Alþýðublaðið - 08.12.1990, Page 5
Laugardagur 8. desember 1990
5
gert í samgöngumálum fjórðungs-
ins. Þegar verði hafist handa við
raunhæfan undirbúning að jarð-
gangagerð. Um leið og þjóð-
brautarkerfið verði styrkt eins og
kostur er, verði uppbygging flug-
valla og öryggi við þá eflt.
Alþýðuflokkurinn hefur haft
forystu í húsnæðismálum og beitt
sér fyrir hinu félagslega íbúðar-
kerfi, kaupleiguíbúðum og hús-
bréfum. Þessar umbætur munu
gera launafólki kleift að eignast
þak yfir höfuðið án þess að lenda
í skuldaþrældómi. Alþýðuflokkur-
inn leggur áherslu á að átak verði
gert í húsnæðismálum aldraðra og
fatlaðra.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
telur óeðlilegt að Landsvirkjun,
sem er að 49% í eigu Reykjavíkur-
borgar, hafi einokunaraðstöðu til
virkjunar vatnsafls á landinu.
Tryggja verður beina aðild lands-
byggðarinnar að aðalorkufyrir-
tæki landsins, og þar með áhrif við
verðlagningu orkunnar.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
krefst þess að heimili og atvinnu-
rekstur greiði sama verð fyrir upp-
hitun og raforku, alls staðar á
landinu. Við teljum brýnt að sveit-
arfélög og atvinnurekstur á lands-
byggðinni fái notið öflugri sjálfs-
ákvörðunarréttar í stað miðstýr-
ingar frá fjármagns- og valdastofn-
unum í Reykjavík. Mikilvægt gr að
ríkisstofnanir og höfuðstöðvar
landsfyrirtækja verði staðsettar á
landsbyggðinni eins og aðstæður
frekast leyfa.
Alþýðuflokkurinn leggur
áherslu á að almennar framfærslu-
tekjur verði skattfrjálsar. Við vör-
um alvarlega við því að fjárlaga-
halli ríkissjóðs verði réttur af með
frekari álögum á launafólk, á með-
an fjármagnseigendur komast hjá
að greiða lágmarksskatta.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
hvetur íbúa kjördæmisins til sam-
starfs um að ná fram sameiginleg-
um hagsmunamálum. í síðustu
kosningum skorti Alþýðuflokkinn
sjö atkvæði til að fá þingmann
kjörinn. Það hefur án efa veikt
framgang hagsmunamála kjör-
dæmisins á Alþingi og innan ríkis-
stjórnar að þingmanns Alþýðu-
flokksins á Austurlandi hefur ekki
notið við. I komandi kosningum
gefst kjósendum tækifæri til að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar í
baráttu fyrir betri lífskjörum í kjör-
dæminu, með því að tryggja kjör
þingmanns Alþýðuflokksins á
Austurlandi.
Samþykkt á fundi
kjördæmisráðs
01.12.90 á Reyðarfirði.
Kjördæmisráö Alþýduflokksins á Austurlandi ályktar
Réttur mannsins umfram
hagsmuni fjármognsins
Alþýðuflokkurinn á Austur-
landi tekur afstöðu til þjóð-
mála á grundvelli jafnaðar-
stefnunnar. Það felur í sér að
réttur mannsins er tekinn fram
yfir hagsmuni fjármagnsins.
Jafnrétti er hornsteinn að
stefnu Alþýðuflokksins. Jafn-
aðarmenn á Austurlandi bjóða
fram A-listann við komandi al-
þingiskosningar. Með jafnað-
arstefnuna að leiðarijósi leggj-
um við áherslu á eftirfarandi:
Við fögnum því að tekist hefur
þjóðarsátt í kaupgjalds- og verð-
lagsmálum, sem leitt hefur til jafn-
vægis í efnahagsmálum, tryggt
vinnufrið og náð því langþráða
markmiði að verðbólgan hefur
hjaðnað. Vara verður við því að
launafólk og búalið beri byrðar
þjóðarsáttar eitt og sér, heldur
einnig atvinnurekendur, fjár-
magnseigendur, fjármagnsstofn-
anir og opinberar þjónustustofn-
anir. Standa verður gegn öllum til-
raunum og öfgum, sem brjóta nið-
ur og sundra þjóðarsáttinni. Við
teljum afar brýnt að í kjarasamn-
ingum framtíðarinnar verði launa-
bil jafnað með hækkun lægstu
launa.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
hvetur til þjóðarsáttar milli lands-
byggðar og þéttbýlis með byggða-
stefnu á öllum sviðum, sem tryggi
lífskjörin og búsetu fólks í dreifbýli
sem þéttbýli. íslensk þjóð er fá-
menn, en býr í stóru og harðbýlu
landi, og byggir afkomu sína á við-
kvæmum náttúruauðlindum til
lands og sjávar. Mikilvægt er að
skilningur og gagnkvæmt traust
megi ríkja á milli fólks, hvar sem
það býr i landinu. Við höfnum því
að markaðslögmál frjálshyggjunn-
ar verði látið ráða skipan byggða-
og atvinnumála þjóðarinnar.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
undirstrikar að fiskistofnarnir eru
sameign þjóðarinnar. Það óhefta
kvótabrask, sem viðgengist hefur,
stefnir í voða búsetu og lífskjörum
fólks í sjávarþorpum, sem byggja
afkomu sína á sjávarútvegi.
Tryggja verður með lögum, að
byggðarlög fái notið viðunandi
fiskveiðiréttinda, en slík lífsrétt-
indi safnist ekki á fárra hendur í
krafti fjármagns og markaðs-
hyggju.
Þjóðarbúið getur ekki verið án
íslensks landbúnaðar. Framtíð
þjóðarinnar felst m.a. í því að þjóð-
in geti áfram verið sjálfri sér nóg
um landbúnaðarafurðir. Umfram-
framleiðsluvandi landbúnaðar
verður ekki leystur með öfgastefn-
um, heldur þróun á grundvelli
þjóðarsáttar, sem tryggir bændum
betri rekstrarskilyrði og neytend-
um landbúnaðarvörur á sann-
gjörnu verði. Gera verður átak til
að efla útflutning landbúnaðaraf-
urða, og greiða útflutningsbætur
beint til bænda.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
leggur áherslu á markvissa upp-
byggingu atvinnulífs í fjórðungn-
um. Næg atvinna er forsenda fyrir
búsetu og afkomu heimilanna.
Tryggja verður rekstrargrundvöll
sjávarútvegs, fiskvinnslu og land-
búnaðar, enda ljóst að enn verða
þessar atvinnugreinar burðarásar
búsetu og lífsbjargar í fjórðungn-
um. Styðja verður kröftuglega við
hvers konar nýsköpun í atvinnulíf-
inu, sem til heilla horfir, t.d. ferða-
þjónustu, fullvinnslu sjávarafurða,
skógrækt, iðnað og fiskeldi, auk
þess að hlú að þeirri atvinnustarf-
semi, sem nú þegar er til staðar.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
varar eindregið við því að fisk-
veiðiréttindi þjóðarinnar í hafinu
umhverfis landið verði höfð að
skiptimynt fyrir aðgang að mörk-
uðum Evrópubandalagsins.
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
vill bæta uppeldisskilyrði barna
og styrkja undirstöður farsæls
heimilislífs. Tryggja þarf öllum
tækifæri til mennta og stuðla að
sjáifstæði uppvaxandi kynslóðar.
Draga þarf úr miðstýringu skóla-
kerfisins og. auka sjálfstæði skól-
anriá. /
Alþýðuflokkurinn á Austurlandi
krefst þjónustu í heilbrigðismálum
við allra hæfi, og leggur áherslu á
forvarnarstarf með stöðugri
fræðslu og virku samstarfi heil-
brigðisstéttanna, frjálsra félaga-
samtaka og almennings í landinu.
Við teljum brýnt að átak verði
Upplyfting í kvöld?
MUNDU EFTIR 0ST1NUM
Hann eykur stemninguna.
AUK/SlA k9d2-500