Alþýðublaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 6
6 Þriðjudagur 9. jan. 1990 SMÁFRÉTTIR + Eiginmaður minn Guðjón B. Baldvinsson fyrrv. deildarstjóri, Hagamel 27 lést laugardaginn 6. janúar. Anna Guómundsdóttir. Brahms tónleikar í Reykjavík og á Akranesi Áttundu og síðustu áskriftar- tónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís- lands á fyrra misseri verða í Há- skólabíói nk. fimmtudag 11. jan- úar og hefjast klukkan 20.30 og verða svo endurteknir í íþrótta- húsinu á Akranesi föstudaginn 12. janúar, einnig klukkan 20.30. Á efnisskránni verða eingöngu verk eftir Johannes Brahms: Tragíski forleikurinn, Konsert fyrir fiðlu, selló og hljómsveit og að lokum Sinfónía nr. 2. Einleikarar verða þau Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Gunnar Kvaran, sellóleikari. Hljómsveitarstjóri verður Petri Sakari, aðalstjórnandi hljómsveit- arinnar. Öll þessi verk eru samin á tíu ára tímabili, á árunum 1877—1887. Sinfónía nr. 2 op. 73 var frumflutt í Vín í árslok 1877 og er ein fjögurra sinfónía, sem hann samdi. Tragíski forleikurinn var einnig frumfluttur í Vínar- borg á jóladag 1880 og Tvíkons- ertinn fyrir fiðlu og selló var frumfluttur í Köln í Þýskalandi í október 1987. Guðný Guðmundsdóttir fiðlu- leikari, konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar íslands og Gunnar Kvaran sellóleikari, standa í fremstu röð íslenskra tónlistar- manna. Þau hafa hvort um sig haldið fjölmarga sjálfstæða tón- leika sem og í samvinnu við aöra tónlistarmenn á sviði stofutón- listar, auk þess að koma fram sem einleikarar meö Sinfóníu- hljómsveitinni. Ný ættfræði- námskeið Hjá Ættfræðiþjónustunni hefj- ast bráðlega ættfræðinámskeið, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Þar er veitt fræðsla um leitaraðferðir, sem eru í senn fljótvirkar og öruggar, gefið yfirlit um helstu ættfræðiheimildir og leiðbeiningar veittar um gerð ættartölu og niðjatals. Þá fá þátt- takendur tækifæri og aðstöðu til aö þjálfast í verki við að rekja eigin ættir og frændgarð með af- notum af víðtæku gagnasafni, m.a. kirkjubókum um land allt, manntölum, ættartöluhandritum og útgefnum bókum. Leiðbein- andi á námskeiðunum er sem fyrr Jón Valur Jensson, Innritun er hafin hjá Ættfræðiþjónustunni í síma 27101. Happdrætti heyrnarlausra Dregið var í Hausthappdrætti heyrnarlausra þann 22. desem- ber sl. og eru vinningsnúmer eftirfarandi: 1. 7996, 2. 1219, 3. 2263, 4. 10390, 5. 12609, 6. 3522, 7. 7421, 8. 12755, 9. 8750, 10. 2157, 11. 12110, 12. 1105, 13. 12186, 14. 11165, 15. 8133, 16. 6028, 17. 8585, 18. 1883, 19. 9192, 20. 7877, 21. 10006, 22. 2159. Vinninga má vitja á skrif- stofu Félags heyrnarlausra, Klapparstíg 28, alla virka daga, sími 91-13560. Félagið þakkar veittan stuðn- ing. Happdrætti Styrktarfélags vangefinna Dregið 24. desember 1989. 1. Bifreið, VOLVO 740 GLI nr. 75096. 2. Bifreið, SUZUKI FOX SAMURAI nr. 33404. 3. —10. Bifreið að eigin vali hver vinningur á kr. 700.000,- Nr. 1906 — 14582 — 19881 — 37019 — 43848 — 60766 — 75455 — 99410. • Krossgátan 16 7““ 2 3 u 4 5 □ 6 7 Ó 9 10 : L _ □ 11 □ 12 13 L—J m Lárétt: 1 fáni, 5 sprungur, 6 píp- ur, 7 tvíhljóði, 8 púkanum, 10 eins, 11 hvíldu, 12 fyrrum, 13 varðveitir. Lóðrétt: 1 vog, 2 kvenmanns- nafn, 3 rykkorn, 4 athygli, 5 sólg- in, 7 fé, 9 handsamaði, 12 borð- hald. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 svona, 5 stíg, 6 kot, 7 ós, 8 oftast, 10 Ra, 11 uku, 12 æðar, 13 sárar. Lóðrétt: 1 stofa, 2 vítt, 3 og, 4 austur, 5 skorts, 7 óskar, 9 auða, 12 ár. RAÐAUGLÝSINGAR Verkamannafélagið Dagsbrún Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráös um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1990, liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með þriðjudeginum 9. janúar 1990. Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Dagsbrún- ar fyrir kl. 17.00, fimmtudaginn 11. janúar 1990. Kjörstjórn Dagsbrúnar. Fjármálaráðuneytið — eignadeild — Til sölu eru hlutabréf Ríkissjóðs íslands í hf. Raf- tækjaverksmiðjunni (RAFHA). Nafnverð hlutabréfanna nemur kr. 10.800 þús., en það er sem næst 31 % hlutafjárins. Kauptilboðum skal skilað til fjármálaráðuneytisins eigi síðar en 16. janúar 1990. Upplýsingar eru veittar í fjármálaráðuneytinu, eignadeild Floklí tarfið Flokksstjórn Alþýðuflokksins Flokksstjórnarfundur verður haldinn laugardaginn 13. janúar nk. kl. 10.30 í Borgartúni 6. Dagskrá: 1. Stjórnmál í upphafi árs. Sveit- arstjórnarkosningar. Framsaga: Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð- herra og formaður Alþýðu- flokksins. 2. Helstu verkefni vorþings. Framsaga: Eiður Guðnason, form. þingflokks Alþýðu- flokksins. 3. Önnur mál. ALÞÝÐUFLOKKURINN Hafnarfjörður Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði heldur fund þriðjudaginn 9. janúar kl. 20.30 í Al- þýðuhúsinu. Dagskrá: 1. Prófkjör vegna bæjarstjórnarkostninganna 2. Önnur mál Stjórnin. Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps Áríðandi félagsfundur þriðjudaginn 9. janúar kl. 20.30. Fundarefni: 1. Kosningaundirbúningur 2. Þorrablót 3. Önnur mál Mætum öll. Stjórnin

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.