Alþýðublaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 1
Karl Steinar Guðnason:
Á ekki að upp-
ræta misréttið
hvarvetna sem það er?
Verða kennarar til þess að
BSRB-samningurinn fellur
eru lélegir í heild og þegar ofan á
„Ég fagna mjög þessu samkomu-
lagi og einkum þcim sinnaskiptum
sem átt hafa sér staö í fjármála-
ráðuneytinu. Alþvðusambandið
hefur fyrir hönd verkalýðsfélag-
anna á undanförnum árum lagt á
það mikið kapp að ná þessari sam-
ræmingu, að ná þeirri sanngjörnu
og réttlátu kröfu fram, að fólk sem
vinnur hlið við hlið, fólk sem ann-
ars vegar er í almennu verkalýðsfé-
lagi og hins vegar á samningi BSRB,
fái hliðstæð kjör,“ sagði Karl Stein-
ar Guðnason á Alþingi í gær þegar
hann kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár vegna samkomulags fjármála
ráðherra og Dagsbrúnar um
launasamræmingu.
„Á undanförnum árum hefur það
sífellt færst í vöxt að hin almennu
verkalýðsfélög hafa misst hundruð
félaga sinna yfir í félög opinberra
starfsmanna, því með því móti hef-
ur fólkið fengið betri kjör en verka-
lýðssamtökin hafa getað samið um.
Ríkið og sveitarfélög hafa ástundað
í allsherjar-
atkvæðagreiðslu?
„Það er þegar fyrirliggjandi að all-
ir fulltrúar kennara í saminganefnd
það siðleysi að neita verkalýðsfélög-
ununt um sömu kjör og þeir hafa
samið urn við BSRB. í veigamiklum
atriðum er mikill munur bæði hvað
varðar kaupgreiðslur og einkum
hlunnindiþ sagði Karl.
Hann sagði ljóst að á undanförn-
um árum hefðu Dagsbrún og Fram-
Framhald á bls. 3
BSRB greiddu atkvæði gegn samn-
ingum forystu BSRB og fjármála-
ráðherra. Ég kem ekki til með að
geta mælt með þessum samningum
við fólk í kennarastéttþ sagði Val-
geir Gestsson formaður Kennara-
sambands íslands í santtali við
blaðið vegna nýgerðra samninga
BSRB og ríkisins. Samningarnir
verða bornir undir atkvæði i alls-
herjaratkvæðagreiðslu meðal allra
félagsmanna BSRB 19. og 20. mars
næstkomandi.
Valgeir Gestsson sagði að í heild
gæfu þessir samningar litlar kjara-
bætur. Þess utan hefði ekki verið
staðið við fyrirheit, sem kennurum
hefði verið gefið um að jafna
kennsluskyldu grunnskólakennara,
en mál væru þannig vaxin í þeint
efnum, að þeir kennarar sem
kenndu í yngri bekkjunt grunnskól-
anna hefðu 1 og Vi tíma meiri
kennsluskyldu á viku en þeir kenn-
arar sem kenndu í efri deildum.
„Það var stigið skref til jöfnunar á
þessu sviði 1983 og við höfðum
fengið um það fyrirheit, að í þess-
um samningum yrði algerri jöfnun
komið á,“ sagði Valgeir. „Þegar hins
vegar gengið var eftir því í samn-
ingaviðræðunum kom þvert nei frá
fulltrúum ríkisvaldsins. Þar með
var teningnum kastað hvað varðaði
afstöðu kennara“
Aðspurður vildi Valgeir taka það
fram, að þótt ýmsum kynni að virð-
ast sem hér væri litilvægt mál á
ferðinni, sem ætti ekki að ráða
úrslitum í afstöðunni til heildar-
samninganna, þá bæri að líta á
þetta í samhengi. „Santningarnir
bætist viljaleysi til að taka a þessu
sérmáli kennara, þá fyllist mælir-
inn!‘
Félagsmenn í Kennarasambandi
íslands eru urn 3000 talsins og
nærri 30% félagsmanna í BSRB,
þannig að hlutur þeirra kemur til
rneð að vega þungt i allsherjarat-
kvæðagreiðslunni innan BSRB nú i
ntars. Ef svo færi, að kennarastéttin
stæði sem einn maður gegn þessum
samningum, þá er allt eins líklegt að
það yrði til þess að fella samning-
ana í allsherjaratkvæðagreiðslunni.
Valgeir vildi þó ekki úttala sig unt
afstöðuna almennt hjá kennurum
til þessa rnáls, en það færi hins
vegar ekki framhjá nokkrunt
manni að það væri ntjög þungt
hljöðið í kennurum vegna lélegra
kjara stéttarinnar.
Valgeir Gestsson sagðist einnig
vera óánægður með að ekki hafi
verið gengið frá sérkjarasamning-
um við einstaka hópa innan BSRB
samhliða því sem forysta BSRB
skrifaði undir aðalkjarasamning-
inn. „Það vantar sérkjarasamning-
ana inní myndinaþ sagði Valgeir.
Sérstakar reglur gilda um sér-
kjarasamninga við aðildarfélög
innan BSRB og réttur félagsmanna
mun rýrari um þau mál en gerist
þegar aðalkjarasamningar eru
annars vegar. Verkfallsréttur er til
að mynda ekki inní myndinni hvað
varðar sérkjarasantninga, heldur
tekur kjaranefnd af skarið ef ekki
semst rnilli aðila innan tiltekins
tímafrests.
Kjartan Jóhannsson:
Þjóðin á kröfu
á skýrum svörum
„Alþingi og þjóðin eiga kröfu á að
vita hvað framundan er í þessu
máli. Forsætisráðherra hefur lýst
því yfir að fjármálaráðherra hafi
ineð þessu samkomulagi farið langt
út fyrir sitt verksvið. Forsætisráð-
herra er verkstjóri þessarar ríkis-
stjórnar og því spyr ég: Hvað ætlar
hann að gera? Getur hann unað því
að einstakir ráðherrar fari að hans
sögn út fyrir sitt verksvið? Og látið
gott lieita," sagði Kjartan Jóhanns-
son, formaður Alþýðuflokksins,
meðal annars í utandagskrárum-
ræðunum um samkomulag fjár-
málaráðherra og Dagsbrúnar á Al-
þingi í gær.
„Við höfum reyndar heyrt það oft
áður að yfirlýsingar ráðherra séu
ómark og innantóm orð. Forsætis-
ráðherra hefur áður lýst því yfir að
ekki sé að marka orð fjármálaráð-
herra og fjármálaráðherra hefur
reyndar sjálfur sagt nákvæmlega
hið sama um forsætisráðherra.
Mennirnir hafa í fjölmiðlum lýst
hvor annan ómerkilegan, að ekki sé
aó marka hvað hinn er að segja. Ég
spyr: Er það viðhorf Framsóknar-
flokksins að ekki sé að marka hvað
fjármálaráðherra segir? Er það svo
hins vegar viðhorf Sjálfstæðis-
flokksins að ekkert sé að marka
hvað forsætisráðherra segir?“ sagði
Kjartan.
Sagði hann að helst væri svo að
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra:
Misrétti
„Ég hef oröið fyrir þunguin
ásökunum vegna embættisgjörða
minna sem fjármálaráðherra . . .
Þessa leiðréttingu tel ég sjálfsagða,
taldi rétt að lagfæra þetta misrétti
þegar í stað . . . Telji háttvirt Al-
þingi að ég hafi brotið af mér í einb
ætti, með því að leiðrétta kjör
þessara verkamanna, sem vinna hjá
rikinu eða fyrir ríkið, þá mun ég að
sjálfsögðu taka afleiðingunum af
þeirri gjörð.“
Þetta var það sem Albert Guð-
mundsson sagði meðal annars er
hann svaraði fyrirspurnum þeim er
Karl Steinar Guðnason beindi til
hansutandagskrár á Alþingiígær.
Fagnaði Albert þessu tækifæri og
sagði að ef hann væri beðinn um að
leiðrétta misrétti þá myndi hann
gera það ef hann gæti.
„Get ég sem fjármálaráðherra
horft upp á það, að tveir menn vinni
hlið við hlið sömu störf, annar með
fulla atvinnutryggingu, verðtryggð-
an lífeyrissjóðsrétt, sérstaka matar-
peninga, sérstaka fatapeninga og
meira og meira, en hinn alls ekki
neitt af þessum hlutum og lægri
laun? Misrétti getur enginn al-
þingismaður stuttþ sagði Albert.
Albert vitnaði í greinargerð
Albert Guðmundsson
launamáladeildar ráðuneytis síns
þar sem segir að þessi samræming
gæti hugsanlega haft nokkur áhrif'
á lægstu launaflokkana og kostn-
aður af slíku gæti orðið nokkrir
tugir þúsunda á ári, en ef gengið
yrði að öllum kröfum Dagsbrúnar
gæti kostnaðurinn hugsanlega
orðið 1 milljón króna á ári fyrir
ríkissjóð og nefndi hann að senni-
lega væri það ekki mikið meira í
reynd en kostnaðurinn við þá þing-
mannafélaga sem nú eru á Norður-
landaráðsþingi.
skilja að ríkisstjórnin hefði jafn
margar stefnur og ráðherrarnir
Framhald á bls. 3
getur
enginn
þingmaður
stutt
Kristján Thorlacius, formaður BSRB:
Vona að samningurinn
verið samþykktur
„Það gilti við þessa samninga eins
og svo oft áður, að það verður að
vega og meta hlutina út frá aðstæð-
ununt í þjóðfélaginu. Það er Ijóst
að allar aðstæður eru nú erfiðar,
meðal annars atvinnuástandið, og
þegar svo er verður að meta hlutina
raunsæjum augum. í stórum drátt-
um tel ég að miðað við þetta höfum
við náð ótrúlega ntiklu af því sem
við settum fram í kröfugerð okkarþ
sagði Kristján Thorlacius, formað-
ur BSRB, í samtali við Alþýðublað-
ið um nýgerðan kjarasamning
bandalagsins og ríkisins.
Sagði Kristján að frá upphafi
hefði verið stefnt að því að bæta
kjör hinna verst settu, annars vegar
með beinum launahækkunum og
hins vegar með óbeinum kjarabót-
um. Og svo sérstakri hækkun lág-
markslauna um leið og áframhald-
andi kjaraskerðing væri stöðvuð.
— Og rikisvaldið samþykkti við-
ræður uin sérkjarasamninga?
,,Já það er rétt, að samningamenn
ríkisins settu fram í tilboði sínu það
santa og í Alþýðusambandssamn-
ingunum, að það yrðu aliir sarnn-
ingar framlengdir. En við höfnuð-
um því að sérkjarasamningarnir
yrðu framlengdir. Þaðsem í raun og
veru greinir okkar samninga frá
samningi Alþýðusambandsins að-
alicga, er að við náðum því frant að
sérkjarasamningarnir eru ekki
bundnir. Okkar sérkjarasamning-
ar eru á vegurn aðildarfélaga
Framhald á bls. 3
Ráðstefna um starfsemi ungra jafnaðarmanna á morgun:
Markið er öflugri unghreyfing
„Markmiðið með ráðstefnunni
er að leita hugmynda um það,
hvernig starfsemi ungra jafnaðar-
manna verði sem öfiugust. Við von-
umst til þess að ungir jafnaðar-
menn fjölmenni á ráðstefnuna og
auðvitað að útkoman verði öflugri
unghreyfing,“ sagði Snorri Guð-
mundsson, formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna, þegar Al-
þýðublaðið ræddi við hann um ráð-
stefnu SUJ ogF'ræðsluráðs Alþýðu-
flokksins sem haldin verður á laug-
ardaginn í Alþýðuhúsinu í Hafnar-
firði.
Á ráðstefnunni verður fjailað um
hina ýmsu þætti sem að starfsemi
ungra jafnaðarmanna lúta. Snorri
Guðmundsson kynnir starfsemi
SUJ, fjallað verður um starf ein-
stakra félaga innan sambandsins,
um þátt Alþýðuflokksfélaganna i
starfi ungra jafnaðarmanna, um al-
þjóðasamstarf ungra jafnaðar-
ntanna og hvernig unnt er að koma
til móts við unga óflokksbundna
jafnaðarmenn. Þá mun Kjartan Jó-
hannsson^formaður Alþýðuflokks-
ins, flytja erindi um Alþýðuflokk-
inn og unga fólkið.
Ráðstefnustjóri verður Bjarni P.
Magnússon. Allir áhugasamir fé-
iagar eru hvattir til að taka þátt í
ráðstefnunni. Þátttaka tiikynnist í
síma 29244 á skrifstofu Alþýðu-
flokksins, sem allra fyrst. Sjá nánar
auglýsingu í blaðinu.
Snorri Guðmundsson