Alþýðublaðið - 08.12.1990, Side 2

Alþýðublaðið - 08.12.1990, Side 2
2 Laugardagur 8. desember 1990 Bankastjórn Sedlabankans: Afneitar áliti hagfræði- deildar — Jón Sigurdsson ósk- aði eftir opinberri til- kynningu Bankastjórn Seðlabankans hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna álitsgerðar hagfræði- deildar bankans um verðbólgu- áhrif ef bráðabirgðalögin um kjarasamninga yrðu afnumin. Kemur þar fram að bankastjórn- in tekur ekki __ undir álit hag- fræðideildar. í yfirlýsingunni segir m.a: „Teiur bankastjórnin miklu meiri hættur fram undan við þær aðstæður en álit hag- fræðideildar Seðlabankans virð- ist gefa í skyn.“ Spá Þjóðhagsstofnunar og spá hagfræðideildar Seðlabankans ber verulega mikið á milli um hvaða áhrif afnám bráðabirgðalaganna hefði á verðbólguna. Þjóðhagsstofn- un reiknar með aö verðbólgan hækkaði úr rúmmlega 7% í 22—40% við það að lögin yrðu felld úr gildi. Hagfræðideild Seðlabank- ans gagnrýnir hins vegar spá Þjóð- hagstofnunar harkalega og segir að afnám laganna myndi ekki leiða af sé óðaverðbólgu. Jón Sigurðsson bankamálaráð- herra sagði við Alþýðublaðið að vegna þeirrar umræðu sem varð um álit hagfræðideildar Seðlabankans um verðbólguáhrif afnáms bráða- birgðalaganna, sem hófust með því að Friðrik Sophusson vitnaði til þeirra á þingi í fyrradag, hefði hann þegar í gærmorgun haft samband við bankastjórn Seðlabankans. Hann hefði óskaði eftir því að bankastjórnin léti frá sér fara opin- bera fréttatilkynningu um þetta mál til þess að fram kæmi hvort þetta væri í raun og veru álit bankans. Yfirlýsing bankastjórnar Seðla- bankans er í raun afsökun á áliti hagfræðideildar bankans og lætur í Ijós þá skoðun að miklu meiri hætt- ur séu framundan við þær aðstæður að bráðabirgðalögin féllu en álit þessara starfsmanna hagfræðideild- arinnar virðist gefa í skyn. „Umtals- verð almenn kauphækkun mundi nú hafa í för sér alvarlega röskun í verðlagsþróun á næstu mánuðum, sem mundi stefna langtímamark- miðum um lækkun verðbólgu hér á landi í verulega hættu," segir m.a. í yfirlýsingu bankastjórnar Seðla- bankans. KOHfSi* cmyrÆ- Þetta byrjaði með nokkra kassa en nú fara margir gámar á ári, Ingþór Sigurbjörnsson, sem stendur hér við nær fuilan gám sem brátt verður sendur til Póllands. A-mynd: E. Ól. Atti sjálfur engin fermingarföt: Sent gjafaföt tíl Póllands 110 ár „Þau laun sem ég fœ fyrir starf mitt er að vita hversu mörgum ég hef hjálpað með þessum hœtti og þeim hlýhug sem svo fjölmargir hafa sýnt mér i verki. Flikurnar sem ég hef sent til Póllands undan- farin lO ár skipta eflaust milljénum/' sagði Ingþór Sigurbjörnsson i samtali við Alþýðublaðið. Við heimsóttum Ingþór á heim- ili hans að Kambsvegi 3 í Reykja- vík til að fræðast örlítið um ein- stætt hjálparstarf sem hann hefur unnið að undanfarinn áratug. Enn er engan bilbug á honum að finna þótt kominn sé á níræðisaldur. Daginn út og daginn inn er hann að taka við fatnaði, flokka hann og búa út til sendingar til Póllands. Fyrir 10 árum frétti Ingþór af barnaheimili í Póllandi þar sem dvöldu 300 börn. Skortur var þar á ýmsu, meðal annars fatnaði. Sem liðsmaður Góðtemplararegl- unnar vildi Ingþór leggja öllum mannúðarmálum lið og tók að sér forgöngu um að safna fötum og senda til barnaheimilisins í Pól- landi. Síðan hefur málið undið hratt uppá sig og umfang þess orð- ið mun meira en Ingþór grunaði í upphafi. ÁHi engin fermingarföt „Þegar ég var að alast upp voru heimilisaðstæður þannig að ég átti engin fermingarföt. Þessu hef ég aldrei gleymt. Ég hef nú árum saman helgað líf mitt því að safna fatnaði og senda til Póllands. Fólk kemur með fatnað hingað í bíl- skúrinn minn og raunar hef ég lagt alla neðri hæð hússins undir þessa starfsemi. Ég passa vel að héðan fari ekki annað en það sem er landi og þjóð til sóma. Bæði er um að ræða notaðan, heilan og hreinan fatnað, sem og ónotaðar flíkur sem ekki hafa selst þar sem þær eru komnar úr tísku hjá okk- ur. Einnig hefur fólk komið með muni eins og leikföng og líka skó- fatnað. Þeir hjá Eimskip hafa stutt dásamlega við bakið á mér og verður þeim seint fullþakkað. Það sem af er þessu ári hafa farið 12 gámar með fatnaði tii Póllands og liklega fara tveir til viðbótar fyrir jól,“ sagði Ingþór. Bodið Hl Péllands_____________ Fyrstu árin fóru fatasendingar Ingþórs til barnaheimilisins sem fyrr er nefnt, en þar dvelja munað- arlaus börn. En starfsemi þessa velgjörðarmanns á íslandi spurð- ist fljótt út meðal Pólverja, ekki síður en meðal fjölmargra landa hans. Þegar forstöðukona barna- heimilisins hætti störfum tók hjálparstofnun kaþólsku kirkjunn- ar, deild biskupsdæmisins í Olsztyn, að sér móttöku og úthlut- un sendinganna frá Ingþóri. Til að sýna þakklæti sitt í verki var Ing- þóri boðið til Póllands nú í haust og honum sýndur margvíslegur sómi. Var sú ferð honum til mikill- ar ánægju og staðfestingar á hversu þakklátir Pólverjar eru fyr- ir hið mikla sjálfboðastarf Ingþórs. „En ég vil enn og einu sinni þakka öllum þeim mörgum sem hafa stutt mig hér heima í starfinu. Arnór Hannibalsson hefur verið óþrjótandi við að skrifa fyrir mig bréf hvenær sem þarf til Póllands út af þessu og þýða svarbréfin. Þá vil ég ekki gleyma að taka fram, að Pólverjar þakka ekki aðeins mér heldur öllum þeim íslending- um sem hafa gefið fatnað og hjálp- að til. Og ég ætla að halda þessu áfram svo lengi sem ég er fær um því þörfin hefur ekkert minnkað," sagði Ingþór Sigurbjörnsson. Lúxusjeppar i þjóðarsátt Guömundur Magnússon: Sumt í þjódarsátt sjálfsblekking Menn láta blekkjast af þjóðar- sáttum. Það er skoðun Guð- mundar Magnússonar prófess- ors. Hann segir það misskilning að hærri vextir auki verðbólgu. Tollalækkun af bílum í þjóðar- sátt 1986 hafi auðveldað þeim betur settu að eignast lúxus- jeppa en skilið tekjuminna fólk eftir í skuldum. Guðmundur talaði á spástefnu Stjórnunarfélagsins sl. mánudag. Hann telur að gætt hafi sjálfsblekk- ingar varðandi þjóðarsættir undan- genginna ára. I fyrri þjóðarsátt, 1986, hafi verið samið um lækkun aðflutnignsgjalda af bílum. Þá „hjálpaði verkalýðshreyfingin til við að menn gætu keypt lúxusjeppa á hagstæðari kjörum en áður." Guð- mundur segir að hinir tekjulægri hafi orðið að taka lán til að geta hag- nýtt sér þessi góðu kjör. Kjarabótin af tollalækkuninni hafi þegar upp var staðið farið að mestu í kostnað. Ófarir ríkissjóðs séu þá ótaldar en ríkissjóður varð af miklum tekjum. Guðmundur Magnússon segir að ein blekkingin hafi verið vextirnir. Sá misskilningur sé furðu útbreidd- ur að hærri vextir auki verðbólgu. Þeir hækki vissulega kostnað fyrir- tækja en dragi úr eftirspurn eftir lánsfé. Almenningur sé fjáðari í að leggja inn. „Þetta er líklegra til þess til lengdar að lækka vexti og vöru- verð," segir Guðmundur. Guömundur Magnússon prófessor — vextirnir eru ein blekkingin.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.