Alþýðublaðið - 03.08.1990, Qupperneq 7
Föstudagur 3. ágúst 1990
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
7
Salat í geimnum
DAGFINNUR
Endurskrifum islendingasögurnar,
— strax!!
Vísindamenn við bandarisku
geimvísindastofnunina, NASA, hafa
fundið upp aðferð til að rækta salat
í sérstökum klefum sem eru á stærð
við ísskápa.
Þessi aðferð getur komið geimför-
um til góða því nú geta þeir ræktað
sitt eigið salat þegar þeir eru á ferð
um geiminn. Maturinn hefur verið
eitt helsta kvörtunarefni þeirra sem
stundað hafa geimferðir en hann
þykir heldur ólystugur. Vísinda-
mennirnir sem fundu upp þessa að-
ferð segja hana einnig hafa þann
ótvíræða kost að sá tími sem fer í
Talið er að sovéski íshokkýleik-
maðurinn Sergei Fjodorov hafi not-
að það tækifæri sem bauðst á Frið-
arleikunum í Seattle og flúið land.
Hann hvarf frá hóteli því sem liðið
hefur gist og talið er að hann hyggist
ganga til liðs við bandarískt lið.
Júrí Korolev, varaforseti sovéska
íshokkýsambandsins, segir banda-
ríska íshokkýliðið Detroit Red
Wings eiga einhvern þátt í hvarfi
Fjodorovs. Fjodorov hvarf síðastlið-
inn sunnudag og hefur ekki heyrst
frá honum síðan. Fréftir frá Detroit
herma að hann sé á leiðinni þangað
en Red Wings völdu hann árið 1988
„garðræktina" hjá geimförunum sé
kærkomin tilbreyting frá vísinda-
störfunum i geimnum. Þetta nýja
tæki gerir þeim kleift að uppskera
sitt eigið grænmeti á tveggja daga
fresti. Það gerir mönnum einnig
kleift að rækta grænmeti á stöðum
þar sem allt slíkt er illmögulegt af
náttúrulegum orsökum, t.d. í kafbát-
um og eyðimörkum.
Ræktunin hefur líka þann ótví-
ræða kost að plönturnar framleiða
súrefni og eyða koltvísýringi úr loft-
inu og kemur það sér mjög vel á
löngum geimferðum.
samkvæmt kerfi sem gefur liðum
kost á að velja til sín leikmenn þó
svo að þeir séu ekki á lausu þá
stundina.
„Við erum ekkert reiðir út í Fjo-
dorov, okkur finnst bara leiðinlegt
að byrja Friðarleikana á þennan
hátt. Það er kerfi í gangi sem gerir
sovéskum leikmönnum kleift að
spila í bandarísku deildinni þegar
þeir hafa náð 28 ára aldri. Nú leita
liðin eftir yngri mönnum," sagði Júrí
Korolev ennfremur.
Fjodorov ér tvítugur og líklegt
þykir að honum hafi þótt biðin held-
ur löng.
Loksins, loksins!
Loksins kom frétt á forsíðu
Morgunblaðsins sem mark er á
takandi. Og ekki nóg með það.
Innihaldið er hverjum hugsandi
manni uppspretta ótal vanga-
veltna og boðskapurinn til eftir-
breytni.
Þessi dásamlega frétt fjallaði (að
mér skildist) um umskriftir
Dodda-bókanna góðkunnu. En
eins og kunnugt er eru þessar
bækur fyrir Iöngu búnar sanna til-
verurétt sinn innan um önnur stór-
virki heimsbókmenntanna eins og
Biblíunnar, grísku harmleikjanna,
Njáls sögu og rauðu ástarsagn-
anna.
Enid Blyton hefur að sama skapi
troðið sér á milli þeirra Shakespe-
ares, Byrons lávarðar og Æskilos-
ar þar sem þeir sitja þröngt á alltof
stuttum bekknum.
Komið hefur í ljós að bækurnar
um Dodda, Eyrnastóran, Lása
löggu og félaga í Leikfangalandi
eru alls ekki æskilegar sem lesefni
fyrir ungt og óharðnað ungviðið.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru þær uppfullar af kyn-
þáttafordómum og ala á ranghug-
myndum um hlutverk kynjanna.
„Það var loksins að einhver
greip í taumana," hugsaði ég þeg-
ar ég rak augun í forsíðufrétt
Morgunblaðsins. Ef trúa má frétt-
inni eru allskyns ósmekklegar
glósur í bókinni. Ráðist er á aðra
kynþætti og kvenfólk niðurlægt.
Það hefur löngum verið mér
hjartans mál að taka á þessu með
fullri hörku. Nóg eru verkefnin en
löng ferð byrjar á einu skrefi.
*
I Mogganum er vitnað í dóttur
skáldkonunnar, en hún er fullkom-
lega sátt við breytingarnar: „Hún
var raUnsæ og hún hefði gert sér
grein fyrir því að talsmáti fólks
breytist einfaldlega á fjörutíu ár-
um.“
Já, þetta er manneskja með viti.
Auk þess gefur hún línuna hvernig
vinna beri að þessum málum.
Fyrst á að taka það fyrir sem elst
er.
Við íslendingar eigum sem sagt
að byrja á íslendingasögunum og
þykir mörgum sem ekki sé seinna
vænna.
Eins og allir vita eru þær upp-
fullar af morðum, hórdómi og ljót-
um orðum enda söguefnið jafnan
hið ógeðfelldasta.
Þegar búið er að losa þessar
bókmenntir við allan óþverrann
verður að taka á málinu sjálfu.
Mál Islendingasagnanna er
hreint og beint sönnun á bók-
menntakenningu dótturinnar.
Ekki er nóg með það að málið sé
löngu úr móð, orðfærið er með af-
brigðum asnalegt og reyndar full-
komlega óskiljanlegt hverjum nú-
lifandi íslendingi.
Nei, hingað og ekki lengra. ís-
lendingasögurnar eru óholl lesn-
ing bæði börnum og fullorðnum.
Eiginlega ætti að banna Árna-
stofnun innan 16 (og Egils sögu
mætti brenna í heild sinni því
henni er ekki viö bjargandi).
Sem dæmi má nefna að hægt
væri að láta Njál deyja úr eyðni í
stað þess að kafna undir húðinni
til að færa söguna nær þeim heimi
sem blessuð börnin þekkja.
Orðfærinu mætti einnig breyta
á ýmsa lund. Gunnar á Hlíðarenda
gæti t.d. sem best hafa sagt:
„Fjandi er hlíðin smart. Ég fer
ekki rassgat."
Góðir Islendingar. Morgunblað-
ið hefur gefið tóninn.
Hokký-leikm aður
fíýr land
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Fjörkálfar 18.20 Unglingarnir i
hverfinu 18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Poppkorn 19.20 Björtu hliðarnar
19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir
og veður 20.30 Síðan skein sól 21.00
Bergerac 21.50 Friðarleikarnir 22.50
Bagdad Café 00.20Útvarpsfréttir í
dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Emilía 17.35
Jakari 17.40 Zorro 18.05 Henderson
krakkarnir 18.30 Bylmingur 19.19
19.19 20.30 Ferðast um tímann 21.20
Rafhlöður fylgja ekki 23.05 Morðin í
Líkhúsgötu 00.35 Tópas 02.35 Dag-
skrárlok.
Rás 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 í morgunsárið 09.00 Fréttir
09.03 Litli barnatíminn: Þegar dýrin
komu til mannanna 09.20 Morgun-
leikfimi 09.30 Innlit 10.00 Fréttir
10.03 Þjónustu- og neytendahornið
10.10 Veðurfregnir 10.30 Á ferð 11.00
Fréttir 11.03 Samhljómur 11.53 Á
dagskrá 12.00 Fréttayfirlit 12.01 Úr
fuglabókinni 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Dánarfregnir.
Auglýsingar 13.00 í dagsins önn
13.30 Miðdegissagan Vakningin
14.00 Fréttir 14.03 Ljúflingslög 15.00
Fréttir 15.03 í fréttum var þetta helst
16.00 Fréttir 16.03 Að utan 16.10
Dagbókin 16.15 Veðurfregnir 16.20
Barnaútvarpið 17.00 Fréttir 17.03
Tónlist á síðdegi 18.00 Fréttir 18.03
Sumaraftann 18.30 Tónlist. Auglýs-
ingar. Dánarfregnir 18.45 Veður-
fregnir. Auglýsingar 19.00 Kvöld-
fréttir 19.30 Auglýsingar 19.32 Kvik-
sjá 20.00 Hljómplöturabb 20.40 Suð-
urland 21.30 Sumarsagan: Rómeó
og Júlia í sveitaþorpinu 22.00 Fréttir
22.07 Að utan 22.15 Veðurfregnir.
Orð kvöldsins 22.25 Úr fuglabókinni
22.30 Danslög 23.00 Kvöldgestir
24.00 Fréttir 00.10 Samhljómur 01.00
Veðurfregnir 01.10 Næturútvarp.
Rás 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03
Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit. Aug-
lýsingar 12.20 Hádegisfréttir 14.10
Brot úr degi 16.03 Dagskrá 18.03
Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir 19.32
Söðlað um 20.30 Gullskífan 21.00 Á
djasstónleikum 22.07 Nætursól
01.00 Næturútvarp.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Valdís Gunnarsdóttir 11.00
Ólafur Már Björnsson og Valdís
Gunnarsdóttir 12.00 Hádegisfréttir.
Stefnumót! Valdís Gunnarsdóttir
með stefnumót í beinni útsendingu
milli kl. 13 og 14. 14.00 Helgi Rúnar
Óskarsson 16.00 íþróttafréttir 17.00
Oamfír eigendur
banka upp á
Nýir vindar blása úr vestri yfir
Austur-Þýskaland. Bakreikningar
byrja að streyma til Austur-Þjóð-
verja eftir sameiningu. 150 þúsund
kröfur hafa borist frá fólki í Vest-
ur-Þýskalandi, sem vill fá aftur hús-
næði og jarðir. „Við höfum lagt í
kostnað til að búa betur að okkur og
börnunum," segir Anne-Lise Kru-
ger, sem er skúringakona. Maður-
inn hennar er verkamaður, en þau
hafa búið í Wörlitz fyrir sunnan
Berlín í sama húsinu í 5 ár ásamt
þremur börnum sínum. Tvær fjöl-
skyldur búa í húsinu. Þær leigja
íbúðirnar af sveitarfélaginu, en það
hefur ekki sinnt viðhaldi í þann
hálfa fimmta áratug sem eru liðinn
frá stríðslokum.
Fyrir nokkru bankaði maöur upp
á og kvaðst vera erfingi fyrrverandi
eiganda hússins. Talið er að 500.()()()
til 800.000 eigendur eigi eftir að
gera kröfur til verksmiðja, bónda-
bæja, leiguhúsnæðis, jarðarskika og
íbúða. Mikill ótti hefur gripið um sig
meðal íbúa austan megin. Þeir ótt-
ast að lögmál kapítalismans muni
gilda, leigan eigi eftir að hækka upp
úr öllu valdi, margir muni missa
vinnuna, þegar nýir eigendur yfir-
taka verksmiðjurnar og enn aðrir
gera ráð fyrir að þeir missi húsin sín
sem þeir hafa byggt, vegna þess að
þau standa í landi einhvers annars.
Óleyst er hver á að borga skaða-
bætur fyrir þær eignir sem ekki er
hægt að endurheimta. Hús sem eru
horfin og verksmiðjur sem eru af-
lagðar. Og hver á t.d. að greiða fyrir
landskikana sem opinberar bygg-
ingar hafa risið á? Líklegast er að
skattborgarar í Austur- og Vestur-
Þýskalandi verði um síðir að standa
undir kostnaði sjálfir með auknum
álögum.
Anne-Lise og Patrik fengu óvænta
heimsókn um daginn. Erfingi fyrrver-
andi eiganda hussins var kominn til
aö sækja arfinn.
Síðdegisfréttir 17.15 Reykjavík síð-
degis 18.30 Kvöldstemmning i
Reykjavík 22.00 Á næturvaktinni
03.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Á bakinu
í dýragarðinum 10.00 Bjarni Haukur
Þórsson 12.00 Hörður Árnarson og
áhöfn hans 15.00 Snorri Sturluson
og sögurnar 18.00 Kristófer Helga-
son 21.00 Darri Ólason á útopnu
03.00 Jóhannes B. Skúlason.
Aðalstöðin
07.00 í morgunkaffi 09.00 Á nýjum
degi 12.00 A hádegi 13.00 Með bros
á vör 15.00 Rós í hnappagatið 16.00
í dag, i kvöld 19.00 Við kvöldverðar-
borðið 20.00 Undir feldi 22.00 Kerta-
Ijós og kavíar 02.00 Næturtónar.
KROSSGÁTAN
□ 1 2 3 4
5 ■
6 □ 7
8 9
10 ■ 11
■ 12
13 □
Lárétt: 1 vont, 5 hestur, 6 stjórna,
7 umdæmisstafir, 8 kvæðisins, 10
átt, 11 læsing, 12 fugl, 13 valska.
Lóðrétt: 1 blæja 2 lands, 3 kind, 4
skoruhjól, 5 peningar, 7 orma, 9
slæmt, 12 borðaði.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 skökk, 5 atir, 6 nam, 7 óp,
8 drasli, 10 Ra, 11 væn, 12 vatn, 13
slóði.
Lóðrétt: 1 stara, 2 kima, 3 ör, 4
kópinn, 5 Andrés, 7 ólæti, 9 svað,
12 vó.