Alþýðublaðið - 29.09.1989, Side 3
Föstudagur 29. sept. 1989
3
Hagvöxtur, umhverfisvernd
og barátta gegn fátækt
Kjarni stefnunnar í þróunarmálum er aö samtvinna þessa
þœtti, sagdiJón Sigurösson á fundi Alþjóöabankans ogAl-
þjóöagjaldeyrissjóösins.
Samræming og um-
bætur í stjórn efnahags-
mála bæði í iðnaðar og
þróunarlðndum, aukið
viðskiptafrelsi, minnk-
un eriendra skulda, þró-
unarastoð og umhverfis-
mál. Þetta er aðalum-
ræðuefni á árlegum
fundi Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins sem haldinn er
þessa dagana í höfuð-
borg Bandaríkjanna,
Washington D.C. — Hag-
vöxtur, barátta gegn fá-
tækt og umhverfisvernd
verða að fylgjast að.
Kjarni stefnunnar í þró-
unarmálum er að sam-
tvinna þessa þrjá þætti.
Norðurlöndin eru tilbú-
in að mótun og fram-
gangi siíkrar stefnu,
sagði Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra í
ræðu sem hann flutti fyr-
ir hönd Norðurlandanna
um málefni Alþjóða-
bankans.
Fundinn sitja fulltrúar
152 þjóða, sem aðild eiga
að þessum stofnunum. Að-
alfulltrúar ísiands eru Jón
Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri.ásamt að-
stoðarmönnum þeirra. Að-
alfulltrúi Norðurlanda í
stjórn Alþjóðabankans er
nú Jónas H. Haralz, en
Magnús Pétursson, er vara-
fulltrúi í stjórn Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
Að þessu sinni talaði Jón
Sigurðsson viðskiptaráð-
herra fyrir hönd Norður-
landanna um málefni Al-
þjóðabankans. Jón sagði að
viðleitni tli að laga efna-
hagslífið að breyttum for-
sendum hefði borið árang-
ur í ýsmum þróunarlönd-
um. Ennfremur stæðu von-
ir til að nýlegar aðgerðir til
að létta skuldabyrði þess-
ara landa myndu koma að
haldi. Engu að síður væri
svo ástatt í miklum hluta
þriðja heimsins, einkum í
ríkjunum sunnan Sahara
og í rómönsku Ameríku, að
viðskiptakjör væru óhag-
stæð, fjármagn til fram-
kvæmda ófullnægjandi og
þjóðartekjur á mann færu
enn lækkandi. Við þessar
aðstæður væri það sérstak-
lega miklvægt að sá tiltölu-
lega öflugi hagvöxtur, sem
héldi áfram í iðnríkjunum,
kæmi þróunarlöndum til
góða. Jón sagði m.a. að öfl-
ugar aðgerðir iðnríkjanna
til þess að ná betra jafnvægi
í sínum eigin efnahag
myndu stuðla að tryggara
efnhagsástandi um heim
allan, lægri vöxtum og
auknum hagvexti.
Þá taldi Jón Sigurðsson
að það hefði úrslitaþýðingu
fyrir þróunarríkin að
tryggja varanlegan árangur
af aðlögunarstefnu. í því
skyni yrði með sérstökum
aðgerðum að komast hjá
því að skerða lífskjör
þeirra, sem verst væru sett-
ir í þessum löndum. Þá
þyrfti að framkvæma
minnkun skuldabyrði af
styrkleika og í tæka tíð.
í ræðu sinni tók Jón fram
að hagvöxtur, barátta gegn
fátækt og verndun um-
hverfis yrðu að fylgjast að.
Án hagvaxtar væru ekki
fjárhagslegar forsendur til
að ráðast gegn fátækt pg
umhverfisspjöllum. Án
þess að dregið væri úr fá-
tækt og umhverfið verndað
myndi hagvöxtur hvorki
verða til góðs né standa
lengi.
Jón Sigurðsson sagði að
kjarni stefnunnar í þróun-
armálum væri að sam-
tvinna þessa þrjá þætti. Ef
horft væri til framtíðar, ætti
Alþjóðabankinn að auka
stuðning við menntun,
heilbrigðisþjónustu, bætt
mataræði og takmörkun
barneigna. Bankinn þyrfti
að marka grundvallar-
stefnu í þessum efnum, sem
fylgt yrði á næsta áratug.
Norðurlönd væru reiðubú-
in að stuðla með virkum
hætti að mótun og fram-
gangi slíkrar stefnu.
Jón Sigurðsson flutti
ræðu fyrir hönd Norður-
landanna á fundi Al-
þjóðabankans.
FRÉTTASKÝRING
íslenskt atvinnulíf á síöasta ári:
Fjármagnskostnadurinn
mergsýgur fyrirtækin
Iflestum tilfellum eru rekstrartekjurnar vel hœrri en rekstr-
argjöldin. Mikil fjárfesting og háir vextir valda taprekstri
og rýrnun eiginfjár.
Rekstrartekjur í sjáv-
arútvegi voru í fyrra um
4.758 milljónum króna
hærri en rekstrargjöld
eða 7,1% hærri. Þetta er
talsvert betri útkoma en
árið áður, enda hafði
fiskafli aldrei verið
meiri og hefur verðmæt-
ið í „þorskígildum"
hækkað um þriðjung frá
því 1983. Það sem hins
vegar gerði útslagið með
að sjávarútvegurinn
kom í heild út með 6,7
milljarða króna tapi í
fyrra var að fjármagns-
gjöld umf ram fjármagns-
tekjur urðu 11,5 millj-
arðar á móti 1,4 milljörð-
um árið áður. Á sama
tíma rýrnaði eigið fé
þessara fyrirtækja veiða
og vinnslu úr 6,4 í 3,8
milljarða eða um 40,8%.
Þessar upplýsingar koma
fram í drögum að heildar-
reikningi sjávarútvegsfyrir-
tækja í riti Talnakönnunar
hf og Kaupþings hf um ís-
lenskt atvinnulíf á síðasta
ári, en ritið var að koma á
markaðinn. Óhætt er að
fullyrða að um undirstöðu-
rit er að ræða við alla um-
fjöllun um þessi mál.
En svo koma bölvaðir
vextirnir
I drögum að heildar-
reikningi fyrir iðnaðinn (án
fiskiðnaðar og ál- og kísil-
járnframleiðslu) kemur
fram í riti Talnakönnunar
og Kaupþings að fjár-
magnskostnaðurinn er enn
svarti bletturinn. Bæði
1987 og 1988 voru rekstrar-
tekjur um 4,5% hærri en
rekstrargjöld, en rekstrar-
tekjur urðu um 67,7 millj-
arðar árið 1988. Fjár-
magnsgjöld voru hins veg-
ar 2,1 milljörðum hærri
1987 en 6,6 milljörðum
hærri 1988 og því breyttist
420 milljón króna hagnað-
ur í 3.543 miiljón króna tap
milli ára.
Erfiðleikar samvinnufyr-
irtækja koma berlega í ljós
í ritinu. Milli ára breyttust
niðurstöðutölur SÍS úr 49
milljón króna tapi 1987 í
1.157 milljón króna tap
1988. Þó voru rekstrartekj-
ur nærfellt þær sömu og
rekstrargjöld. Fjármagns-
kostnaður var hins vegar
61 milljón króna umfram
fjármagnstekjur 1987 en
mínusinn varð 837 milljón-
ir í fyrra. Eigið fé rýrnaði
um rúman milljarð eða um
þriðjung.
í ritinu eru einnig birtar
rekstrartölur hjá Kaupfé-
lagi Austur-Skaftfellinga,
Kaupfélagi Borgfirðinga,
KEA og Kaupfélagi Suður-
nesja. Hjá þessum félögum
til samans urðu rekstrar-
tekjur um 11 milljarðar og
343 milljónum króna hærri
en rekstrargjöldin (3,2%
hærri). Fjármagnsdæmið
breyttist milli ára úr því að
vera neikvætt um 329 millj-
ónir í að vera neikvætt um
691 milljónir. Um leið
breyttist 39 milljón króna
hagnaður í 404 milljón
króna tap.
Allt í sómanum hjá
félögum fjármagnsins
Ofangreindar upplýsing-
ar koma ágætlega heim og
saman við upplýsingar úr
síðasta riti Verðbréfavið-
skipta Samvinnubankans,
þar sem segir að á árunum
1985—1988 hafi fjármagns-
eigendur og fjármálastofn-
anir tekið árlega 10—15
milljarða frá fyrirtækjum
landsins. Þar var hins vegar
niðurstaðan að vaxtaokrið
ætti að bæta upp með tals-
verðri lækkun kaupmáttar
launafólks! Við eftir-
grennslan viðurkenndi
ábyrgðarmaður þess rits þó
að samhliða þyrftu vextir
eitthvað að lækka.
í riti Talnakönnunar og
Kaupþings segir um
ástandið hjá 11 stærstu
bönkum og sparisjóðum:
„Mikill vöxtur hefur verið í
bankakerfinu undanfarin
ár og arðsemi mjög góð“.
Rekstrartekjur 1988 urðu
10,9 milljarðar króna en
rekstrargjöld 9,5 milljarðar,
munurinn 1.351 milljónir.
Hagnaður ársins eftir
skatta varð 771 milljónir
eða 7% af tekjum.
Þá er rýnt í tölur fjár-
mögnunarleigufyrirtækj-
anna fjögurra, Fjárfestinga-
félagsins, Kaupþings, Þró-
unarfélagsins og Verð-
bréfamarkaðar Iðnaðar-
bankans. Hjá þessum 8 fjár-
magnsfélögum jókst hagn-
aðurinn eftir skatta úr 39
milljónum króna í 122 millj-
ónir og eigið fé þeirra jókst
úr 695 milljónum í 1.140
milljónir eða um 64%.
FFUORIK ÞÓR '
guóm'Ondsson
í riti Talnakönnunar og Kaupþings kemur meöal annars fram
að hagnaður Flugleiða 1985—1988 hafi samtals orðið 2 millj-
arðar króna að núvirði.