Alþýðublaðið - 12.02.1985, Side 3
Þriðjudagur 12. febrúar 1985
3
MOLAR
Sænska dularfrímúr
Meðal íslenskra frímúrara eru
margir kirkjunnar menn, þeirra á
meðal biskupinn, Pétur Sigur-
geirsson, Jakob Jónsson dr. theol
og fleiri. Þeir hljóta nú að fylgjast
spenntir með málefnum kollega
sinna í Svíþjóð, þar sem þeirri
spurningu er velt upp, hvort Bertil
Werkström erkibiskup og aðrir
biskupar brjóti í bága við prests-
eiða sína með því að vera frímúr-
arar. Þetta skoðar nú „dómstóll“
biskupanna sjálfra. Það er
biskupanefnd og unt þessar
mundir er liðinn frestur sá er
nefndin gaf reglubræðrunum til
að útskýra sína hlið málsins.
Fýrir um mánuði birti Afton-
bladet myndir úr hinu allra helg-
asta hjá frímúrurum, þeirra á
meðal meðfylgjandi mynd af
hauskúpu- og beinagrindahrúgu
úr höfuðstöðvunum. Margt er
það í siðareglum frímúrara sem
virðist algjörlega í andstöðu við
það sem viðkemur prestsskap og
meira að segja gekk svo langt árið
1983 að biskupinn yfir Gauta-
borg, Bertil Gártener, var ákærð-
ur af tveimur mönnum fyrir
exorsisma — djöfiarekstur. 500 af
4000 prestum landsins eru með-
limir i reglunni, sem hleypir ekki
konum að né gyðingum.
I fyrra mánuði gerðist það í
fyrsta skipti í 250 ára sögu regl-
unnar í Svíþjóð að forystumenn
boðuðu blaöamenn á sinn fund
og reyndu að útskýra málin frá
sínum bæjardyrum. Þar viður-
kenndi stórstúkumeistarinn
Gustaf Piehl að hann skyldi það
mætavel að utanaðkomandi aðil-
um þætti það barnalegt af full-
orðnum mönnum að vera að sýsla
með hauskúpur og beinagrindur.
En hann fór bara almennum orð-
um um regluna og neitaði að fara
út í smáatriði, sagði að þeir hefðu
ekkert til að skammast sín fyrir,
þvert á móti væru þeir stoltir.
Nú er bara að sjá hvað biskupa-
nefndin segir hvað klerkastéttina
varðar . . .
Uppruni tegundanna . . .
í hinu kristilega riti „Dagskrá frá
Samhjálp" er þess getið að til eru
þrjár tegundir kristinna manna,
hvorki meira né minna. Tegund-
irnar (hvað segir Darwin um upp-
runa þeirra?) eru sem sé hinir -
holdlegu, hinir sálarlegu og hinir
andlegu.
Um hina holdlegu er meðal
annars sagt: „Verk holdsins auð-
kenna líf þeirra, verk svo sem met-
ingur, þráttan, deildur og flokka-
dráttur . . . Slíkir kristnir menn
geta ekki áunnið velþókpun
Guðs“. Um hina sálarlegu segir
meðal annars: „Þeir lifa mikið á
sviði tilfinningalífsins, eru hug-
dettu- og draumórakenndir
menn, áberandi óánægðar sálir,
umkvörtunarsamir og möglandi,
leitast við að vinna hylli og álit og
valda því oft sundrungu og skaða
í kristilegu starfi. . . alla kjölfestu
og jafnvægi vantar í lif þeirra, það
jafnvægi sem grundvallast á orði
Guðs“. Um hina andlegu segir aft-
ur á móti meðal annars: „Hinn •
andlegi madur hefur hæfileika til
að rannsaka Guðs orð og skyggn-
ast inn í djúp hugsana Guðs“.
Ekki er getið uni hlutfallslega
skiptingu kristinna manna í þessa
flokka, en heimild greinarhöf-
undar er auðvitað Biblían.
Apinn á Mars
Þessa mynd tók „víkingur“ af yf-
irborði Mars árið 1976. Hún sýnir
að ekki er um að villast: Þetta er
andlit og það af apa!
SUJ:
Neyðarástand í
húsnæðismálum
Við opnun Islandshátíðarinnar sem Flugleiðir og Holliday Inn standa fyrir
í Luxemborg. Frá vinstri: C. Hellocx konsúll, Elisabeth Becker-Franke
Flugleiðir, Tómas Á. Tómasson sendiherra, Anne Cerf Flugleiðir, Einar
Aakrann Flugleiðir og Erla Hatlemark Flugleiðir.
Samband ungra jafnaðarmanna
fordæmir stefnuleysi núverandi
Kvennréttindafélagið:
Vinsælt náms-
skeið endurtekið
Kvenréttindafélag íslands stóð
fyrir námskeiði þriðjudaginn 5.
febrúar sl. þar sem Sigríður Snæv-
arr sendiráðunautur kynnti ýmsar
aðferðir til þess að skipuleggja
vinnu og stjórna tíma.
Kynntar voru m. a. bækurnar
„Getting Organized" og „The Ef-
fective Ecccutive" eftir Stephanie
Winston. Kenning Stephanie Win-
ston er sú, að óreiða sé ein leið
skipulagningar, en sú leið sem mest-
an tíma tekur og mestum óþægind-
um veldur. Bendir hún á ýmsar
sáraeinfaldar og ódýrar leiðir til að
sinna hinum hversdagslegustu verk-
efnum, hinni svokölluðu rútínu á
heimili og vinnustað.
Námskeiðið var fullskipað.
Vegna fjölda áskoranna verður
haldið annað námskeið þriðjudag-
inn 12. febrúar kl. 17 í húsnæði fé-
lagsins að Hallveigarstöðum, Tún-
götu 14. Þátttaka er öllum heimil,
og tilkynnist í síma 18156.
stjórnvalda í húsnæðismálum.
Sjaldan eða aldrei hefur verið erfið-
ar en nú fyrir ungt fólk að koma sér
þaki yfir höfuðið. í kjölfar kjara-
skerðingar ríkistjórnarinnar hefur
greiðslubyrði lána aukist gífurlega.
Greiðslubyrði af láni sem tekið var
að hausti 1979 er nú 50% þyngri en
þá.
Á sama tíma og laun hafa lækk-
að miðað við framfærsluvísitölu
hefur lánskjaravísitala hækkað
óskert með þeim afleiðingum að
margir húsbyggendur eru nú að
missa húsnæðið undir hamarinn.
SUJ krefst þess að ríkistjórnin
hefjist nú þegar handa við að að-
stoða húsbyggendur út úr þeim
vanda er kjaraskerðingar hennar
hafa lagt þeim á herðar. Það er með
öllu óréttlætanlegt að greiðslubyrði
fólks sem er að koma sér þaki yfir
höfuðið þyngist á sama tíma og lífs-
kjör versna.
SUJ hvetur Alþingi til að hraða
afgreiðslu frumvarps þriggja þing-
manna Alþýðuflokksins sem á að
fyrirbyggja að versnandi lífskjör
auki greiðslubyrði af verðtryggðum
lánum langt umfram greiðslu getu
fólks!
Islandshátíð
Miðvikudaginn 6. febrúar hól'st
að Hotel Holliday Inn í Luxemborg
íslandskynning sem Flugleiðir og
Holliday Inn standa að. íslands-
kynningin verður undir enska heit-
inu „Taste of Iceland“ og í henni
taka þátt fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir héðan að heiman.
Tómas Tómasson ambassador
Islands í Luxemborg opnaði ís-
landskynninguna en síðan voru
sýndar íslenskar tískuvörur. Það
voru flugfreyjur og flugþjónar
Flugleiða sem önnuðust tískusýn-
inguna og kynningu á vörum sem
útstillt er í hótelinu. Tískusýningin
fór fram undir stjórn einnar flug-
freyjunnar, Brynju Nordquist, en
flugáhafnir Flugleiða sem staddar
voru i Luxemborg tóku virkan þátt
í kynningunni. Einar Aakrann og
Anne Cerf fulltrúi hans í Luxem-
borg önnuðust undirbúning af
hálfu Flugleiða ásamt kynningar-
deild og söludeild félagsins í
Reykjavík. íslandskynningin að
Holliday lnn mun standa til 24.
febrúar og mun Haukur Morthens
og hljómsveit hans leika fyrir dansi
Styrktarfélag
vangefinna
Minningarkort Styrktarfélags van-
gcfinna fást á cftirtöldum stöðuin:
A skrifstofu félagsins, Háteigs-
vegi 6, S: 15941. Bókabúð Braga,
Lækjargötu 2, S: 15597. Bókabúð
Braga, v/Hlemm, S:203I1. Bóka-
versl. Snæbjarnar Hafnarstræti 4
S:14281. Kirkjuhúsinu, Klapparstíg
27 S:21090. Stefánsblóm, Njálsgötu
65, S: 10771. Bókaversl. Olivers
Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði,
S: 50045.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu
félagsins að tekið er á móti minn-
ingargjöfum í sínta skrifstofunnar
15941, og minningarkortin siðan
innheimt hjá sendanda með gíró-
seðli.
í Lúxemborg
á hverju kvöldi meðan lslands-
kynningin stendur.
Viðopnunarathöfnina6. febrúar
voru um 300 gestir.
Félag áhugafólks um
verkalýðs og alþýðusögu
Stofnfundur Félags áhugafólks
um verkalýðs- og alþýðusögu verð-
ur haldinn í Sóknarhúsinu föstu-
daginn 22. febrúar kl. 17.
Ályktun frá BJ:
Málflutningur
forsætisráðherra
dónalegur
Þingflokkur Bandalags jafnað-
armanna mótmælir þeirri mann-
fyrirlitningu og aulaskap sem virt-
ist í vangaveltum ríkisstjórnarinnar
um væntanlegan „ágóðahlut"
hennar í sölu áfengs öls hérlendis.
Einungis stjórnvöld sem skilja ekki
hlutverk sitt koma á þennan hátt
fram við þegnana.
Þingflokkur Bandalags jafnað-
armanna krefst þess að forsætis-
ráðherra biðji þjóðina afsökunar á
þessum dónalega málflutningi
strax.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verð-
ur haldinn fimmtudaginn 14. febrúar 1985 kl. 20.30
í Félagsmiðstöð Jafnaðarmanna, Hverfisgötu
8-10.
Fundarefni: Venjulega aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Alþýðuflokksfélagið
Kópavogi
Aðalfundur Alþýðuflokksfélagsins i Kópavogi
verður haldinn að Hamraborg 7 þriðjudaginn 12.
febrúar 20.30.
Stjórnin.
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf I fé-
laginu fyrir árið 1985 og er hér með auglýst eftir til-
lögum um félagsmenn í þau störf. Frestur til að skila
listum er til kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 19. febrúar
1985. Hverjum lista þarf að fylgja meðmæli 100 full-
gildra félagsmanna. Listum þer að skila á skrifstofu fé-
lagsins í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Stjórnin.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein-
dagi launaskatts fyrir mánuðina nóvember og desem-
ber er 15. febrúar nk. Sé launaskattur greiddur eftir ein-
daga skal greiða dráttarvexti til viðbótar þvi sem van-
greitt er, talið frá og með gialddaga.
Launaskatt ber launagreiðandaaó greiöatil innheimtu-
manns ríkissjóðs, í Reykjavlk tollstjóra, og afhenda um
leið launaskattsskýrslu í þririíl.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning tii
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjald-
dagi söluskatts fyrir janúarmánuð er 15. febrúar. Ber þá
að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.