Alþýðublaðið - 30.09.1989, Síða 2

Alþýðublaðið - 30.09.1989, Síða 2
2 Laugardagur 30. sept. 1989 MMIUBLMÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blað hf. Hákon Hákonarson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Sigurður Jónsson Leturval, Ármúla 36 Blaðaprent hf. Áskriftarsíminn er 681866 Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 75 kr. eintakið. STÖÐVA VERÐUR AUKNINGU RÍKISÚTGJALDA Pað er flókið mál að leggja á skatta og einatt ákaflega óvin- sælt. Það er núverandi ríkis- stjórn fullkunnugt. Almenning- ur virðist ekki vera samkvæmur sjálfum sér þegar til skattiagn- ingar kemur, menn vilja ekki borga skatta en vilja um leið njóta óbreyttrar þjónustu frá hinu opinbera, helst meiri ef eitthvað pr. Hið opinbera verður ekki rekið án skatta, allir gera sér grein fyrir því en spurningin sem menn hljóta að spyrja sig er hversu umfangsmikill rekstur hins opinbera á að vera og í framhaldi af því hversu mikilla tekna þarf ríkið að afla sér með skattlagningu til að standa undir rekstri sínum og útgjöldum. Sú sjálfvirkni ríkisútgjalda sem hér hefur þrifist verður ekki umbor- in lengur. r^að erkominri'tími tilað skera niður í ríkiskerfinu. Um það eru allir sammála. Ríkisstjórnin hef- ur þegar rætt nokkrar tillögur frá fagráðherrum um hvernig hægt verði að skera niður í ríkis- kerfinu. Ljóst er að umtalsverð- ur niðurskurður tekur langan tíma og fæst ekki framkvæmdur nema með markvissum áætlun- um sem unnið er að í tiltekinn árafjölda. Skilgreina verður markmið í upphafi og stefna að því án hiks að þeim verði náð. ís- lenska þjóðin þarf að fara að skiigreina þau markmið sem hún vill stefna að í ríkisrekstri og gera upp við sig hversu víða hið opinbera á að teygja anga sína. Það gengur ekki það sleifarlag sem ríkt hefur hér í langan tíma að stöðugt sé verið að þenja út starfsemi hins opinbera án þess að nokkur maður hafi í raun og veru séð til þess ástæðu, hvað þá heldur nauðsyn. r'egar rætt er um niðurskurð í ríkisrekstri verða menn að leyfa sér að fá djarfar hugmyndir. Menn verða að horfa á ríkis- reksturinn frá nýjum og ferskum sjónarhornum og spyrja sig í fullri einlægni varðandi ein- staka þætti ríkisreksturs; er eðli- legt að hið opinbera standi að viðkomandi rekstri? Hvað á rík- ið að eiga og hvað eiga einstak- lingar og fyrirtæki að eiga? Um leið verður hið opinbera að átta sig á því að ef íslenskt at- vinnulíf á að þrífast verða að vera til peningar í landinu í eigu einstaklinga og fyrirtækja. At- vinnurekstur getur aldrei þrifist til lengri tíma eingöngu fyrir fé sem ríkið tekur að láni og lánar fyrirtækjunum svo áfram. Það sjá menn nú glöggt í sjávarút- veginum. Margra ára óráðsía og sjóðasukk hefur keyrt sjávarút- veginn í kaf svo hann á sér ekki lengur viðreisnar von. Svo ekki sé minnst á landbúnaðinn en langt er um liðið síðan bændur landsins fylltu flokk opinberra starfsmanna, bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Pað er nauðsynlegt að gera fjárfestingu í atvinnulífinu að aðlaðandi kosti og viðskiptaráð- herra hefur þegar lagt fram hug- myndir þar að lútandi. Þeim ber að fagna. Eitt af meginvanda- málum íslensks atvinnulífs er lé- leg eiginfjárstaða. Hún verður ekki bætt með lánum úr opin- berum sjóðum heldur aðeins með fjárframlagi einstaklinga og fyrirtækja. Það verður því að gera einstaklingum og fyrirtækj- um það kleift að leggja fram fé í atvinnulífið og einkum og sér í lagi í sjávarútveginn. Efling at- vinnulífsins verður að vera væn- legri kostur fyrir þá sem eiga fé en að leggja það inn í banka eða til fjármagnsfyrirtækja. Þessu er vænlegast að finna Ieið gegnum skattakerfið. Samhliða þessari áherslubreyt- ingu í íslensku efnahagslífi á að koma til uppstokkun í ríkiskerf- inu. Landsmenn verða að gera sér grein fyrir því að það getur ekki farið saman að lækka skatta og auka opinbera þjón- ustu. Það er verkefni stjórn- málamanna að setja markmiðin í niðurskurði ríkisrekstursins og gera áætlanir til að þeim verði náð. Um leið að hagræða hjá hinu opinbera, laga skattheimt- una að þeim umsvifum ríkisins sem teljast eðlileg og með al- mennum aðgerðum gera ís- lenskt atvinnulíf að eftirsóttum fjárfestingarkosti. Tveggja heima sýn — Um kvenhyggju kvennaframboösins Frú Sigþrúður Helga Sigurbjarn- ardóttir geystist nýverið fram í rit- völlinn og boðaði þá feminísku skoðun að konur og karlar lifi í sín- hvorum hugarheiminum. „East is east and west is west and those twain shall never meet“ yrkir Kipl- ing. Kyn og sannleikur Samkvæmt þessari speki er yrð- ing, sem er sönn í augum kvenna merkingarlaus fyrir körlum og öf- ugt. En sá er galii á gjöf Njarðar (eða réttara sagt Freyju) að stað- haefingin „yrðing, sem er sönn í augum kvenna, er merkingarlaus fyrir körlum", er sett fram af kon- um og hlýtur því að vera merking- arlaus fyrir körlum. Staðhæfingin fellur um sjálfa sig því ef sannleiks- gildi staðhæfinga er afstætt þá er afstæðishyggjan sjálf afstæð. Nú eru vissulega til fræðimenn sem varið hafa afstæðishyggju af mikilli rökfimi. En meinið er að þessir fræðaþulir eru karlkyns og því útilokað fyrir frú Sigþrúði að tileinka sér visku þeirra. En ef karlar lifa í hugarheimi sem er konum óskiljanlegur þá vaknar sú spurning hvernig konur geti vitað að karlar lifi yfirleitt í einhverjum hugarheimi. Því ef konur vita með vissu að karlar lifa í hugarheimi þá hljóta þær að hafa lágmarksskilning á þessum heimi, annars gætu þær ekki vitað að honum beri sæmdarheitið „hug- arheimur". Ef. ég segi „til er þjóð sem talar tungumál sem engum er kleift að skilja nema henni sjálfri" má ég spyrja hvernig þessi þjóð hafi yfir- leitt tungumál. Ef ég skil að þetta fólk talar saman en gefur ekki bara frá sér hljóð út í bláinn þá hef ég altént skilið þónokkuð. Og ef ég veit að einhver býr í hugarheimi en er ekki bara sálarlaust vél- menni þá hef ég lágmarksskilning á viðkomandi. Þannig má beita kenningum bandaríska heimspekingsins Don- alds Davidsons um tungumálið gegn kvenhyggju samtímans. En Davidson er náttúrlega bara karl- maður og freðýsa í ofanálag. Við í Kvennó tökum ekki gyðinga, ég meina karlmenn, alvarlega. Karl- menn eru fullir af einhverri leið- inda skynsemi en við konur hugs- um sko með blóðinu. „Ein Reich, ein Geschlect, eine Fuhrerin!" Konur og lýdræöi Nasistar höfnuðu lýðræðishug- sjóninni þótt þeir töluðu stundum um „raunverulegt" sérþýskt lýð- ræði sem aðallega fólst í tilfinn- ingalegri samsömun þjóðar við foringja sinn. Kvennaframboðið heldur því fram að til sé sérstakt kvenlýð- ræði, sem er alls óskylt strýtulaga lýðræði karla. Kvenlýðræði bygg- ir á beinni þátttöku kjósenda, ólíkt fulltrúalýðræðinu. Ákvarðanir eru ekki teknar með atkvæða- greiðslu, heldur með því að finna málamiðlunartillögur sem allir geta sætt sig við. Meinið er að þetta lýðræðisform er hreint ekki ættað úr kvenheimum heldur var praktíserað af karlpungum hippa- kynslóðarinnar. Reynt var að rit- stýra skólablaðinu í M.R. með þessum hætti fyrir tuttugu árum að undirlagi Gests Guðmundsson- ar sem var karlkyns síðast þegar fréttist. Og eins og áður er getið í þessum pistlum eru lýðræðishug- myndir Jurgens Habermasar af sama toga enda hafði hann mikil áhrif á svonefnda 68-kynslóð. í karlrembusamfélögum Austur- Asíu hefur löngum tíðkast að taka ákvarðanir með þeim hætti að menn reyna að finna niðurstöðu sem allir hlutaðeigandi geta sætt sig við. Þannig er japönskum stór- fyrirtækjum stjórnað enn þann dag í dag, amerískum stjórnunar- fræðingum til mikillar undrunar. Heimspekingurinn Charles Taylor segir að þessi háttur ákvarðana- töku eigi sér rætur í hóp-hyggju Austurlandabúa. Vestrænir menn standa fremur á sínu og sætta sig síður við málamiðlanir, því verða þeir að beita afli atkvæða. Sumir segja að atkvæðagreiðsla sé frið- samleg styrjöld, „Vesturlandabúar eru alltaf að berjast" segir japönsk vinkona mín. Pólitík er því fram- hald styrjalda með öðrum aðferð- um, en ekki öfugt eins og Clause- witz hélt. Til marks um sáttahyggju Aust- urlandabúa má nefna að í Japan þykir sjálfsagt að stjórnarflokkur- inn taki tillit til stjórnarandstöð- unnar þótt hann hafi hreinan meirihluta. í fyrra ráku japanskir fjölmiðlar upp ramakvein þegar „Frjálslynda lýðræðisflokknum" láðist að sýna stjórnarandstöð- unni slíka tillitssemi. Kuenno og kommó En víkjum nú aftur að grein frú Sigþrúðar. Hún boðar þá skoðun Kvennaframboðsins að stefna þess sé hvorki til hægri né vinstri heldur hafi sérkvenlegt inntak. En síðan hvenær hefur haftastefna og ríkishyggja verið eitthvað annað en vinstristefna? Þær vilja koma á innflutningshöftum líkt og sósíai- istar í Burma sem tókst að gjör- eyðileggja efnahagslíf landsins með þessari kvenlegu stefnu. Og skemmst er að minnast þess að Svavar Gestsson boðaði hafta- stefnu í áramótagrein fyrir nokkr- um árum enda er stefna Kvenna- framboðsins stefna Alþýðubanda- lagsins — útvötnuð með tíðablóði. Aftur á móti er það alveg rétt hjá Sigþrúði að vinstrimenn hafa ekki einkarétt á jafnréttishyggju og um- hverfisvernd. Heimspekingurinn frjálslyndi, John Stuart Mill, boð- aði jafnrétti kynjanna á öldinni sem leið. Og hagfræðingurinn E.J. Mishan, sem manna fyrstur gagn- rýndi hagvaxtarhyggjuna, var blessunarlega laus við sósíalískar grillur. Það fylgir svo sögunni að hinn rammhægrisinnaði forsætis- ráðherra Hollands, Ruud Lubbers, hefur nýlega hafist handa við að framkvæma einhverja víðfeðm- ustu áætlun um umhverfisvernd sem um getur. Lokaorö Þegar blökkumenn i Bandaríkj- unum hófu réttindabaráttu sína vildu þeir fyrir alla muni samlag- ast hvítum. En seinna söðluðu margir þeirra um og vildu sem minnst af hvítum vita. Blökku- valdsmenn sögðu að svertingjar hugsuðu öðruvísi en hvítir menn og ættu sína sérstöku menningu. Ljóst er að vestræn kvennahreyf- ing hefur þróast með svipuðum hætti. En að mínu mati er þessi „þró- un“ vanþróun, kvenhyggja Kvennaframboðsins stuðlar að viðhaldi kvennagettósins. Aðeins með því að rífa múra gettósins munu konur öðlast jafnstöðu því „kona og maður, maður og kona, sameinuð eru þau Guði lík“. Stefán Snævarr

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.