Tíminn - 27.06.1968, Qupperneq 13
FIMMTLTDAGTJR 27. júní 1968
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
13
ísl. landsliðið gegn V-Þióðverjum valið í gær:
Sannfærandi sóknarlína ■
ekki traustvekjandi vörn
Ekki víst að landsleikurinn verði fyrr en á þriðjudagskvöld
Alf-Reykjavík. — LandsliSs-
nefnd KSÍ tilkynnti á blaða-
mannafundi í gær val sitt á lands-
liðinu, sem leika á gegn Vestur-
Þjóðverjum á mánudag eða þriðju
dag, en ekki er endanlega ákveð-
ið, hvorn daginn leikurinn verð-
ur. Val landsliðsnefndar kemur
nokkuð á óvart (sjá aðra grein
hér á síðunni) og virðist lands-
liðsnefnd ekki hafa vandað val
sitt sem skyldi. Sóknarlínan er
að vísu nokkuð sannfærandi, en
valið á öftustu vörn og mark-
verði er út í bláinn og eykur
F. Schulte, markvörðor, v-þýika liðs
hns. Hann er með 12 landsleiki að
baki.
ekki traust manna á landsliðs-
nefnd. Annars lítur liðið þann-
ig út:
Markvörður:
Sigurður Dagsson, Val.
Bakverðir:
Ársæll Kjartansson, KR og
Þorsteinn Friðþjófsson, Val.
Miðverðir:
Anton Bjarnason, Fram og
Guðni Kjartansson, Keflavík.
Tengiliðir:
Þórólfur Beck, KR, fyrirliði, og
Eyleifur Hafsteinsson, KR.
Útherjar:
ReynirJónsson, Val, og
Elmar Geirsson, Fram.
Miðherjar:
Hermann Gunnarsson, Val
og Kári Árnason, Akureyri.
Varamenn eru Þorbergur Atla-
son, Fram, Jóhannes Atlason,
Fram, Viktor Helgason, ÍBV,
Magnús Jónatansson, ÍBA og
Matthías Hallgrímsson, f A.
Dómari á leiknum verður Jim
McKy frá Skotlandi, en línuverð-
ir þeir Einar Hjartarson og Ró-
bert Jónsson. — Eins og áður
hefur komið fram, var fyrirhug-
að, að leikurinn færi fram n.k.
mánudagskvöld, en breyting get-
ur orðið á því, að því er KSÍ-
menn sögðu fréttamönnum í gær.
Ef talningu atkvæða í forseta-
kosningunum verður ekki lokið
fyrr en síðari hluta mánudags —
og nýkjörinn forseti kemur e.t.v.
fram í sjónvarpi á mánudags-
kvöldi, gæti það dregið úr að-
sókn. Þess vegna má vera, að
leikurinn fari fram á þriðjudags-
kvöld. Úr því ætti að fást skorið
í dag eða á morgun.
Seint í gærkvöldi var tilkynnt,
að leikuriun færi fram á þriðju-
daginn.
íKVÖLD
í kvöld leika Víkingur og Þrótt
ur í a-riðli 2. deildar. Leikurinn
fer fram á Melavelli og hefst
kl. 20,30.
Þórólfur Beck, fyrirliði landsliðsins.
Batt landsliðsnefndin fyrir
augun og valdi af handahófi?
Fréttamenn, sem viðstaddir
voru blaðamannafund KSÍ í
gær, urðu sem þrumu lostn-
ir, þegar Hafsteinn Guðmunds-
son, formaður landsliðsnefnd-
ar, hóf að lesa upp nöfn lands-
liðsmanna. Sigurður Dagsson,
Val, í stöðu markvarðar! Sig-
urður hefur aldrei sýnt eins
lélega leiki og nú í sumar. Er
síðasti leikur Vals nærtækt
dæmi um það. Með allri virð-
ingu fyrir Sigurði, sem s.l. tvö
ár var okkar bezti markvörð-
ur, þá er það hrein móðgun
við knattspyrnuáhugamenn að
velja hann í markið nú. Sig-
urður er af einhverjum ástæð-
um ekki í æfingu, þess vegna
á hann ekkert erindi í lands-
lið.
Ekki minnkaði undrunin,
þegar tilkynnt var, að Ársæll
Kjartansson, KR, ætti að leika
í stöðu hægri bakvarðar. Eins
og allir vita, er Ársæll fyrst
og fremst miðvörður, en af
því að ekki hefur verið Iaus
miðvarðarstaða í KR-Iiðinu,
hefur hann leikið sem bakvörð
ur í nokkur skipti og þykir
nú sem slíkur nógu góður í
landslið. Ilvers eiga bakverð-
ir eins og Jóhannes Atlason,
Fram, að gjalda?
Guðni Kjartansson, Keflavík
er valinn í aðra miðvarðarstöð-
una. Þessi anhars ágæti leik-
maður hefur nánast ekkert
getað æft með Keflavíkur-lið-
inu á þessu leikári, þar sem
hann er nemandi á íþrótta-
kennaraskólanum. Það er því
í meira lagi hæpið að velja
liann nú, vegna þess, að fyrir
utan standa leikmenn, sem
ekki einungis hafa æft vel með
sínum félögum, heldur og stað
ið sig prýðisvel í leikjum. Má
í því sambandi nefna mann
eins og Jón Stefánsson, Akur-
eyri. Raunar er það hlálegt,
að ekki skuli einn einasti mað
ur úr vörn Akureyrar vera val-
inn í landslið. Hefur liðið þó
leikið fjóra leiki án taps og
fengið einungis eitt mark á
sig, og það úr vítaspyrnu.
Ekki verður farið nánar út
í þá sálma að ræða um ein-
stakar stöður, en það er at-
hyglisvert, að topp-liðin í 1.
deild, Akureyri og Fram, eiga
einungis 3 fulltrúa samtals í
liðinu! Hins vegar eiga KR og
Keflavík, en það eru liðin,
Frambald á bls. 15.
V-þýzka landsliðið, sem kemur á laugardaginn
Nýkomnir úr sigur-
för til Asíu-ríkja
Alf.—Reykjavík. — Vestur-
þýzka áhugamannalandsliðið kem
ur hingað til lands á laugardag-
inn og fer ekld fyrr en á fimmtu
dag í naystu viku. Nýlega var
liðið á ferð í Asíu og lék þar
fimm leiki. Unnu Þjóðverjarnir
alla leikina.
Þeir unnu Thailand með 1:0,
Malaysíu með 3:1, Hoing Kong
með 1:0, Filippseyjar með 4:0,
og loks Japan með 1:0. Þá gerði
Danir leika
á Akranesi
í kvötd
Hingað er komið til lands á
vegum Akraness danskt unglinga
lið í knattspynnu frá Taastrup.
Leikur liðið sinn fyrsta leik í
h-eimsókninni hér gegn gestgjöf
unuim, Akranesi, í kvöld kl. 8
á Akranesi, en þá mæta þeir 2.
floikki. Sömu lið leilka aftur á
laugardaginn á sama stað kl. 4.
liðið nýlega jafnefli vdð ftaMu
0:0, en tapaði hins vegar fyrir
Austurríki 2:0.
Frá 1952 hafa þýziku áhuga-
Framhald á bls. 15.
Coca-Cola
keppnin
Um þessar mundir stend-
ur yfir svokölluð Coca Cola
keppni hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur. Þátttaka er
geysimikil, en alls keppa
71 kylfingur. Eftir fyrstu
18 holumar hafa þeir Hans
ísebam og Pétur Björnsson
forystu án forgjafar (80
högg), en í þriðja sæti er
Gunnlaugur Ragnarsson
(81 högg). Keppnin er
geysihörð, því að næstu
menn eru með 82 og 83
högg.
f keppninni, þar sem for-
Prambalö 8 ois 15
TIU KEFLVIKINGAR I VORNINNI!
Keflavíkurliðið hefur í lang-
an tíma ekki verið eins lélegt
og það var í leiknum gegn
KR í fyrrakvöld, en þá tapaði
liðið 6:0, og hefði sigur KR
getað orðið jafnvel enn stærr.
Hefur Keflavík nú leikið þtjá
leiki og tapað þeim öllum. Og
það, sem er jafnvel enn verra
fyrir Keflavík, liðið hefur enn
þá ekki skorað eitt einasta
mark, en fengið hvorki meira
né minna en 10 mörk á sig
Þetta er ekki gæfuleg byrjun
og verða Keflvíkingar svo sann
arlega að taka á, ef þeir ætla
að komast hjá fallbaráttu á
þessu keppnistímabili.
Myndin hér að ofan er tákn
ræn fyrir leik Keflvíkinga og
KR í fyrrakvöld. KR-ingar eru
í sókn og það eru 10 Keflvík-
ingar til varnar. En það var
sama, hve margir voru í vörn.
Alltaf virtist knötturinn eiga
jafn greiða leið í markið.