Alþýðublaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 12. sept. 1990
íslenskur galdur
— segir sœnska blaöid Arbetet um bók Einars Más Guðmundssonar
Eftirmáli regndropanna eftir
Einar Má Guðmundsson virðist
falla í góðan jarðveg meðal Svía,
ef marka má áberandi frásögn
og dóm um bók hans „Regndrop-
parnas epilog,“ sem Inge Knuts-
son þýddi og fær mikið lof fyrir.
,,Hér fer Einar Már Guðmundsson
inn á leiðir sem eru eins konar ís-
lenskt afbrigði af hinni dulrænu
raunsæisstefnu sem einkennt hefur
s-ameríska frásagnarlist," segir Joel
Ohlsson í gagnrýni sinni.
,,Mál Einars, í ágætri þýðingu Inge
Knutsons, tekur oft á sig ljóðrænan
blæ, sem þó er ekki hátíðlegri en
svo að þessir Ijóðrænu kaflar falla
mjög vel inn í töluvert mergjaða frá-
sögn.“
Segir Ohlsson frásögnina ,,af-
stressaða" en fyndna. „Mér finnst
hún andlega skyld Dylan Thomas,"
segir Ohlson að lokum.
EINAR MÁR — verkum hans er
líkt við verk Dylans Thomas.
De b&da romanema Hid-
dama av runda trappan”
och "Vingslag i takrannan”
knnrllnrlo nrrt Inkann
• Einar Már
Gudmundsson
lism som framst utövats av
latinameríkanska beráttare.
miga och regniga natt i Rey-
kjavik, d& sallsamma och
Islándsk
magi
BOKEN
Einar Már Gudmunds-
aon:
Regndroppamas epiiog.
övcn*ttning lnge Knuis-
-aon
Pripress. Legenda.
t
RAÐAUGLÝSINGAR
RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS
LAUGAVEGI 13
101 REYKJAVIK
BREFSÍMI NR. 29814
SIMI 21320
Auglýsing um forverkefni
Rannsóknaráð ríkisins hefur ákveðið að veita styrki
til forverkefna er miði að því að kanna forsendur
nýrra áhugaverðra rannsókna- & þróunarverkefna.
Um slíka styrki geta sótt fyrirtæki, stofnanir og ein-
staklingar. Við mat á umsóknum verður sérstaklega
litið til röksemdafærslu um tæknilegt og hagrænt
mikilvægi verkefnisins og hugmynda um leiðir til að
koma niðurstöðum verkefnis í framkvæmd, ef það
skilar jákvæðum árangri.
Markmiðið með stuðningi við forverkefni er að kort-
leggja betur tæknileg og þróunarleg vandamál og
markaðsþörf, svo og forsendur samstarfs, áður en
lagt er í umfangsmikil r & þ verkefni, sem hugsan-
lega verða styrkt úr Rannsóknasjóði.
Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við forverk-
efni geti numið allt að 500.000,- kr.
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
L
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í lagn-
ingu vegslóða vegna byggingar220 kV Búrfellslínu
í samræmi við útboðsgögn BFL-10.
Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudeg-
inum 13. september 1990 á skrifstofu Landsvirkjun-
ar Háaleitisbraut 68, Reykjavík, gegn óafturkræfu
gjaldi að upphæð kr. 2.000,-
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68,103 Reykjavík, eigi síðar en föstu-
daginn 21. september 1990 fyrir kl. 14.00 en tilboðin
verða opnuð þar þann dag kl. 14.15 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavík 10. september 1990.
Iðnfulltrúi á
Vestfjörðum
í auglýsingu um laus störf iðnfulltrúa, sem birt var
í dagblöðum um síðustu helgi, féll af vangá niður að
tilgreina Vestfirði sem eitt landsvæði þar sem ráða
á iðnfulltrúa.
Vakin er hér með athygli á þessu, en vísast að öðru
leyti til áður birtrar auglýsingar.
Menntamálaráðuneytið.
Auglýsing
um veitingu leyfis til áætlunarflugs innanlands
Laust er til umsóknar sérleyfi til áætlanaflugs með
farþega, vörur og póst á flugleiðinni
Reykjavík—Suðureyri—Reykjavík.
Samgönguráðherra mun, samkvæmt heimild í VII.
kafla laga nr. 34 21. maí 1964 um loftferðirog reglu-
gerð um flugrekstur, nr. 381 1989 sbr. 580/1989 og
279/1990, veita leyfi til ofangreinds áætlunarflugs
fyrirtímabilið 1. október 1990 til 31. desember 1997.
Ráðuneytið lýsir hér með eftir umsóknum flugrek-
enda um leyfi til áætlunarflugs á téðri flugleið. í um-
sókninni skal greina:
— nafn flugrekanda
— mat umsækjanda á flutningsþörf á viðkomandi
leið,
— drög að áætlun á viðkomandi leið
— önnur atriði sem umsækjandi telur skipta máli.
Umsóknum, skv. ofanrituðu, skal skila til
samgönguráðuneytisins eigi síðar en 20.
september nk.
Samgönguráðuneytið, 11. september 1990.
Myndbandagerð
Vídeó — Nýtt námskeið
Sjö vikna námskeið í myndbandagerð hefst 17.
september nk. Kennt verður 2 sinnum í viku,
mánud. og miðvikud. kl, 19—22.
Megináhersla er lögð á:
Kvikmyndasögu, myndbyggingu, eðli og notkun
myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð ásamt
upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin mynd-
efnis nemenda.
Kennari er Ólafur Angantýsson og verður kennt í
Miðbæjarskólanum. Kennslugjald er kr. 7.600,-
Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 10—19.
Námsflokkar Reykjavíkur.
Frá Háskóla íslands
Skrásetning nýnema í Háskóla íslands háskólaárið
1990—91 fór fram frá 1.—29. júní 1990.
Tekið verður á móti beiðnum um skrásetningu á
vormisseri frá 2.—15. janúar 1991.
Þar eð kennsla í flestum deildum Háskólans er nú
hafin eða að hefjast er ekki unnt að veita undanþág-
ur frá skrásetningarreglum eftir 14. september
1990.
Háskóli íslands.
Aðalfundur kjördæmisráðs
Vesturlands
verður haldinn í Hótel Borgarnes laugardaginn 22.
september og hefst kl. 10.00.
Dagskrá:
Samkvæmt reglugerð.
Nánar auglýst í næstu viku.
Stjórn kjördæmisráðs.
Aðalfundur
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur aðal-
fund mánudaginn 17. september kl. 20.30 í Rósinni
Hverfisgötu 8—10.
Dagskrá.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Frá skrifstofu Alþýðuflokksins
í dag 12. september
verður Ólína Þorvarð-
ardóttir með viðtals-
tíma frá kl.
16.00—18.00.
Frá skrifstofu Alþýðuflokksins
Miðvikudaginn 19.
september verður
Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráð-
herra með viðtalstíma
frá kl. 16.00—18.00.