Alþýðublaðið - 03.08.1985, Page 22
22
Laugardagur 3. ágúst 1985
MARÍANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR:
konu sem sett er skör lægra en aðrir
á margan hátt, bæði af hinu opin-
bera og í viðhorfi manna á meðal.
Mynd þeirrar konu sem ekki er met-
in að verðleikum á einn eða neinn
hátt. Verði ekkert aðhafst til þess að
réttlætinu verði fullnægt, verði hús-
mæðrum íslands ekki færður sá
réttur sem öðrum þykir sjálfsagt að
búa við, það öryggi — þá má eins
blása á það sem verið hefur „lands
og lýða ljós í þúsund ár“
Maríanna Friójónsdóttir.
„Heima er best!“
En er það svo í raun?
t
varðar fæðingarorlof — er sú kona
sem heima hefur unnið og fæðir
barn — minna að standa í því held-
ur en konan í næsta húsi? Gf litið er
á eitt dæmi þessu til skýringar þá er
það svo að heimavinnandi kona
með fjögur börn á framfæri fær
einungis !4 af fæðingarorlofi, þótt
fimmta barnið bætist við. Konan í
næsta húsi, sem hefur verið dag-
mamma með fjögur börn í pössun
fær fullt fæðingarorlof ef hún
leggst á sæng. Dagmamma í þessu
dæmi telst hafa verið í fullu starfi
við gæslu fjögurra barna, en ekki
konan sem passar fjögur börnin sín
sjálf.
Afrakstur ævinnar!
Svo hyggst blessuð konan kannske
eftir langan starfsdag á heimilinu
halda út á vinnumarkaðinn og hvað
blasir þá við? — Alger eyðimörk!
Margar þeirra hafa litla menntun —
þær hafa heldur ekki átt kost á lög-
boðinni endurmenntun við sitt
hæfi. Þær fara kannske á ótal nám-
skeið hjá Námsflokkunum —
hressa upp á enskukunnáttuna og
vélritunina. Svo er sótt um vinnu
með fullri bjartsýni — en hún er úr
leik — fallin í verði! Hún á kost á
lægst launuðu störfunum; ræst-
ingu, fiskvinnu eða að svara í síma.
Hvar er þá uppskera allra áranna.
Hvar er nú starfsmatið og starfsald-
urshækkanirnar. Hún hefur unnið
störf í þágu þjóðarinnar allrar ára-
tugum saman, störf sem annars
staðar færa fólki hækkun á launum
með mati á störfum og starfsaldri
— það sem henni stendur til boða er
framlenging á heimilisstörfunum,
sem hún hefur stundað af trú-
mennsku í nokkra áratugi en fær
samt sama kaup og byrjandinn.
Hér fyrst tekur steininn úr. Hvar er
rétturinn til þess sem er afrakstur
ævistarfs? Svo endar þetta allt með
því að hún heldur heim á Ieið á ný
og dútlar eitthvað smálegt, strýkur
í laumi burt tár vonbrigðanna yfir
lífi sem kastað hefur verið á glæ að
mati annarra.
Nei, „fósturlandsins freyja" er
ekki sú kvenímynd sem á afmælis-
og tyllidögum er hafin upp á goð-
kenndan stall og lýst í mærðarleg-
um mansöngvum, hún er ekki sú
„móðir, ' kona, meyja“, sem af
greidd er með minningargrein í
Mogganum.
í raun blasir önnur mynd „fóst-
urlandsins freyju“ við, mynd þeirr-
ar konu, sem stritar og slítur sér út
áratugum saman i þágu okkar
hinna, án nokkurrar umbunar —
án nokkurra réttinda, mynd þeirrar
„ . .móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís . .“
Húsfreyjur íslands hafa um aldabil
átt undir högg að sækja. Þeirra rétt-
ur, þeirra afrakstur hefur verið lof-
ið eitt, eins og kemur fram í fyrr-
greindum texta, sem sunginn er fyr-
ir minni kvenna á hátíðastundum.
En ætli konum þessa lands væri
ekki kærara annað minni, sem fæl-
ist í því að leiðréttur væri hlutur
þeirra þannig að þær stæðu jafn-
fætis öðrum þjóðfélagsþegnum, fé-
lagslega og réttarfarslega.
Á síðasta Alþingi var lögð fram
tillaga til þingsályktunar, sem kveð-
ur á um að gerð verði úttekt á þjóð-
hagslegu gildi heimilisstarfa og því
hvernig félagslegum réttindum
heimavinnandi er háttað. Er svo
kveðið á að niðurstöðum og tillög-
um til úrbóta verði skilað eigi síðar
en 1. janúar á næsta ári. Því miður
hlaut tillagan ekki lokaafgreiðslu,
önnur og merkari mál sátu fyrir og
því verða húsmæður enn að þreyja
þorrann og bíða leiðréttinga sinna
mála. Nú er ljóst að erfitt er að
meta þjóðhagslegt gildi heimilis-
starfa og má með sanni segja að
slíkt sé í raun ómetanlegt. En hvern-
ig er félagslegum rétti heimavinn-
andi fólks komið?
Lífeyrir — öðrum ætlaður
Heimavinnandi fólk hefur ekki að-
gang að lífeyrissjóði, eins og aðrir
landsmenn er stunda launaða
vinnu. Því hafa húsmæður mjög
takmörkuð lífeyrisréttindi, einung-
is ellistyrk úr almannatryggingum
og þykir það ekki há upphæð. Hafi
kona unnið úti og verið í lifeyris-
sjóði, þá missir hún þann rétt ef
hún hverfur til heimilisstarfa, t.d.
vegna þess að börn bætast í hópinn.
Hafi kona ekki greitt nógu lengi í
lífeyrissjóð til að tryggja sér láns-
réttindi áður en heim er haldið, fell-
ur sá réttur einnig niður. Fyrir ungt
fólk sem er að afla sér íbúðarhús-
næðis vegur það þungt. Hvað varð-
ar eldri kynslóðina þá eru þar í hópi
margar konur sem stunduðu lítil
sem engin störf utan heimilis heldur
eyddu starfsdegi sínum við uppeldi
barna og húshald. í þeirra hópi eru
tæplega 500 konur utan lífeyris-
sjóða, sem koma á eftirlaun á
næstu tveimur árum og er því ljóst
að þetta snertir all stóran hóp
kvenna. Hvað leiðréttingu á þessum
málum varðar má benda á áratuga
gamalt baráttumál Alþýðuflokks-
ins um lífeyrissjóð öllum lands-
mönnum til handa.
Verður er verkamaðurinn
laupa sinna.
Störf heimavinnandi fólks er eina
vinnuframlagið í þjóðfélaginu sem
ekki eru greidd laun fyrir. Það er
Ijóst að heimavinnandi konur spara
þjóðarbúinu mikil sameiginleg út-
gjöld. Þær vinna launalaust starf
sem stendur allan sólarhringinn —
þessar konur hafa ekki lögskipaðan
hvíldartíma, heldur ekki lögskip-
aða frídaga — þær fá ekkert sumar-
frí — en þær skulu vera til þjónustu
reiðubúnar allan sólarhringinn þeg-
ar kallið kemur — hvort sem er á
nóttu eða degi — hvort sem um er
að ræða að seðja hungur þeirra sem
heim koma eða að vakna upp oft á
nóttu til þess að sinna ungabörn-
um. Húsmæðurnar eru á þönum
frá morgni til kvölds og í einu skipt-
in sem það sést hvað þær eru að
gera er — ef þær láta það ógert —
þá vantar hreina sokka, mjólk í ís-
skápinn og ýmislegt annað.
íslenskir karlmenn geta á þessum
grunni stundað félagslíf og at-
vinnulíf óháð því hvort þeir eiga
heimili og börn og hafa heilar her-
sveitir huldukvenna heimavið sem
sjá um að allt gangi slétt og fellt fyr-
ir sig.
Heimavinnandi konan innir af
hendi störf sem annars staðar í
þjóðfélaginu eru metin til launa —
sum jafnvel til hárra Iauna, ef þau
hafa skilgreinst sem karlastörf. —
Þær sinna ráðgjafaþjónustu, hún
er dýrt seld úti á hinum frjálsa
markaði — þær eru fóstrur, þær fá
góða þjálfun í að umgangast fólk
með ólíka skapgerð — enginn eigin-
maður, sonur eða dóttir hefur sömu
lund — þær þurfa að leysa úr sálar-
þrautum heimilismanna og sinna
kennslustarfi. Slík störf eru talin
launanna virði annars staðar í þjóð-
félaginu, — þar er verkamaðurinn
verður launanna.
Svo eru margar húsmæður með
eindæmum hagsýnar og nýtnar.
Þær prjóna, sauma og baka margar
hverjar — það dregur úr innflutn-
ingi á tilbúnum fatnaði og dönsku
brauði og sparar þjóðarbúinu dýr-
mætan gjaldeyri.
Þessar konur hafa, ef þær eru
með mörg börn á framfæri, oft á
tíðum skuldbundið sig til þess að
vinna kauplaust í allt að 20 ár, og
þær hafa enga umsamda matar- eða
kaffitima, það er ekkert verkalýðs-
félag sem krefst þess að þær fái lög-
boðna 10 tíma hvíld á sólarhring
eða geti a.m.k. samið við vinnuveit-
andann um átta tímana. í ræðum
og riti á hátíðarstundum eru „fóst-
urlandsins freyjur" svo lofsungnar
og vafðar dýrðarljóma. Það væri
nær að synir og dætur þessa lands
slepptu slíkum stílbrögðum, brettu
upp ermarnar og færu virkilega að
sinna af alvöru málefnum heima-
vinnandi.
Það er oft talað um það að sjálf-
stæði konunnar og jafnrétti byggi á
fjárhagslegum grunni. Það er rétt. í
sumum löndum hefur verið lagt til
að konur fái kaup frá hinu opinbera
fyrir það að sinna heimilisstörfum.
Með tillögu þeirri sem lögð var fyrir
Alþingi og áður er vikið að, er verið
að krefjast þess að það verði skoð-
að með hvaða hætti má taka á mál-
efnum heimavinnandi, þannig að
húsmæður njóti a.m.k. sömu rétt-
inda og aðrir. Þær eiga ekki að
þurfa að hafa það á tilfinningunni
sí og æ að þær séu með launalausu
starfi sínu í raun þurfalingar á eigin
heimili.
Byggðastefna framtíðar-
innar!
Það er í tísku að tala um val — allir
eiga að hafa val — en frammi fyrir
hvaða vali stendur fólk í raun? Kon-
an hefur í flestum tilvikum lægri
laun en karlinn úti á hinum al-
menna vinnumarkaði. Svo þegar
börnin bætast í hópinn, þá hefur
hún ekki um neitt að velja, hún hef-
ur lægri launin — hann verður að
vinna fyrir brauðinu — en hún að
flytja sig um set og „hætta að
vinna“, eins og það er svo smekk-
lega orðað.
En nú er í reynd komin upp önn-
ur og erfiðari staða. Konur í dag
þurfa oft hreinlega að velja á milli
þess að eiga börn eða halda áfram
vinnu utan heimilis. Karlmenn
þurfa sjaldnast að spyrja sig slíkra
spurninga — en það er líka búið að
velja fyrir þá, — en þeir þurfa samt
sjaldnast að gera það hreinlega upp
við sig hvort þeir eigi að eignast erf-
ingja að allri þjóðfélagsdýrðinni.
Það fer kannske að verða tima-
bært að útvíkka byggðastefnuna
svolítið, eins og ýmsir grannar okk-
ar eru farnir að leiða hugann að í
kjölfar þjóðarfækkunar. Viljum
við ísland í byggð yfirhöfuð eftir
örfáa mannsaldra? Það verður trú-
lega auðvelt ráðamönnum framtíð-
arinnar að greiða úr flækjunum í
fámenninu. En í alvöru talað er
náttúrlega fráleitt að spurning sem
þessi rísi, og sé studd svo sterkum
rökum leynt og ljóst sem raun ber
vitni, að henni verði e.t.v. ekki svar-
að nema á einn veg. Konan á ekki
frekar en karlinn að þurfa að
standa frammi fyrir því að gera upp
á milli barns og vinnu — spurningin
á ekki að vera hvort, heldur hve-
nær? Nú segja kannske sumir að
konur geti haldið áfram að vinna
utan heimilis þótt þær séu með ung
börn! En það vantar dagvistunar
rými og oft á tíðum hrekkur varla
kaupið fyrir vinnu utan heimilis
fyrir dagvistun barnanna ef þau eru
mörg. Og margt annað kemur til.
Einskis metinn sparnaður
Svo á meðan þessar konur „sitja
heima" og „gera ekki neitt“ — eins
og það er nefnt — þá eru þær að
spara fyrir þjóðarbúið með því að
gæta barnanna sinna og oft á tiðum
einnig að sinna eldri borgurum,
þjóðfélagsþegnum, ungum og
öldnum sem ella tækju upp dýrmæt
pláss á stofnunum, sem ríki og
Maríanna Friðjónsdóttir.
kostnaðar til heimilisrekstursins.
Afgangurinn er í flestum tilvikum
svo rýr að ekki tekur því að deila um
hvað er mitt og hvað er þitt í því til-
viki. Konan vinnur inni á heimilinu
og gerir þar með karlinum kleift að
vinna fyrir tekjum annars staðar.
Þess vegna á hún jafna hlutdeild í
tekjum hans. í raun ætti jafnvel að
ganga enn lengra og telja öll félags-
Ieg réttindi sameign, því auðvitað er
um sameiginlegt framlag til þjóðar-
búsins að ræða þótt vinnan fari
fram á tveimur stöðum í senn.
sveitarfélög reka. Þessi beini fjár-
hagssparnaður fyrir þjóðarbúið er
ekki metinn.
Mitt er þitt . . .?
Hvað skattamálin varðar þá er það
ljóst að það hefur alllengi verið
stefna Alþýðuflokksins að leggja
niður þennan leiðindaskatt, sem
nefnist tekjuskattur og er ekkert
orðið annað en mismunaskattur.
Þetta lýsir sér m.a. í því misrétti að
heimili með eina fyrirvinnu og
sömu tekjur hefur borið hærri
skatta en heimili með tvær fyrir-
vinnur. Þau rök sem haldið hefur
verið fram í þeirri umræðu að um sé
að ræða skref afturábak með því að
samskatta hjón er bara rifrildi um
hirðsiði. Ef ekki væri greiddur
tekjuskattur af launum félli sá
skoðanaágreiningur úr sögunni.
Hinsvegar hlýtur að vera unnt að
líta á heimilið sem rekstrareiningu
og að þau laun sem til þess falla séu
sameiginleg. Á flestum heimilum
landsmanna er það nú svo, að búið
er fyrirfram að ráðstafa öllum tekj-
um heimilisins í afborganir af lán-
um, í reikninga og mat, auk annars
Misvirðing hins opinbera
Heimavinnandi konur þarf að
tryggja sérstaklega á skattaskýrslu
eins og hvert annað húsgagn og er
slíkt og þvílíkt bara hrein misvirð-
ing. Einnig er það fráleitt að kona
sem vinnur heima og verður veik —
að hún sé álitin minna veik en allir
aðrir — það mætti a.m.k. ætla að
svo sé, — hún fær ekki nema !4 af
sjúkradagpeningum.'
Svo skiptir hið opinbera konum í
verðflokka á fleiri sviðum, t.d. hvað