Alþýðublaðið - 11.12.1990, Síða 2
2
Þriðjudagur 11. desember 1990
Sýnir i Bókasafni
Kópavogs
Myndlistarkonan Svava Sigrídur
Gestsdótlir er um þessar mundir
með sýningu á verkum sínum í
Bókasafni Kópavogs. Svava hef-
ur á undanförnum árum haldið
10 einkasýningar og verið með í
samsýningum. Myndir hennar
eru byggðar á landslagi. Svava
er menntuö frá myndlista og
handíðaskóla íslands og mynd-
listarskólanum við Freyjugötu
auk þess sem hún nam við Berg-
enholtz Fagskole í Danmörku.
Sýningin stendur til 15. desem-
ber og er opin á opnunartíma
safnsins, frá 9—21 alla virka
daga.
Þau kortlögðu
ferðamáiin
Eins og sagt er frá í frétt í blaðinu
í dag, hafa ferðamál okkar, loks-
ins, verið skipulögð, eða kannski
kortlögð. Einvalalið mikið hefur
unnið að þessu í hálft annað ár:
Hjörleifur Guttormsson, alþing-
ismaður, formaður, Arni Þór Sig-
urdsson, deildarstjóri, starfs-
maður nefndarinnar, Áslaug Al-
fredsdóttir, hótelstjóri, Birgir
Þorgilsson, ferðamálastjóri,
Bjarni Sigtryggsson, ferðamála-
fræðingur, Fridjón Þórdarson,
alþingismaður, Kristín Einars-
dóttir, alþingismaður, Reynir Ad-
ólfsson, framkvæmdastjóri og
Unnur Stefánsdóttir, verkefnis-
stjóri.
Hinn aiþjóðiegi
hugsunarháttur
gripur um sig
í fyrramálið mæta tveir yfir-
menn Enskila Asset Manage-
ment Ltd. , annar frá London og
hinn frá Ameríku, til morgun-
verðar hjá Verslunarráðinu í Átt-
hagasal Hótel Sögu. Alþjóðlegur
hugsunarháttur hefur gripið Is-
lendinga, og nú vilja menn fræð-
ast nánar um fjárfestingarkosti
austan hafs og vestan, enda ver-
ið að fella niður hömlur á fjár-
festingum okkar erlendis. Þeir
sem þarna munu sitja fyrir svör-
um eru Norðurlandabúar, enda
Enskilda sænskt fyrirtæki, Hugo
Petersen og David Söden. Þátt-
töku á að tilkynna hjá skrifstofu
viðskiptalífsins hjá Verslunar-
ráðinu.
Myndlist i
menntamála-
ráðuneyti
Um þessar mundir sýna tveir
ungir myndlistarmenn, Guöjón
Bjarnason og Sigrídur Rut
Hreinsdóttir í menntamálaráðu-
neytinu, Guðjón 60 olíumálverk
og Sigríður Rut 20 vatnslita-
myndir. Opið á venjulegum skrif-
stofutíma 9—17 alía virka daga
! til 5. janúar.
FRÉTTASK ÝRING
Sjálfstœðisflokkurinn á krossgötum:
Ósamstarffshæfur
flokkur í upplausn
Er Sjálffstæðisflokkurinn annað og meira en laus-
tengt bandalag hægri manna á íslandi? Hann kynn-
ir sig sem fflokk allra stétta og vissulega má ffinna
innan hans raða menn úr öllum stéttum. En Sjálf-
stæðisfflokkurinn er jafnframt flokkur ólikra hags-
muna á mörgum sviðum en offt heffur þó tekist bæri-
lega að sigla milli skers og báru i átökum ólikra
hagsmunahépa. Iðulega minnir hann þó mest á
bandalag þar sem sjónarmið eru ólik, hver höndin
upp á méti annarri og stefnumið öll á reiki.
TRYGGVI HARÐARSON SKRIFAR
Það fer töluvert eftir því hversu
sterkan foringja flokkurinn hefur
hverju sinni hversu samhentur
flokkurinn er. í formannstíð Þor-
steins Pálssonar hefur hann virkað
veikur og reyndar lítið annað en
kosningabandalag manna á hægri
væng stjórnmálanna.
Þorsteini hefur aldrei tekist að
ná almennilega tökum á Sjálfstæð-
isflokknum. Hann kom fyrst á
þing vorið 1983 og var kjörinn for-
maður flokksins haustið sama ár
er Geir Hallgrímsson iét af því
embætti.
begar fformaðurinn_____________
rúmaðist ekki i
rikisstjérn____________________
Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkur-
inn færi í stjórn með Framsóknar-
flokknum að afloknum þeim kosn-
ingum varð Þorsteinn ekki ráð-
herra. Hann mátti einnig sætta sig
við það að vera utan stjórnar
fyrsta kastið eftir að hann var kjör-
inn formaður flokksins því enginn
þeirra sem sat fyrir á ráðherrastóli
á vegum flokksins var tilbúninn að
gefa eftir sæti sitt. Þorsteinn varð
því ekki ráðherra fyrr en Geir
Hallgrímsson hætti á þingi og
varð einn af bankastjórum Seðla-
bankans.
Margir telja það upphafið á erf-
iðum ferli Þorsteins sem formanns
Sjálfstæðisflokksins að hann sat
utan stjórnar fyrsta kastið eftir að
hann varð formaður. Auk þess að
vera nýgræðingur í landsmálapól-
itíkinni hafi hann óhjákvæmilega
verið nokkuð afskiptur utan
stjórnar og hefði betur krafist ráð-
herradóms strax. Vald hans í
flokknum hefur aldrei síðan verið
óskorað og reyndar hefur honum
gengið illa að hafa hemil á sínum
mönnum.
Kloffinn fflokkur —____________
brostin rikissffjórn___________
Þetta var í ríkisstjórnartíð Stein-
gríms Hermannssonar á árunum
1983 til 1987. íkosningunum 1987
beið svo Sjálfstæðisflokkurinn það
mesta afhroð sem flokkurinn hef-
ur mátt þola. Albert Guðmunds-
son klauf flokkinn eftir að hafa
þurft að segja af sér sem ráðherra.
Þrátt fyrir að Albert hafði unnið
fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í
Reykjavík lýsti Þorsteinn því yfir í
beinni sjónvarpsútsendingu að
hann kæmi ekki til álita sem ráð-
herraefni flokksins eftir kosning-
ar. Þótti meðhöndlun Þorsteins á
málinu öll hin klaufalegasta.
Eftir erfið fyrstu árin sem for-
maöur Sjálfstæðisflokksins fékk
Þorsteinn tækifæri til að sanna sig
sem leiðtoga er hann myndaði
stjórn með Alþýðuflokki og Fram-
sóknarflokki árið 1987. Honum
tókst hins vegar ekki betur en svo
að leiða þá stjórn að hún sundrað-
ist eftir rúmlega ár. Segja má því
að ekkert hafi gengið upp hjá Þor-
steini eftir að hann varð formaður
flokks síns.
Umboöslaus fforysta —
marklaus fflokkur______________
Upphlaup þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins þegar hann samþykkti
að greiða atkvæði gegn bráða-
birgðalögunum er talandi dæmi
um hversu ósamstilltur flokkurinn
er. Ákvörðunin virðist hafa verið
vanhugsuð og hefði reynst mark-
laus stæðu ekki allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksinsað baki henni.
Þá er betra að sleppa öllum sam-
þykktum. Þrátt fyrir að formaður
þingflokksins hafi lýst því yfir að
samráð hefði verið haft við alla
þingmenn flokksins kom annað á
daginn. Mátti þingflokksformað-
urinn síðar viðurkenna að hann
hafi farið með rangt mál.
Þetta mál sýnir vel hversu reik-
ull Sjálfstæðisflokkurinn er. Hér er
aðeins eitt dæmi af mörgum um
hversu erfitt hann á með að taka
ákvörðun sem heldur. Það hefur
háð flokknum og gert hann í
reynd ósamstarfshæfan. Það er
nógu erfitt að berja saman sjónar-
mið í fjölflokkastjórn þó ekki komi
til að sýknt og heilagt þurfi að
standa í samningaumleitunum
innan flokks varðandi ákvarðan-
tökur.
Umboðslausir eða umboðslitlir
forystumenn flokka eru afar
slæmur kostur í ríkisstjórnarsam-
starfi. Fyrir aðra flokka hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn helst verið
spennandi valkostur í stjórnar-
samstarfi sökum þess að mögu-
leiki hefur helst verið að mynda
tveggja flokka stjórn með honum.
Sá kostur verður hins vegar að
engu ef við er að eiga marga
flokka í reynd.
Davið tuktar þingfflokk-
inn ___________________________
Fyrir utan það að samþykkt
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
um að greiða bæri atkvæði gegn
bráðabirgðalögunum væri út á við
ákaflega umdeild varð málið til að
setja allt í háaloft í þingflokknum.
Skoðanakönnun í DV staðfesti að
fylgið hrundi af flokknum í kjölfar
samþykktarinnar. Þorsteinn Páls-
son reyndi þó að verja samþykkt-
ina af veikum mætti.
Það varð þó ekki fyrr en vara-
formaður flokksins, Davið Odds-
son, gekk fram fyrir skjöldu að
málin fóru að skýrast. Það kom á
daginn að hann var upphafs- og
aðalhvatamaður að umræddri
samþykkt. Hann var ómyrkur í
máli og sagði að ákvörðunin hefði
verið tekin á þingflokksfundi með
lögmætum hætti og hann skyldi
ekkert í þeim þingmönnum sem
ekki vildu hlíta samþykktinni.
Hann ætti ekki slíkum vinnu-
brögðum að venjast. Þá sakaði
hann þá þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins um heigulshátt sem voru
með efasemdir um ágæti sam-
þykktarinnar.
Af þessu má ljóst vera að Davíð
unir því illa að flokksbræður hans
standi ekki við þær samþykktir
sem teknar hafa verið í flokknum
á réttum vettvangi. Skiptir þá
engu hvort eða hversu heimsku-
legar niðurstöðurnar kunna að
reynast, hann vill standa við það
sem samþykkt hefur verið, og
hann vill að aðrir standi við sam-
þykktir flokksins.
Teksff Pavid ad breyffa
bandalagi i fflokk?____________
Það er bara að mati flestra að-
eins tímaspursmál hvenær Davíð
Oddsson sest í formannssæti Þor-
steins Pálssonar. Davíð hefur van-
ist því á sínum borgarstjóraferli að
ráða og að limirnir dansi eftir
höfðinu, þ.e.a.s. honum sjálfum.
Það er því næsta Ijóst, að þegar
hann verður kominn í þingflokk
Sjálfstæðisflokksins að afloknum
næstu kosningum og ef til vill for-
maður, mun hann illa una því að
flokksmenn sínir hlaupi út undan
sér og fylgi ekki þeirri línu sem
forystan setur upp. Spurningin
stendur aðeins um það hvort Dav-
íð tekst að aga flokkinn og koma
böndum á þingmenn hans.
Hann mun ekki una því að Sjálf-
stæðisflokkurinn verði aðeins
laustengt kosningabandalag
hægri manna. Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur átt í mestu erfiðleikum
með að taka afstöðu í nokkru máli
því engan hefur mátt styggja. Þor-
steinn hefur ekki verið foringi sem
hefur tekið af skarið heldur leitað
málamiðlana og sátta í deilum inn-
an flokksins. Það hefur svo ieitt til
þess að öll stefna Sjálfstæðis-
flokksins hefur orðið afar óskýr,
svo ekki sé meira sagt, og ein-
kennist af almennum yfirlýsing-
um frekar en markvissum áhersl-
um eða mótaðri stefnu.
Hver vill i sljórn með
höffuðlausum her?
Meðan Sjálfstæðisflokkurinn á
við þessi innanmein að stríða hlýt-
ur hann að teljast óaðlaðandi kost-
ur til stjórnarsamstarfs. Davtð
Oddsson hefur lýst því yfir að
hann hyggist ekki verða ráðherra
flokksins að afloknum kosningum
heldur sitja áfram sem borgar-
stjóri. Það eitt og sér yrði erfitt fyr-
ir hugsanlega samstarfsflokka að
sætta sig við. Slík ríkisstjórn gæti
ekki tekið ákvarðanir fyrr en búið
væri að gefa grænt ljós frá borgar-
skrifstofunum.
Ýmsir horfa til þess að Davíð
verði formaður Sjálfstæðisflokks-
ins fyrr en síðar. Á það jafnt við
um hans eigin flokksmenn sem
menn í öðrum flokkum. Davíð er
talinn líklegur til að ná tökum á
flokknum og hann einn er álitinn
geta haft heimil á ýmsum þing-
mönnum hans sem hingað til hafa
látið illa að stjórn. Öruggt má telja
að aðrir flokkar hugsi sig tvisvar
sinnum um áður en þeir ganga til
stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn með Þorstein sem leið-
toga og Davíð utan stjórnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt óhemjuerfitt með að taka ákvarðanir undir forystu Þorsteins Pálssonar. Nú spyrja
menn sig hvenær varaformaðurinn, Davíð Oddsson, taki við og hvort honum takist að breyta flokknum úr kosn-
ingabandalagi í agaðan, samstarfshæfan flokk. Myndin var tekin á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins.