Alþýðublaðið - 17.02.1990, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 17.02.1990, Qupperneq 7
Laugardagur 17. febr. 1990 7 heígi! Góða h beinn Bjarnason, flautuleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir, pí- anóleikari halda tónleika í Sel- fosskirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 16.00 og í Félags- heimili Hrunamanna á Flúöum sunnudaginn 18. febrúar kl. 14.00. Þau munu leika verk eftir C.P.E. Bach, Rússann Sergej Pro- kofjev, Ungverjann Béla Bartók og íslendingana Árna Björnsson og Atla Ingólfsson. Útivist um helgina Á sunnudaginn 18. febrúar verður farin vetrarferö á Þing- völl. Genginn veröur góöur hringur um svæðiö í fylgd meö fararstjórum, litiö í gjárnar og Öxarárfoss í vetrarbúningi skoö- aður. Auöveld ganga sem allir geta tekiö þátt í og þá er bara aö drífa sig. Brottför frá Umferðar- stöð-bensínsölu kl. 13.00. Verð kr. 1000. Þennan sama dag 18. feb. verður farin létt skíöaganga. Genginn veröur léttur hringur á Mosfellsheiði, kaffi í Skálafelli. Byrjendur geta bæst í hópinn og verður tekið sérstakt tillit til þeirra. Brottför frá Umferöamiö- stöð-bensínsölu kl. 13.00. Verð kr. 700. Skemmtidagskrá í Sjallanum á Akureyri í Sjallanun laugardagskvöldið 17. febrúar verður frumsýnd sér- stök skemmtidagskrá, sem byggir á tónlistarferli Pálma Gunnarssonar og hefur hún hlotið nafniö STAÐAN í HÁLF- LEIK. Höfundur og leikstjóri sýning- arinnar er Bjarni Hafþór Helga- son, sjónvarpsstjóri Eyfirska sjónvarpsfélagsins og kynnir veröur sjónvarpsmaðurinn Sig- mundur Ernir Rúnarsson. Auk Pálma Gunnarssonar koma fram í sýningunni söngkonurnar Ellen Kristjánsdóttir og Erna Gunnars- dóttir. Hljómsveitin sem sér um allan tónlistarflutninginn er und- ir stjórn Atla Örvarssonar. Áætlað er aö „Staðan í hálf- leik" verð svo sýnd framvegis á laugardagskvöldum í Sjallanum. HALLA BERGÞÓRA BJÖRNSDÓTTIR 15. febrúar 1990 BREYTING Á REGLUGERÐUM Læknaþjónusta Greiðslur hjá heimilislækni og heilsugæslulækni. 0 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis á dagvinnu- tíma þ.e. á milli kl 0800 og 1700. Inni- falin er ritun lyfseðils. 500 kr. - Fyrir viðtal á stofu læknis utan dag- vinnutíma og á helgidögum. Innifalin er ritun lyfseðils. 400 kr. - Fyrir vitjun læknis til sjúklings á dag- vinnutíma. 1000kr.-Fyrir vitjun læknis til sjúklings utan dagvinnutíma. Greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp og komur á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúss. 900 kr. - Fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamót- töku sjúkrahúss. 300 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu til sérfræðings, á göngudeild, slysadeild og bráðamóttöku sjúkra- húss. Greiðslur fyrir rannsóknir og röntgengreiningu. 300 kr. - Fyrir hverja komu. 100 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja komu. Elli- og örorkulífeyrisþegar skulu aldrei greiða samanlagt hærri fjár- hæð en kr. 3000 á einu almanaksári fyrir sérfræðilæknishjálp, komu á göngudeild, slysadeild, bráðamót- töku sjúkrahúss, rannsóknir og röntgengreiningu. Allir eiga að fá kvittanir fyrir þessum greiðslum. ~ Ofangreindar greiðslur eru hámarksfjárhæðir. Innifalinn í greiðslu er kostnaður vegna hvers kyns einnota áhalda, umbúða og þess háttar. Lyfjakostnaður Greiðslur fyrir lyf. 550 kr. - Fyrir lyf af bestukaupalista. 170 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir hverja lyfjaafgreiðslu af bestukaupalista. 750 kr. - Fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. 230 kr. - Elli- og örorkulífeyrisþegar fyrir önnur lyf sem greidd eru af sjúkratryggingum. Eitt gjald greiðist fyrir hvern 100 daga lyfja- skammt, eða brot úr honum. Gegn framvísun sérstaks lyfjaskírteinis í lyfja- búð fást ókeypis ákveðin lyf, við tilteknum langvarandi sjúkdómum. Læknar gefa vottorð til Tryggingastofnunar ríkisins í þeim tilvikum, sem réttur á skírteini kann að vera fyrir hendi. SKÝRINGAR Á FRAMKVÆMD REGLUGERÐAR NR. 62/1990 UM GREIÐSLUÞÁTTTÖKU SJÚKRATRYGGÐRA í LÆKNISHJÁLP O.FL. Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis Koma til heimilis- eða heilsugæslulæknis á dagvinnutíma er sjúkl- ingi ætíð að kostnaðarlausu. Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða bráðakomu eða komu skv. tímapöntun. Vegna komu til heimilis- eða heilsugæslulæknis utan dagvinnu- tíma greiðir sjúklingur kr. 500 nema læknir hafi beinllnis sjálfur ákveðið að sinna læknisstarfinu utan dagvinnutfma. Koma á slysavarðstofu Sjúklingur greiðir kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkuI ífeyrisþega) vegna komunnar. / Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknarstofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Sjúklingur greiðir fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rann- sóknastofu heilsugæslustöðvar (ef sérstakur starfsmaður sér um rannsóknastofuna). Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvortfyrir elli- og örorkulífeyrisþega) f hverri komu. Koma til sérfræðings Fyrir komu til sérfræðings og endurteknar komur til sérfræðinga greiðir sjúklingur í hvert skipti kr. 900 (kr. 300 fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega). Til viðbótar komugjaldi greiðir sjúklingur fyrir röntgengreiningu og rannsóknir á rannsóknastofu ef um það er að ræða. Sjúklingur greiðir þó aldrei hærri fjárhæð en kr. 300 fyrir hvort (kr. 100 fyrir hvort fyrir elli- og örorkulífeyrisþega) í hverri komu. Fari sjúklingur í aðgerð og svæfingu greiðir hann aðgerðarlækni kr. 900 og svæfingalækni kr. 900 (kr. 300 + 300 fyrir elli- og örorkulff- eyrisþega). Rannsóknir á rannsóknarstofu Sjúklingur greiðir kr. 300 (elli og örorkulífeyrisþegar kr. 100) fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknastofu heilsugæslustöðvar, sjúkrahúss eða annarrar stofnunar. Þótt hluti rannsóknarsýnis sé sendur annað til rannsóknar greiðir sjúklingur ekki viðbótargjald vegna þess. Sendandi sýnis skal gera grein fyrir því á rannsóknar- beiðni hvort sjúklingur sé þegar búinn að greiða vegna rannsókn- ar, sem fram fór á sýnistökustað. Röntgengreining Vegna hverrar komu til röntgengreiningar, á heilsugæslustöð eða annars staðar, skulu sjúklingar greiða kr. 300 (kr. 100 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega). Ekki skiptir máli hvaðan sjúklingur kemur, þ.e. frá heilsugæslulækni, heimilislækni eða sérfræðingi. Hvers kyns önnur innheimta hjá sjúklingum en að framan greinir, þ.m.t. vegna einnota vara, umbúða o.þ.h., eróleyfileg. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS ARGUS/StA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.