Alþýðublaðið - 02.03.1984, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 2. mars 1984
—RITSTJÓRNARGREIN. ...........................................—....
>
Forysta Sjálfstæðisflokks-
ins heimtar afsögn Alberts
flokksinsfengiöjafnkaldarkveðjurfráMorgun-
blaöinu og Aibert í leiöara blaðsins í gær. í
þeim skrifum blaðsins fer ekkert á milli mála;
Albert Guðmundsson hefur endanlega verið
settur út af sakramentinu hjá Morgunblaðinu
og forystu Sjálfstæðisflokksins.
Hitt er annað mál, hvort fjármálaráðherra láti
flokksforystuna kúska sig tii hlýðni. Þótt hann
segi i viðtali við Helgarpóstinn í gær, að mjög
líklegt sé að hann hverfi úr ráðherraembætti,þá
ber að taka slíkum yfirlýsingum með fyrirvara.
Það væri ekki í stíl við reynslu liðinnaára, að Al-
bert Guðmundsson léti Þorstein Pálsson, Geir
Hallgrímsson og Morgunblaðsmenn segja sér
fyrir verkum.
En þessar hatrömmu deilur segja á hinn bóg-
inn allt um innanflokksástandið i Sjálfstæðis-
flokknum. Þar hefur ekkert breyst, þótt einn
formaður tæki við af öðrum.Flokkurinn er sem
fyrr rótklofinn i margar andstæöar fylkingar.
— GÁS.
ökilabo'ð flokksforystu Sjálfstæðisflokksins
ti-L Alberts Guömundssonar fjármálaráðherra
eru skýr: Hann á að segja af sér embætti.
Aliar yfirlýsingar talsmanna flokksins eru í
þá verjj, að krefjast þess að fjármálaráðherra
hverfi á braut. Framsetning á þessari kröfu er
að sönnu mismunandi, en efnisinnihaldið hið
sama.
Morgunblaðið, sem styður og túlkar sam-
viskusamlegá sjónarmið núverandi og fyrrver-
andi formanna Sjálfstæðisfiokksins, Þor-
steins Pálssonarog Geirs Hallgrímssonar, tek-
ur af öll tvímæli hvað varðar afstöðu forystu
Sjálfstæðisflokksins til verka fjármálaráð-
herra og áframhaldandi setu Alberts Guð-
mundssonar á ráðherrastóli. í ritstjórnargreiFH'
Morgunblaðinu í gær segir m. a. um þau mál:
„Áður en gengið var til kjarasamninga hafði Al-
bert, Guðmundsson uppi stærst orð ráðherra
um nauðsyn þess að þar væri farið að með ítr-
ustu gát, annars ætiaði hann að segja af sér. En
hvað gerir hann nú þegar aðrir ráðherrar bera
honum á brýn að án samþykkis þeirra hafi hann
sýnt aðgæslu- og aöhaldsleysi?"
Og Morgunblaðið lætur ekki nægja að
skamma fjármálaráðherra fyrir samning hans
við Dagsbrúnarmenn og krefjast afsagnar
hans af þeim sökum, heldurhellirséreinnig yf-
ir Albert Guðmundsson vegna fjarveru hans,
þegar gengið var til almennra kjarasamninga.
Þar segir Morgunbiaðið m. a.: „Sjálfur mat ráð-
herrann stöðuna þannig að hann þyrfti að
sinnabrýnni erindum í útlöndumen hérálandi
á lokastigi samninganna, meira að segja á
meðan ríkið samdi við Bandaiag háskóla-
manna.“ Bætir Morgunblaðið því siðan við, að
það hafi verið „barnalegt" af Albert, eins og
Morgunblaðið orðar það, að nota þá staðreynd
að gengið hefði verið til heildarsamninga án
samráðs við hann, og því gefi það honum rétt
til að ganga einn og óstuddur til fyrrnefndra
Dagsbrúnarsamninga.
Aldrei hefur nokkur ráðherra Sjálfstæðis-
Bœjarstjórn Hafnarfjarðar ásamt bœjarstjóra og bœjarritara. Á myndinni eru talið frá vinstri: Haraldur
Sigurðsson, Ellert Borgar Þorvaldsson, Sólveig Agústsdóttir, Einar Þ. Mathiesen, Vilhjálmur G. Skúlason,
Andrea Þórðardóttir, Guðbjörn Ólafsson, bœjarritari, Árni Grétar Finnsson, forseti bœjarstjórnar, Einar
I. Halldórsson, bœjarstjóri, Guðmundur Árni Stefánsson, Hörður Zóphaníasson, Rannveig Traustadóttir
og Markús A. Einarsson.
Ljósmynd: Árni St. Árnason.
Neitar 4
halda að sér höndum hvað varðar
uppbyggingu verkamannabústaða
og kemur ekki til með að standa skil
á þeim skuldbindingum, sem hún
hafði gert við sveitarfélögin; 25%
þess fjármagns, sem frá ríkinu á að
koma á þessu ári, mun að öllum
líkindum ekki sjást. Þetta þýðir
m.a. í Hafnarfirði að ekki verður
tekið í notkun húsnæði í fjölbýlis-
húsi, við Móabarð 34, senr stjórn
Verkamannabústaða hefur þegar
úthlutað og væntanlegir íbúar þeg-
ar gengið út frá því að flytjast þang-
að inn n.k. haust. Tillaga minni-
hlutaflokkanna gekk út á það, að sú
framkvæmd yrði kláruð á árinu og
hlypi bæjarsjóður undir bagga
vegna niðurskurðarstefnu ríkisins,
þannig að staðið yrði við gefin
fyrirheit gagnvart væntanlegum
íbúum, þannig að þeir gætu flust
inn næsta haust eins og til stóð.
Lagt var til að upphæð til
framfærslustyrkja yrði
hækkuð um sex hundruð
þúsund krónur. Ljóst er að í
Hafnarfirði, sem og víðar á land-
inu, hefur ástandið á ýmsum
heimilum launafólks verið meira en
bágborið hina síðustu mánuði.
Raunveruleg fátækt hefur haldið
innreið sína. Vildi minnihlutinn
hafa aukið svigrúm til hjálpar þeim
bæjarbúum, sem varla hefðu ofan i
sig og á. Það vildi íhaldsmeirihlut-
inn í Hafnarfirði hins vegar ekki.
á lagði minnihlutinn til að
stofnaður yrða sérstakur
atvinnueflingarsjóður og
stofnfjárframlag til sjóðsins yrði 2
milljónir króna. Tilgangur sjóðsins
væri að styrka og styðja nýjan at-
vinnurekstúr í bænum.
Meðal annarra tillagna
minnihlutans sem felldar
voru, var tillaga til hækk-
unar fjárframlags til dagheimilis
verkalýðsfélaganna á Hörðuvöll-
um, stofnframlag til reksturs úti-
deildar eða unglingaráðgjafar upp
á 300 þúsund, fjárframlag til
styrktar atvinnu 16-20 ára unglinga
næsta sumar, en atvinnuástand
þessa aldurshóps hefur verið mjög
bágborið hin síðustu ár og virðist
stefna í enn frekari vandamál á því
sviði næsta sumar.
á felldi meirihlutinn
einnig tillögu minni-
hlutans um fjárframlag til
endurbóta á Bæjarbíó. Sömuleiðis
lagði minnihlutinn til að tveimur og
hálfri milljón yrði varið til að hægt
yrði að ljúka byggingu dagheimilis
við Smárabarð og taka það í notkun
á árinu. Það vildi meirihluti bæjar-
stjórnar ekki. Sömuleiðis var til-
laga minnihlutans tm að hækka
styrk bókasafnsins til bókakaupa
felld af meirihlutanum. Tillaga
minnihlutans var í samræmi við
samdóma ósk bókasafnsstjórnar
þar að lútandi.
Hér á eftir fara nokkrar af fjöl-
mörgum ályktunartillögum Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks, sem lagðar
voru fram á bæjarstjórnarfundin-
um á þriðjudag, en afgreiftslu
þeirra var frestað til næsta
bæjarstjórnarfundar:
Atvinnueflingarsjóður
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkir að koma á fót atvinnuefling-
arsjóði. Skal bæjarsjóður leggja til
fjárframlög í sjóðinn eftir því sem
bæjarstjórn ákveður hverju sinni.
Tilgangur atvinnueflingarsjóðs
skal vera að stuðla að nýjum at-
Atvinnumálaráðstefna
Atvinnumálanefnd Hafnarfjarðar efnir til ráðstefnu um at-
vinnumál og atvinnuuppbyggingu laugardaginn 3. mars n. k.
I félagsheimili íþróttahússins við Strandgötu. Ráðstefnan
hefst kl. 10.00 f. h. og er opin öllum sem áhuga hafa.
Atvinnumálanefnd Hafnarfjarðar
vinnugreinum í Hafnarfirði og
verða hvati að öflugu og fjölþættu
atvinnulífi í bænum.
Tilgangi sínum skal atvinnuefl-
ingarsjóður ná m.a. með því að
auðvelda nýjum atvinnurekstri leið-
ir inn í bæinn með því að taka þátt
í eða láta gera ýmsar forathuganir
sem nauðsynlegar kunna að vera til
þess að unnt sé að fara af stað með
viðkonandi atvinnurekstur eða
með beinni eignaraðild allt upp í
20%.
Sérstaklega skal hugað að léttum
iðnaði sem býður upp á mörg störf.
Ekki er gert ráð fyrir að úthluta
styrkjum úr atvinnueflingarsjóði,
heldur verði um lánveitingar eða
eignaraðild að ræða.
Bæjarstjórn kýs þriggja manna
stjórn atvinnueflingarsjóðs og þrjá
til vara. Kjörtímabil stjórnarinnar
skal vera hið sama og bæjarfull-
trúa.
Fjölgun gjalddaga
gatnagerðar- og
heimtaugagjalda
Með tilliti til hins erfiða fjárhags-
ástands í landinu og þess að vitað er
að margir húsbyggjendur eiga í
erfiðleikum með að greiða stórar
fjárhæðir í einu lagi vegna gatna-
gerðargjalda og heimtaugagjalda
rafmagns, þá samþykkir bæjar-
stjórn að fjölga gjalddögum þess-
ara gjalda í þrjá til fimm, jafnframt
því sem greiðslutímabilið sé lengt í
9 til 12 mánuði.
Felur bæjarstjórn bæjarstjóra og
rafveitustjóra að gera tillögur um
gjalddaga á þessum gjöldum og
skulu þær liggja fyrir á næsta
bæjarstjómarfundi.
Tækifæri ungs fólks -
til náms og starfa
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir
áhyggjum sínum vegria alvarlegrar
þróunar i atvinnumálum ungs
fólks. Á þetta ekki síst við um þau
ungmenni, sem hætt hafa námi
áður en þau hafa lokið menntun
sem gefur þeim starfsréttindi á
ákveðnum sviðum. Þessi ungmenni
verða oft utanveltu á vinnu-
markaðnum, eiga erfitt með að fá
vinnu við s itt hæfi eða eru atvinnu-
laus.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir
eindregnum vilja sínum til að gert
verði átak í þessu efni og beinir því
til félgasmálaráðs, fræðsluráðs og
æskulýðs- og tómstundaráðs að
þessar nefndir taki höndum saman
um að ráðast í það verkefni að ná til
þess unga fólks í Hafnarfirði, sem
er atvinnulaust eða utanveltu á
vinnumarkaðnum, í því skyni að
kynna því þá möguleika til náms og
starfa, sem fyrir hendi eru.
Unglingaráðgjöf
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar telur
mikilvægt að nú þegar verði hafinn
undirbúningur að því að koma á fót
unglingaráðgjöf í Hafnarfirði, sem
hafi með höndum bráðaþjónustu
og ráðgjöf fyrir unglinga í bænum.
Bæjarstjórn felur æskulýðs- og
tómstundaráði að annast þennan
undirbúning, í samráði við félags-
málaráð og gera tillögur til bæjar-
stjórnar um fyrirkomulag slíkrar
starfsemi.
Tillögurnar miðist við það að
starfsemin geti hafist á miðju þessu
ári.
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða fólk til
SKRIFSTOFUSTARFA
Æskilegteraðumsækjendurhafi vélritunarkunn-
áttu auk nokkurrar bókhalds- og málakunnáttu.
Nánari upplýsingarverðaveittarhjástarfsmanna-
deild.