Alþýðublaðið - 03.08.1985, Qupperneq 9
Laugardagur 3. ágúst 1985
9
Rœtt við Halldór Sigurðsson, deildarstjóra erlendra
samninga um gífurlega aukningu leiguverkefna, heilladrjúgt
markaðsstarf og möguleika á langtíma verkefnum
„Efíir miðja næstu viku verðum
við með 12 þotur í fullu starfi viðs
vegar í veröldinni í leiguverkefnum
og áætlunarflugi. Við verðum með
tvær Boing 707 þotur í frakt og far-
þegaflutningum og níu DC 8 far-
þegavélar ásamt einni vöruflutn-
ingavél í stöðugum flutningum.
Fimm þessara þota verða hjá Saudi
Arabia Airways og fjórar fyrir
Alsír. Þar af verða þrjár i píla-
grímaflugi og ein í áætlunarflugi.
Síðastnefnda vélin gæti svo vænt-
anlega fengið áframhaldandi verk-
efni. Ein þota er svo í verkefnum
fyrir Egypt Air og tvær fyrir Tunis
Air.“
Það er Halldór Sigurðsson deild-
arstjóri erlendra samninga hjá Arn-
arflugi sem hefur orðið og það er
greinilegt að íslenski örninn er veru-
lega farinn að hnykla brýrnar á
heimsmarkaðinum.
„Ein Boing 707 vélin okkar“,
heldur Halldór áfram, „er notuð í
skyndi leiguverkefni í vöruflutning-
um og líklega er það ein fjölfarn-
asta, eða eigum við frekar að segja
fjölflognasta vél í heimi, því að í
fyrra flaug hún í öllum heimsálfum
nema Suðurheimsskautinu.
Svona viðamikil verkefni krefj-
ast gífurlegs markaðsstarfs og má
segja að allt þetta ár hafi farið í það
að koma þessu á laggirnar. í þessu
sambandi er einmitt nú unnið að
langtímasamningagerð fyrir hluta
af þessum flota og ættu línur að
skýrast í þeim efnum á næstu vik-
um.
Við hérna hjá Arnarflugi höfum
þurft að ráða óhemju af fólki, bæði
í reksturinn á vélunum og einnig í
flugrekstrarþáttinn sjálfan. Sem
dæmi má nefna að nú búa á okkar
vegum um 200 manns niður í
Jeddha í Saudi Arabíu, enda er
stærsta hluta þessa rekstrar stjórn-
að þaðan.
Þessi auknu verkefni þýða auð-
vitað gífurlega veltuaukningu hjá
fyrirtækinu, auk þess sem þetta
þýðir auðvitað stórkostlega auknar
gjaldeyristekjur, sem við skilum ís-
lenska þjóðarbúinu, jafnvel mill-
jarðar króna.
Störfin við þetta eru að sjálf-
sögðu allt hálaunastörf, enda úr-
valsfólk að störfum, sem atvinnu
sinnar vegna þarf að dveljast er-
lendis. Afraksturinn af þessu starfi
gagnast því þjóðarbúinu á margan
hátt og er vissulega ánægjulegt að
eiga hlut að því.
Á næsta ári verður Arnarflug tíu
ára, sem er auðvitað útaf fyrir sig
visst afrek. Samkeppnin er gífurleg
á erlendu mörkuðunum, en við höf-
um verið heppnir og félagið er mjög
þekkt erlendis og nýtur mikils
trausts. Á þessum árum höfum við
unnið fyrir 40 mismunandi aðila,
en reksturinn hefur þó aldrei náð
því að vera eins viðamikill og ein-
mitt núna.
I sambandi við þessi miklu um-
svif höfum við auðvitað þurft að
færa út kvíarnar á hinum alþjóð-
legu fjármagnsmarkaði og eigum
við mjög gott samstarf við þekkt
fjárfestingarfélag í Frakklandi.
Hérna hjá Arnarflugi leggja allir
nótt við dag til þess að gera þessi
miklu umsvif kleif. Ýmsir vaxta-
verkir hafa að sjálfsögðu fylgt þess-
um mikla rekstri og höfum við
stöðugt þurft að fjölga starfsfólki.
Nú eru yfir 300 manns á launaskrá
hjá félaginu, enda er háannatíminn
í venjubundnum verkefnum. Alls
Halldór Sigurðsson, deildarstjóri erlendra samninga Arnarflugs.
eru 17 vélar í fullum rekstri, en ég
legg enn áherslu á það, að þessi góði
árangur er ekki síst að þakka gífur-
legri vinnu og samstilltu átaki
starfsfólksins.
Auk sjálfs flugsins erum við með
ýmsa þjónustu og starfsemi. Við er-
um t.d. milliliðir í sölu flugvéla á al-
þjóðamarkaði og við útvegum
einnig leiguvélar. T.d. erum við nú
að útvega einkafyrirtæki í Banda-
ríkjunum Boing 737 vél. Þetta er
reyndar 16. stærsta fyrirtæki þar í
landi. Einnig er evrópskt flugfélag
að fá hjá okkur vél“ sagði Halldór
Sigurðsson að lokum.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Fjárfesting eða fjárhættuspil?
Á (slandi lítur hópur manna á bílavið-
skipti sem fjárhættuspil.
Þessir menn, sem stundum eru kallaðir
bílabraskarar, fylgjast náið með öllum
hreyfingum á bílamarkaði. Þeir biða
rólegir eftir heppilegri „bráð" - bíl
sem þeir telja sig geta selt fljótt aftur
með hagnaði.
Oftast gengur dæmið upp og stundum
er hagnaðurinn mikill. En þá tapar líka
oftast einhver annar, einhver sem ekki
fylgist jafn vel með.
Sá sem á OPEL þarf ekki að óttast að
verða óvart þátttakandi í fjárhættu-
spili.
Eins og aðrir vinsælir þýskir bílar -
Mercedes Benz, Audi, BMW ogVWGolf
- er OPEL þekktur fyrir mjög góða
endingu. OPEL bílarnir eru með þeim
allra vinsælustu á bílasölunum - bllar
sem ailtaf þarf að borga toppverð fyrir.
Nýr OPEL er þvf góð fjárfesting.
Og stórskemmtilegur bíll!
ARNARFLUG
12 ÞOTUR í
FULLU STARFI