Alþýðublaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.02.1985, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 20. febrúar 1985 3 Minning: Fannar Karl Guðmundsson F. 14.12. 1976 — D. 16.2. 1985 Brynjar Freyr Guðmundsson F. 14.2 1980 — D. 16.2 1985 Ó, guðir, þér, sem okkur örlög vefið svo undarleg. I»að misstu allir allt, sem þeim var gefið, og einnig ég. (Steinn Steinarr) Kirkja er okkur ströndin og hafið og fjallið, guðspjall dagsins vanmáttur mannsins í lífi og dauða. (Jón úr Vör) Frammi fyrir svo djúpum harmi, sem sonamissir er ungri móður og föður — brestur orð. Úr dýpstu fylgsnum hugar og hjarta streymir heit samúð — faðmlag án orða. Við drúpunt höfði frammi fyrir örlögunum. Hinum, sem lifa, biðj- um við griða. Megi sorgin sameina, græða og líkna. Jón Baldvin Við kveðjum í dag hinstu kveðju bræðurna Fannar Karl og Brynjar Frey Guðmundssyni. Svo ungir að árum eru þeir horfnir sjónum okk- ar, Fannar Kar! átta ára, fæddur 14. desember 1976 og Brynjar Freyr fjögurraára, fæddur 14. mars 1980. Þrátt fyrir stuttan aldur gáfu þeir tilverunni í kringum sig líf og lit og fluttu foreldrum sínum, vanda- mönnum og vinum óteljandi sól- skinsstundir. Heilir og hiklausir voru þeir í lífi og leik, ákafir og kappsamir svo sem röskra drengja er vandi. Skilnaðarstundin er óvænt og erfið, og söknuðurinn sár. En minningin um glaða og góða drengi Iifir og lýsir fram á veginn. Sú minning mun deyfa sársaukann þegar fram líða stundir og verða foreldrum þeirra og ástvinum dýr- mætur fjársjóður sem aldrei verður frá þeim tekinn. Hvers vegna, er spurt. Svarið þekkjum við ekki. Lífsgátan mikla um líf og dauða reynist oft óræð okkur mennskum mönnum. Þá skynjum við best vanmátt okkar og leitum í skjólið til Hans sem öllu lifi ræður. Á stundum sem þessum skortir okkur orð. En samúð og hlýr vinar- hugur streymir til þeirra sem hvað sárast eiga um að binda. Við sendum aðstandendum þeirra Fannars og Brynjars djúpar samúðarkveðjur, foreldrunum Jónu Dóru og Guðmundi Árna, systkinunum litlu tveimur, öfum þeirra og ömmum, Gunnlaugi og Sjöfn og öðrum vandamönnum og vinum. Guð blessi ykkur öll og styrki. Félagar í Alþýöuflokknum í Hafnarfiröi. Við trúum því ekki enn að litlu bræðurnir, sem stundum voru með honum pabba sínum hérna á rit- stjórn blaðsins, séu horfnir. Við trúum því ekki en erum nauðbeygð að lúta staðreyndunum. Þeir Fannar Karl og Brynjar Freyr eru rétt og byrja að átta sig á veröldinni í kringum sig, þegar þeir eru hrifnir burt að kljást við enn stærri sannleika. Eftir sitjum við harmi slegin og skiljum ekkert. Orð eru fánýt en þögnin rík. í henni býr minning um ógleyman- legar samverustundir. Megi sú minning létta oki harmsins af herð- um foreldra þeirra, þeim Guð- mundi Árna og Jónu Dóru. Við vit- um að margur er til að veita þeim styrk á þessari stundu, börn, foreldrar og systkini. Við vitum líka að þau hjón eru vinarík og að vinir eru besta stoðin þegar við stöndum jafn máttvana andspænis dauðan- um og nú. Megi góður Guð styrkja ykkur á þessari erfiðu stundu. Starfsfólk Alþýðublaösins og Alprents. Það á fyrir öllum að liggja að verða að hlýða kallinu og standa andspænis dauðanum. Það er stað- reynd, sem allir þurfa að horfast í augu við. Þegar dauðann ber jafn válega að garði og nú og tveir korn- ungir drengir eru hrifnir burt frá foreldrum og systkinum, fjölskyldu og vinum, hvarflar ósjálfrátt að okkur, að dauðinn hljóti að hafa farið dyravillt. Slíkt óréttlæti er seint hægt að sætta sig við, en við verðum. Við ráðum svo litlu. Okkar er að taka orðnum hlut og vaxa í mótlætinu, þó við fáum aldrei skil- ið hversvegna. Skiljum við þá frekar hversvegna líf kviknar; hvernig slíkt undur má verða? Þeir bræður Fannar Karl og Brynjar Freyr voru hluti af því undri. Líf þeirra jafn stórkostlegt og fráfall þeirra var sviplegt. Okkur kann að finnast lífið til- gangslaust á svona stundu. En lífið er aldrei tilgangslaust. Líf þeirra bræðra var ævintýri, sem veitti öll- um er umgengust þá, gleði og trú á tilveruna. Sú trú, sem þeir gáfu okkur lifir, þó þeir hafi yfirgefið okkur. Sáf Stundum er erfitt að skilja stað- reyndir Iífsins og sætta sig við þær. Þannig var mörgum farið, þegar þeir heyrðu þau hörmulegu tíðindi að þeir bræður Fannar Karl og Brynjar Freyr Guðmyndssynir hefðu látið lífið í eldsvoða síðastlið- inn laugardag. Fannar Karl var fæddur 14. desember 1976 en Brynjar Freyr bróðir hans hinn 14. mars 1980. Þeir voru þvi aðeins 8 og 4 ára gaml- ir þegar kallið kom. Foreldrar þeirra eru hjónin Jóna Dóra Karlsdóttir og Guðntundur Árni Stefánsson til heimilis á Stekkjarhvammi 40, Hafnarfirði. Oft hafa íþróttamenn þurft að hverfa burt af leikvelli í upphafi leiks, ef óhöpp hafa borið að hönd- um. En oftast eiga þeir sér aftur- kvæmt síðar á leikvanginn, þegar meiðsl hafa læknast eða sár gróið. Nú hafa þeir bræðurnir Fannar og Brynjar yfirgefið leikvöllinn. Og þeir koma ekki aftur til okkar í leik- inn, hvorki á æfingar eða í keppni. Leiknum er lokið og var hann þó varla hafinn. Svona er lífið stund- um óútreiknanlegt og erfitt. Fyrir nokkrum árum hóf ég störf hjá F. H. og kenndi þá m. a. yngstu flokkunum knattspyrnu. Ég veitti fljótt athygli dálítið sérkennilegum, litlum ljóshærðum og hrokkin- hærðum knattspyrnumanni. Yfirbragð hans og látbragð allt gat ekki farið fram hjá þeim sem fylgdust með hópnum. Lifandi áhuginn, áhugi hans í að standa sig vel, metnaðurinn að gera hlutina rétt og samviskusamlega ásamt því að hvetja félaga sína til góðra verka sem líkleg voru til að skila árangri, allt var þetta svo snar þáttur og einkennandi fyrir þennan unga mann. Fannar Karl hét hann þessi efnilegi drengur. Fljótlega eftir að Fannar var bú- inn að festa sig í sessi á æfingunum fór hann að taka með sér litla bróð- ur sinn, Brynjar Frey sem þá var að- eins þriggja ára. Brynjar litli kom fyrst til þess að horfa á og fylgjast með því sem gerðist hjá „stóra bróður" útiávellinum. En fljótlega var sá litli komirin í gallann og orð- inn þátttakandi í leiknum. Það var aðdáunarvert að sjá um- hyggju Fannars og áhuga við að hjálpa Brynjari litla bróður sínum við að komast í leikinn með hinum drengjunum, sem eldri voru og stærri. Það var hlaupið og tekið í hendi hans, kallað og hvatt, en eftir nokkrar æfingar þurfti sá litli ekki á hjálp að halda og tók þátt í öllum leikjum af lífi og sál eins og hinir drengirnir. Brynjar litli Freyr er yngsti knattspyrnumaður sem ég hefi fengið á æfingar í fótbolta. Áhugi þeirra bræðra á knatt- spyrnunni var dyggilega studdur af foreldrum þeirra. Osjaldan sat pabbi þeirra, Guðmundur Árni, á áhorfendabekknum og fylgdist með þeim sonum sínum. Og oft hljóp honum kapp í kinn og gat hann þá ekki stillt sig um að láta í sér heyra hvatningu og góð ráð. Það verður seint metið sem skyldi, þegar + Útför sona okkar og bræðra Fannars Karls og Brynjars Freys fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag miðviku- daginn 20. febrúar kl. 15. Þeim sem vilja minnast þeirra er bent á Hjálparstofnun kirkjunnar. Jóna Dóra Karlsdóttir, Gudmundur Árni Stefánsson, Margrét Hildur og Heimir Snær. foreldrar láta sig skipta áhugamál barna sinna. Slíkt segir jafnan til sín og skilar góðri uppskeru. Já, nú eru þeir dánir, horfnir félagarnir okkar litlu og ljúfu þeir Brynjar og Fannar. Strákarnir í F. H., sem æfðu með þeim og léku, sakna þeirra sárt. Það gerum við allir F. Hringar sem höfðum af þeim einhver kynni. Minningin um þá er skýr og lifandi. Hún mun ekki gleymast heldur lýsa okkur björt og hlý og verða okkur hvati til að gera ávallt okkar besta, vera sjálfum okkur trúir. Að lokum flyt ég foreldrum Fannars Karls og Brynjars Freys, systkinum þeirra, vandamönnum, og öllum þeim öðrum sem eiga um sárt að binda, hugheilar samúðar- kveðjur allra félagsmanna i F. H. Fannari og Brynjari þakka ég stutta en ógleymanlega samfylgd. Blessuð sé minning þeirra. Albert Eymundsson. „Svo ungur varslu, er hvarfslu í hafið, hugljúfur, glæslur, öllum drengjum belri. Og því varö allt svo hljóll viö helfregn þína sem heföi klökkur gigjustrengur brostiö. Og enn ég veit margt hjarta harmi lostiö, sem hugsar til þin alla daga sina.“ (Tómas Guömundsson) Það er erfitt að trúa þeirri sorg- legu fregn að Fannar og bróðir hans Brynjar séu dánir. Fannar var elstur fjögurra syst- kina. Hann var góður og duglegur drengur, sem hafði ríka ábyrgðartil- finningu. Ég kynntist Fannari fyrst haustið 1983, þegar ég tók á móti 7 ára bekk í Öldutúnsskóla. Fannar var þá ný- fluttur í hverfið og þekkti fá bekkj- arsystkini sín, en hann var fljótur að kynnast þeim og varð brátt eftir- sóttur félagi. Hann hafði mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist vel með á því sviði, einkum fótboltan- um. Hann tók þátt í öllum leikjum með bekkjarfélögunum í fríminút- um, en ef um fótbolta var að ræða, þá tók hann fótboltann fram yfir aðra leiki enda var Fannar ómiss- andi í liðið. Fannar hafði ekki bara áhuga á íþróttum. Hann var afskaplega já- kvæður, áhugasamur og iðinn nemandi. Það var ósjaldan að hann tók lærdóminn fram yfir annað, ef um það var að velja. Hann hafði jákvæð áhrif á þá, sem voru í kring- um hann. Hann lét ekkert trufla sig við vinnuna, en ef honum fanst sessunautarnir ganga of langt, þá sussaði hann á þá og það dugði oft- ast, þvi hann var virtur af bekkjar- félögunum. Fannar hafði góða kímnigáfu og stundum heyrðust frá honum hnytt- in tilsvör eða innskot. Hann virtist hafa gott lag á að koma öðrum í gott skap með því að slá á léttari strengi. Við söknum Fannars öll, bekkj- arsystkini og kennarar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar Jóna Dóra og Guðmut'dur Árni og aðrir aðstandendur. Ég bið þess að góður Guð styrki ykkur. Guð blessi minningu Fannars og Brynjars. „Kristur minn, ég kalla á þig, komdu aö rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig, Guö í faömi þinum.“ (Hallgrimur Pétursson.) Guðrún Guðnadóttir f|) Útboö Tilboö óskast í lögn hitaveitu í Kringlubæ 2. áfangi (dreifikerfi) fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent áskrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,— skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö miðvikudaginn 27. febrúar nk. kl. 11 f. h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 Einstakur listaviðburður Sölusýning Samsýning yfir 50 listamanna i Safnahúsinu á Husavík, dagana 01.—04. 03. 1985. Margir af þekktustu listamönnum þjóðarinnar sýna. Allir lista- mennirnir gefa verk sín til styrktar Sumarbúðum Æ. S. K. við Vestmannsvatn. Olíu- og acryl málverk, vatnslita- og pastelmyndir, Ijósinyndir, grafikverk, höggmyndir, vefnaður, taumálun, útskornir munir, prjón. Fjölmennið. Styrkið verðugt verkefni á ári æskunnar. Hjúkrunarfræðingar Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráöa í eftir- taldar stöður hjúkrunarfræðinga: 1. Hjúkrunarframkvæmdastjóra. Staðan er laus 1. maí 1985. Umsóknarfrestur er til 15. mars 1985. 2. Hjúkrunarfræðingar á flestar deildir sjúkrahússins strax og til sumarafleysinga. 3. Hjúkrunarfræðinga á fastar næturvaktir. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, Ragnheiður Árnadóttir, sími 96—22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúar mánuð 1985, hafi hann ekki verið greiddur f síðasta lagi 25. þ. m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20°/o, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars. Fjármálaráðuneytið, 18. febrúar 1985.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.