Alþýðublaðið - 21.08.1985, Síða 3
Miðvikudagur 21. ágúst 1985
3
r
Islenskur frétta-
maður í Súdan?
íslendingum boðið að sœkja um frétta-
mannsstarf á vegum Rauða krossins
Alþjóðarauðikrossinn i Genf
hefur óskað eftir því við nokkur
aðildarfélög sín, þar á meðal
Rauða kross íslands, að auglýsa
laust starf fyrir „fréttamann í
Súdan“.
Starfið felst í:
1. Samskipti við alþjóðafjöl-
miðla og fjölmiðla í Súdan,
blöð og tímarit, útvarp og
sjónvarp.
2. Aðstoða fréttamenn sem
koma til Súdan.
3. Semja og senda fréttaefni til
aðalstöðva Rauða krossins í
Genf.
4. Aðstoða Rauða krossinn í
Súdan við upplýsingastreymi
og uppbyggingu fjölmiðlunar
í landinu.
Leiðrétting
Samkvæmt upplýsingum frá
iðnaðarráðuneytinu var mis-
hermt i blaðinu í gær að iðnað-
arráðherra hefði sett skilyrði
fyrir því að tilnefna fulltrúa í
ráðgjafanefnd vegna Mývatns-
rannsókna á vegum Náttúru-
verndarráðs.
Þá gætti og nokkurs misskiln-
ings í sömu frétt þar sem sagt var
að gjald það sem nú er eyrna-
merkt til Mývatnsrannsókna
hafi verið það frá því að það var
lagt á. Hluti gjaldsins á sér eldri
sögu.
Þetta mishermi hefur þó ekki
áhrif á meginefni fréttarinnar,
sem sé að gjaldi þessu hefur nú
verið veitt framhjá ríkissjóði og
rennur það nú beint til Verkefn-
isstjórnar Mývatnsrannsókna.
En engu að síður er skylt að
hafa það heldur sem sannara
reynist og er iðnaðarráðherra
hér með beðinn velvirðingar á
því sem aflaga fór.
Geir 1
ríkisráðherra, en það verður vænt-
anlega annað hvort Framleiðsluráð
landbúnaðarins eða Stéttarsam-
band bænda.
Hákon Sigurgrímsson, fram-
kvæmdastjóri stéttarsambandsins,
tjáði Alþýðublaðinu í gær að fyrir
lægju tilmæli Stéttarsambands
bænda til ríkisstjórnarinnar um að
hún beitti sér fyrir viðræðum um
aukna sölu íslenskra landbúnaðar-
afurða til herliðsins. Hákon sagði
að aðstaða íslensks landbúnaðar til
að anna þessari eftirspurn væri nú
allt önnur og betri en hún var fyrir
34 árum og nefndi í því sambandi
egg, kjúklinga, svinakjöt og nauta-
kjöt, sem hann kvað nú vandalaust
að framleiða nægjanlega mikið af
til að anna þörfum hersins, þótt
verðið kynni að vísu að verða nokk-
urt vandamál.
Skrifstofa
Alþýðuflokksins
Hverfisgötu
8—10 er opin
daglega frá
kl. 1—5.
Sími 29244.
hæöir og brýr
eru vettvang-
ur margra um-
feröarslysa. Við
slíkar aöstæöur
þarf aö draga úr
ferö og gæta þess að
mætast ekki á versta
stað.
JU^JFERÐAR
Vísitala 1
ágúst 1985. Reyndist hún vera
226,05 stig (desember 1982 = 100).
Samsvarandi vísitala miðuð við
eldri grunn (október 1975 = 100) er
3.350 stig.
Frá því vísitala byggingarkostn-
aðar var síðast reiknuð í júlí 1985,
hefur hún hækkað úr 219,95 stigum
í 226,05 stig eða um 2,71 °7o, sem
jafngildir 38,8% árshækkun. Und-
angengna þrjá mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 9,9%, sem svarar
til um 46% árshækkunar. Frá ágúst
1984 til jafnlengdar á þessu ári hef-
ur vísitalan hins vegar hækkað um
37,1%.
Af 2,77% hækkun vísitölunnar
frá júlí til ágúst stafa 1,2% af hækk-
un á töxtum útseldrar vinnu hinn 1.
ágúst sl. Hækkun á verði sements
og steypu olli 0,8% hækkun vísitöl-
unnar og ýmsir aðrir efnisliðir jafnt
innlendir sem innfluttir ollu um
0,8% hækkun vísitölu.
Tekið skal fram, að við uppgjör
verðbóta á fjárskuldbindingar sam-
kvæmt samningum þar sem kveðið
er á um, að þær skuli fylgja vísitölu
byggingarkostnaðar, gilda hinar
Iögformlegu vísitölur, sem reiknað-
ar eru fjórum sinnum á ári eftir
verðlagi í júní, september, desem-
ber og mars, og taka gildi fyrsta dag
næsta mánaðar. Vísitölur fyrir aðra
mánuði en hina lögboðnu útreikn-
ingsmánuði skipta hér ekki máli.
Ráðningartími er minnst 6
mánuóir, frá 1. sept. næstkom-
andi, og skilyrði er að viðkom-
andi hafi fullt vald á ensku, í töl-
uðu og rituðu máli. Fjögurra ára
starfsreynsla hið minnsta er einn-
ig skilyrði.
Umsækjendur verða að láta í té
sýnishorn af blaðagreinum og út-
varps- og sjónvarpspistlum sem
þeir hafa unnið.
Umsóknir sendist til skrifstofu
Rauða kross íslands, Nóatúni 21,
105 Reykjavík, sími 26722.
Sœnsku 1
sami sameiningarflokkurinn, sem
lengst er til hægri í sænskum stjórn-
málum, yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða hinna burtfluttu, eða um
80%. Skýringin á þessu mun vera sú
að fjöldi tekjuhárra Svía flýr land
vegna hárra skatta og má sem dæmi
nefna að tenniskappinn frægi,
Björn Borg, flutti lögheimili sitt til
Monakó fyrir allmörgum árum.
Alls munu um 50.000 Svíar vera
búsettir erlendis, en af þeim höfðu
ekki nema rúmlega 17.000 eða ríf-
lega þriðjungur, kært sig inn á kjör-
skrá þegar umsóknarfresturinn
rann út.
Þess má reyndar geta að atkvæði
hinna burtfluttu Svía réðu úrslitum
í kosningunum 1979. Þegar taln-
ingu í Svíþjóð var lokið á kosninga-
nóttina höfðu vinstri flokkarnir
eins þingsætis meirihluta, en þegar
atkvæði burtfluttra voru talin dag-
inn eftir, fór þetta eina þingsæti yfir
til borgaraflokkanna.
Kennarar
Eftirfarandi kennarastöður eru lausarvið Hafnar-
skóla, Hornafirði:
1. Almenn kennsla
2. Myndmennt, 1/2 staða.
3. Stuðnings- og sérkennsla
Góð vinnuaðstaða. Gott íbúðarhúsnæði. Flutn-
ingsstyrkur greiddur.
Upplýsingarveita skólastjóri í síma97-8148og 97-
8142, yfirkennari í síma 97-8595 og formaður
skólanefndar í síma 97-8181.
Skólanefnd.
m
Kynningarfundur
Borgarskipulag Reykjavfkur minnir á kynningar-
fund á skipulagstillögu Skúlagötusvæðisins,
fimmtudaginn 22. ágúst kl. 22.00 (Risinu, Hverfis-
götu 105.
Eigendum fateigna i hverfinu og íbúum þess er
sérstaklega boðið á fundinn.
Þjóðskjaiasafn íslands
óskar að taka á leigu um 2000 m2 geymsluhús-
næði. Nauðsynlegt er að burðarþol gólfs sé ná-
lægt 1,5 tonn/m2.
Upplýsingar eru veittar í slma 19815.
Þjóðskjalasafn íslands.
Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti
Stundakennara vantar á hausti komanda í stærð-
fræði og efnafræði. Upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu skólans að Austurbergi 5, sfmi 75600.
Skólameistari.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjóra f. h. Gjaldheimtunnar
í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, upp-
kveðnum 16. þ. m. verða lögtök látin fara fram fyrir
vangreiddum opinberum gjöldum álögðum 1985
skv. 98. gr., sbr. 109. og 110 gr. laga nr. 75/1981.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, lif-
eyristryggingagjald atvr. skv. 20. gr., slysatrygg-
ingagj. atvr. skv. 36. gr., kirkjugarðsgjald,
vinnueftirlitsgjald, sóknargjald, sjúkra-
tryggingargjald, gjald i framkvæmdastjóð aldr-
aðra, útsvar, aðstöðugjald, atvinnuleysistrygg-
ingagjald, iðnlánasjóðsgjald og iðnaðarmála-
gjald, sérstakur skattur á skrifstofu- og verslunar-
húsnæði, slysatrygging v/heimilis og eignar-
skattsauki.
Ennfremur nærúrskurðurinn til hvers konargjald-
hækkana og til skatta, sem innheimta ber skv.
Norðurlandasamningi sbr. lög nr. 111/1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöld-
um, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, veröa látin
fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan
þess tima.
Bæjarfógetaembættið í Reykjavík,
16. ágúst 1985.
Laust embætti er forseti íslands
veitir
Frestur til að skila umsóknum um prófessorsembætti I til-
raunaeðlisfræöi við Háskólaíslands, sem auglýst varlaust til
umsóknar I Lögbirtingablaöi nr. 104/1985, framlengist hér
með til 15. september nk.
Menntamálaráðuneytið, 15. ágúst 1985.
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Stundakennara vantar í dönsku. Upplýsingar í
skólanum.
Rektor.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júlimánuð 1985,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.
m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. september.
Fjármálaráðuneytið, 20. ágúst 1985.
Ritari
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa
I utanríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu I ensku og a.m.k. einu
öðru tungumáli auk góðrar vélritunarkuTináttu.
Eftir þjálfun [ utanrikisráðuneytinu má gera ráð
fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráð-
um íslands erlendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um ald-
ur, menntun og fyrri störf, sendist utanrlkisráðu-
neytinu, Hverfisgötu 115, 105 Reykjavík, fyrir 1.
september nk.
Utanríkisráðuneytið