Alþýðublaðið - 04.01.1990, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 04.01.1990, Qupperneq 8
Fimmtudagur 4. jan. 1990 Deilan á Eskifiröi: Engin lausn fundin Starfsfólk Hraðfrysti- hússins á Eskifirði mætti til vinnu sinnar í gær- morgun, þrátt fyrir að því bærist uppsagnar- bréf í fyrradag, þar sem öllum var sagt upp án fyrirvara í skjóli laga sem forsvarsmenn fyrir- tækisins telja heimila slíkt vegna ófyrirsjáan- legs hráefnisskorts. Þar sem engin verkstjóri var á staðnum til að setja fólk til vinnu, þá hélt það fund um stöðuna. Hrafnkell A. Jónsson, for- maður Verkalýðsfélagsins Arvakurs á Eskifirði sagði við Alþýðublaðið í gær að verkalýösfélagið viður- kenndi ekki lögmæti þess- ara uppsagna og á fundi starfsfólksins í gær var ákveðið að verkalýðsfélag- ið fylgdi því eftir aö íá upp- sagnirnar lýstar ólögmæt- ar. Áhafnir togaranna Hólmatinds og Hólmaness, sem Hraðfrystihús Eski- fjaröar gerir út, hafa neitað að sigla vegna ágreinings við útgerðarmanninn um fiskverð. Það þýöir að ekk- ert hráefni kemur að landi. Deilt er um hversu hátt hlutfall aflans sem sjó- mennirnir koma aö landi með eigi að greiöast á því veröi sem fæst fyrir hann á fiskmörkuöum. Á íundi landverkafólks- ins lýsti útgeröarmaöurinn því yfir að hann væri tilbú- inn að ræða fiskverðið við sjómenn. Sá fundur hófst kl. 16.00 síðdegis i gær. Hrafnkell A. Jónsson sagði viö Alþýðublaöiö eftir fundinn að þar heföu menn rætt i fullri vinsemd um stööu deilunnar en engin markverð niðurstaöa feng- ist. Grídarlegt tjón á Akureyri: Krossanesverksmiðjan eldi að bráð Mörg hundruð milljón króna tjón varð að öllum líkindum þegar Krossa- nesverksmiðjan á Akur- eyri brann að morgni gamlársdags. Tjónið hefur enn ekki verið metið en fulltrúar tryggingarfélag- anna hafa skoðað um- merkin. Fram hefur komið að brunavarnir voru ófull- nægjandi í verksmiðjunni. enda var hluti hennar ný- byggður og þar hafði ekki verið komið upp viðeig- andi brunavörnum. Níu verkamenn missa at- vinnu sína við þetta, þar sem þeir höfuð aðeins atvinnu fram .til enda loðnuvertíöar, en fyrirséð er aö ekki veröur nein loðna brædd í nánustu framtíð í verksmiöjunni. Elds- voðinn er einn sá mesti sem Slökkviliö Akureyrar hefur fengist við í 20 ár, og kom glögglega í Ijós að Slökkviliö- ið hefur ónógan búnað til að fást við eld af þessu tagi. Slökkviliö Reykjavíkur: 854 útköll Slökkvilið Reykjavíkur var 854 sinnum kallað út á nýliðnu ári, sem er nánast óbreyttur fjöldi útkalla frá árinu áður. Þetta á við um öll útköll, en þar sem slökkva þurfti eld var um 335 útköll að ræða, en 447 árið áður. Langflest útköll urðu í apr- ílmánuði eða 125, en fæst í ágúst eða 47. Athyglisvert má telja að þegar viðvörunar- kerfi fóru í gang var í 174 til- fellum áf 193 ekki um eld að ræða. Sjúkraflutningar voru alls 10.421, sem er lítið eitt meira en árið áöur. Þar af voru 2.982 útköll vegna slysa eða annarra neyöarflutninga. hefur fjöldi sjúkraflutninga haldist svo til óbreyttur frá ár- inu 1973 eða rúmlega 10 þús- und á ári. Á hinn bóginn tek- ur hver flutningur æ lengri tíma vegna vaxandi umferö- ar og lengri vegalengda. Eng- inn lést af völdum eldsvoða á nýliðnu ári, en einn áriö áöur. Jón Baldvin Hannibalsson: Frestar för til Israel Sjúkrasamlögin lögð niður Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hefur sent stjórn ísraels þau skilaboð að hann hafi tekiö þá ákvöröun að fresta fyrirhugaðri opin- berri heimsókn sinni til landsins. Að því er segir í fréttatilkynningu frá utanrík- isráðuneytinu er ástæöan það óvissuástand sem í land- inu ríkir. Hin opinbera heim- sókn utanríkisráöherra átti að hefjast í gær, 3. janúar. Nú um áramótin tóku gildi lög, þar sem gömlu sjúkrasamlögin eru lögð niður og starfsemi þeírra færð inn i Tryggingastofnun ríkisins í Reykjayík en til sýslumanna og fógeta utan Reykjavíkur. Alls voru lögð niður 40 sjúkrasamlög. í Reykjavík verða höfuöstöðvarnar að Laugavegi og Tryggvagötu 28. Um tíma var rætt um kaup á fasteign Brunabótafélagsins gegnt Tryggingastofnuninni, en frá því mun vera horfið. Enn mun vera óleyst deilan sem upp kom um launakjör þeirra starfsmanna sjúkrasamlaga sveitarfélaganna sem gerast ríkisstarfsmenn við breytinguna. A-mynd/E.ÓI. VEÐRIÐ í DAG Suðaustanátt, stinnings- kaldi með rigningu austan til á landinu fram eftir degi en léttir síðan til norðan og norðaustanlands. Um sunnan og vestanvert landið verður sunnan gola eða kaldi og skúrir. Fólk Yfirstjórn Arnarflugs hefur tekið tímabundn- um breytingum. Kristinn Sigtryggsson fram- kvæmdastjóri flugfélags- ins mun á næstu 3 mán- uöum sinna sérstökum verkefnum hvað fjármál- in varöar og framtíöar- skipulag. Á sama tíma munu annast daglega framkvæmdarstjórn þeir Gunnar Porualdsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri, Magnús Bjarnason aðstoðarfram- kvæmdastjóri og Magnús Oddsson svæöisstjóri. Þeir mynda saman fram- kvæmdastjórn sem Gunnar stýrir. Þetta er sannkölluð krísustjórn, en sem kunnugt er hefur Arnarflug misst aðra flug- vél sína í hendur ríkisins vegna skulda og hin flug- vélin var stöðvuö rétt fyr- ir brottför nýlega og henni þröngvað í skoðun. Félagið tekur aðra vél á leigu í millitíðinni, en augljóst er að mjög hefur harðnað á dalnum hjá fé- laginu. ★ Hinn góðkunni krati, Þorlákur Helgason, hefur fengið launalaust leyfi frá kennslu á Selfossi. Þannig hagar nefnilega til að Þorlákur hefur verið ráð- inn um fjögurra mánaða skeið til utanríkisráðu- neytisins sem upplýsinga- fulltrúi um málefni EFTA og EB. Það verður vænt- anlega nóg að gera hjá Þorláki þótt Jón Balduin Hannibalsson sé ekki lengur formaður ráð- herraráðs EFTA, því nú er ballið rétt að byrja fyrir alvöru, ef svo má að orði komast. ★ Árleg kirkju- og nýárs- ferð Útvistar verður sunnudaginn 7. janúar. Farið verður í Breiðabóls- stað í Fljótshlíð og gengið um Krappann með Jóni ú Árgilsstödum. í kirkjunni að Breiðabólsstað stend- ur séra Sváfnir Svein- bjarnarson fyrir stuttri helgistund og segir sögu staðarins. Brottför verður frá Umferðarmiðstöö- inni, bensínsölu, kl. 11. ★ Bókaútgáfan Letur hef- ur sent frá sér- bókina „Hvað er að gerast?” eftir Jón Þorleifsson. Jón hóf ritstörf hálfsjötugur en þó er þetta 12 bók hans og hefur hann komið víða við, í ljóðum, leikritum og sögum. í þessari bók rek- ur Jón stöðu íslands sem sjálfstæðs ríkis síðustu áratugina og færir m.a. rök fyrir þvi að sjálfstæö- ið sé oft meira í orði en á borði.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.