Alþýðublaðið - 21.08.1985, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 21.08.1985, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 21. ágúst 1985 RITSTJÓRNARGREIN ■ ■ w m m Eigi vikja — þeir þora ekkí að reka ykkur! Jónas Kristjánsson braut blað i sögu fjöl- miðla þegar hann — með látum — reif upp Dagblaðiö fyrir tíu árum. Afleiðingarnar urðu m. a. þær að íslenzkir fjölmiðlar breyttust til hins betra. Til varð nýr opinber vettvangur. Beittir pennar komu fram á sjónarsviðið. Kerf- ið vibraði. En hagsmunir náðu yfirhöndinni. Hugsjónir viku. DV varð til — og tók að veita mönnum gullpenna. Fyrirtækið varð stórveldi, sem vafa- laust hefur skilað eigendum sínum þvi sem þeir gerðu kröfu til. Og samruni Dagblaðsins og Vísis varð góður fyrir þá, en vondur fyrir fjöl- miðla og opinbera umræðu. Dagblaðsævintýrið er saga. Vaxtarbroddurinn í fjölmiðlaheiminum nú er Þjóðviljinn. Ekki af því að blaðið sé útbreitt um- fram önnur dagblöð, heldur vegna þess að það er vel skrifað og umfram allt vegna þess að það er óháðara eigendum slnum en önnur blöð geta státað af. Þjóðviljinn hefur gagnrýnt flokksforystu Al- þýðubandalagsins. Hann hefur fjallað opin- skátt um innanflokksátök þar á bæ og vaxandi erfiðleika flokksforystunnar í pólitík. Blaðið hefur gagnrýnt verkalýðsforystu Alþýðubanda- lagsins og forystu ASÍ, en fram að þessu hefur slík gagnrýni í Þjóðviljanum ekki talizt til kurt- eisi og réttra hirðsiða. Blaðið undirforystu nú- verandi stjórn þremenninganna Árna Berg- mann, Óskars Guðmundssonar og Össurar Skarphéðinssonar hefur m. ö. o. brotið af sér hlekki flokkssnepilsins. Og það hefur gert meira. Blaðiö hefur sýnt á síðastliðnu hálfu öðru ári frumkvæði I fréttaöflun og pólitískum skrifum sem varó til þess að menn voru um tíma farnir að tala um Þjóðviljann sem einu stjórnarandstöðuna í landinu. #• _ I miðstýröum flokki eins og Alþýöubandalag- ið er fer sjálfstæði af þeirri tegund sem Þjóð- viljinn tekur sér í taugarnar á flokksforystu og flokkseigendafélagi — fjöldahreyfingunni á bak við forystuna. Er hér um að ræða tuttugu til þrjátlu manna „úrvalssveit“ sem hleypur skjálfandi upp úr rúminu á morgnana, þegar blaðið „þeirra" dettur inn um bréfalúguna og fær vægt taugaáfall í hvert skipti sem þeir lesa blaðið. Og svo hringjast þeir á. Spana hver annan upp, upp allan pýramídann. Rifast og skamm- ast. Halda fundi og lýsa áhyggjum sínum „af þróuninni". Næsta stig er samsæriskenninga- stigið. Þá byrjar flokkseigendafélagið skipu- lega herferð sem væntanlega gengur út á það að kenna blaðinu um þverrandi traust manna á flokknum, enda þótt sömu menn viti mætavel að skýringarinnará hraklegri útkomu flokksins í skoðanakönnunum sé að leita í slökum þing- flokki — hjá slakri forystu. Staliniskartilhneigingarflokkseigendaféiaga í fiokkum og samtökum eru af hinu vonda. Og félög þessi, sem heppilegt væri að hafa í ein- um flokki sem gæti verið til hægri, eða vinstri allt eftir atvikum, eiga ekki að skipta sér af blaðaútgáfu. Áratugalöng afskipti af ritstjórn dagblaða hafa farið illa með blöðin og komið ( veg fyrir að hér yrðu til blöð á borð við þau sem þekkt eru erlendis og hægt er að treysta, auk þess sem fréttamenn hafa liðið fyrir afksipti af þessu tagi. Ein alvarleg afleiðing þessa er að hér er rítskoðun, bein og óbein, algengarí á fjölmiðlum en menn almennt grunar. Gegn þessu eru þremenningarnir á Þjóðvilj- anum að berjast. Ekki aðeins fyrir sjálfa sig sem fagmenn. Þeir eru að berjast fyrir að geta haldið úti lýðræðislegum fjölmiðli ( vfðasta skilningi orðsins. Skutull, málgagn jafnaðarmanna á Vest- fjörðum, fjallaði um þessa tiiraun Þjóðviljans fyrir tveimur árum. Niðurstaða Skutuls var þessi — og erhún enn I fullu giídi: „Skutull Htur svo á, að rítstjórn Þjóðviljans sé að gera merki- lega hluti. Ef henni tekst að halda til streitu þv( verki sem hafið er, ef hún hefur styrk og þor til að feta sig eftir þeirri braut sem blaðið er inná og lætur ekki flokkseigendur keyra sig niður, þá mun blaðið brjóta blað í sögu íslenzkra fjöl- miðla.“ Niðurstaða þessi og sanngjörn skrif um Þjóðviljann fóru v(st eitthvað fyrir brjóstið á nokkrum alþýðuflokksmönnum á Stór-Reykja- víkursvæðinu, þegar blaðið á slnum tlma barst að vestan. Þeir voru I flokkseigendafélagi — í Alþýðuflokknum. Flaggskip (slenzkradagblaða, Morgunblaðið, útvörður lýðræðis ( norðri, hefur vfsvitandi reynt að draga tilraun Þjóðviljans niður á ómerkilegt plan innanfélagsátaka og með því tekið afstöðu með flokkseigendafélaginu f Al- þýðubandalaginu. Af hverju spyrja menn? Svar- ið er einfalt. Morgunblaðið er Sjálfstæðis- fiokknum það sem flokkseigendafélagið í Al- þýðubandalaginu vill að Þjóðviljinn sé því. Og Morgunblaðinu gremst vitaskuld þegar önnur blöð gera það sem Morgunblaðið hefði, sem „blað allra landsmanna“, fyrir löngu átt að gera, þ. e. rlfa sig frá þröngum flokkshagsmunum og t. d. brjóta uppá því nýmæli að fjalla af alvöru um ástandið innan Sjálfstæðisflokksins. SKkt ereinfaldlegahluti af upplýsingaskyldu Morg- unblaðsins. Sjálfsögð þjónusta við 45 þúsund lesendur. Það er fáránlegt að taka minna tillit til þúsundanna sem lesa blaðið daglega, en 22 þingmanna stjórnmálaflokks. Dagblöð — stór og smá — eiga fyrst og fremst að sinna upplýsingaskyldu sinni við iesendur.Sú skyldaerlangtum þyngri ámetun- um en þrengstu flokkshagsmunir. Alþýðublað- ið ætti til dæmis að greina frá þvl og skýra, ef um innanflokksátök væri að ræða í Alþýðu- flokknum. Skylda blaðsins væri t. d. að greina frá þv(, ef Hafnarfjarðarkratarnir, eða stuðn- ingsmenn Sighvatar Björgvinssonar, efndu til skipulagðs samblásturs gegn formanni flokks- ins. Þannig eiga flokksblöð að vera. Óháð því sem lltill minnihluti flokksforystunnar telur vera hagsmuni flokka. Það er þessi hugsun, þessi stlll, sem Þjóð- viljinn er að berjast fyrir. Þeir sem aðhyllast frjálsa fjölmiðlun. Þeir sem gera sér grein fyrir þvf að frjáls fjölmiðlun ereinn af hornsteinum lýðræðislegrar umræðu, þeir fylgjast grannt með tilraun Þjóðviljans. Og við erum mörg. í öllum flokkum. Öllum samtökum. Við vitum að barátta ritstjórnar Þjóðviljans skiptir máli. L(ka fyrirokkur. Þess vegna segj- um við: Eigi vlkja — þeir þora ekki að reka ykk- ur. Að spá 4 bía stjórnar verði olíunnar, ef orku- sparnaðarstefna er í hávegum höfð, þá er unnt að framleiða næga olíu handa heimsbyggðinni. Saudi-Ar- abar eru í örri iðnþróun, það kostar gífurlega fjármuni og erlendar skuldir þeirra hafa aukist til muna síðustu árin. Þeir verða því að fram- leiða meiri olíu til þess að borga niður langtíma skuldir, þótt aukin framleiðsla þýði lækkað olíuverð, þá verða Saudi-Arabar að hlíta því til þess að geta borgað af þeim lán- um sem varið hefur verið til að bera uppi kostnaðinn af þeirri iðnþróun sem þar á sér nú stað. Tölvur Tölvumál og þróun smátölva er e. t. v. það svið framtíðarinnar sem al- menningur lítur til með aukinni bjartsýni. Cetron vinnur við tölvur alla daga og allar hans upplýsingar eru unnar í tölvu. Hann telur að fljótlega upp úr aldamótum verði tölvan orðin útbreiddari á heimil- um Bandaríkjamanna heldur en sjónvarpið er í dag. Hann telur hins vegar að þetta byggist allt á því hversu vel gengur að tölvuvæða skólana. Hann bend- ir á að fjörutíu milljörðum dollara hafi verið varið til útgáfu kennslu- bóka siðustu 200 árin. Hins vegar sé áætlað að nota jafn háa upphæð fram til ársins 1990 til kennslu í fög- um sem tengjast tölvunotkun. En hann telur að einungis þriðjungur þeirra tölva sem börn framtíðarinn- ar nota verði í skólunum, hitt leggi foreldrar barnanna til. í kjölfar almennrar tölvunotkun- ar telur Cetron að fylgi stórfelldar þjóðfélagsbreytingar. Fleiri og fleiri stundi vinnu heima með aðstoð tölvu. Hann telur að árið 2000 muni 22% vinnufærra manna stunda vinnu sína heima og tuttugu og fimm árum síðar verði meira en helmingur þjóðarinnar heimavinn- andi við tölvuna. Hins vegar verði ávallt til ýmis þjónustustörf sem vinna verði utan heimilis. Einnig verði óhjákvæmilegt að fólk hittist augliti til auglits til þess að deila hugmyndum og spjalla saman. Hann sér fyrir sér skiptivinnu, og að markaðnum verði stjórnað í krafti fjarskipta. Notað verði sjóvarp, fjölnota- kaplar, sími og tölva í verslunarvið- skiptum. Cetron telur ':að um átta milljónir Bandaríkjamanna verði starfandi við slíkt um næstu alda- mót. En það mun óhjákvæmilega hafa áhrif á þróun heimilislífsins. Þegar karlinn og konan vinna bæði reglu- legan vinnudag heimavið þá muni skilnuðum fjölga í kjölfarið, jafn- vel fjórfaldast á við það sem nú er. Styttri vinnuvika og aukið jafnrétti í kjölfar aukinnar tækni telur Cetron að fylgi stytting vinnuvik- unnar. Hins vegar muni þeir enn vinna langan vinnudag, sem hyggj- ast koma sér áfram — það fólk muni enn vinna tvö- til þrefalda vinnu jafnvel eftir að 32 tíma vinnuvika verður orðin að veru- leika. Ávallt verði til staðar fólk haldið framagirni og vinnusemi í óhófi. Árið 2000 spáir hann að 20 tíma vinnuvika verði orðin stað- reynd, þannig að það auðveldi sumu fólki að komast yfir að vinna á tveim til þrem mismunandi svið- um. Slíkt verður væntanlega vinnu- sömum íslendingum til huggunar, þeir sjá fram á að í stað þess að þurfa að fjölga stundunum í sólar- hringnum geti þeir auðveldlega bætt við sig fjórða og fimmta starf- inu. Cetron telur að tölvuvæðingin muni stuðla að auknu jafnrétti kon- unnar. Um aldamót komi 85% beggja foreldra til með að skila fullri vinnu, meðalheimilið muni leggja til 40 stunda vinnu á viku, eiginmaðurinn tuttugu tíma og eig- inkonan jafn mikið. Þegar slíkt jafnræði ríki þýði ekkert fyrir eigin- manninn að koma heim, henda sér niður í stól og segja: „Elskan, ertu búin að elda matinn? Ef þú ert búin að því hvernig væri þá að búa um, þvo þvottinn og ryksuga?“ Framtíðarkonan mun ekki láta slíkt viðgangast. Breyting á hlut- verkum kynjanna heimavið, á skrif- stofunni og í verksmiðjunum er óumflýjanleg þegar stór hluti alls vinnuafls verða konur. Cetron telur að lægri laun fyrir svonefnd kvennastörf muni hverfa. Þótt enn sem komið er sé ástandið þannig það litið sé á laun kvenna sem bú- bót, og því færi slík störf hjúkrun- arfræðingum, kennurum og einka- riturum lægri laun en körlum, telur Cetron slíkt tímaskekkju, því konur sem stundi þessi störf séu ekki síður fyrirvinnur en karlarnir. Hann telur að hátækni færi kon- um jafnrétti. Sú kona sem enn er á unga aldri og lítur ekki á verkþjálf- un eða verkmenntun sem sjálfsagð- an hlut, sé örskot frá atvinnuleys- inu. Nú dugi ekki lengur að líta á veröldina þeim augum að bíða skuli eftir draumaprinsi á hvítum hesti sem færi stúlkum framtíðina á silf- urfati. Slíkt boði einungis óham- ingju. Cetron segir sögu máli sínu til staðfestingar: „Nú fjölgar kon- um í sinfóníuhljómsveitum og ástæðan er sú að þegar sótt er um starf, þá leika umsækjendur fyrir dómarana en þeir sjá ekki hver leik- ur, sá sem leikur betur á hljóðfærið, — karl eða kona fær starfið. Hið sama á við um háþróaða tækni — eðli hennar er jafnréttií* Lögin 1 ins, heldurhin, að stjórnvöld hafa horft á þetta með blinda auganu í þeirri trú, að gin- og klaufaveiki fyrirfinnist ekki í Bandaríkjun- um. En slíkt getur breyst og þá verður að framfylgja lögunum frá 1928 af fullri einbeitni. Hér þarf alltaf að vera á verði. Gott er að nú hefur verið rœkilega á það minnt. Það skyldu menn svo varast að túlka varnarsamningana þannig, að íþeim felist annað og meira en þar er sagt berum orðum.“ En það eru reyndar fleiri máls- metandi menn en Þórarinn Þórar- insson sem eru á þeirri skoðun að nú beri að setja punkt aftan við innflutning á hráu kjöti til hers- ins. Páll A. Pálsson, yfirdýra- læknir var ekkert feiminn við að lýsa því yfir í samtali við Þjóðvilj- ann í gær að hann væri alfarið á móti þessum innflutningi. Orðrétt sagði yfirdýralæknir- inn: „Ég er ráðgjafi ríkisstjórnar- innar í svona málum og ég hef sagt þeim mitt álit á málinu hvað eftir annað. Ég lít á mitt starf sem það að bœgja hœttunnifrá að því er varðar sjúkdóma og það er allt- af einhver áhœtta í svona inn- flutningi. Þess vegna erum við að taka allt kjöt af ferðamönnum sem koma til landsins." Eins og nú standa sakir virðast það vera ráðherrarnir Geir og Al- bert sem völdin hafa í þessu máli. Fram að þessu hafa þeir þó ekki getað komið sér saman um neina stefnu í málinu, en aðgerðir þeirra undanfarnar vikur hafa hins veg- ar stundum minnt ofurlítið á tvo stráka í sandkassaleik. Kannski fer að verða tímabært að láta íslenska dómstóla skera úr um það hvaða lög skuli gilda í landinu. Það er jafnan þrauta- lendingin þegar tveir deila og ná ekki sáttum upp á eigin spýtur. Því skyldi það ekki gilda um ráð- herra líka? FRAMUR AKsrruR Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar framúr þarf að gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan ekur þarf að hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst þess að mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt er farið ökum við á þá í loftinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.