Alþýðublaðið - 23.03.1990, Síða 6
6
Föstudagur 23. mars 1990
réftir í stuttu máli Fréttir í stuttu máli Fréttir í stuttu máli Fréttir í stutt
Fræðslufundir
S-Afríkusamtaka
Suður-Afríkusamtökin gegn Ap-
artheid haida fjóra fræðslufundi
næstu fjögur mánudagskvöld í
húsakynnum sínum að Hverfisgötu
50A, 3. hæð. Eru fundirnir öllum
opnir, sem leggja vilja lóð á vogar-
skálina til þess að kollvarpa hinu
ómannúðlega Apartheid-kerfi. Á
fyrsta fundinum á mánudagskvöld-
ið verður fjallað um Steve Biko og
baráttuna á áttunda áratugnum,
einkum í Ijósi kvikmyndarinnar
„Cry freedom."
Nýjar
kennslubækur um
landið okkar
Námsgagnastofnun hefur gefið út
tvær nýjar námsbækur, báðar um Is-
land og eru ætlaðar börnum 10—12
ára gömlum. Höfundur bókanna er
Torfi Hjartarson, en Björn Rúriksson
tók flestar myndir í bækurnar. Bæk-
ur þessar heita Land og líf og
Landshorna á milli.
í Landi og lífi er fjallað um sam-
búð lands og þjóðar í stórum drátt-
um og leitast við að skýra ýmsa lyk-
ilþætti í íslenskri náttúru. Bókin
dregur upp einfalda mynd af land-
inu í heild. Landshorna á milii gerir
einstökum landshlutum skil, stað-
háttum er lýst, ennfremur helstu
kennileitum, byggð og atvinnulífi.
Allt er þetta einkar skemmtilega
gert og mun án efa reynast börnum
hið skemmtilegasta námsefni. Ekki
spillir heldur að myndir í bókinni
eru góðar og allar í litum.
Félagsmála-
stofnun flutt í
Síðumúla
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar flutti nýlega í hús sem borgin
keypti fyrir stofnunina að Síðumúla
39 þar sem áður var skrifstofa Al-
mennra trygginga hf.. Kaupverð
hússins var 90 milljónir króna í ág-
úst á síðasta ári, — en við þá upp-
hæð má bæta 33 milljónum sem
fóru í þakviðgerð og breytingar inn-
anhúss.
Mikil bragarbót verður með þessu
á starfsemi stofnunarinnar, sem
flutti úr þröngu og ófullkomnu hús-
næði í rúmlega 2000 fermetra á fjór-
um hæðum.
Erótík í Gallerí Borg
Tíu íslenskir listamenn sýna um
þessar mundir erótísk myndverk í
Gallerí Borg. Þeir sem myndir eiga
á sýningunni eru Alfreð Flóki, Bragi
Ásgeirsson, Harpa Björnsdóttir, Jó-
hannes Jóhannesson, Jón Axel
Björnsson, Magnús Kjartansson,
Páll Guðmundsson, Sverrir Ólafs-
son, Valgarður Gunnarsson og Ör-
lygur Sigurðsson. Myndin sem hér
fylgir er að verki Alfreðs Flóka, Fjöl-
skyldan frá 1984.
RAÐAUGLÝSINGAR
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í smíði og upp-
setningu flotþaks á miðlunargeymi á Háhrygg, sem
er tæpa 2 km vestan Nesjavalla.
Um er að ræða smíði á einingum úr ryðfríu stáli og
samsetningu þeirra alls um 14 tonn.
Verkinu skal lokið 15. júní 1990.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 5.
apríl 1990, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGA'R
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Tilkynning um
gatnagerðargjöld
í Reykjavík
Að gefnu tilefni er vakin athygli á ákvæðum reglu-
gerðar nr. 511, 1988, varðandi gatnagerðargjöld í
Reykjavík og breytingu á þeim, sem verður 1. júlí
1990. Til 1. júlí nk. ber samkvæmt reglugerðinni að
greiða hálft gatnagerðargjald af nýbyggingum og
stækkunum húsa á eignarlóðum og leigulóðum,
sem borgarstjórn Reykjavíkur úthlutaði fyrir 4. maí
1984, nema sérstakir samningar leiði til annars.
Grundvöllur gatnagerðargjalds er samþykkt bygg-
ingarnefndar á teikningum og miðast ofangreint
því við, að teikningar af nýbyggingum eða stækkun
húsa hafi verið samþykktar í byggingarnefnd
Reykjavíkur fyrir 1. júlí 1990. Eftir þann dag ber að
greiða fullt gatnagerðargjald af byggingum á öllum
lóðum í Reykjavík, sem ekki eru sérstaklega undan-
þegnar með samningum eða á annan hátt.
Athygli er vakin á því, að því fyrr, sem teikningar
eru lagðar fyrir byggingarnefnd, er líklegra, að unnt
verði að afgreiða þær fyrir 1. júlí nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð við
kjör fulltrúa á 9. þing Landssambands iðnverka-
fólks, sem haldið verður í Reykjavík dagana
20.-21. apríl 1990.
Tillögur skulu vera um 28 aðalmenn og 28 til
vara.
Tillögum, ásamt meðmælum eitthundrað full-
gildra félagsmanna skal skila á skrifstofu fé-
lagsins, Skólavörðustíg 16, eigi síðar en kl.
11.00 fyrir hádegi fimmtudaginn 29. mars 1990.
Stjórn löju
STUÐNINGSMENN
ÓLÍNU
ÞORVARÐARDÓTTUR
Baráttufundur fyrir Ólínu
Þorvarðardóttur í fyrsta
sæti, verður haldinn í
félagsmiðstöð jafnaðar-
manna að Hverfisgötu
8—10, laugardaginn
24. mars kl. 14.00.
Ávarp:
Ólína Þorvarðardóttir
Stuðningsmenn
Hafnarfjarðarbær
lóðaúthlutun
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta
lóðum fyrir íbúðarhús á Hvaleyrarholti.
Lóðirnar eru þegar byggingarhæfar.
Umsóknarfrestur ertil miðvikud. 28. mars nk.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingur.
Kf
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Verkef na- og námsstyrkja-
sjóður Kennarasambands ís-
lands auglýsir námsstyrki
Sjóðsstjórn hefur ákveðið að úthluta nokkrum
styrkjum til kennara sem hyggjast stunda nám á
næsta skólaári. Um er að ræða styrkveitingar
skv. a-lið 6. greinar um Verkefna- og náms-
styrkjasjóð Kl frá 15. febrúar 1990.
Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun á
námsleyfistíma í 6-12 mánuði eftir lengd náms.
Hlutfall launagreiðslna verður í samræmi við
umfang námsins.
Umsóknum ber að skila á eyðublaði sem fæst á
skrifstofu Kennarasambands ísianas, Grettis-
götu 89, 105 Reykjavík. Umsóknarfresíur er til
25. apríl n.k.
Kratakaffi
verður haldið þriðjudaginn 27. mars n.k. kl.
20.30. að Hverfisgötu 8—10.
Gestur kvöldsins verður
Birgir Dýrfjörð, formaður
fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksfélaganna í
Reykjavík.
Alþýöuflokksfélag
Reykjavíkur
Örfáar
sekúndur
- í öryggis
skyni