Alþýðublaðið - 03.08.1985, Síða 19
Laugardagur 3. ágúst 1985
19
í annað sinn á árinu:
Skuldabréfaútboð
Iðnaðarbankans
síðan sjálfir sölu þeirra á fjár- salar og Iðnaðarbankinn taka að
magnsmarkaðnum, en verðbréfa- sér slíka milligöngu.
Vextir hækkuðu í júlí
Iðnaðarbankinn gefur nú út nýj-
an flokk verðtryggðra skuldabréfa
til sölu á verðbréfamarkaði. Hvert
skuldabréf er að verðgildi 50 þús-
und krónur og er útboðið samtals
að upphæð 25 milljónir króna á
nafnverði. Skuldabréfin eru til 5 ára
með einum eindaga á ári. Bréfin
bera 2% vexti p. a. og eru verð-
tryggð við lánskjaravísitölu. Raun-
vextir bréfanna munu ráðast af
framboði og eftirspurn á fjár-
magnsmarkaðnum.
Þetta er í annað sinn á árinu, sem
Iðnaðarbankinn gefur út verð-
tryggð skuldabréf. í marsmánuði
síðastliðnum gaf Iðnaðarbankinn,
fyrstur banka, út sérstakan flokk
verðtryggðra skuldabréfa og voru
þau til 10 ára. Útgáfa þess flokks
hefur gengið vel og hafa bréfin selst
jafnóðum og þau hafa verið sett á
markaðinn.
Iðnaðarbankinn telur nú tíma-
bært að auka fjölbreytni og sveigj-
anleika í þessari þjónustu og býður
nú út þennan nýja skuldabréfa-
flokk, sem eins og áður segir er til 5
ára. Skuldabréfin eru látin í skipt-
um fyrir verðtryggð skuldabréf sem
fyrirtæki eða einstaklingar gefa út.
Þeir sem fá slík bréf afhent, annast
í júlímánuði hafa orðið nokkrar
hækkanir á vöxtum innlánsstofn-
ana, sem einkum hafa verið fólgnar
í því, að þær stofnanir, sem mest
lækkuðu vexti í maímánuði, hafa
hækkað þá að nýju til samræmis
við vexti hjá þeim, sem þá höfðu
gengið skemmra til lækkunar. Hafa
þessar vaxtabreytingar náð til
flestra innlánsflokka og almennra
óverðtryggðra útlána annarra en af-
urðalána. Vextir af verðtryggðum
útlánum hafa ekki breyst, né heldur
vextir Seðalbankans.
Helstu vaxtabreytingarnar, sem
orðið hafa í mánuðinum, eru sýnd-
ar á meðfylgjandi töflu. Kemur þar
fram, að þær hafa verið mjög mis-
munandi eftir inn- og útlánsflokk-
um. Besti mælikvarðinn á heildar-
áhrif þessara vaxtabreytinga á kjör
inn- og útlána, bæði verðtryggðra
og óverðtryggðra, felst í því að
reikna út raunávöxtun fyrir og eftir
breytinguna miðað við tilteknar
forsendur um verðbólgustig, en
niðurstaða þess útreiknings er sem
hér segir:
Raunávöxtun á ári miðað við 27% verðbólgu:
1. júli 1. ágúst Breyting
% % %
Heildarinnlán — 2,50 — 2,07 + 0,43
Heildarútlán 4,05 4,63 + 0,58
Vaxtamunur 6,55 6,70 + 0,15
Samkvæmt þessu hefur vaxtabil aukist um 0,15% við þessar
breytingar.
VAXTABREYTINGAR
banka og sparisjóða í júlímánuði
(vegið meðaltal)
Nafnvextir
I n n 1 á n : Fyrir Eftir Breyting
Ávísanareikningar 10,0 9,3 + 0,7
Hlaupareikningar 9,7 9,2 + 0,5
3ja mán. uppsagnarreikn 23,2 24,1 + 0,9
6 mán uppsagnarreikn. 27,8 29,8 + 2,0
Sérreikningar 31,0 34,0 + 3,0
Útlán:
Víxlar almennir (forv.) 28,3 30,0 + 1,7
Viðskiptavíxlar (forv.) 30,5 31,0 + 0,5
Hlaupareikningar 29,6 31,5 + 1,9
þ.a. grunnvextir (12,7) (13,8) (+1,1)
Almenn skuldabréf 30,9 32,0' + 1,1
Viðskiptaskuldabréf 33,1 33,5 + 0,4
Vextir verðtryggðra liða breyttust ekki né vextir almennra spariinn-
lána eða vanskilavextir. Ekki urðu heldur breytingar á afurðalána-
vöxtum.
úxf™ ívtætÍKÍgar
Þegar bílar mætast er ekki nóg að annar viki vel út á vegarbrún og
hægi ferð. Sá sem á móti kemur verður að gera slikt hið sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði
þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.
Saumaðu ekki að
pýngjunni
SINGER
Enn einu sinni spori framar
Hvers vegna að sauma að pyngjunni þegar þú
getur verið að sauma á Singer Magic sem er létt
og þægileg, ótrúlega einföld í notkun og mun
ódýrari en sambærilegar vélar.
Singer hefur alltaf verið spori framar og jafnhliða
tækninýjungum hafa þeir þróað saumavélar sem
auðvelt er að læra á og eru einfaldari í notkun en
flestar vélar.
l* Tæknilegar upplýsingar
• Frjáls armur • Zikk-zakk • Overlock
• Rafeinda fótstiq • Blindfaldur • Vöfflusaumur
• lárétt spóla • Stunqu-zikk-zakk • Tvöfalt overlock
•Sjáltvirk hnappaqötun •Styrktarsaumur • Fjöldi nytja og
• Beinn saumur •Teyqjusaumur skiautsauma
Singer Magic og þú þarft ekki að
hafa áhyggjur af saumaskapnum
næstu þrjátíu árin.
Við spjöllum saman um
útborgun og greiðsluskilmála
— og komumst örugglega að samkomulagi.
Ml ^ mm jn
f'OVW
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910 ~ 812 66