Alþýðublaðið - 23.03.1990, Page 5
Föstudagur 23. mars 1990
5
FRÉTTASKÝRING
Þessi mynd var tekin í upphafi
mikils rimmufundar í Alþýðubanda-
lagsfélaginu í Reykjavík, þar sem
tekist var á um sameiginlegt fram-
boð og Birtingarmenn urðu undir.
Þegar myndin birtist í Alþýðu-
blaðinu daginn eftir var þess getið
til í myndatexta að hér héldi Sigur-
jón Pétursson á fyrsta sætinu. Sú
spá virðist nú vera að rætast.
Forvalsraunum lokiö:
„Gamli góði G-listinn"
Þegar borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðismanna féll í
kosningunum 1978, fékk Alþýðubandalagið fimm borgar-
fulltrúa, aðeins tveim minna en Sjálfstæðisflokkurinn.
Þetta var glæsilegri sigur en Alþýðubandalagsmenn sjálfir
höfðu þorað að vona. Nú, tólf árum síðar er Alþýðubanda-
laginu spáð einum manni í skoöanakönnunum. Til að koma
þeim manni inn í borgarstjórn þarf þó Alþýðubandaiagið
fyrst að koma saman lista. Að því hefur verið unnið undan-
farnar vikur og gengið næsta brösuglega. í gær voru þó
taldar horfur á því að forvalslisti yrði birtur opinberlega í
Þjóðviijanum í dag. Á forvalslistanum verður m.a. að finna
nöfn Sigurjóns Péturssonar og Guðrúnar Ágústsdóttur sem
að líkindum munu skipa fyrsta og annað sæti endanlegs
framboðslista.
Þegar Alþýðubandalagið vann
kosningasigurinn í borgarstjórnar-
kosningunum 1978, hafði flokkur-
inn lengi verið sterkasta andstöðu-
aflið innan borgarstjórnarinnar. Á
sama hátt og Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur í borgarstjórnarkosning-
um jafnan fengið talsvert af at-
kvæðum frá fylgismönnum ann-
arra flokka, þá fylktu kjósendur
sér um Alþýðubandalagið til að
efla einn flokk öðrum fremur til
áhrifa. Alþýðubandalagið naut
þess þá að vera stærsti minnihluta-
flokkurinn og kjósendur virtust
vilja gefa honum tækifæri.
Að læra lexiuna sína____________
Eiginlega hefðu minnihluta-
flokkarnir strax að loknum þess-
um kosningum átt að læra þá lexíu
að kjósendur hafi meiri trú á sam-
stæðum meirihluta en samstarfi
margra sundurleitra fiokka. Svo
mikið er víst að kjósendur lærðu
sína lexíu af brösóttu samstarfi
iitlu flokkanna og létu alveg eiga
sig að endurnýja umboðið fjórum
árum síðar.
Á þessu kjörtímabili virtist loks-
ins sem minnihlutaflokkarnir ætl-
uðu að láta sér ófarir undangeng-
inna kosninga að kenningu verða.
í upphafi kjörtímabilsins var lagð-
ur grunnur að náinni samvinnu
borgarfulltrúa minnihlutans og á
síðari hluta tímabilsins hafa verið
gerðar ákveðnar tilraunir til að
koma á fót sameiginlegu framboði
allra minnihlutaflokkanna. Þessar
tilraunir runnu þó út í sandinn og
eins og gjarna gerist þegar sam-
eingingartilraunir fara út um þúf-
ur, skilja þær eftir sig ákveðin sár-
indi.
Þessara sárinda gætir innan
allra minnihlutaflokkanna en þó
hvergi eins og í Alþýðubandalag-
inu þar sem sameiningartilraun-
irnar urðu til þess að staðfesta enn
fremur þann klofning sem þó var
nógu djúpstæður fyrir.
Birtingu var boðiö efsta sætið
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins mun hafa verið rætt um
það framan af vetri, innan þess
arms Alþýðubandalagsins sem
kenndur hefur verið við „flokks-
eigendur." að reyna að ná einhvers
konar sættum við Birtingarfólk. í
þessu sambandi var m.a. rætt um
að Sigurjón Pétursson drægi sig í
hlé eftir 20 ára setu í borgarstjórn
og Birting fengi efsta sætið á G-list-
anum.
Slík áform urðu þó endanlega
að engu þegar stór hluti Birtingar
ákvað að ganga til liðs við Nýjan
vettvang eftir að hafa orðið undir
á tveim átakafundum í Alþýðu-
bandalagsfélaginu í Reykjavík.
Þessar hugmyndir urðu þó til þess
að síðustu vikur hefur staðið yfir
leit að fólki sem komið gæti í stað
Sigurjóns Péturssonar. Það er til
marks um þetta að Guðrún Ág-
ústsdóttir er sögð hafa margoft
gefið til kynna í persónulegum
samtölum að hún teldi rétt að fá
nýtt fólk í efstu sætin. Ummæli
hennar í þessa veru hafa jafnvel
verið túlkuð þannig að hún yrði
ekki með á listanum ef Sigurjón
Pétursson yrði í fyrsta sæti.
Framboð dregin til baka________
Það er þó skemmst frá því að
segja að leitin að nýju fólki bar
ekki tilætlaðan árangur. Hins veg-
ar urðu tilraunirnar til að finna
nýjan kandítat þess valdandi að
tveimur mönnum sem gefið höfðu
kost á sér í forvali snerist hugur og
þeir drógu framboð sitt til baka.
Þegar þessi tíðindi spurðust út
gaus upp sá kvittur að Alþýðu-
Hildur Jónsdótt-
ir neitaði að
þiggja efsta sœt-
ið á lista Al-
þýðubandalags-
ins. Sigurjón
Pétursson stefnir
á fimmta kjör-
tímabilið í borg-
arstjórn. Guð-
rún Ágústsdóttir
uerður trúlega í
öðru sœtinu.
Forvalslistinn
birtur i Þjóðvilj-
anum í dag ef
allt gengur sam-
kvœmt áœtlun.
bandalagið væri að gefast upp á
því að koma saman framboðslista
og innan flokksins ætti sú hug-
mynd vaxandi fylgi að fagna að
Alþýðubandalagið snerist í heild
til fylgis við nýjan vettvang. Það
var einkum DV sem hélt þessu
fram.
Sannleikurinn er hins vegar sá
að slíkar sögusagnir voru að
mestu tilhæfulausar. Það sem
helst lá að baki jjeim munu hafa
verið hugmyndir sem nokkrir
þungavigtarmenn innan Birtingar
eru sagðir hafa viðrað síðustu
daga og gengu út á að Alþýðu-
bandalagið gengi til liðs við Nýjan
vettvang en í staðinn myndu þeir
persónulega vinna að því að
leggja Birtingu niður. Af forystu
Alþýðubandalagsfélagsins var
þessum hugmyndum hafnað.
Aðalslagurinn eftir
Það sem liggur að baki þessum
sáttatilraunum er ótti ýmissa Birt-
ingarmanna við að rjúfa að fullu
tengslin við Alþýðubandéúagið.
Að hluta til myndi það veikja stöðu
Ólafs Ragnars Grímssonar veru-
lega en þó skiptir hitt ekki minna
máli að Birtingarmenn líta í raun
svo á að aðalslagurinn innan Al-
þýðubandalagsins sé eftir. Úrslita-
orrustuna á nefnilega ekki að
heyja fyrr en kemur að Alþingis-
kosningum. Út frá þessu sjónar-
miði skiptir auðvitað höfuðmáli
að halda tengslunum milli hinna
tveggja arma flokksins. Rofni þau
nú, óttast menn innan Birtingar að
mun stærri hluti verði eftir í
flokknum, þegar til endanlegs
klofnings kemur vorið 1991.
Þetta virðist eðlilegasta skýring-
in á tiiraunum þungavigtarmanna
innan Birtingar til að leita sátta við
forystuna í Alþýðubandalagsfélag-
inu. Sáttatilraunir eru hins vegar
nokkurn veginn dæmdar til að
mistakast á þessu stigi málsins. Til
þess er klofningurinn < Reykjavík
fyrir löngu orðinn of djúpstæður.
Eftir að Gunnar H. Gunnarsson
og Arnór Pétursson drógu sig út úr
forvalinu, varð ljóst að tíminn var
að renna frá uppstillinganefnd Al-
þýðubandalagsfélagsins. Frekari
tilraunum til að endurnýja fram-
boðslistann var því hætt og á fundi
í fyrrakvöld var gengið frá forvals-
lista með 13 eða 14 nöfnum. List-
ann átti að birta í Þjóðviljanum í
gær en á síðustu stundu kom í ljós
að hann fullnægi ekki reglum
flokksins um kynjakvóta. Sam-
kvæmt þessum reglum má hlutfall
annars hvors kynsins ekki vera
undir 40% á framboðslista. Þótt
þetta þurfi ekki að gilda um lista til
forvals mun þó venjan vera sú að
virða kynjakvótann þar einnig.
Hildur sagði nei_______________
Nöfnin á forvalslistanum feng-
ust ekki uppgefin í gær en sam-
kvæmt heimildum Alþýðublaðs-
ins mun vera að finna þar nöfn
þeirra Sigurjóns Péturssonar og
Guðrúnar Ágústsdóttur, auk
þeirra sem vitað var að höfðu gef-
ið kost á sér og ekki dregið sig til
baka, en það voru Guðrún K. Ola-
dóttir, starfsmaður Sóknar, og
Haraldur Jóhannsson hagfræðing-
ur.
Það vekur hins vegar athygli að
nafn Hildar Jónsdóttur er ekki á
forvalslistanum. Mjög ákveðnar
tilraunir höfðu þó verið gerðar til
að fá hana í framboð og ég tel
heimildir traustar fyrir því að í
raun hafi henni verið boðið fyrsta
sætið á framboðslistanum. Það
mun ekki hafa verið fyrr en í fyrra-
dag sem Hildur gaf ákveðið afsvar.
Með framboði Hildar var ætlun-
in að slá ýmsar flugur í einu höggi.
Hún var á sínum tíma á framboðs-
lista Fylkingarinnar og hefur því
yfir sér mjög ákveðinn vinstri blæ.
Samtímis hefði hún verið nýtt and-
lit í alvörupólitík og þar fyrir utan
er almennt ekki talið spilla að hafa
konu í efsta sætinu.
Ekki lengur eftir neinu að bíða
Eftir að Hildur gaf ákveðið af-
svar í fyrradag, mun forystusveit
Alþýðbandalagsfélagsins hafa tal-
ið að ekki væri lengur eftir neinu
að bíða og á fundi í fyrrakvöld var
gengið frá listanum að mestu leyti.
Opinberlega gefa allir á forvalslist-
anum kost á sér í hvaða sæti list-
ans sem er, en á hinn bóginn má
telja víst að Sigurjón Pétursson
muni verða í fyrsta sæti og Guðrún
Ágústsdóttir í öðru.
I gær var reiknað með að for-
valsgögn yrðu send til félaga í Al-
þýðubandalagsfélaginu öðru
hvoru megin við helgina. Úrslit
ættu því að liggja fyrir eftir rúma
viku, eða upp úr næstu helgi. Að
því er heimildir okkar herma
hyggjast þeir Birtingarfélagar,
sem jafnframt eru meðlimir í fé-
laginu, ekki neyta atkvæðisréttar
síns í forvalinu. Það ætti því að
vera nokkuð ljóst að listi Alþýðu-
bandalagsins að þessu sinni verð-
ur „gamli góði G-listinn.“