er
kunn um víða veröld og hefur
getið sér góðan orðstír á sínu
sviði, em sennilega verður
Garbo - takmarkinu seint náð.
Nú fyrir skömmu lék Connie
í nýjum sjónvarpsmyndaflokki,
sem náð hefur máklum vinsæld
um í Bretlandi, og búizt er
við, að sjónvarpsstöðvar víða
um lönd muei hafa átouga á
honum. Hlún var þá á brúð-
kauipeferð og fór til fyrirheitna
landains — ísrael, og hafði við
dvöl á helgustu stöðunum þar.
Einn aðalkostur Connieaa- er sá
hversu lifandi og skemmtilegi
Framhald á bls. 12.
SS-liðþiálfí bendir á felustað Bormanns!
EJ-Reykjavik, miðvikudag.
í 22 ár hefur verið lcitað að
Martin Bormann, erfðaprinsi
Hitlers og æðsta manni Nazista-
flokksins. Allt frá því stríðinu
lauk í Evrópu hefur verið leit-
að að sönnunargögnum fyrir
því, að Martin Bormann væri
á lífi. Nú hefur Þjóðverji, Erich
Karl Wiedwald, sem var SS-lið-
þjálfi á síðustu dögum stríðs-
ins, lýst því yfir, að hann viti
sannleikann um Bormann,
hvernig hann komst undan herj
um Bandamanna og hvar hann
hefur dvalið frá stríðslokum,
um fjármun; Bormanns og nú-
verandi dvalarstað, sem hann
lýsir ítarlega. Hann segir Bor-
mann í dag óþekkjanlegan af
gömlum myndum, en hann sé
nú í forsal dauðans vegna
krabbameins.
Antony Terry, fréttaritari
Sunday Times í Mið-Evrópu og
fyrrverandi starfsmaður brezka
hermálaráðuneytisins, en á
þelm tíma hafði hann þann
starfa, að yfirheyra þýzka
stríðsfanga, hefur nú rætt ít-
arlega við Wiedwald og reynt
að sannreyna eftir megni,
hvort staðreyndirnar séu í sam
ræmi við fullyrðingar hans. Er
niðurstaða hans, að frásögn
Wiedwalds sé senmileg og í
mörgum tilfellum nákvæm.
Wiedwald hitti Bormann
fyrst í Berlín á síðustu dögum
stríðsins, þótt hann vissi þá
ekki bver hann var, og þeir.
ásamt nokkrum mönnum öðr-
um, flvðu saman út úr borg-
inni. Meðal þeirra var Rolf
Sohwent, aðstoðarmaður Bor-
manns, sem hefur verið hans
hœgri hönd síðar. Wiedwald
hitti Sohwenk 1946 og fékk þá
að vita sannieikann í rnálinu,
jafnframt sem þeir tveir fóru
um ODESSA-línuna — leið sú,
er SS-menn notuðu til að
smygla stríðsglæpamönnum frá
Evrópu — til Argentínu, þar
sem þeir hittu Bormann.
Wiedwald fór með Bormann,
er hann flutti til núverandi
dvalarstaðar síns „Kolonie
Waldner 555“ og dvaldi þar
til ársins 1058. Hann hefur hitt
Bormann síðan, síðast í Monte-
video í Uruguay í marz 1005,
en Schwenk hitti hann í Hol-
landi nú s. 1. sumar.
Wiedwald gefur ítarlega lýs-
ingu á þessum samastað Bor-
mamns og nokkurra annarra
nazistaleiðtoga, en vegna að-
stæðna þarna er svo til von-
laust að sækja að staðnum með
t. d. lögreglulið.
Lýsingar Wiedwalds á lífinu
í Kolonie Waldner 555 sýna,
að þar er enn lifað í liðinni
tíð, og minna lýsingar hans
stundum á ástandið í neðan-
jarðarbyrgi Hitlers, þegar 'íða
tók að lokum Þriðja ríkisins.
Virðist ást.andið stundum bet-
ur við hæfi geðveikrasjúkra-
húss en samfélags manna úta>n
slíkra stofnana.
Næga peninga hefur Bor-
mann, og veitir það honum,
ásamt öðru, algert forystuhlut-
verk meðal beirra Þjóðverja
er „nýlendu" þessa byggja. Tal
ið er, að þegar Bormann falli
frá, muni Kolonie Waldner 555
einnig líða undir lok.
Tvö þýðingarmikil atriði í
upplýsingum Wiedwalds fjalla
um núverandi ástand Bor-
manns.
Annað er, að Bormann er
mu mjög ólíkur þvi, er sjá má
á myndum af honurn frá stríðs
Framhald á bls. 12.
Kort þetta sýnir t. v. mestan hluta Suður-Ameríku, erru þar teiknaSir inn þeir staSir, þar sem nokkrir
helztu strfSsglæpamennirnir, sem enn eru lausir, dvelja. T. h. er sfSan staekkaS upp svæSIS, þar sem
Martin Bormann heldur sig, sySst f Brasilíu rétt viS landamæri Paraguay.