Alþýðublaðið - 30.09.1989, Page 4
4
Laugardagur 30. sept. 1989
SMAFRETTIR
IÞROTTAVIÐBURÐIR FYRRITIMA
29 mismun-
andi námskeið
á vegum RKÍ
Fræðslumiöstöö Rauða kross
íslands hefur gefið út námsskrá
fyrir haustönn 1989 og vorönn
1990.
Boðið er upp á 29 mismun-
andi námskeið og eru þau ýmist
ætluð almenningi eða sjálfboða-
liðum Rauða krossins auk þess
sem haldin eru nokkur starfs-
menntunarnámskeið.
Fjölmörg námskeið í skyndi-
hjálp verða i boði um land allt en
deildir Rauða krossins eru nú 47
talsins. Rauði kross íslands leit-
ast við að setja upp námskeið í
skyndihjálp fyrir einstaka hópa
og sníða þau að þörfum þeirra
og óskum. Boðið verður upp á
námskeið í skyndihjálp fyrir for-
eldra og er þar sérstaklega fjall-
að um slysahættur og leiðir til
að koma í veg fyrir slys, einnig
námskeið sem ætlað er ferða-
mönnum innanlands.
Mörg ný námskeið eru í boði
fyrir unglinga í Ungmennahreyf-
ingu RKÍ svo sem fjölmiðlanám-
skeið, félagsmálanámskeið, nám-
skeið fyrir ungt fólk sem er á far-
aldsfæti og fólk sem hefur
áhuga á sjálfboðaliðastörfum
bæði innanlands og utan.
Allar nánari upplýsingar eru
gefnar á skrifstofu RKÍ, í síma:
91-26722.
•ii
Næstu
syningar
oUVEíC-
28/9fi. kl. 20, 3. sýn. uppselt
29/9 fö kl. 20, 4. sýn. uppselt
30/9 la kl. 20, 5. sýn. uppselt
1/10 su kl. 15, aukas. uppselt
1/10 su kl. 20, 6. sýn. uppseit
5/10 fi kl. 20, 7. sýn. uppselt
6/10 fö kl. 20, 8. sýn. uppselt
7/10 la kl. 15, 9. sýn. uppselt
8/10 su kl. 20, 10. sýn. uppselt
8/10 su kl. 15, uppselt
11/10 mi kl. 20
12/10 fi kl. 20, uppselt
13/10 fö kl. 20, uppselt
14/10 la kl. 20, uppselt
15/10 su kl. 20, uppselt
18/10 mi kl. 20
19/10 fi kl. 20
20/10 fö kl. 20, uppselt
Sýningum lýkur 29. október nk.
Áskriftarkort
Þú færð 20% afslátt af
almennu sýningarverði
kaupir þú áskriftarkort.
Fáðu þér áskriftarkort og
tryggðu þér fast sæti.
Sölu áskriftarkorta lýkur
1. október n.k.
Miðasalan
Afgreiðslan í miðasölunni er
opin alla daga nema mánudaga
frá kl. 13-20.
Síminn er 11200.
Tekið er á móti p<>ntunum í
síma 11200 á eftirtöldum tinnim:
Mánudaga kl. 10-12 og 13-17.
Þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga
kl. 10-12 og 13-20.
Laugardaga og sunnudaga
kl. 13-20.
Greiðslukort.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
íslenzkir Ólympíufarar 1908. Frá vinstri: Jóhannes Jósefsson i forníslenzkum viðhafnarbúningi, Hallgrímur Benediktsson, Guðmundur Sigurjónsson, Sig
urjón Pétursson, Páll Guttormsson, Jón Pálsson og Pétur Sigfússon.
Áhorfendur voru forviða yfir
snarleik glímumannanna
í síðustu frásögn okkar um
íþróttaviðburði fyrri tíma varð
meinleg villa í formála greinar-
innar. Þar stóð að íslendingar
hefðu í fyrsta skipti sent
íþróttamenn á Ólympíuleika
1912 í Stokkhólmi. Það er
rangt, ísland var með i fyrsta
sinn, er leikarnir voru haldnir
í London 1908. Jóhannes Jós-
efsson keppti í grísk-róm-
verskri glímu, miðþungaflokki
og sjö ungir og vaskir glímu-
menn sýndu þjóðaríþróttina í
Ólympíuborginni. Aftur á móti
var í fyrsta skipti tekið þátt í
frjálsíþróttakeppni Ólympíu-
leikanna í Stokkhólmi 1912. í
framhaldi af þessu er rétt að
segja frá þátttöku okkar og
sýningum í tengslum við Lond-
onleikana 1908.
Það mun hafa verið haustið
1907 að frumkvæði Þórhalls
Bjarnarsonar prentara á Akureyri
og tekið var að undirbúa för á
Ólympíuieikana í Lundúnum,
fyrst og fremst til að sýna þar ís-
lenska glímu. Til fararinnar voru
valdir eftirtaidir glímumenn: Jó-
hannes Jósefsson, Jón Pálsson frá
Akureyri, Pétur Sigfússon úr Þing-
eyjarsýslu, Guðmundur Sigurjóns-
son (síðar Hofdal), Hallgrímur
Benediktsson, Sigurjón Pétursson
úr Reykjavík og Páll Guttormsson
(síðar Þormar) frá Seyðisfirði. Jó-
hannes Jósefsson var foringi og
fararstjóri flokksins. Glímumenn-
irnir æfðu af miklu kappi um vet-
urinn, en samskota var leitað um
allt land til styrktar ferðinni.
Glíma sýnd á
Ólympíuleikvanginum
í Lundúnum sýndu þeir íslenska
glímu, daginn áður en sjálfir
Olympíuleikarnir hófust. Þá var
haldin mikil hátíð á Ólympíuleik-
vanginum og m.a. sýndar ýmsar
íþróttir. Margar myndir voru tekn-
ar af glímumönnunum og komu
þær í Lundúnablöðunum næstu
daga á eftir.
Hér á eftir munum við birta
kafla úr grein, sem Sigurjón Pét-
ursson skrifaði í Eimreiðina og
segir frá dvöl þeirra félaga í stór-
borginni:
„Meðan á Ólympíuleikunum
stóð urðu glímumennirnir að
halda kyrru fyrir í Lundúnum, því
að síðasta dag leikanna áttu þeir
að sýna glímuna aftur. Þá var
verðlaunum úthlutað og sund háð,
hlaup og glímur. En ekki þurftu
glímumennirnir að vera iðjulausir
meðan á biðinni stóð, því stjórn-
endur leikhússins „Ólympíu" föl-
uðu þá til þess að sýna glímuna
þar, og tóku þeir því með ánægju.
Glímdu þeir svo í leikhúsi þessu á
hverju kvöldi í heila viku og buðu
áhorfendum til leiks.
Beljakarnir lágu flatir_____
á góifinu
J ' ■ —
Ymsir urðu til að reyna sig, en
enginn gat staðið þeim snúning,
og þótti mörgum nafnkunnum
glímukappanum í útlendum glím-
um súrt í broti að verða að detta á
svipstundu og skilja ekkert í þeim
brögðum, sem beitt var, eða af-
leiðingum þeirra, því þeir vissu
ekkert fyrr en þeir lágu á bakinu á
gólfinu og hristu höfuðið yfir öllu
saman.
Það er óneitanlega skemmtilegt
augnablik fyrir glímumanninn, er
hann stendur þannig frammi fyrir
þúsundum manna. Það er kallað
frammi í salnum: „Getur maður
fengið að reyna?“ — „Guð veikom-
ið,“ er svarað, og svo þrammar
heljarstór beljaki upp á leiksviðið,
tekur tökum og býðst til að standa
og verjast, þegar merkið er gefið.
En áður en varir er komið á hann
gott klofbragð og hann flatur á
gólfið. Og sömu ferðina fara þeir
svo hver af öðrum, allir sem reyna.
En áhorfendur verða forviða af
undrun yfir snarleik glímumann-
anna og þeim fítónskrafti, sem
þeir hafa í fótunum".
Jóhannes fékk heiðursskjal
frá drottningu
Auk glímusýningar þeirra sjö-
menninga keppti Jóhannes Jósefs-
son á sjálfumpiympíuleikunum —
fyrstur allra íslendinga. Hann tók
þátt í grísk-rómverskri glímu, mið-
þungaflokki, og voru keppendur
þar 24. Jóhannes stóð sig afburða-
vel í keppninni. En í úrslitaglím-
unni vildi honum til það óhapp að
brákast illa í axlarlið. Var þá sýnt,
að sigurinn var genginn honum úr
greipum, en þó varð hann ekki að
velli lagður, og gat hann lokið
þeirri glímulotu þrátt fyrir meiðsl-
in. Hreysti Jóhannesar var mjög
rómuð, og þá er verðlaunum var
úthlutað, afhenti Alexandra
drottning honum heiðursskjal fyr-
ir frækilega framgöngu.
Óhætt er að fullyrða að þessi
fyrsta Ólympíuför Islendinga hafi
tekist með miklum ágætum.
Örn Eiösson
skrifar
Jóhannes Jósefsson keppti fyrstur atlra fslendinga á Ólympíuleikunum.
Hann tók þátt í grísk-rómverskri glímu á Ólympiuleikunum í Lundúnum
1908.