Tíminn - 22.06.1968, Qupperneq 14
LAUGARDAGUR 22. júní 1968.
14
TÍMINN
RÁÐHERRAFUNDUR
Frainnaia a: ois -b
stofunnar Tass, en þeir hafa,
e’kki síður en aðrir á'huga á
utanríkisráðherrafundi Atl-
antsh af sba n d alagsrík j anma.
Á mánudag kl. 13.00 heldur
herra Ásgeir Ásseirsson há-
degisverðarboð fyrir sendi-
mefndirnar á Bessastöðum
Kl. 20.00 sitja fulltrúarnir
kvöldverðarb-oð íslenzku ríkis-
stjórnarinnar á H-ótel Sögu. Á
miðvikudag verður erlendu
fulltrúunum boðið í ferðalag
til Gullfoss og Geysis og um j
kvöldið verður kvöldverðarboð j
í Valhöll á Þingvöl'lum.
Nokkrir ráöherrann-a og
sendinefndarmeðlima korna
með eiginkonur sínar til ís-
lands. Munu þær að sjélfsögðu
sitj'a boð forsetans og ríkis-
TILKYNNING UM
gerviaugnasmíði
Gerviaugnasmiðurinn, herra Albert Miiller-Uri
frá Wiesbaden er væntanlegur til Reykjavíkur
15. júlí og dvelur hér í nokkra daga.
Þeir, sem ætla að fá hjá honum gerviaugu, þurfa
að tilkynna það á skrifstofu vora í síma 16318
hið allra fyrsta.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Margrétar Eyjólfsdóttur,
Lyngum
Guðlaug Oddsdóttir,
Guðjón Ásmundsson.
Halldór Kristinsson,
fyrrverandi héraðslæknir, Hrauntungu 59, Kópavogi,
sem lézt í Landspítalanum 18. þ. m. verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni, mánudaginn 24. júní, kl. 4,30 Blóm eru afbeðin, en
þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Rauðakross íslands,
eða aðrar líknarstofnanir.
María Jenný Jónasdóttir,
* Kristín Halldórsdóttir Hyfells,
Þórir Halldórsson,
Jónas Halldórsson,
Kári Halldórsson,
Atli Halldórsson,
Magnús Halldórsson.
Útför eiginkonu minnar
Ólafar Jónu Ólafsdóttur,
Bústaðaveg 69
fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins mánudaginn 24. júní kl. $
13,30. Þelr, sem vlldu minnast hinnar látnu er bent á minningar-
sjóð Óháða safnaðarins. M
Fyrir mína hönd og fjölskyldunnar,
Ólafur I. Árnason.
Fóstra okkar
Vigdís G. Blöndal
lézt þriðjudaginn 18. þ. m. Útför hennar verður gerð mánudaginn
24. júní n. k. kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Þeim, sem vlldu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Barna-
spítalasjóð Hringsins.
Nanna Björnsdóttir, Vignir Benediktsson.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Oddur Hannesson
rafvélavirki, Brekkulæk 4,
verður jarðsunginn frá þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, mánudaginn
24. júní kl. 2 síðdegis. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Gunnar Auðunn Oddsson,
Sigurður Hannes Oddsson,
Hersir Oddsson,
tengdadætur og barnabörn.
OKUMENN!
Látið stilla i tima.
Hjélastillingar
Mótorstillingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg h' -usta.
BÍLASKOÐUN
& STILLING
Skúlagötu 32
Simi 13-100
stjórnarinnar. En þar sem
frúrnar taka eðlilega ekki þátt
í fundum Nato, hefur verið
undirbúin sérstök dagskrá fyr-
ir þaer. Eftir setmingarathöfn-
ina í HáSkólabíói á mánudag-s-
m.orgun fara þæ-r í ferðalag til
Þingvalla og Hveragerðis. Á
Þingvöllum sitja þær hádegis-
verðarboð frú Sigríðar Björns
dóttur, eiginkonu Bjarna Bene
diktssonar forsætisráðherra. Á
sunnudagsmorgun skoða frúrn
ar Reykjiavíkurborg og borgar
stjórn býður þeim í hádegis-
verð.
Á sunmudag heldur Brosio
blaðamannafiund og kl. 18.00 á
þriðjudag tekur Emil Jónsson
ut'anríkisráðherra á móti blaða
mönnum á Hótel Borg.
Eins og fyrr er sagt er ekki
víst hvenær dagsins á þriðju-
dag utanríkisréðherrafund-
inum lýkur. Fer það að sjálf-
sögðu eftir gangi mála. Og
ekki er upplýst hvenær ráð-
herrarnir og sendinefndirnar
fara utan, en sennilega fara
þeir sem hafa yfi.r einkaflugvél
um að ráða þegar á þriðju
dagskvöld.
Flcstar sendinefndanna
munu búa á Hótel Sögu með-
an fundurinn stendur yfir.
Líklegast er að ráöherrar
þeirra landa sem hafa sendi-
ráð í Reykjavík búi í sendi-
herrabústöðum viðkomandi
landa.
ÓLAFUR JÓHANNESSON
Framhald af bls. 1.
allar skuld'bindingar sínar eftir
samningnum.
Telur þú að Nato hafi stuðlað
að varðveizlu friðar í Evrópu?
Það er staðreynd, að á starfs
tíma Nato hefur ekki komið til
ófriðair á því svæði, sem banda-
lagið tekur til. Ég held. að tilvist
bandalagsins eigi ríkan þátt í því.
Ég held, að Nato hafi stuðlað að
valdajafnvægi í Evrópu. Ég tel, að
bandalagið eigi nú að einbeit'a
sér að því að draga úr spenn-
unni á miilli austurs og vesturs
og treysta grundvöll friðsamlegr-
ar sa'mbúðar.
Hefur ísland ekki sérstöðu í
Nato?
Jú. Vopnlaus smáþjóð eins og
Isiendingar hlýtur að hafa veru-
lega sérstöðu í samtökum eins og
Nato. Sú sérstaða hefur verið við
urkennd. ísland tekur ekki þátt
í ákvörðunum um hernaðarmál-
efni. Því má vitaskuld ekki
gleyma, að Nato ei ekki eingöngu
hernaðarbandalag.
Telur þú, að hernaðarbandalög
eins og Nato og Varsjérbanda'lag
imuni stairfa um ófyrirsjiáainlaga
framtíð?
Um það get ég engu spáð. Auð
vitað ber að stefn-a að því, að
ástand skapist. að slíkra banda-
laga verði ek'ki lengur þörf. En
í þessu sambandi langar mig til
að minna á síðari hluta 5. gr.
Natosamningsins, sem sjaldan er
vi'kið að í umræðu'm um þessi mál.
Þar segir, að Öryggisráðinu skuli
tafarlaust tilkynnt um allar vopn
aðar árásir á bandalagsríki svo
og allar ráðstaflanir, sem gerðar
eru vegna þeirra, ennfremur er
sagt að hætta skulii slíkum ráð-
stöfunum, þegar er Öryggisráðið
hefur gert þær ráðstafani.r sem
nauðsynlegar eru til þess að koma
á aftur og varðveita aliþjóða'frið
og öryggi.
Þetta minnir á þann kjarna
málsins, að Nato var stofnað
vegma þess, að Sameinuðu þjóð-
irnar gátu ekki gegnt því hlut-
verki, sem þeim var upphaflega
ætlað — að tryggja alþjóðafrið
og öryggi. Það ber að stefna að
því að styrkja Sameinuðu þjóð-
irnar, og mé vera, að þær geti
í framtíðini orðið sú alþjóðalög-
regla, sem til var ætlazt í önd-
verðu.
Hvað vilt þú segja um Nato-
fundinn og mótmælaaðgerðir þær
sem um er talað í þvi sambandi?
Það ér í alla staði eðlilegt, að
þessi fundur sé haldinn hér á
landi. Slfkir fundir hafa áður ver
ið haldnir í höfuðborgum anmarra
þátttökuríkja. Fundiarhald hér er
bein afleiðing af aðild íslands. Á
fundi bessum verða eflaust rædd
mörg mikilvæg málefni. Mér
skilst, að þar verði m.a. rætt um
fTamtíðarver'kefni bandalagsins.
Hingað Koma margir góðir gest-
ir, m.a. mikill fjöldi blaðamanna.
Þessi fundur verður þvi mikil
landkynnimg fyrir ísland. Það er
því mi'kið undir því komið, að allt
varðandi þennan fund fari vel úr
hendi af okkar hálfu.
Mönnum er að sjlálfsögðu
frjálst að fara í mótmælagöngur
og efna til mótmælafunda. Við
því er ekkert að segja, ef al'lt
fer fram með friðsamlegum hætti.
Hins vegar er mikilvægt, að eikki
komi til óspekta eða neins kon-
ar ofbeldisverka. Það væri mikið
ólán, ef til slíks kæmi. Það væri
engum til góðs og allra sízt þeirn
málstað, sem mótmælendur segj
ast bera fyrir brjósti. Við skulum
hafa það hugfast, að vi'ð verðum
þessa daga undir smásjá. Það er
því áríðandi, að engir láti leiðast
til óhæfuverka. Vonandi kemur
e'kkert það fyrir, sem þjóðinni
verður til vansæmdar.
Geta einræðisríki verið í Nato?
í N'ato ættu að mínum dómi að
vera lýðræðisríki. Það er i raun
og veru g'engið út frá því í banda-
lagssamninignum. En á því hefur
því miður orðið misbrestur eins
og kunnugt er. Það er óneitan
lega skuggi á banda-
Iaginu. En Ií'klega er varnarkeðj-
an talin of veiik án þeirra ríkja,
sem hér eiga hlut að méli. Út
í þá sálma skal ég ekki fara, því
að é.g jéta hrcinskilnislega fé
fræðj mína í þeim efnum. En ég
vil vekja á þvi athygli, að það
fylgir auðvitað ekki a'ðild að Nato
að ísland þurfi í einu og öllu að
leggja blessun sína yfir all’ar a'ð-
gerðir bandalagsríkjanma. íslend-
ingar fordæma nýlendukúgun
Portúgala og herforingjastj'óm-
ina í Gri'kklandi. Það hlýtur ís-
land að gera í Evrópurá'ði, hjé
Sameinuðu þijóðunum og hvar-
vetna amnars staðar þar sem til
efni gefst. ALþingi hefur og gert
álýktun um Vietnam styrjöldima,
svo sem kumnugt er. fsland á ekki
°g m,á ekki vera taglihnýtingur
eims eða neins ríkis í utanríkis-
málum.
Nokkuð fleira, sem þú vildir
segjja?
, Ég vil a'ð lokum segja það, að
ísland h'lýtur að minni hyggjiu að
skipa sér í sveit með vestrænum
lýðræðisþjóðum. Því veldur fyrst
og fremst lega landsáns. Lífshags
m.unir þjóðarinnar eru bundmir
við Norður Atlantshaf. Gengi
hennar og framtið byggist á því,
að þar ríki fri'ður og frjálsar sigl
ingar. Samstarf við aðrar þjó'ðir
hlýtur að mótast af þeirri stað-
reynd. Um það og mál þetta allt
mætti auðvitað segja margt fleira.
Til þess gefst vonandi taskifæri
síðar. Miálið a'Ht er vandasamt.
Það þarf að rökræða og kanma
frá ýmsum hliðum.
Rösk ung stúlka
— vön inni sem útivinnu,
óskar eftir að komast á
gott sveitaheimili í sumar.
Upplýsingar í síma 83576.
Kjördæmafundir
dr. Kristjáns Eldjárns
Til viðbótar þeim fundum, sem þegar hafa verið auglýstir,
hafa verið ákveðnir eftirtaldir almennir fundir dr. Kristjáns
Eldjárns í kjördæmum utan Reykjavíkur:
1. Suðurlandskjördæmi, Vestmannaeyjar
Sunnudaginn 23. júní, kl. 15,30 í Samkomuhúsinu.
2. Reykjaneskjördæmi
Stapi, þriðjudaginn 25. júní kl. 21,00.
3. Suðurlandskjördæmi
Selfoss, miðvikudaginn 26. júní kl. 21,00 í Selfossbíói.
STUÐNINGSMENN