Alþýðublaðið - 09.02.1990, Page 8
MMMBLOIII
Föstudagur 9. febr. 1990
Mistök borgarskipulags og borgarverkfrœdings í Rimahverfi:
Einbýlishúsum ætlaður
staður í mýrarfeninu
— þar er allt að 6,5 metrar niður á fastan grunn
Borgaryfirvðld neydd-
ust nýlega til að láta end-
urskipuleggja nýsam-
þykkt deiliskipulag fyrir
Rimahverfi í Borgarholti
I norðan við Grafarvogs-
hverfið. I Ijós kom að
undir væntanlegum ein-
býlishúsum, a.m.k sum-
um hverjum, reyndist
dýpi jarðvegs vera allt að
6,5 metrar.
Gerð hafði verið könnun
á dýpt jarðvegsins í hverf-
inu, en svo er að sjá að hún
hafi verið einum of lausleg.
Deiliskipulag hverfisins
byggðist á upplýsingum
þessarar „könnunar".
Gissur Símonarson, full-
trúi Alþýðuflokksins í bygg-
inganefnd borgarinnar
sagði Alþýðublaðinu i gær
aö óvanalega langt hefði
verið á milli prufuhola sem
gerðar voru á svæðinu, ár-
angurinn væri sá að taka
þyrfti deiliskipulagið til
endurskoðunar með til-
heyrandi kostnaði.
,,Það er áreiðanlega eins-
dæmi, alla vega þekki ég
ekki til þess á síðustu ára-
tugum að endurvinna þurfi
deiliskipulag af ástæðum
sem þessum", sagði Gissur.
,,Það er afar brýnt að kom-
ið verði í veg fyrir að mis-
tök sem þessi endurtaki
sig“.
Minnihluti bygginga-
nefndar kom fram með til-
lögu á fundi nefndarinnar í
gær þar sem því er beint til
borgarverkfræðings og for-
stöðumanns borgarskipu-
lags að vinnubrögð í þess-
um efnum verði bætt. Var
þeirri tillögu vísað áfram til
umsagnar réttra aðila.
Blaðamannafundur-
ur með aðstoð
gervihnattar
Islenskir blaðamenn
áttu í gær blaðamanna-
fund um gervihnött með
John H. Hawes, fuiltrúa
Bandarísku ríkisstjórnar-
innar. Asamt íslendingum
tóku fjögur önnur Evrópu-
ríki þátt í þessum óvana-
legu fundarhöldum,
Frakkland, Þýskaland,
Belgía og Finnland. Blaða-
mennirnir sátu hver í sínu
landi og báru fram spurn-
ingar sínar við Hawes, sem
svaraði um hæl á sjón-
varpsskjánum.
Fundir sem þessir eru orðn-
ir nokkuð tíðir og þykja mjög
áhrifaríkir til að koma á fram-
færi ólíkum skoðunum og
sjónarhornum. Það er hins
vegar ekki alltaf sem Islend-
ingum gefst kostur á að taka
þátt í alþjóðlegum blaða-
mannafundum sem þessum.
Fundurinn var boðaður í
tilefni af fundi utanrikisráð-
herra NATO- og Varsjár-
bandalagsrikja í næstu viku,
12 til 28 febrúar. Þar verða
ræddar tillögur Bush, Banda-
ríkjaforseta sem nefndar hafa
verið „open skies," eða opn-
un lofthelgi. í þeim er lagt til
að ríkjum austurs og vesturs
verði heimilað gagnkvæmt
könnunarflug yfir landsvæði
hvors annars. Talið er að slikt
gagnkvæmt eftirlit muni efla
alþjóðlega samvinnu og
stuðla að alþjóðlegu öryggi
og stöðugleika.
Menn í ólíkum heimshlutum ræðast við.
Ráöh úsbygging:
Borgin semur við ístak
— allir helstu uerkþœttir veröa þó boönir út
Davíð Oddsson borgar-
stjóri og Páll Sigurjónsson for-
stjóri Istaks hf. hafa undirrit-
að samning um áframhald-
andi framkvæmdir við Ráð-
hús Reykjavíkur. ístak verður
aðalverktaki eða eftirlits-
verktaki, en borgin mun sjálf
leggja fram nokkra stóra
verkþætti auk þess sem allir
helstu verkþættir verða
boðnir út til undirverktaka.
Hefur þegar verið auglýst eft-
ir verktökum sem vilja koma
til greina í forvali, sem fram
fer. Næstu verkþættir eru raf-
lagnir, pipulagnir, loftræsti-
kerfi og múrverk, allt verður
þetta boðið út í lokuðum út-
boðum að loknu forvalinu.
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag
VEÐRIÐ
í DAG
Norð-vestanátt um mest
allt land stinningskaldi
norðanlands og austan en
mun hægari suð-vestantil.
Él um mest allt land. Hiti
viðast nálægt frostmarki.
Fer að kólna norðanlands
þegar líður á nóttina.
ÍSLAND
Hitastig
borgum
Evrópu
kl. 12
í gær
að islenskum
tima.
Fólk
Birgir Arnason, aðstoðar-
maður viðskipta- og iðn-
aðarráðherra hefur verið
ráðinn til starfa hjá hag-
fræðideild aðalstöðva Frí-
verslunarsamtaka Evr-
ópu- EFTA — í Genf og
hefur störf þar síðari
hluta marsmánaðar. Þar
mun hann starfa að samn-
ingaviðræðum EFTA og
EB um myndun sameigin-
legs evrópsks efnahags-
svæðis, sérstaklega varð-
andi samruna fjármagns-
markaða og aukið frjáls-
ræði í viðskiptum með
fjármálaþjónusu milli
landa.
★
Jóhann Heidar Jóhanns-
son, læknir vinnur að því
meðfram læknisstörfum
sínum að safna svokölluð-
um íorðum í sambandi
við læknisfræði. Lækna-
blaðið reynir alltaf að
nota íslensk fagorð sé
þess nokkur kostur, en
talsvert mun vanta á að
blaðið sé enn „hreint" af
latínuslettum, og á
sjúkrahúsum talar starfs-
fólk „már sem sjúkling-
um er gjörsamlega óskilj-
anlegt. Jóhann Heiðar
brýnir lækna í síðasta
Læknablaði og hvetur þá
til að skrifa sér, hringja i
sig — og þá einungis á
venjulegum umsömdum
vinnutíma ríkisstarfs-
manna, en frábiður sér aö
læknar hrópi á sig og kalli
á götum úti þótt þeir lumi
á góðu orði, eða hringi í
sig að næturlagi!
★
Jóhanna Thorsteinson,
fóstra í Kópavogi sem
sagt var frá í blaðinu á
miðvikudag segir okkur
að hún hafi alls ekki skipt
um flokk, hún sé í Sjálf-
stæðisflokknum eftir sem
áður. Hún hafi tekið að
sér nefndarstörf á vegum
Borgaraflokksins, „af fag-
legum ástæðum ein-
göngu“. Mannval Borgar-
anna virðist því ekki mik-
ið, úr því þeir þurfa að
séilast inn í raðir sjálf-
stæðismanna eins og hér
gerðist.
★
Birgir Porgilsson, ferða-
málastjóri, maður með
áratuga langa reynslu í
ferðamálastarfsemi, fyrst
sem yfirmaður milji-
landaflugs Flugfélags ís-
lands, hefur orðið við ósk
samgönguráðherra að
taka að sér sérstök verk-
efni fyrir ráðherrann á
sviði íerða- og flugmála,
einkum með tilliti til við-
ræðna við EFTA og EB.
Birgir mun einnig verða
formaður Flugeftirlits-
nefndar, sem hefur eftirlit
með þjónustu flugrek-
enda. Birgir verður í árs-
.leyfi frá starfi ferðamála-
stjóra frá 15. mars að
telja.