Alþýðublaðið - 29.11.1989, Qupperneq 8
Nýr Baldur
af stokkunum:
Þjóðvegur
til sunn-
anverðra
Vestfjarða
Nýrri Breiðarfjardar-
ferju verdur hleypt af
stokkunum á Akranesi á
laugardag. Hún mun vænt-
anlega eins og hinar sex á
undan hljóta nafnið Bald-
ur, en ferja þessi er sú veg-
legasta hingað til, tekur
um 200 manns og allt að 25
fólksbíla.
Að sögn Guðmundar Lár-
ussonar framkvæmdastjóra
fyrirtækisins um Baldur er
rými hinnar nýju ferju helm-
ingi meira en þeirrar sem hún
leysir af hólmi og með helm-
ingi meiri afköst í ferðum.
„Hún mun verða að mínu
mati eini raunverulegi kost-
urinn sem alltaf verður opinn
til Vestfjarða sunnanverðra
og þjóðvegurinn þangað eft-
irleiðis. Hún sparar um 200
kílómetra akstur og fólk losn-
ar um leið við erfiða vegi um
firðina við noröanverðan
Breiöafjörö.'
FUJ í Reykjauík:
Júlíus Haf-
stein dragi
sig í hlé
Féiag ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík hefur
samþykkt ályktun þar sem
megnri vanþóknun er lýst
á vinnubrögðum fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn í sambandi
við „lóðabraskið í Lágmúl-
anum.“
Félagið krefst rannsóknar á
málinu, sem snýst um lóðar-
úthlutun til fyrirtækis Júlíus-
ar Hafsteins. „Sekum ber aö
refsa og saklausa að hreinsa,
til þess að fyrirbyggja frekara
gróðabrask með byggingar-
lóðir í Reykjavíkurborg. Fé-
lag ungra jafnaðarmanna
krefst þess jafnframt að við-
komandi borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins dragi sig i hlé
frá störfum sínum í borgar-
stjórn uns sekt hans eða sak-
leysi verður sannað."
VEÐRIÐ
ÍDAG
Sunnan átt, stinnings-
kaidi eöa alihvasst, 6-7
. vindstig og rigning vestan
' til á landinu en hægari og
að mestu þurrt norðaust-
anlands.
MÞYBUBllÐH
Miövikudagur 29. nóv. 1989
Fœdingardeild Landspítalans:
Rúmanýting 100%
að meðaltali!
— ekki heppileg lausn aö stytta vistunartímann, segir landlœknir sem telur
aö nýta eigi allar hœöir Fœöingarheimilisins áfram
Nýting legurúma á
Fæðingardeild Landspít-
alans í Reykjavík, var ná-
lægt því að vera 100% að
meðaltali á síðasta ári.
Þetta þýðir að þegar
mest var að gera hefðu
legurúmin þurft að vera
talsvert miklu fleiri,
enda kom fyrir að senda
þurfti konur heim þegar
á þriðja degi eftir fæð-
ingu. IJndir venjulegum
kringumstæðum fara
konur heim af deildinni
á fimmta degi, að því til-
skildu að alit sé með
felldu og móður og barni
heilsist vel.
Á síðasta ári voru fæðing-
ar á fæðingardeild Land-
spítalans alls um 2.800 tals-
ins. Legurúmin á deildinni
eru samtals 43 og má því
auðveldlega reikna út að
hver kona hefði að meðal-
tali getað dvalist á deildinni
fimm og hálfan sólarhring.
I þeim tilvikum sem allt er
eölilegt fara konur heim á
fimmta degi. Fæðingar-
deild Landspítalans tekur
hins vegar við áhættutilfell-
um af öllu landinu og t.d.
keisaraskurðir munu nær
einvörðungu framkvæmdir
þar, þannig að talsvert er
um að konur þurfi að liggja
lengur. Þegar tekið er tillit
til þessa, virðist láta nærri
að nýting legurúmanna, sé
nálægt 100% að meðaltali.
Þetta hefur í för með sér
að á álagstímum hefur
deildin ekki undan. Undan-
farin ár hefur Fæðingar-
heimili Reykjavikur verið
lokað á sumarleyfistíma, en
að sögn Kristínar Tómas-
dóttur, yfirljósmóður á
Fæðingardeildinni, verða
flestar fæðingar einmitt á
sumrin. „Eg veit ekki hve-
nær á að tala um neyðar-
ástand, en ef fæðingafjöld-
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
inn helst og þetta á að
verða eini staðurinn á höf-
uöborgarsvæðinu, þá verð-
ur ástandið mjög slæmt",
sagði Kristín í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Olafur Olafsson, land-
læknir sagði i samtali við
Alþýðublaðið i gær að
meðalvistunartími á Fæð-
ingardeildinni væri nú 4—5
dagar. Ljóst væri hins vegar
að fæðingum færi fjölgandi
og ef plássum fjölgaði ekki
væri liklegt að enn þyrfti að
stytta vistunartímann.
„Það er ekki heppileg
lausn". sagði Ólafur, „sér-
staklega með tilliti til þess
að það eru fæðingar
kvenna yfir þrítugt sem
fjölgar mest og þær fæðing-
ar eru taldar áhættusam-
ari.“
Ólafur kvaðst telja heppi-
legast að flestar fæðingar
færu fram á Fæðingardeild-
inni en Fæðingarheimili
Reykjavíkur yrði rekið
áfram og þangað mætti
flytja konur eftir barns-
burð. Hann sagði hins veg-
ar að núverandi stærð Fæð-
ingarheimilisins, 10 rúm,
væri óhagkvæm rekstrar-
eining og því mætti fjölga
rúmum töluvert án mikils
viðbótarkosnaðar. Besta
lausnin væri sú að taka
báðar neðri hæðirnar aftur
í notkun, þannig að þarna
yrðu í framtíðinni 28 rúm.
„Það verður líka að segj-
ast eins og er, að það hefur
orðið gífurleg breyting á at-
vinnuþátttöku kvenna á
síðustu tuttugu árum",
sagði Ólafur. „Þá unnu
15—20% kvenna úti en nú
nú er þetta hlutfall komið
upp í 90%. Auk þess er nú
enga eða litla hjálp að hafa
á heimilunum. Vinnutími
kvenna er líka mjög langur
og lengri en karla. Konurn-
ar þurfa hvíld eftir fæðingu
og i mörgum tilvikum er
vistunartíminn á fæðingar-
deild, eina fríið sem þær
fá."
Konur fjölmenntu á borgarafund sem haldinn var á Hótel Borg í Reykjavík i fyrradag til að
mótmæla áformum um að leigja út tvær hæðir af þrem í Fæöingarheimili Reykajvíkur. Land-
læknir tekur undir sjónarmið sem fram komu á fundinum og vill að Fæðingarheimilið verði
nýtt áfram í fullri stærð. A-mynd/E.ÓI.
ÍSLAND
Hitastig
iborgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að íslenskum
tima.
Adalsteinn Asbertf Sigurösson
Skáldakvöld verður
haldið í Listasal Nýhafn-
ar, Hafnarstræti 18, í
kvöid kl. 20.30. Átta
skáld lesa úr verkum sín-
um og er þar um að ræða
bæði nýútgefið og eldra
efni. Þau eiga það flest
sammerkt að hafa ekki
lesið upp opinberlega í
nokkurn tíma og er þetta
því kærkomið tækifæri til
að hlýða á þau.
Skáldin sem fram koma
eru Adalsteinn Ásberg
Sigurdsson, Birgitta Jóns-
dóttir, Gunnar Kristins-
son, Jón Dan, Kjartun
Arnason, Steinunn Av-
mundsdóttir, Steinunn
Sigurdardóttir og Stefán
Höröur Grímsson. Pál!
Eyjólfsson gitarleikari
mun flytja sígilda tónlist
og kynnir er Sigurdur
Arnarson.
Púll Eyjólfsson
★
Eftirfarandi klausa birt-
ist í Vestfirska fréttablað-
inu nýlega og megum við
til með að endurbirta
hana:
„Ólafur Helgi Kjartans-
son, skattstjóri með
meiru, strengdi þess heit
á sínum tíma að láta ekki
skerða hár sitt meðan nú-
verandi ríkisstjórn sæti
að völdum. En þar fór í
verra.
Á laugardaginn var
hann staddur í fertugsaf-
mæli ásamt miklum
fjölda gesta. Veitt var vel
af mat og drykk. Allir
munu hafa skemmt sér
hið besta, og það gerði -
Ólafur Helgi einnig þar til
að honum vatt sér kona
ein gunnreif með skæri
að vopni. Áður en
grandalaus skattstjórinn
náði að forða sér, tókst
konunni með eldingar-
hraða að klippa stóran
lokk úr hári hans, þannig
að verulega sást á.
Þeir sem gerst þekkja
til, herma að skattstjórinn
hafi kunnað konunni litl-
ar þakkir fyrir gjörning-
inn, og lái honum hver
sem vill.“