Tíminn - 21.03.1968, Blaðsíða 5
FMMTUDAGUR 21. marz 1968.
TÉMINN
Náttúruvernd og
skógarnir okkar
G.G. skrifar:
„Ég hef áður í þessum þátt-
um minnst á hveriíig Vegagerð
ríkisins hefur leikið skógana
hér í Vatnsfirðinum. Á Hellu-
hlíð var fallegur birkiskógur.
Þar var ruddur vegur fyrir
nokkrum árum og gerði sá veg-
ux ærin sár í skóginn. Svo fyrir
þremur árum var lagður um
hlíðina mikiil upphleyptu> veg
ur, utanhjá gamla veginum, og
nú er Helluhlíðin óskaplega
skemmd vegna þessarar vega-
gerðar. Ekkert hefur verið gert
til að græða þessi vegasár. Svo
s.l. vor var byrjað á að leggja
veg frá ánni Pennu út eftir.
Þar endurtók sig sama sagan,
skógurinn var miskunnariaust
rifinn niður undir veginn, og
það svo stórkostlega að í þenn-
an vegarspotta, sem mun vera
2,5 km., munu hafa farið um
10 ha. af fallegum birkiskógi.
Verði nú haldið áfram á sömu
braut, og hvergi hlífzt við að
eyðileggja skóginn, þar sem
vegurinn á að koma — við
austanverðan Vatnsfj., Kjálka
fjörð og Mjóafjörð — þá verð
ur orðið ljótt um að litast, þvi
varla fara minna en 100—150
ha. af skógi undir þann veg
allan. Megum við í þessu skóg-
lausa landi, virkilega við svona
aðförum við skógana? Ég held
varla. Mér finnst það fullkom-
ið fánýti, að vera að eltast við
að hafa 'vegina þráðheina og
með því móti fara yfir hvað
sem fyrir er. Hitt virðist mér
ætti að skipta meginmáli að
vegurinn sé vel lagður, þótt á
honum þyrftu að vera nokkrar
beygjur. Þær eru það hvort sem
er, kannski eitthivað færri.
Ömurlegt að sjá
skóginn deyja
Það er ömurleg sjón að sjá
fallegar birki- og reynihríslur
veslast upp og deyja, af því
búið er að grafa frá rótum
þeirra .sem liggja að vegun-
uim, og veita vatninu burt, sem
hefur vökvað þær. Svo kemur
frostið og sprengir ræturnar
upp úr jarðveginum. Stormur-
inn blæs moldinni burtu, og
eftir 1—2 ár í mesta lagi, feliur
þessi fallega hrísla. Og svo held
ur það áfram koll af kolli. Upp
blásturinn. sem byrjaði í vega
sárinu, heldur áfram ár eftir
Bæjarhjúkrunarkona
óskast til starfa í Kópavogi. Til greina kæmi að
skipta starfinu. Laun samkvæmt 16l launaflokki.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigurður Ólafsson
skrifstofustjóri á bæjarskrifstofunum í Kópavogi.
Umsöknir sendist undirrituðum fyrir 1. apríl n.k.
BÆJARSTJÓRINN í KÓPAVOGI
Westinghouse
ofninn
ÁRA REKVSLA!
VANDLÁTIR VELJA WESTINGHOUSE TÆKIN
Ekki aðeins vegna þess a5 Westinghouse er leiðandi
í heiminum í dag í tækniþróun og framleiðslu
heimilistækja heldur einnig af því að á (slandi er
þegar fengin 20 ára reynsla af gæðum og endingu
tækjanna frá Westinghouse.
ALLUR SAMANBURÐUR ER WESTINGHOUSE í VIL
Nánari upplýsingar, myndalistar og sýnishorn í
nýjtnn íiUvsileffutn si/nitifjarseif
s
ár. Og eftir bannski 50—100
ár segir fólkið, sem um veginn
ekur: „Hér hvað hafa verið skóg
ur“. Já. skógurinn er orðinn
þjóðsögn.
Þetta getur ekki gengið svona
lengur. Það verður að krefjast
þess, að eitthvað sé gert til að
græða vegasárin. Það hefur
aldrei verið sýnd minnstia við-
leitni til þess hér, svo ég viti
til. Porfeðrum okkar hefur ver-
ið legið á há'lsi fyrir meðferð
þeirra á skóginum. En það var
lifsnauðsyn þeirra að nota sér
skóginn bæði til húsagerðar og
eldiviðar, og jafnvel til fóðurs
fyrir skepnur sínar, sem annars
hefðu fallið úr hor og hungri.
Vegfarandi! Þú sem ekur bif
reiðinni þinni eftir veginum
í leit að skjólsælum skógar-
lundi til að dvelja þar með
fjölskyldu þinni nokkra daga
í sumarieyfinu. viltu ekki
hjáipa til að skapa almennings
álit, sem fordæmir svona gá-
lauslega meðferð á þeim skógar
leyfum, sem enn eru eftir.
Hvort sem í hlut á einstakling-
ur eða ríkið sjálft? f fyrsta
lagi verður að krefjast þess, að
leitast sé við að leggja vegi
þar sem þeir gera minnst spjöil,
en koma þó að svipuðum not-
um. Og í öðru lagi verður að
krefjást þess. að sáð sé áburði 8
og grasfræi í brúnirnar á vega 1
sárunum, til að reyna að koma 1
í veg fyrir uppblástur. Pil i
hvers er „Náttúruverndarráð“ |
ef það á ekki að láta svona É
mól til sín taka. Og til hvers E
er ,.Skógræktarfélag“ ef það 1
skiptir sér ekkert af þessu? g
Óvíða hér á landi a.m.k. á
Vestfjörðuim, munu vera fal-
legri skógarleyfar en hér í
Vatnsdal. Þó er ekkert fyrir
þetta gert“.
Orðsending til G.Þ.
„Herra Landfari í Tímanum.
Má ég biðja þig fyrir orð-
sendingu til G.Þ. sem í dálkuim
þínum laugardaginn 2. marz
skrifaði nokkur vingjarnleg orð
um Bréf — mitt — til bænda
og neytenda. í Andvara vor-
hefti tímaritsins 1967, sem ekki
kom út fyrr en í ársiok 1967.
G.Þ. telur að betur hefði
farið á, að „Bréfið“ hefði kom-
ið í Búnaðarritinu fremur en
Andvara. Ekki mæli ég á móti
því, sérstaklega með tilliti til
þess. að búið er að eyðileggja
vinsældir Andvara með óbæfi-
lega óreglulegri útkomu tíma-
ritsins. — En, „mikil er trú
þín“ G.Þ., ef þú gerir ráð fyrir
að ég hefði getað fengið rúm
fyrir ,.Bréfið“ í Búnaðarritinu
Þvílík fjarstæða.
Og loks þetta: Ég bið þig, ||
G.Þ. að lesa grein mína: Til- i
raunir á villigötum. sem kom I
í Ársriti Hf. Nl. 1967, hún er að
nokkru leyti framhald af ,.Bróf
inu“ og árétting um það sem
þar segir um ræktunarmálin.
Vinsamilegast
Árni G. Eylands".
Tvær
reglusamar
íjölskyldur í Reykjavík,
óska eftir húsnæði til leigu
yfir sumarið austan fjalls.
Upplýsingar sendist til I
blaðsins, merkt: „Sumar í
sveit“. |
Á VÍÐAVANGI
ISpyr sá, sem ekki veit?
AlþýSublaðið hefur í gær
smáviðtal við Jón Sigurðsson,
formann Sjómannafél. Reykja-
víkur, ,,einn þeirra fulltrúa
verkalýðshreyfingarinnar, sem
staðið hefur í erfiðum samn-
ingum" eins og blaðið kynnír
hann nú. Þetta er vel tU fund-
ið hjá Alþýðublaðinu og áreið-
anlega vinsælla hjá flokks-
mönnum en ræða Gylfa hjá
kaupmönnum, þar sem barizt
var á móti leiðréttingu til
p verkafólks. Alþýðublaðið spyr
1 Jón:
„Hver hcfur ávinningurinn
Í orðið af þessu hálfs mánaðar
þ verkfalli, mesta verkfalli, sem
sögur fara af á íslandi?"
| Og Jón svarar þessari spurn-
| ingu vafningalaust:
I „Að sjálfsögðu hefur verk-
| fallið kostað atvinnutaip fyrir
marga, sem þátt tóku í því, en
þar var hnekkt þeirri ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að fella
úr gildi verðlagsuppbætur á
laun, en sá var einmitt tilgang-
urinn með aðgerðum verkalýðs
hreyfingarinnar".
Þannig befur Alþýðublaðið
fengið greið svör hjá Jóni Sig-
urðssyni. Verkfallið var háð til
að „hnekkja ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar", og það tókst,
enda var það „einmitt tilgang-
urinn með aðgerðum verkalýðs-
hreyfingarinnar". Þá geta
menn lesið það svart á hvítu í
Alþýðublaðinu, að Jón Sigurðs-
son og með lionurn mikill hluti
Alþýðuflokksins fór í „mesta
verkfall, sem sögur fara af á
íslandi'V til þess að hnekkja
gerðum ráðherra Alþýðuflokks-
ins og þingmanna hans innan
við múrinn og forða alþýðu
manna frá afleiðingum af
skemmdarverkum þessara
manna. Ög þetta tókst Jóni Sig-
urðssyni og samherjum hans
góðu heilli.
Ég skora á íslenzka
{afnaSarmenn"
Njörður P. Njarðvík, sem
situr úti í Svíþjóðu um þessar
í; mundir, skrifar Helga Sæmunds
syni ágæt kuniiingjabréf í Al-
þýðublaðið. Eitt þessara bréfa
birtist þar í gær, og er m.a.
rætt um afstöðu sænsku rf ís-
lenzku ríkisstjórnanna til her-
foringjastjórnarinnar í Grikk-
landi, og segir þar m.a.:
„Papandreou lýsti þvi yfir
hér í Stokkhólmi að flokkur
sinn væri sósíaldemokratískur
flokkur og hann kvaðst hafa
tekið að sér forystu í baráttunni
gegn herforingjaklíkunni i
Grikklandi. Sænska ríkisstjóm
in hefur lýst vfir að hún muni
aldrei viðurkenna herforingja-
stjórnina i Grikklandi: gefi
Papandreou heimild til að
stjórna andspyrnuhreyfingu
sinni héðan úr Svíþjóð og boðið
honum embætti gistiprófessors
í hagfræði við Stokkhólmshá-
skóla. Auk þess hefur Tage
Erlander lýst því yfir að jafn-
aðarmannaflokkurinn sænski
muni styðja andspyrnuhreyfing
una með fjárframlögum. Þetta
er ótviræð stefnuyfirlýsing og
ber vott um djörfung og und-
anbragðalausa tryggð við hug-
sjónir lýðræðisjafnaðarmanna.
Utanríkisráðherra fslands er
líka jafnaðarmaður og við al-
þýðuflokksmenn eigum hlut að
t'ramhald á bls. 15.