Alþýðublaðið - 11.07.1990, Qupperneq 6
6
Miðvikudagur 11. júlí 1990
Mógilsármálid:
„TORTRYGGNI OG
VANMETAKENND"
— segja sérfrœdingar á Mógilsá um orsök uppsagnar forstööumanns.
Tólf af þrettán starfsmönnum á rannsóknarstöðinni
á Mógilsá hyggjast hætta störfum við stöðina ffyrir eða
um næstu mánaðamót. Sumir eru þegar hættir. Ástæð-
an er að sjálfsögðu styr sá sem staðið hefur um stöðina
að undanförnu og náði hámarki i þvi að landbúnaðar-
ráðherra vék úr starfi forstöðumanni stöðvarinnar.
i bréfi til landbúnaðarráöherra
lýsa starfsmennirn ir yfir þessari ætl-
an sinni en bjóða jafnframt aðstoð
sína við að tryggja framgang þeirra
verkefna sem nú eru í gangi við
stöðina.
Þorbergur Hjalti Jónsson og Úlfur
Oskarsson, sérfræðingar við Mógil-
sárstöðina, sögðu við Alþýðublaðið
að ástæðan sem ráðherra hafi gefið
fyrir uppsögn forstöðumannsins,
Jóns Gunnars Ottósonar, hafi verið
sú að ekki hefði verið hægt að lynda
við hann.
Hálfkveðnar visur
„Okkur gekk vel að lynda við
hann," sagði Þorbergur Hjalti.
„Jón Gunnar átti mikið og gott sam-
starf við okkur, þannig að ég held að
þetta sé heldur rýr málflutningur
hjá ráðherra."
„Þetta eru nú meira og minna
hálfkveðnar vísur hjá ráðherranum
og þegar búið er að botna þær þá
munu þær nú snúa alveg hinseginn.
Þær verða botnaðar fyrir hann á
næstunni," sagði Þorbergur.
„Jón Gunnar var kallaður fyrir
allsherjarnefnd Alþingis þegar ver-
ið var að mynda nýja umhverfis-
ráðuneytið og þar lýsti hann þeirri
skoðun sinni að honum fyndist eðli-
legt að rannsóknarstöðvar, land-
græðslan og hluti af RALA (Rann-
sóknarstöð landbúnaðarins),
heyrðu undir umhverfisráðuneytið
frekar en landbúnaðarráðuneytið."
sagði Úlfur.
Jón Gunnar eini sem þorði
„Já, hann var eini maðurinn sem
þorði að koma með það, því Svein-
björn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri
er nú vanur að stjórna þessum mál-
um öllum saman, hann gefur bara
línuna og henni er fylgt. Nema Jón
Gunnar var sá eini sem var á því að
eftirlitshlutverkið færðist yfir til um-
hverfisráðuneytisins, en beinar
framkvæmdir væru hjá landbúnað-
arráðuneyti," sagði Þorbergur.
„Þetta féll i grýtta jörð hjá land-
búnaðarráðuneytinu, því eins og
við sjáum þetta þá eru þeir skít-
hræddir við að missa yfirráðin yfir
íslandi. Síðan eru það deilur innan
Skógræktarinnar, þær eru nú gaml-
ar en það hentaði að nota þær
núna."
Peilur innan skógræktar
„Fyrir u.þ.b. tveimur árum var
eiginlega búið að vinna stöðinni
hérna sjálfstæði, það eina sem við
áttum sameiginlegt var starfs-
mannahald. Stöðin var á sértökum
fjárlögum óháð Skógrækt ríkisins
þannig að það eina sem þeir sáu um
var ráðning starfsmanna og launa-
seðlar, sem fóru í gegnum alveg
ótrúlega flókið apparat hjá Skóg-
ræktinni."
„Deilurnar innan Skógræktarinn-
ar byggjast á tortryggni og vanmeta-
kennd hjá mönnum sem sjá ofsjón-
um yfir þeim hlutu m sem við höfum
áorkað hér.“
„Við höfum verið að boða þá
stefnu hér að ríkið ætti fyrst og
fremst að sjá um eftirlit og rann-
sóknir, en ætti ekki að vera svo mik-
ið í beinum framkvæmdum heldur
eftirláta þær fyrirtækjum, einstak-
lingum, félögum og bændum," sagði
Þorbergur.
Merkilegf rannsóknar-
verkefni_______________________
„Það að þetta kemur upp í vor
hefur kannski með það að gera að
við erum með viðamikið verkefni í
gangi sem byggir á þessum hug-
myndum. Við höfum kallað það iðn-
viðarverkefnið eða asparverkefnið
eftir atvikum. Það varð þannig til
. .
.Fldkksstarfið
Frá skrifstofu
Alþýðuflokksins
Jón Baldvin Hannibalsson
veröur meö viötalstíma
föstudaginn 13. júlí frá
kl. 10.00—12.00.
Alþýöuflokkurinn,
s. 29244.
Frá skrifstofu
Alþýðuflokksins
Sumarferö Alþýöuflokksins veröur farin í Breiöa-
fjaröareyjar laugardaginn 11. ágúst.
Pantiö tímanlega.
Alþýöuflokkurinn,
s. 29244.
$>$>Q
Félagsmiðstöö
jafnaðarmanna
Hverfisgötu 8—10
Sími15020
Næstkomandi föstudags-
kvöld verður Jón Baldvin
Hannibalsson gestur
kvöldsins í Rósinni og
spjallar á léttu nótunum
við gesti og gangandi.
Munið aö Rósin er opin öll
föstudags- og laugardags-
kvöld frá kl. 19.00—24.00.
Léttar veitingar, spil og
töfl. Höfum þaö notalegt
saman í Rósinni. Allir jafn-
aöarmenn velkomnir.
Nefndin.
Þorbergur Hjalti Jonsson og Úlfur Óskarsson, sérfræðingar viö rannsóknar-
stöðina að Mógilsá. A-mynd: E.ÓI.
haustið 1988 að fengum tilmæli frá
Islenska járnblendifélaginu um þaö
að þeir væru að skoða möguleika á
að fá innlent hráefni í verksmiðj-
una.“
„Það hefur komið í ljós að það
bætir reksturinn hjá þeim að nota
viðarkurl sem hvata í framleiðsluna.
Þá vorum við komnir á lokastig með
skylt verkefni fyrir austan, sem
gekk að vísu ekki upp, en við vorum
búnir að kynna okkur niðurstöðurn-
ar þannig að þarna myndaðist
ákveðinn möguleiki í stöðunni."
„Arið eftir var gerð ríkisstjórnar-
samþykkt um fimm ára þróunar-
verkefni þar sem a'tti að láta reyna á
þetta. Við byrjuðum á tilraunum og
fengum fimm bændur með okkur
og sjá þeir um að rækta 700 þúsund
aspir af völdu jarðefni. Einnig lögð-
um við grunninn að því að það væri
hægt að hefjast handa við fulla
framleiðslu eftir fimm ár ef þetta
gæfi góða raun.“
Tvöfalt meiri rækfun en
hjá Skógrækt rikisins
„Við erum farnir út í samstarf við
kanadíska háskóla um umhverfis-
áhrif ræktunarinnar og allt er farið
að ganga mjög vel.“
„Þess má geta að sú gróðursetn-
ing sem átti að vera í ár við þetta
litla þróunarverkefni okkar er u.þ.b.
tvöfalt meiri en gróðursetning Skóg-
ræktar ríkisins undanfarin ár og
kostar miklu minni fjármuni. Það
gæti verið ein ástæða þess að við
fengum ekki að klára þetta."
„Niðurstöður verkefnisins hefðu
getað opnað augu manna fyrir því
sem við höfum verið að segja.“
„Skógræktin fékk vald til þess að
segja til um hvað við mættum birta
og því sögðum við upp starfi okkar
frá og með fyrsta október. Hálfum
mánuði siðar var Jón Gunnar rek-
inn. Við teljum að það hafi verið til
þess að koma í veg fyrir að hann
gæti farið héðan með heiðurinn af
því að hafa gert eitt lítið rannsókn-
arverkefni að umsvifameiri skóg-
rækt en allt framkvæmdaapparat
Skógræktar ríkisins."
Mikill verðmunur
„Við sömdum við bændurna um
að plantan kostaði frá þeim tólf
krónur. Samskonar planta kostar
átján krónur frá Skógrækt rikisins.
Bændurnir eru þokkalega ánægðir
með sinn hlut.“
„Við höfum ákveðna háttsetta að-
ila grunaða um það að hafa engan
áhuga á að landgræðsla og skóg-
rækt kæmist á raunverulegt skrið.
Eina raunhæfa lausnin til að koma í
veg fyrir frekari gróðureyðingu er
að setja búfénað inn í girðingar,"
sagði Þorbergur Hjalti að lokum.
Yfirmannaskipti í flotastööinni:
„Sakna laxveiðanna"
Yfirmannaskipti voru hjá
Flotastöðinni á Keflavíkurflug-
velli.
Þá tók James I. Munsterman kaft-
einn við starfi yfirmanns flotastöðv-
arinnar af Richard E. Goolsby kaft-
eini sem gegnt hefur því starfi frá 1.
júlí 1988.
Goolsby kafteinn sagði í viötali
við Alþýðublaðiö að hann kæmi til
með að sakna íslands, því hér hefði
hann eignast marga vini.
Áður en Goolsby kom hingað til
að gegna starfi yfirmanns flota-
stöðvarinnar, hafi hann starfað hér
áður frá árinu 1985—1987 og kaus
hann að koma hingað á ný því hon-
um hafði líkað vel.
„Eg á margar góðar minningar
héðan, þrátt fyrir hinn mjög svo
harða vetur sagði Goolsby.
Á þeim tíma sem ég hef verið hér
hefur margt verið gert til að bæta
varnarstöðina og ég hef haft ánægju
af því að taka þátt í því.“
„Ég mun einnig sakna laxveiði-
ferðanna sem ég hef farið í, þær
hafa verið indælar. Einnig hefur
Richard E. Goolsby kafteinn utan við
skrifstofu sína á Miðnesheiði.
veðrið í sumar verið óvenju gott. Ég
vona að það haldist,” sagði Goolsby
að lokum.
Hann er Texasbúi og mun nú taka
við skólastjórn herskóla í Norður
Virginíu í Bandaríkjunum.
Yfirmaður flotastöðvarinnar er
einskonar bæjarstjóri Varnarliðsins.