Tíminn - 31.03.1968, Side 12

Tíminn - 31.03.1968, Side 12
Bókasafnið sem brann á Grænlandi fær gjafir MARGRÉT PRINSESSA GEFUR 112 ÞÚSUND KR. SJ-Reyikjavik, laugardag. Margrét prinsessa, ríkiserfingi Dana, hyggst leggja sitt af mörk- um til að endurreisa Græniands- safnið, sem eySilagðist að nokkru leyti, þegar Landsbókasafn Græn- lendinga í Godtháb brann nú í vetur. Næsta þriðjudag mun Mar- grét afhenda Hans Westermann, landsbókaverði, 15.000 d. kr. (ca. 112 þús. ísl. kr.) að gjöf í Amalien borg. Fé þetta er hluti af tekjmn af sýningu á brúðargjöfum Mar- grétar prinsessu og Henri greifa. Ætlunin er að nota fé þetta til kaupa á heildarsafni af gamla grænlenzka dagblaðinu „Atuagag- liutit“. Blaðið hefur komið út í meira en 100 ár. Heildarsafn það, sem fest verður kaup á, er úr dánarbúi dansk-ameríska prófess- orsins Svends Frederiksens, sem lézt í sumar. En óskert heildar- safn af blaði þessu er sjaldséðiír gripur, og með |>ví að eignast það er stigið skref fram á við til endurreisnar hinnar sögulegu deildar bókasafnsins. Fregnunum af væntanlegri gjöf Margrétar er tekið með miklum fögnuði í Grænlandi og vonast Grænlendingar til að fordæmi hennar muni leiða til frekari bóka gjafa frá Dan-mörkiU. Kannski verður nú öðrurn Dönum litáS í bóka-skápa sína og rekast þá á grænlenzk rit, sem hafa söguiegt gildi fyrir Grænlendinga, o-g væru bezt komin í hinu nýja Landslbóika safni á Grænlandi. Endurbygging Landsbókasafns- ins er nú til umræðu í mennta- málaráðuneytinu og Grænlands- málaráðuneytiin-u í Kaupmanna- höfn. Naumur sigur ISvía, 14-13 Svíar rétt mörðu sigur gegn ís landi í Norðurlandamóti pilta í Tönsberg í gær, en þeir unnu 14: 13. Þremur mínútum fyrir leiks- lok hafði ísland yfir, 13.12, en Sivíar voru heppnir á lokamínútun um- Eftir gangi leiksins, hefðu ísl. piltarnir átt að si-gra. 65. tbl. — Sunnudagur 3T. marz 1968. — 52. árg. FRAMSÓKN- ARVISTIN GLAÐAST HIO Leikararnir Allan Edwall og Sif Ruud fara me3 aðalhlutverkin í sjón varpsmyndaflokknum, hlutverk þeirra Carlssons og Maddömu Flod. STRINDBERG SKRIFAÐI GRÍNIÐ UM HEIMEYINGA, ÞEGAR HANN VAR „LEIÐUR OG ÞREYTTUR, HRJÁÐUR OG OFSÓTTUR ElNS OG VILLT DÝR" Þriðja kvöldið í fjögurra kvölda spilakeppni Framsóknar félags Reykjavíkur verður að Hótel Sögu fimmtudaginn 4. apríl n. k. og hefst kl. 8.30 síð- degis. Að spilunum loknum flyt ur Eysteinn Jónsson ávarp, en vistinni stjórnar Markús Stef- ánsson. Afhendig verðlauna fer fram. Aðgöngumiða þarf að panta I sínia 2 44 80. SJ-Reykjavík, laugardag. 1 kvöld sýnir íslenzka sjón- varpið fjTri hluta myndaflokks ins, Heimeyingar (Hemsö borna), sem gerður er eftir samnefndri skáldsögu sænska ríthöfundarins Augusts Strind- bergs. Skáldsagan Heimeyingar er af mörgum álitin léttasta og skemmtilegasta verk Strin(l- bergs, og hefur alla tíð notið mikilla vinsælda í Svíþjóð. Sjónvarpsbúningur hennar þótti takast afar vel og varð ekki s>ðui' vinsæll. Fólk þar í landi tók Heimeyingana jafn- vel fram yfir alla Dýrlinga og Bragðarefi, sem sýndir voru á sama tíma í sænska sjónvarp- inu. Það var einnig vel til dag- skrár þessarar vandað í alla staði, úrvalsleikarar fóru mcð aðalhlutverk, og kvikmyndun- in fór fram í sænska skerja- garði-num á svipuðum slóðuin og sagan á að hafa átt sér stað. Sjónvarpsgerð . Heimeyinga er í sjö þáttum og var mynda- flokkurinn upphaflega sýndur á sjö kvöldum, síðan var hann endursýndur og þá á tveimur kvöldum, 3 þættir fyrra kvöl(1- ið og fjórir hið seinna. í ís- lenzka sjónvarpinu verður myndaflokkurinn sýndur á tveim kvöldum. Þrír fyrstu þætth'nir verða sýndir í kvöld kl. 21.25 og fjór- ir síðari þættirnir á laugardags kvöldið kemur. íslenzkan texta gerði Ólafur Jónsson. í kvöld kynnumst við sem sé hinum kæna flökkufugli, Vermlendingnum Carlsson og ekkjunni maddömu Flo^, sem lætur töfrast af honum og gengur að eiga ha-nn, einnig syni ekkjunnar Gusten, og öll- um hinum íbúu-m Heimseyjar „Hann kom eins og svipti- vindur eitt aprílkvöld, með vír. kút í ól um hálsin-n. Hann var kynlegur kvistur, gamansam- ur, vild-i allt fyri-r alla gera, en var um leið sinnar eigin gæfu smiður . . þannig er Carlsson lýst. Hann gengui að eiga hina auðugu ekkju maddömu Flod. sem er nokkuð við aldur, og verður þa-nnig hæstráðandi á Heimey. Einn er sá, sem ekki gleðst yfir hjónabandi þeirra ekkjunnar og Carlsso-ns, sonur hennar Gusten. Hann er eirð- arlaus, kýs heldur að veiða fugl og sel en hirða um búskap inn. Honum fin-nst hann n-ú utangátta finnst ættaróðalið vera að ganga sér úr greipum. Carlsson girnist vinnustúlk una Klöru og kvöld eitt hverfa þau af bænum. Maddama Flod eltir þau út og fær lungna- bólgu í næturkuldanum. Mad- dama Flod deyr, og þá tekur Gusten stjórnina á bænum í sínar hendur. Og þegar Carls- so-n ætlar að laumast til að leita sér hugguna-r við brenni- vínstár, grípur Gu-sten byssu og segir: „Út með þig! Eða ég hleypi af!“ Loks er Gust- en orðinn hú-sbóndi á sínu heimili. ísin-n í skerj-agarði-num er hættulegu-r og á leið til kirkj- unnar fellur kista maddömu Flod í sjóinn og hverfur. Ca-rls- son hverfur úr í hríðina, hann villist, nemur staðar, kallar, fær ekkert svar. Ekkert tekur við ncma eimmanaleikinn, myrkrið, kuldinn og dauðinn. Heimseyingamir standa við vökina og syngja sálm, prestur- in-n fer með útfarartextann og sólin skín á gamalt, hrukkótt andlit hans. Sumarið 1887 dvaldi Strind- berg í Lindau við Bodenvatn í Þýzkalandi. Hanm var „leiður og.þreyttur, hrjáður og ofsótt ur eins og villidýr“, svo notuð séu orð hans sjálfs. Útgefend- ur í Svíþjóð f-ærðust af ýmsum og ólíkum ástæðum undan að ge-fa út bók, _sem hann hafði nýl-okið við. „Ég á sjö handrit óútgefim og voga ek-ki að semja fleiri. Mér finnst andstyggð að s-krifa: Það er hættuleg iðja að kafa niður í sál annarra og sj'álfs s-ín,“ segir hann. -Hjónaband hans og Siri vom Essen var um þessar mundir ekki sem bezt. Hann kvaldist af sjúklegri afbrýðissemi og á- sakaði eiginkonu sína um ó- tryggð. „Þá er þessum hjónabands- grínleik lokið eftir tíu ára sælu og leiðindí. Búið að sækja um skilnað og allt klapp- að og klárt. Það sem ég hef lært í lijónabandinu er þctla: Giftið ykkur aldrei! Því þið getið lent { því eins og herra Bovarv að lifa lífið á cnda án þess að vita hverri þið eruð kvæntir.“ Lagal-egur skilnaður varð þó ekki meö þeim hj-ónum fyrr em 1881. iSama ár (1887) skrifar hann fullur örvæntingar vini sínum málara-num, Garl Larson, frá Kaupmannahöfn. ,,Seninilega lýkur þessu með þv-í að ég sendi kúlu gegnum höfuð mitt! Það er mjög sennilegt. Hér er framtíðin m-yrk. Ég er alls staðar utanveltu, sér- staklega í mínu eigin landi!“ Síðar í bréfinu kveður við þunglyindislegur tónn: „Ég er orðinn gamall! Tím- inn líðu-r svo hratt í seinni tíð! Ma-nstu hvað ég var ungur á hinum góðu gömlu sæludög- um á Kym-endö." Strindberg dvaldi sjö sumur á Kymeindö, fyrst á stúdents- árum sínum milli 1870 og 1880 og síðar með Sirl von E-ssen. Eyjan varð honum nú t-ákn átthaganna, eini fasti punktur sjúks og hrjáðs ímyndumarafls hans. Með s-kilnað í hu-ga leggur Strindberg nú áf-orm sín, hann segir: „Siri fer sennilega til Miinc- lien og gerist óperusöngkona. Ég fer til Sandhamn, síð- an ætla ég að setjast einn að á Kymen^ö fyrir lífstíð. Lifa Iífi frummannsins. Ef til vill fá mér ráðskonu. Aldrei sjá (lagblað, eða leiða hugann að stjórnmálum eða ritdeilum — skrifa fagurbókmenntir, deila hlutskipti með lélegum rithöf- undum, hafa engin afskipti af konum." Strind-berg vann þó mikið um þessar mundir. í ágústlok skrifaði hann ei-num vina sinna og bað hann sp-yrja ritstjóra Sto-ekiholms Dagblad hvort hann vildi taka til birtingar fram-haldssögu, sem h-éti Bun- sö-Borna. Þetta varð skáldsagan „Heimeyingar", sem hann lau'k við nokkrum vikum síðar. Framhald á bls 23 „Hann kom eins og sviptivindur kvöld eitt I apríl, moð vínkút í ól um hálsinn. . Þannig hefst skáld- sagan „Heimseyingar". mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmm HUGSAÐIDAPR- AST ER HANN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.