Alþýðublaðið - 29.09.1989, Blaðsíða 8
MÞYBUBMÐll
Föstudagur 29. sept. 1989
Virdisaukaskatturinn kynntur:
Á EKKI AÐ AUKA
TEKJUR RÍKISINS
Fjármálaráðuneytlð
og ríkisskattstjóri hafa
hafid kynningarátak á
virðisaukaskattinum
sem tekinn verður upp
um næstu áramót. Virð-
isaukaskatturinn kemur
til með að leysa sölu-
skattinn af hólmi sam-
kvæmt lögum sem voru
samþykkt í maí 1988.
Enn hefur ekki verið gef-
ið upp hversu hár virðis-
aukaskatturinn kemur
til með að verða en talað
hefur verið um að hann
verði almennt um 25%
en lægri á nokkrum
helstu matvælum fram-
leiddum hér á landi eða
15%. Gengið er út frá
þeirri forsendu að hann
gefi ríkissjóði því næst
sem jaf nmiklar tekjur og
söluskatturinn hefði gef-
ið.
Á blaðamannafundi í
Rúgbrauðsgerðinni í gær
kynntu þeir, Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráð-
herra og Garðar Valdimars-
son, ríkisskattstjóri, fyrir-
hugaðan virðisaukaskatt
(vsk.) og kynningarstarf á
honum sem fyrir dyrum
stendur. Auk þess að gefa út
kynningarrit um vsk. verð-
ur komið upp sérstökum
upplýsingasíma til að svara
fyrirspurnum um hið nýja
skattkerfi. Það verða starfs-
menn ríkisskattstjóra sem
Kynningarátak fjármálaráöuneytisins og skattstjóra vegna
upptöku virðisaukaskattsins hófst í gær með blaðamanna-
fundi. Stefnt er að þvi að skatturinn taki gildi um áramót.
munu svara í síma
91-624422 og gefa upplýs-
inga sem snúa að þessari
skattabreytingu eingöngu.
„Sú breyting að taka upp
virðisaukaskatt á íslandi
um næstu áramót er mjög
veigamikið skref í þá átt að
færa ísland inn í þann nú-
tíma og þá framtíð sem öll
helstu viðskiptalönd okkar
hafa lagað sig að á undan-
förnum árum og áratug-
um,“ sagði Ólafur Ragnar á
fundinum í gær. Ekki vildi
Ólafur Ragnar nefna nein-
ar tölur varðandi skattkerf-
isbreytinguna og sagði að
þær kæmu í ljós þegar
frumvarp þessa efnis yrði
lagt fram í upphafi þings.
Byggdastofnun:
Hafnar beiðni Stal
skipa um yfirtöku
Afgreidsla málsins er hneyksli segir Karl Steinar
Stjórn Byggðastofnunar
afréð á fundi sínum á
þriðjudaginn að hafna
beiðni Stálskipa í Hafnar-
firði, þess sem keypt hefur
togarann Sigurey frá Pat-
reksfirði, um að fá að
greiða vanskil á lánum til
Byggðstofnunar en yfir-
taka síðan sjálf lánin. í
stað þess hélt stjórnin fast
við fyrri ákvörðun sína um
að gjaldfella lánin. Sú
ákvörðun var tekin af
hálfu Byggðastofnunar áð-
ur en til uppboðs á Sigur.
eynni kom, þ.e. að ef skip-
ið færi frá Patreksfirði
yrðu lánin gjaldfelld.
,,Ég tel afgreiðslu Byggða-
sjóðs á þessu máli algert
hneyksli," sagði Karl Steinar
Guðnason alþingismaður í
samtali við Alþýðublaðið í
gær.
„Þessu verður að breyta.
Þetta er einsdæmi og virðist
byggt upp á hefndarhug
gagnvart þeim Hafnfirðing-
um sem hafa keypt skipið. Nú
hefur ríkisstjórnin samþykkt
að veita sérstaka fyrirgreiðslu
til Patreksfjarðar til að leysa
þennan vanda og þó ekki
hefði verið nema vegna þess,
er ástæða til að endurskoða
þessa ákvörðun. Þessi mis-
munun er óþolandi og geng-
ur ekki lengur," sagði Karl
Steinar Guðnason.
Stjórn Byggðastofnunar af-
greiddi málið nær samhljóða,
allir stjórnarmenn utan Hall-
dórs Blöndal sögðu já en Hall-
dór sat hjá. Ragnar Arnalds
var fjarverandi. Matthías
lana
Bjarnason, formaður stjórn-
arinnar, lætur hafa eftir sér í
Morgunblaðinu í gær að sam-
þykkt eins og sú sem Byggða-
stofnun gerði fyrir uppboðið,
þ.e. að gjaldfelia lánin, hafi
ekki verið gerð áður.
Lánið sem Byggðastofnun
ákvað endanlega á þriðju-
daginn að gjaldfella hljóðar
upp á 40 milljónir. .
VEDRIÐ
í DAG
Suövestan stinnings-
kaldi eöa allhvasst og súld
á Suöur- og Vesturlandi,
en hægari vestan- og suð-
vestan og úrkomulítiö eða
úrkomulaust á Noröaust-I
iur- og Austurlandi. Hiti
17—15 stig.
ÍSLAND
Hrtastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
Hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að islenskum
tima.
Rafidnaöarmenn
og ríkiö:
Viðræður
í strand
Verkfall um 270 félaga í
Rafiðnaðarsambandi ís-
lands sem starfa hjá rík-
inu, tók gildi á miðnætti sl.
miðvikudagskvöld. Við-
ræður fulltrúa rafniðnað-
armanna og samninga -
nefndar ríkisins sigldu í
strand. Ríkið telur verk-
fallið brjóta í bága við lög.
Ekki hefur annar fundur
verið boðaður.
Rafiðnaðarmenn sem eru í
verkfalli eru m.a. hjá Pósti og
síma, Útvarpinu og Sjónvarp-
inu, Ríkisspítölunum, Vita- og
hafnamálastofnun, Flug-
málastjórn og Hafrannsókn.
Ríkisspítalarnir fengu hins
vegar undanþágu.
Að mati samninganefndar
ríkisins, að fengnu áliti ríkis-
lögmanns, brýtur verkfallið i
bága við 35. grein laga frá ár-
inu 1915. Samkvæmt skiln-
ingi ríkisins er verkfall rafiðn-
aðarmanna óheimilt þótt
starfsmenn innan BSRB og
BHMR hafi fengið slíka heim-
ild.
í samtali við blaðið i gær
sagði Magnús Geirsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands-
ins, að samkvæmt þessum
skilningi samninganefndar
ríkisins hlytu t.d. verkföll
starfsmanna í ríkisverksmiðj-
um og verkföil dagsbrúnar-
starfsmanna hjá ríkinu á sín-
um tíma að hafa verið verið
ólögleg.
Magnús sagði að megin-
kröfur rafiðnaðarmanna hjá
ríkinu væru knýja fram sömu
laun og þeir hefðu haft fyrstu
mánuði síðasta árs, þegar
þeir fengu lög á sig með þeim
afleiðingum að starfsmenn í
sambærilegum störfum fóru
fram úr.
Meðal afleiðinga sem verk-
fallið hefur er að dagskrá
sjónvarpsins kemur til með
að breytast og búast má við
bilunum á síma og truflunum
ýmiss konar er fram líða
stundir.
Tveggja
milljarða
hagnaður
hjé
Flugleiðum
I riti Talnakönnunar og
Kaupþings kemur meðal ann-
ars fram að fyrirtæki tali
gjarnan um hagnað þegar vel
á við en ræði gjarnan um tap
þegar vonast er eftir lánum
eða styrkjum. Nýlega hafi t.d.
forstjóri Flugleiða rætt um
taprekstur fyrirtækisins og
kennt lágum fargjöldum um
og kæmi það því ýmsum
vafalaust á óvart að hagnað-
ur fyrirtækisins 1985—1988
hafi verið 2 milljarðar króna
að núvirði.
Sjá bls. 3