Alþýðublaðið - 03.08.1985, Page 1
alþýöu-
blaóió m
Laugardagur 3. ágúst 1985 146. tbl. 66. árg.
25
þúsund
eintök
Alþýðublaðið í dag er gefið út í25 þúsund eintök-
um. Blaðinu verður dreift ókeypis í nœr hvert hús
í Reykjavík og fylgir blaðinu sérblaðið „Úr at-
vinnulífinu“, sem Guðlaugur Tryggvi Karlsson hef-
ur veg og vanda af Nœsta stóra blað er áformað
eftir um það bil mánuð.
Uppstokkun skattkerfisins
— afnám kjarnfóðurgjalds
# Besta kjarabótin er uppstokkun á skattkerfi sem
er ónýtt vegna skattsvika forréttindahópanna
# Burt með kjarnfóðurgjaldið —
einokunaraðstöðu
Þingflokkur Alþýðuflokksins
kom saman til fundar á fimmtudag
og voru einkum tvö málefni til um-
fjöllunar, kjarnfóðurgjaldið og
skattamál.
Um skattamálin samþykkti þing-
flokkurinn svofellda ályktun:
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
minnir á,
— að skattaálagning 1985 staðfest-
ir enn, að gildandi skattkerfi er
ónýtt vegna skattsvika forrétt-
indahópa.
— gefur enn.tilefni til að árétta að-
alatriðin í tillögum Alþýðu-
flokksins um nýtt skattkerfi,
þ.á.m.
* Afnám tekjuskatts af launa-
tekjum.
* Undanþágulausan eyðsluskatt,
er lagður yrði á innflutning
strax í tolli í stað núverandi
söluskatts.
* Tímabundinn, stighækkandi
eignaskattsauka á skattsvikinn
verðbólgugróða stóreignafyrir-
tækja og stóreignamanna.
* Sérstaka skattlagningu á banka,
lánastofnanir, og trygginga- og
verðbréfafyrirtæki. Hagnaður
Seðlabankans renni í ríkissjóð.
Uppstokkun á skattkerfinu í
þessa átt væri besta kjarabót laun-
þega að mati þingflokks Alþýðu-
flokksins. Jafnframt skorar þing-
flokkurinn á fjármálaráðherra að
beita sér fyrir tafarlausri fram-
kvæmd á tillögum Alþýðuflokksins
um aðgerðir gegn skattsvikum, sem
samþykktar voru á Alþingi 1984.“
Á þingflokksfundi Alþýðu-
flokksins var ítarlega fjallað um
kjarnfóðurgjaldið og afleiðingar
þess. Samþykkti þingflokkurinn af
þessu tilefni svohljóðandi ályktun:
„í tilefni af stórfelldum verð-
hækkunum á eggjum, kjúklingum
og svínakjöti í kjölfar hækkaðs
kjarnfóðurgjalds og mótmælum
samtaka bænda gegn nýjum fram-
leiðsluráðslögum vill þingflokkur
Alþýðuflokksins minna á, að
— þingmenn Alþýðuflokksins
lögðu til að framleiðsluráðs-
frumvarpinu yrði vísað frá,
— bentu á, að frumvarpið byggir á
úreltum stjórnsýsluhugmynd-
um frá 18. öld um ríkisforsjá,
einokunarverðmyndun og
þvinganir, sem ganga í berhögg
við stjórnarskrárákvæði um at-
vinnufrelsi,
— töldu lögin loka síðustu smug-
um, sem eftir voru fyrir frjálsa
menn við landbúnaðarstörf,
— töldu Iögin útiloka samkeppni
framleiðenda um verð og gæði
og afnema alla hvatningu til að
halda tilkostnaði í skefjum og
lækka verð, en stuðla að rekstr-
arlegu ábyrgðarleysi og offjár-
festingu vinnslu- og dreifingar-
aðila,
— sögðu fyrir, að lögin fælu í sér
hóflausa skattlagningu á þær
búgreinar, sem Framsóknar-
kerfinu eru vanþóknanlegar,
— sögðu lögin slá á frest löngu
tímabærum uppskurði á rán-
dýru og ranglátu ofstjórnar- og
milliliðakerfi í landbúnaði, sem
hefur neytendur jafnt sem
bændur að féþúfu.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
telur s
afnemum
að afnema beri kjarnfóðurgjaldið
þegar í stað,
að verðmyndun í landbúnaði eigi
að byggjast á beinum samning-
um vinnsluaðila og smásala,
að neytendur eigi að njóta sam-
keppni vinnsluaðila um lækkun
tilkostnaðar í formi lækkaðs
vöruverðs.
að afnema beri einokunaraðstöðu
og stuðla að frjálsri samkeppni
um útflutning landbúnaðaraf-
urða.“
Með Teroson
nýtur þú þess að
' ' ra bílinn!
Með notkun á Teroson
ryðvarnarefninu nýtur þú:
★ Betra endursöluverðs.
★ Ryðvarnarefnis í hæsta gæðaflokki, sem sett hefur verið í
meðfærilegar og þægilegar umbúðir fyrir leikmenn.
★ Lífsins eftir vel heppnaða aðgerð til bjargar eigin verðmætum.
Leitaðu nánari upplýsinga um þessa v-þýsku gæðavöru á
bensínstöðvum okkar um allt land. _
Olíufélagið hf (tsso)