Tíminn - 31.03.1968, Blaðsíða 10

Tíminn - 31.03.1968, Blaðsíða 10
22 TÍMINN SUNNUDAGUR 31. marz 1968. KVENNASiÐAN Framlh'aild af bls. 18. húsgögn, fallegust finnast henni Msgögn úr furu. Þau getur hún líka sjálif miálað í hvaða lit sem er, ef hún ósk- ar þess. . . ekki æpandi lit- um, nei aðeins hlýjum vina- legum litum. Að lokum vill hún svo geta haft hjá sér hluti sem hún hafði í hertoerginu sínu, á meðan hún enn var heima í foreldrahúsum. — Allt úr tré, segir Rolf. — Það verður þó að vera að mmosfca kosti einn þægilegur stóll, sem hægt er að láta fara vel um sig í. — Já, svarar stúlkan — en það er ekki nauðsynlegt að borga þúsund- ir króna fyrir þægilegan stól. . það er hægt að fá eitthvað ein faldara og ódýrara. Annars er l'íka hægt að sitja á gólfinu. . . það getur komið sér vel, ef maður vill breiða úr einhverju í kringum sig, sem maður er að vinna við. — En gólfteppi út í horn, það vilt þú þó hafa, segir Rolf. — Nei, ég hef ekki hugs i að mér það er svarið. — Fal- leg gólfteppi, ef til vill, annars eru teppi bara til trafala, þeg- ar verið er að hreinsa til. Og svo verða börnin að fá að vera í stofunni, án þess alltaf sé verið að ávíta þau. Vilt þú leyfa þeim það líka? — Mér finnst hlutirnir eigi að vera þannig, að þeir þoli, að þeir séu notaðir, segir stúlk an, — sér í lagi það, sem dýr- ast er. Annars vil ég efcki hafa það heima hjá mér, það bind- ur manin of föstum böndum við heimilið sem slíkt, ef of miklir peningar hafa verið lagðir í það. Ég vil geta far- ið burt, ferðazt, búið annars staðar í stuttan eða langan tíma. Kannski vildi ég leigja húsið, og þá má ekki þurfa að hugsa um, að allt verði eyði- lagt fyrir manni. Heimilið, á að vera þannig, að það sé skemmtilegt að vinna og búa í því. . . það á að henta mér og mínum smekk, lífca þegar hann breytist. . . Máluð hús- gögn, þau get ég t.d. málað aftur... Lotta er enn róttækari en Tína, hún hefur látdð sér nægja að kaupa borð á forn- sölu, sem ekki kostaði nema hundrað krónur, en þó þjón- ar það sínum tilgangi, sem borð. það næst bezta nægirekki ÞESS VEGNA BJÓÐUM VIÐ VANDLÁTUM VIÐSKIPTAVINUM VERÐLAUNABÍLINN VAUXHALL VICTOR '68 í Morgunblaðinu 21. nóv. s.l. segir blaðamaður frá stærstu bílasýningu Bret- lands í Earls Court í London og m. a. þetta um nýja Victorinn: Sú enska bifreið, sem mesta athygli héfur vakið á sýning- unni í Earls Court, er Vaux- hall Victor 1600 og 2000. Þessi bifreið er eins ný og bifreiðar gerast, þ.e.a.s. hún hefur verið byggð upp frá frumatriðum, án iþess að stuðzt hafi verið við eldri gerðir af Vauxhall nema að mjög litlu leyti. Sýningargripur Vauxhall í Earls Court vakti fyrst -áthygli sýningargesta vegna nýrra út- lína. Yfirbygging bifreiðarinnar hefur verið teiknuð upp á nýtt undir greinilegum áhrifum frá General Motors. Á sýningarpalli Vauxhall voru sýnishorn af ýmsum atriðum í undirvagni og stjórntækjum bif- reiðarinnar, sem segja má að allí sé nýtt. Vélin er til dæmis al- gjörlega ný af n'álinni og er ár- angur af fimm ára undirbún- ingsrannsóknum. Uppbaflega var markmið framleiðendanna að byggja vél, sem framleitt gæti 50% meiri orku en þáverandi vél ar Vauxhall, en væri samt ekki þyngri en þær. Þetta hefur þeim tekizt með ýmsum lagfærir.gum og nýjung- um. Nýjungar í vélinni eru m.a. þær, að kambásinn hefur verið fluttur upp fyrir ventlana til þess að losna viS undirlyftu- stengur. Vélinni hefur verið hall að um 45 gráður til þess‘ að losna við hristing og fjölda- margt annað hefur verið gert til þess að gera vélina sem bezt úr garði. Gírkassi Vauxhall Victðr er tekinn úr eldri gerðum, en tengslin og allt, sem þeim fylg- ir er nýtt. Fjöðrun á framhjólum er svip- uð og í eldri gerðum, en aS aftan eru fljótandi öxlar festir við skúffuna með örmum. Ofan á tengiörmunum eru gormar og höggdeyfar. Hemlar á Vauxliail 2000 eru diskahemlar að fram- an, en skálar að aftan. Á Vaux- hall 1600 eru skálar að aftan og framan. Að innan hefur Vauxhall Vict- or tekið gjörbreytingum, sem flestar miðast við að fulinægja kröfum Bandarikjamanna um öryggi. Undirritaður óskar eftlr nánari upplýsingum um NÝJA VICTORINN '68 NAFN HEIMILISFANG Nýi Victorinn er að verða metsölubíll í Evrópu. Sýningarbíll á staðnum. VAUXHALL- BEDFORD UMBOÐIÐ Ármúla .‘í, súni ’.ttt .900. Það er líka ásætt að sofa á gólfinu á þykkri dýnu, a.tn.k. til að byrj'a með. Ef maður klæðir dýnuna í sterk efni, er engin þörf að kaupa rúm lengi vel. Svo gæti dínan breyzt í sófa, ef áklæðinu væri breytt, hver segir að sófinin verði að standa á fótum? Lotta segir, að lífið hafi upp á svo margt að bjóða, sem er þýðingarmeira en húsgögn. Að minnsfca kosti á meðan tiægilegir peningar eru ekki fyrir hendi. Lotta neitar sér um húsgögn, og lætur pening ana þess í stað fara í annað, sem er henni dýrmætara, bæk ur, vinnuefni og ferðalög. Þetta eru skoðamir ungs dansks fólks. Gaman væri að heyra, hvernig, ungir íslend- ingar hugsa. í flestum tilfell- um býst ég við, að skoðanir þeirra samræmdust fremur skoðunum Rolfs, en skoðun- um stúlknanna tveggja. VÖRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTA Nýr kennslubréfa- flokkur á vegum Bréfaskóla SÍS & ASÍ BETRI VERZLUNARSTJÓRN, fyrri fl. Húnbogi Þorsteinsson, kennari við Samvinnuskólann, Bifröst, hefur þýtt kennslubréfin og heimfært til ís- lenzkra aðstæðba, en hann annast jafnframt kennslu í námsgreininni. Flokkurinn er 8 bróf. Hér er um að ræða fyrsta bréfa- námskeiðið í verzlunarstjórn á íslandi. Byggt er á reynslu færustu kennara við menntastofnanir Samvinnuhreyfingarinnar á Norðurlöndum. BRÉFASKÓLI SÍS & ASÍ BADMINTON Úrslitaleikir Reykjavíkurmótsins í badminton fara fram í dag (sunnudag) í íþróttahúsi Vals og hefjast kl. 2,00. Allir beztu badmintonleikarar borgarinnar í spennandi keppni. MÓTANEFNDIN Tilboð óskast í Opel Record fólksbifreið árgerð 1962 1 því ástandi sem bifreiðin nú er í eftir árekstur. Bifreiðin verður til sýnis i bifreiðaverkstæðinu Múla, Suðurlandsbraut 121 á mánudag og þriðjudag n.k. Tilboðum sé skilað í skrifstofu Samvinnutrygginga, Tjónadeild, fyrir kl. 17 á þnðjudag 2. apríl 1968.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.