Alþýðublaðið - 03.08.1990, Blaðsíða 8
• • • • • •••• ••••• • • • • • • • ••••• ••• • • • •••• •••• • • • • • • • • •
VIÐBRÖGÐ ÝMISSA RÍKJA VIÐINNRÁSINNI
BANDARIKIN: Bandaríkjamenn fordæma
innrásina harkalega og krefjast tafarlauss
brottflutnings írasks herafla.
Bandarísk herskip verða send á vettvang í
viöbragðsstöðu.
Bandaríkjamenn hafa fryst allar eignir Kúvæta og íraka
í Bandaríkjunum og hvetja bandamenn sína í NATO til að
gera hið sama. Einnig hvetja þeir til algers viðskiptabanns
á írak.
George Bush forseti virtist hins vegar ekki ætla að beita
hervaldi gegn írökum. Hann sagði viö blaðamenn: Ég er
ekki að hugsa um að beita hervaldi og ég myndi ekki ræða
þetta ef ég væri að því.
James Baker utanríkisráðherra flýgur til Moskvu í dag til
að koma á sameiginlegri yfirlýsingu stórveldanna um aft-
urköllun hers íraka frá Kúvæt. Hann mun hitta Shevard-
nadze utanríkisráðherra Sovétríkjanna á níutíu mínútna
fundi til að gefa út yfirlýsinguna.
SOVETRIKIN: Sovétmenn hvetja íraka til
að draga herafla sinn skilyrðislaust og án taf-
ar til baka.
Þeir fordæma innrásina og segja hana
ógna sameiginlegum hagsmunum Araba-
ríkjanna.
Sovétmenn hafa einnig hætt allri vopnasölu til íraka, en
þeir hafa löngum séð írökum fyrir mestöllum vopnabún-
aði þeirra.
EVRÓPUBANDALAGIÐ: Fordæmir inn-
rásina og krefst tafarlauss brottflutnings her-
afla Iraka.
Sameiginleg yfirlýsing bandalagsland-
anna nefndi engar sérstakar refsiaðgerðir
gegn írökum, en gaf í skyn að til slíkra bragða kynni að
verða gripið.
Evrópubandalagið hefur boðað til skyndifundar á laug-
ardag til að fjalla um nánari viðbrögð við innrásinni.
Bandalagið sem slíkt hefur engin stjórnmála- né við-
skiptatengsl við íraka.
BRETLAND: Hefur fryst kúvæskar eignir
þar í landi. Douglas Hurd utanríkisráðherra
sagði að það væri til að koma í veg fyrir að
leppstjórn í Kúvæt næði í eignirnar, en Kú-
væt er með ríkari þjóðum heims.
FRAKKLAND: Fordæmir innrásina og
krefst tafarlauss og skilyrðislauss brottflutn-
ings herafla Iraka.
Segist munu taka þátt í öllum þeim þving-
unum gegn írökum sem Sameinuðu þjóðirn-
ar leggi til.
Frakkar hafa fryst allar eigur Kúvæta á frönsku svæði.
Roland Dumas utanríkisráðherra var spurður hvort
Frakkland myndi beita hervaldi gegn írökum. Hann svar-
aði: ,,Viö erum með herskip þarna rétt hjá.” Hann skýrði
mál sitt ekki frekar.
Frakkar hafa frá árinu 1974 verið nánustu bandamenn
íraka á Vesturlöndum.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR: Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna krafðist brottflutn- V.L
ings írasks herafla frá Kúvæt án tafar og skil-
yrðislaust. Það fordæmdi innrásina harka-
lega.
IRAK: írakar segjast hafa verið að aðstoða
„frjálsa bráðabirgðastjórn í Kúvæt” við að
koma á reglu í landinu og vera reiðubúnir til
að draga herafla sinn til baka um leið og
þeirri reglu hefði verið komið á. Þeir vara við
öllum erlendum afskiptum af gangi mála og segja slíkt ein-
ungis til að gera ástandið verra.
Irakar hafa einnig sagst munu frysta allar greiðslur á
skuldum við Bandaríkin vegna harkalegra viðbragða
þeirra við innrásinni.
SYRLAND: Hefur sett herinn í viðbragðs-
stöðu og afturkallað öll leyfi hermanna. Sýr-
lendingar og Irakar hafa löngum eldað grátt
silfur saman.
ARABARIKIN : Ekkert Arabaríki nema íran hefur form-
lega fordæmt innrásina, en Egyptar segjast reiðubúnir að
vera gestgjafar fyrir neyðarráðstefnu Arabaríkja, sem Sýr-
lendingar hafa krafist að verði haldin til að ræða gang
mála. Saudi-Arabar og Jemenar eru fylgjandi þeirri kröfu.
Emírinn í Kúvæt hitti að máli leiðtoga bandalagsríkja
sinna við Persaflóa í Jeddah, Saudí-Arabíu, í gærkvöldi.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Magnús Árni Magnússon
II
Kúvœt hernumið, olíuverö hœkkar,
Bandankjamenn í viðbragðsstöðu
ÁHRIFARÍK
LEIFTURSÓKN
ÍRAKA
iNNRAS IRAKA
R A K
Kl. 2.00l
k Hersveitlr
L yfir
landamæi in
Ír-»AKI RtliTER
IRAN
ý í
\ '■ i
$ m
' ■>
Í0Kuvæt*
borg
kúv/ét;
SAUDI I
ARABÍA
m
,'s
0 km 50/:s
(KÚVÆT, Reuter) íraskar
hersveitir réðust inn í Kú-
vaet fyrir dögun í gær,
náðu höfuðborginni á sitt
vald og sendu heimsmark-
aðsverð á olíu upp í hæstu
hæðir.
Bandarísk herskip
streyma á vettvang og
stjórnvöld í Washington
hafa fryst allar eignir Ir-
aka og Kúvæta í Banda-
ríkjunum.
Eftir því sem bardaginn
harðnaði, því betri tökum
náðu írösku hersveitirnar á
höfuðborginni og ný stjórn-
völd sem kalla sig ,,hina
frjálsu skammtímastjórn Kú-
væt,“ tilkynntu í útvarpi að
þau hefðu steypt fyrri vald-
höfum af stóli.
Þjóðir heimsins hafa for-
dæmt innrásina og Sovétrík-
in, sem sjá írökum fyrir vopn-
um, hafa sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem þeir krefjast
þess að Irakar hörfi tafarlaust
og án skilyrða með allar her-
sveitir sínar út úr Kúvæt.
Neyðarkall_______________
Útvarpssendar í kúvæsku
eyðimörkinni, útvörpuðu
hjálparbeiðnum yfir nær-
liggjandi svæði.
Forviða stjórnvöld Araba-
ríkjanna hafa þagað þunnu
hljóði, að hinum forna fjanda
Iraka, Sýrlandi, undanskild-
um. Stjórnvöld í Damaskus
hafa krafist þess að þegar
verði blásið til leiðtogafundar
Arabaríkjanna.
Á neyðarfundi öryggisráðs
Olíuverð hækkaði um
heil fimmtán prósent við
innrás Iraka í Kúvæt. Ol-
íutunnan fór í 24 Banda-
ríkjadali á Lundúnamark-
aði en verðið hefur ekki
verið hærra þar í fjögur ár.
í New York fór tunnan í
23,50 dali.
George Bush, forseti
Bandaríkjanna, sagði að
áhrif innrásarinnar á olíu-
veröið væru alvarlegt
áhyggjuefni.
Tuttugu og fimm prósent
olíu heimsins koma frá
Persaflóalöndunum. Innrásin
veldur því að nú stjórnar
Saddam Hussein sjö prósent-
um af heimsmarkaðnum,
sinni eigin framleiðslu og Kú-
væts.
Peter Gignoux, olíukaup-
maður í London segir Iraka
Sameinuðu þjóðanna í fyrri-
nótt var innrásin harkalega
fordæmd af yfirgnæfandi
meirihluta fulltrúa og þess
var krafist að stjórnvöld í
Bagdad drægju þegar til baka
hersveitir sínar og án skil-
yrða.
Kúvæskar hersveitir
reyndu af veikum mætti að
halda uppi vörnum gegn inn-
rásarhernum. Sprengingar
og skothvellir bergmáluðu
milli gler- og stálskýjakljúf-
anna í hinni geysiauðugu höf-
uðborg.
Mestu bardagarnir voru við
höll emírsins, þar sem skrið-
drekar og herbílar sóttu inn á
hallarlóðina
Erindreki frá Washington
sagði öryggisráði S.Þ. að
Bandaríkin vissu ekki enn
tölu fallinna. „Okkur er sagt
að kúvæskir herir standi uppi
í hárinu á innrásarliði íraka,"
sagði hann.
Einn spítali tilkynnti um
þrjá látna og tuttugu og fimm
særða Kúvæta og níutíu og
fimm særða Iraka.
Fagmannleg innrás
Leifturstríð íraka hófst kl.
2.00 aðfaranótt fimmtudags
að staðartíma, (23.00 á mið-
vikudagskvöld að íslenskum
tíma). Skriðdrekarnir æddu
yfir eyðimörkina sem skilur
höfuðborgina frá landamær-
um landanna.
Bandarískur erindreki
sagði írösku innrásina mjög
fagmannlega framkvæmda.
Irak hefur milljón manna
hafa beitt hervaldi til að
hækka olíuverðið.
Innrásin varð þess valdandi
að Japan, sem kaupir
220,000 tunnur á dag frá Kú-
væt og 175,000 frá írak,
komst skyndilega í sviðsljós-
ið. Japönsk hlutabréf snar-
lækkuðu í verði og japanski
viðskiptaráðherrann, Kabun
Muto, segist búast við því að
jeniö falli í veröi og olían
hækki ef átökin standi leng-
ur.
Evrópubandalagið segir að
olíuverð muni ekki hækka of
mikiö vegna mikilla vara-
birgða.
Hæst var olíuveröið árið
1980 en þá komst það upp í
40 dali tunnan vegna bylting-
arinnar í íran og Persaflóa-
stríðsins.
undir vopnum og var búið að
stilla hundrað þúsund þeirra
upp við kúvæsku landamær-
in fyrir nokkrum dögum til
að undirstrika kröfur Iraka
um land, peninga og olíu sem
þeir telja nágranna sína hafa
stolið af sér.
í her Kúvæta eru tuttugu
þúsund og þrjú hundruð
menn.
Einmana útvarpsstöð í Kú-
væt útvarpaði hvatningu til
landsmanna að grípa til
vopna gegn innrásarliðinu,
sem nú þegar hefur náð á sitt
vald herstöðvum sem gegna
lykilhlutverki, s.s. alþjóða-
flugvellinum og Dasman höll-
inni, sem er einn af bústöðum
emírsins Jaber al-Ahmed al-
Sabah.
Heilag* stria______________
„Tími jíhad (heilags stríðs)
er upp runninn og við mun-
um láta óvininn bergja á
þeim kaleik dauðans er þeir
hafa búið oss," sagði útvarps-
stöðin og hvatti Kúvæta til að
berjast gegn „hinni villi-
mannlegu innrás,“ og skoraði
á Arabaríkin að koma til
hjálpar.
Ekki einn einasti af banda-
mönnum Kúvæta í hinu sex
þjóða bandalagi Samvinnu-
ráðs Persaflóaríkja, sem í eru
Saudi-Arabía, Qatar, Bahrein,
Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin og Oman, sáu ástæðu
til að láta opinberar frétta-
stofur greina frá innrásinni í
bandalagsríki þeirra.
Dóttir kúvæska emírsins
sagði opinberum embættis-
mönnum að emírinn væri á
öruggum stað. Vestrænir
sendifulltrúar í Kaíró sögðu
hann vera í Damman í
Saudi-Arabíu.
írakar segjast hafa hafið
innrás sína eftir að uppreisn-
armenn sem sögðust hafa
velt stjórnvöldum úr sessi
hafi beðið þá um stuðning.
Ótrúlegar eignir
Kúvæta
Þessari sögu var hafnað
harkalega af Bandaríkja-
mönnum. Fulltrúi Bandaríkj-
anna, Thomas Pickering,
sagði öryggisráðinu að í stað-
inn fyrir að sviðsetja upp-
reisnina fyrir innrásina hefðu
írakar farið öfugt að. Þeir
hefðu fyrst ráðist inn í Kúvæt
og bjuggu síðan til einhvers-
konar hallarbyltingu í svik-
samlegri tilraun til að rétt-
læta gjörðir sínar.
Hann sagði að emírinn,
krónprinsinn og utanríkisráð-
herrann væru óhultir og
héldu áfram um stjórnar-
tauma Kúvæt. En sú staða að
sé komin önnur ríkisstjórn,
sem krefst viðurkenningar,
vakti upp spurningar um það
hver ætti eiginlega milljarða
dollara sem skráðar eru á Kú-
væt víðs vegar um heiminn.
Verðbréfasérfræðingar í
London vilja meta eignir Kú-
væta erlendis á 55 milljarða
bandaríkjadala (3300 millj-
arða ísl. kr.) að mestu í hluta-
bréfum, verðbréfum og fast-
eignum.
Afleiðingar innrásarinnar
urðu þær að verð bandaríkja-
dals og gulls snarhækkaði á
heimsmarkaði. „Fólk er í
losti.” sagði verðbréfasali í
Frankfurt.
Óagþveiti_______________
i f júrmálaheiminum
Hlutabréf hröpuðu í verði
vegna áhyggna fólks um að
Bandaríkin, sem vernduðu
kúvæsk olíuflutningaskip í
Persaflóastríðinu, gætu dreg-
ist inn í meiriháttar stríðs-
átök.
Hermálaráðuneytið sneri
bandarískri ílotadeild á Ind-
landshafi í átt til Persaflóa og
stjórnvöld í Hvíta húsinu
sögðu að allir möguleikar
væru í athugun.
Sex bandarísk herskip eru
nú þegar á Persaflóa í við-
bragðsstöðu og Pentagon til-
kynnti að flugmóðurskipið
Independence, sem hefur
innanborðs bæði orrustu- og
sprenguflugvélar, væri á Ieið-
inni ásamt fimm fylgdarskip-
um.
Innrás íraka batt skyndileg-
an enda á allan olíuútflutning
Kúvæta en þeir höfðu búið
sig undir það að minnka út-
flutning sinn niður í 1,5 millj-
ón olíutunnur á dag til að
fylgja eftir undirritun sátt-
mála OPEC ríkjanna frá fundi
þeirra í síðasta mánuði, en á
þeim fundi náðu sjónarmið
Iraka í olíumálum fullkom-
lega fram.
Kúvæt hafði framleitt í
kringum 1,9 milljón tunna á
dag og lá undir ásökunum
stjórnvalda í Bagdad um að
þvinga olíuverð niður og
spilla íröskum efnahag.
Einn fimmti af olíu heims-
ins kemur úr Persaflóalönd-
unum og olían náði hæsta
verði í fjögur ár þegar írösku
skriðdrekarnir flæddu yfir
landamæri Kúvæts.
Yfir 200
fallnir
Kúvætar misstu milli
100—200 manns í innrás-
inni í gær og þar á meðal
var einn meðlimur kon-
unglegu fjölskyldunnar.
Þetta staðfesti sendiherra
Kúvæta í Brussel í gær.
Talið er, að a.m.k. 200
manns hafi fallið í innrás-
inni.
Afleidingar innrásarinnar
Oliuverð
snarhækkar