Alþýðublaðið - 17.11.1990, Blaðsíða 8
liftayggSngar
iii
, ALMÓÐ4
iJftryggingarfelagið hf.
LÁGMÚU 5 - RF.YKJAVÍK
simi 681644
GEVAUA
I Þai er katlið 687518
•••• •••• • •••••••••• ••••
••• •••• • i
•••• •••• • • • •••• ••••
• •• •••• •«
• • •••• ••• • •••• •
BRETAR AUKA VIÐBÚNAÐ VEGNA PERSA-
FL°A ! Bretar hafa tilkynnt að þeir séu tilbúnir til að senda
meiri vopn til Persaflóasvæðisins. Nú hafa Bretar 9.500
menn undir vopnum við Persaflóa og 120 skriðdreka í her-
sveitinni Eyðumerkurrotturnar. Bretar hafa nú 72 orrustu-
flugvélar af gerðunum Tornado og Jaguar staðsettar í
Saudi-Arabíu og Bahrein, en ekki er búist við að þeir sendi
fleiri vélar í bráð vegna skorts á flugbrautum á svæðinu.,
RIFA UPP SIMALINUR: Ganabúar rífa símalínurnar
upp og selja í grannlöndunum. Kauðar fá gimsteina fyrir
þýfið en blöð í Akkra herma að það muni kosta tæplega
fjórar milijónir króna að gera við.
i i /
KANAR A MOTISTRIÐI: Bandaríkjamenn vilja ekki
stríð gegn írak. Los Angeles Times birti birti skoðanakönn-
un í gær þar sem 53% Bandaríkjamanna lýsa sig andvíga
stríði en 38% eru hlynntir því að farið verði með ófriði
gegn írak. Helmingi fleiri konur voru gegn stríði en með
en karlarnir reyndust stríðsfúsari.
MISLUKKAÐ FLUGRÁN í SOVÉT: í gær var gerð til-
raun til að ræna flugvél sem var í innanlandsflugi í Sovét-
ríkjunum. Flugræninginn ætlaði að beina henni til Sví-
þjóðar en flugvélin lenti engu að síður í Tallinn í Eistlandi
og þar með lauk flugránstilrauninni.
PÓLSKU KNATTSPYRNULIÐIREFSAÐ VEGNA
HAKAKROSSINS: Pólska fyrstudeildarliðið GKS
Katowice verður að spiia næstu þrjá heimaleiki sína fyrir
auðum áhorfendapöllum. Það er vegna þess að áhangend-
ur þeirra veifuðu hakakrossinum meðan á leik stóð hjá lið-
inu en það er bannað að hafa í frammi nasistaáróður. Ólæti
á íþróttaleikvöngum í Póilandi hafa ágerst að undanförnu.
EKKIBJARTSÝNI í GATT: Bandaríkjamenn eru ekki
bjartsýnir á að samkomulag náist í þessari lotu GATT-sam-
ingaviðræðna. Þeir hafa krafist að miklu meiri verði dregið
úr stuðningi við landbúnað en Evrópuríki hafa fallist á. ís-
lendingar hafa boðist til að draga úr stuðningi um 25% en
Bandaríkjamenn halda sig við 70% samdrátt.
GENGISFELLING í KÍNA: Kínverjar tilkynntu í gær
að gengið yrði fellt um 17,1% í dag gagnvart dollar. Hag-
spekingar mæla með djörfum efnahagsaðgerðum, en
harðlínumenn og þeir sem vilja endurbætur á hagkerfinu
deiia mjög um fimm ára áætlun sem taka verður ákvörðun
um á næstunni.
BAKER SLÆST í GATT-HÓPINN: Landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna, Clayton Yeutter, sagði í gær að það
væru jafnmiklar líkur á að GATT-viðræðurnar í Genf um
landbúnaðarmál færu út um þúfur og að samningar tækj-
ust. Hann hefur nú fengið utanríkisráðherrann, James
Baker, að samningaborðinu í Genf. Baker hefur átt fund
með Jacques Delors, framkvæmdastjóra í Evrópubanda-
laginu, en mestur ágreiningur er milli Bandaríkjanna og
EB um að draga úr stuðningi við landbúnaðarframleiðslu.
Eru Bandaríkjamenn mjög óánægðir með tilboð EB-ríkj-
anna sem gengur alltof skammt að þeirra áliti. Yeutter seg-
ist ekki sjá nein merki um að raunhæf tilboð séu í augsýn
af hálfu EB.
ERLENDAR FRÉTTIR
Gorbatsjov til Rómar:
Blcmkir Ítalir
lofa millíöréum
ítalska stjórnin ætlar
að heita Gorbatsjov Sov-
étleiðtoga umtalsverð-
um fjárhagsstuðningi
þrátt fyrir mótmæli fjár-
málaráðuneytisins sem
hristir tómann ríki-
skassa. Talsmaður
ítalska utanríkisráðu-
neytisins sagði í gær, að
þegar Gorbatsjov kæmi í
eins dags heimsókn til
Rómar á sunnudaginn
verði undirritaður vin-
áttu- og samstarfssamn-
jnnUr ríkjanna sem fæli í
sér samvinnu á sviði
ef nahagsmála án þess að
fara nánar út í þá sálma.
Ráðherranefnd markaði í
síðasta mánuði yfir sex
milljarða dollara framlag
sem á að koma Sovétstjórn
til góða á árunum
1990—1994. í engu var
skeytt mótmælum fjár-
málaráðuneytisins sem
benti á hallarekstur ríkisins
og fuilyrti að ekki væru fyr-
ir hendi neinir fjármunir til
stuðnings Sovét.
Þingið á eftir að sam-
þykkja stuðninginn en talið
er fullvíst að ríkisstjórnin
muni segja Gorbatsjov á
morgun að fjárhagslegur
stuðningur sé tryggður.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins segir að ítalir
muni ákveðið styðja við
bakið á perestrjoku Gorbat-
sjovs.
Búist er við að hér verði
um að ræða lán að upphæð
1,9 milljarðar dollara og
vörukaupalán er nemur 4,3
milljörðum dollara. Sovét-
stjórn mun geta notað
helming lánsins til að
greiða skuldjr við ítalska út-
flytjendur. Ítalía er næst-
stærsta viðskiptaland Sov-
étríkjanna, næst á eftir
Þýskalandi.
Talsmaður ítalska utan-
ríkisráðuneytisins sagði að
í vináttusamningi þjóð-
anna væri gert ráð fyrir að
leiðtogar þjóðanna réðu
ráðum sínum reglulega og
ennfremur fæli samningur-
inn í sér samvinnu á sviði
orku- og umhverfismála.
GENGISHRUN DOLLARSINS
Dollar
fellur og
markið
styrkist
Gengi dollars heldur
áfram að falla en þýska
markið er á uppleið. Það
virðist ekkert sjá á „þýska
efnahagsundrinu" þó að
það gleypti Austur-Þýska-
land. Reuter fréttastofan
sendi frá sér þessa mynd
sem sýnir gengishrun
dollars. Glögglega kemur í
ljós að þýska markið
styrkist á meðan erfiðlega
gengur fyrir Bush og
stjórnina að glíma við
efnahagsvandann, einkum
þó mikinn halla á ríkisfjár-
lögum.
Þegar Berlínarmúrinn
hrundi í nóvember í fyrra féll
dollar í verði. Efnahagssér-
fræðingar spá því að við sam-
einingu þýsku ríkjanna muni
efnahagur í Þýskalandi
styrkjast enn frekar. Þrátt fyr-
ir það að seðlabankar reyni
að hafa áhrif skamman tíma í
senn. Á þessu ári hefur dollar
haldið áfram að falla.
Jafnvel íslensk króna spjar-
ar sig gagnvart dollar. 23. júlí
var skráð sölugengi dollars
58,59 ísl. kr. en kl. 9.15 í gær
54,50 kr. Fallandi gengi doll-
ars dregur úr tekjum okkar af
útflutningi til Bandaríkjanna
en skuldir okkar sem eru
bundnar í dollurum lækka.
Dregið hefur úr útfiutningi til
Bandarikjanna á undanförn-
um árum og hann hefur vax-
ið til Evrópu. Við höfum
hagnast mjög vegna upp-
gangs í Evrópu. Pundið hefur
hækkað um tíu af hundraði
miðað við íslenska krónu.
Verðbólga
herjar á
járnfrúna
Verðbólga er 11% á Bret-
landi nú miðað við þróunina
síðastliðið ár. Þjóðverjar og
Hollendingar spjara sig betur,
en þar hækkar verðlag um
3%. íslendingar gætu sómt
sér bærilega á þessum
kvarða frá Reuter. Ef tímabil-
ið okt.1989 til okt.1990 er tek-
ið fyrir er verðlag að meðal-
tali rúmlega tíu af hundraði
hærra i ár — ef vísitala fram-
færslukostnaðar er tekin góð
og gild sem mælikvarði.
VERÐ A HELSTU NEYSLUVORIJM
REUTER
Belgía
*Kanada
Frakkland
Ítalía
*Japan
**Holland
Sviss
Bretland
*Bandaríkin
V - Þýskaland
Prósentubreytingar frá ári til árs
I i i
OKTÓBER
TTT
Breyting
frá
áður
+0.7
+0.4
+0.5
+0.8
+0.9
+0.3
+0.6
0
+0.8
+0.7
012345678
*Tala í september "Bráðabirgðatala
9 10 11%