Alþýðublaðið - 03.08.1985, Side 20
20
Laugardagur 3. ágúst 1985
Sundurliðun á sem tók glldi 1 bensínverði . júlí 1985 Hlutdeild Kr./ltr. í veröi
Innkaupsverð 9,04 28,8%
Opinber gjöld 18,16 57,8%
Dreifingarkostnaður 2,25 7,2%
Smásölulaun 0,92 2,9%
Verðjöfnunargjald 0,39 1,3%
Innkaupajöfnun 0,64 2,0%
Samtals 31,40 100,0%
Verð á bensíni án
opinberra gjalda 13,24 42,2%
Þessi sundurliðun
olíufélaganna á
verði bensíns sýnir
glöggt hvaða aðili
það er, sem fœr
bróðurpart þess
gjalds sem bíl-
eigendur greiða
fyrir eldsneytið. Það
er ríkið sem fœr í
eigin vasa hvorki
meira né minna en
tœp 58% af
verðinu.
EINSTÖK SPARNEYTNI
í SPARAKSTURSKEPPNi BIKR
OG DV 9.6’85 SIGRAÐIESCORT
LASER í SÍNUM FLOKKI.
BENSÍNEYÐSLA REYNDIST
AÐEINS VERA 4.55 LÍTRAR
Á 100 KM.
NÆSTU DAGA FÁUM VIÐ NÝJA
SENDINGU AF ESCORT LASER,
SEM LENGI HEFUR VERIÐ
BEÐIÐ EFTIR. ÞAR SEM AÐEINS
FÁEINUM BÍLUM ER ÓRÁÐ-
STAFAÐ BENDUM VIÐ VIÐ-
SKIPTAVINUM OKKAR Á AÐ
HAFA SAMBAND VID KRISTÍNU
EÐA ÞORBERG í SÖLUDEILD
OKKAR STRAX, EF ÞEIR VILJA
TRYGGJA SÉR BÍL.
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifan 17
Sími: 685100
Himnaríkis-
kötturinn
Framhald af bls. 24.
snemma klæddur í nýjustu og dýr-
ustu kattartísku. Svo koma katta-
veitingahúsin, þar sem haldnar
verða veislur vegna merkisviðburða
í lífi kattarins. Þá þarf læðan eða
fressið ekki lengur að bregða sér út
í bakgarðinn, breima og mjálma til
skapraunar nágrönnunum. Nei, nú
verður unnt að halda opinbera trú-
lofunarveislu í hátíðarsal kattahót-
elsins og koma hjónakornunum
saman á tilhlýðilegan hátt með
verulegri viðhöfn og gestagangi.
Svo verða haldnar skírnarveislur,
settir upp ákveðnir kattaskólar
(það er víst þegar eitthvað til sem
heitir hlýðniskóli fyrir hunda).
Verst er að einhvern tíma var sagt að
kötturinn væri sjálfstætt dýr og
færi sínar eigin leiðir, svo ekki er
ljóst á þessari stundu hve lengi lær-
dómurinn tollir í litlum kattarhaus.
Lærðir kennarar í faginu sýna þó
væntanlega góða viðleitni og ósk-
andi er að þeim bjóðist betri laun en
það opinbera greiðir kennurum
þeim er í dag strita og streða við að
koma lífslærdómnum í litla barna-
kolla.
Nú, svo þarf að koma upp sér-
stöku fæðingarheimili fyrir læð-
urnar, sem eiga von á sér, enn fæð-
ast kettlingarnir, krílin litlu, þrátt
fyrir ýmsar tilraunir mannfólksins í
þá átt að stemma stigu við því.
Svo þegar ævidegi hallar þarf að
koma lífslúnum ketti fyrir. Það er
búið að selja Hafnarbúðir, B-álm-
an og sjúkrahús landsins eru full af
gömlu mannfólki sem hvergi á ann-
ars staðar athvarf. Verður þá vart
annað tekið til bragðs en að byggja
sérstakt elliheimili fyrir ketti og
langlegudeild í tengslum við það.
Svo rísa upp útfararstofnanirnar
þar sem unnt verður að fá fyrsta
flokks þjónustu að amerískum
hætti. Virðulegar útfarir þar sem
gæludýrið er lagt til hinstu hvíldar
i gæludýrakirkjugarðinum, eða
kannski brennt og eigandinn getur
fengið öskuna með sér heim í þar til
gerðum krukkum.
Lausn á atvinnu-
málunum
Má jafnvel sjá fyrir sér í anda
iðnað sem sprettur upp í tengslum
við alla þessa gæludýraþjónustu.
Ef til vill er gæludýraþjónustan
lausnin á öðrum brýnum vanda
þjóðarinnar, þ. e. hvernig á að losna
við allt það fólk sem kemur út á
vinnumarkaðinn á komandi árum
og ekki eru handbær störf fyrir.
Henda burt öllum hugmyndum um
stóriðju og lífefnaiðnað, hugbún-
aðarframleiðslu og annað þess
háttar og skella fólkinu í gæludýra-
þjónustuna. Eftirspurnin eftir
vinnuafli hlýtur að aukast í kjölfar
alls þessa. Þörfin rís fyrir klæða-
hönnuði, sérmenntaða í gæludýra-
fatnaði — það vantar afgreiðslu-
fólk í verslanir sem gæludýrum eru
ætlaðar, þjónustufólk á gæludýra-
veitingastaðina, fóstrur til að létta
oki móðurskyldunnar af blessaðri
læðunni, hótelstýrur fyrir kattahót-
elin að ógleymdri allri gæludýra-
læknisþjónustunni, starfsfólki til
að annast aðhlynningu eldri gælu-
dýra og svo þeir sem sjá um útfarar-
stofnanirnar, gæludýrakirkjugarð-
ana og annað sem fylgir.
Sálin kisu minnar
En í kjölfar alls þessa — var
nokkurn tíma minnst á himnaríki
fyrir blessaðan köttinn? Þarf ekki
líka að koma upp sérstökum trúar-
söfnuði sem tekur sérstaklega að
sér sálgæslu og himnaríkisdvöl
blessaðra gæludýranna okkar.
— Köttur úti í mýri, setti upp á
sér stýri, úti er ævintýri.
Ökum jafnan
á hægri rein
á akreinaskiptum
vegum.