Alþýðublaðið - 12.02.1985, Qupperneq 4
alþýðu-
blaðið
Þriöjudagur 12. febrúar 1985
Útgefandi: Hlart h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóltir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Sctning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Treholtmálið:
Verða réttarhöldin
fj ölmiðlasirkus ?
Réttarsalurinn þar seni Treholt máliðverdurtekiðfyrir 25. febrúar.
Réttarhöldin munu fara fram
fvrir opnum dyrum og verður
Thorbjorn Gjölstad sækjandi.
Margar spurningar hal'a vaknað í
kjölfar þessarar fréttatilkynningar.
Hún segir ekkert um á hvaða upp-
lýsingum ákæran er byggð. í norsk-
um blöðum hefur því jafnvel verið
haldið fram að litlar sem engar
sannanir séu fyrir sekt Treholts, en
það eru bara getgátur og hið rétta
kemur vafalaust i Ijós þegar réttar-
höldin byrja.
Sé Treholt fundinn sekur getur-
hann átt yfir höfði sér fangelsisvist
frá 19 mánuðum til 20 ára.
Ríkissaksóknarinn Thorbjörn
Gjölstad verður sækjandi i málinu.
Ólíkt öðrum norskum ríkissak-
sóknurum hefur hann engan bak-
grunn í stjórnmálunum. Hann er
sérfræðingur í skattamálum. Hann
var gerður ríkissaksóknari árið
1979 til að berjast gegn skattsvik-
um. Hann er 42 ára að aldri og hef-
ur lítið borið á honum á opinberum
vettvangi þangað til nú. Sjálfur seg-
ir hann að hann hafi ekki séð neina
ástæðu til að flíka persónu sinni,
það séu málaferlin sem skipti máli.
Gjölstad segist ekki líta á Treholt-
málið einsog hvert annað mál, sem
hann hefur fengist við, til þess hel'ur
málið fengið alltof mikla umfjöllun
í fjölmiðlum og einnig er umfang
þess svo mikið að bara að því leyti
sker það sig úr öðrum málum, sem
hann hefur fengist við. Þegar hann
er spurður nánar út í einstaka efnis-
þætti málsins gerist hann þögull
sem gröfin.
Verjandi Treholts er Jon Lyng.
Hann segist vera sáttur við þá
ákæru, sem ríkissaksóknarinn hef-
ur sent frá sér. Hann segir að það
hefði ekki þjónað neinum tilgangi
að kynna alla málavexti nánar fyrir-
fram.
Fjölmiðlasirkus
Búist er við að réttarhöldin muni
standa í fimm vikur. Um 90 blaða-
menn munu geta fylgst með réttar-
Fréttatilkynning
í fréttatilkynningu frá norska rík
issaksóknaranum segir, að Treholt
sé ákærður fyrir að hafa látið er-
lendum aðilum í té upplýsingar,
sem séu ríkisleyndarmál. Er hann
ákærður fyrir að hafa afhent Sovét-
mönnum ríkisleyndarmál á tímabil-
inu 1974—1983 og írökum 1981—
1983.
Thorbjörn Gjölstael, sœkjandi í
TYeholt-málinu.
Jon Lyng, verjandi Treholts.
höldunum. Þegar hafa yfir 70
norskir blaðamenn sótt um að lá að
fylgjast með í réttarsalnum, einnig
hafa erlendir blaðamenn sýnt mál-
inu mikinn áhuga og munu þvi þau
90 sæti sem blaðamönnum eru ætl-
uð, vera alltof fá.
Norska sjónvarpið hefur farið
fram á að fá að sjónvarpa frá réttar-
höldunum. Enn er óvíst hvort leyfi
verður veitt til þess, en allar likur
benda til að verði leyft að sjónvarpa
þá fái norska sjónvarpið einkarétt á
þvi.
Einsog fyrr sagði hafa margir er-
Iendir aðilar sýnt málinu áhuga og
til að létta erlendum fréttamönnum
róðurinn mun norska utanrikis-
þjónusta láta búa til útdrátt úr
helstu viðburðum hvers dags á
ensku.
Á myndinni sést Treholt ásamt
tveim KGB-mönnum ágöngu í Vín-
arborg.
Rússar hafa líka sýnt málinu
áhuga og meðal þeirra sem sótt
hafa um að fá að vera viðstaddir
réttarhöldin eru blaðamenn frá sov-
ésku fréttastofunni TASS.
Bækur um málið
En það eru ekki bara blöðin sem
hafa áhuga á Treholt-málinu. Að
minnsta kosti tveir aðilar eru að
hugsa um að skrifa bækur um mál-
Framh. á bls. 2
Félagsmálaskólí alþýðu
1. önn 10.-23. mars
Hvað kannt þú iyrir þér í
fundarstörfum og
framsögn? Hvað veist þú
um verkalýðshreyfinguna,
starf hennar og sögu? Áttu
auðvelt með að koma fram
á fundum og samkomum?
Tekurðu þátt í félagsstarfi?
Viltu bæta þekkingu þína í
hagfræðí, félagsfræði og
vinnurétti?
Veitt er tílsögn í þessum
og öðrum hagnýtum
greinum á 1. önn Félags-
málaskóla alþýðu, sem
skólí
fyrír
þig?
verður í Ölfusborgum
10.-23. mars n.k. Þá eru á
dagskránni menningar- og
skemmtikvöld auk heim-
sókna í stofnanir og
íyrírtæki. Félagsmenn
Alþýðusambands íslands
eiga rétt á skólavist.
Hámarksfjöldi á
önn er 25 þátttakendur.
Umsóknír um skólavist
þurfa að berast skrifstofu
MFA fýrir 5. mars. Nánari
upplýsingar eru veittar áskrif-
stofu MFA, Grensásvegi 16,
sími 84233.
ÞEKKING, STARF
OG STERKARI VERKALÝÐSHREYFING
IWBft
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu
Þann 25. febrúar hefjast í Osló réttarhöld gegn Arne Treholt. Eins-
og menn muna vakti handtaka hans heimsathygli í upphafi ársins
1984. í framhaldi af handtöku hans var fimm rússneskum starfs-
mönnum sendiráðsins í Osló vikið úr landi. Mikil blaðaskrif urðu
um þetta mál og allslags dylgjur komust á loft um að þessi eða hinn
gæti vel verið flæktur í svipaða starfsemi og Treholt er ákærður fyr-
ir. Hér á Islandi fórum við ekki varhluta af því og var Mogginn ötull
við að benda á þennan og hinn sem hugsanlegan KGB-njósnara á
íslandi.
Arne Treholt er ákærður fyrir að hafa látið Sovétmönnum og
Irökum í té upplýsingar.