Alþýðublaðið - 28.08.1985, Qupperneq 3
Miðvikudagur 28. ágúst 1985
3
Æðardúnn hækkar
Að undanförnu hefur verö á æö-
ardúni farið hækkandi. Lætur
nærri að bóndinn fái um kr. 15—
16.000 fyrir hvert kg af fullhreins-
uðum og fjaðurtíndum æðardúni.
Þjóöverjar eru enn stærstu kaup-
endurnir, en þeir gera miklar kröfur
um hreinleika dúnsins.
Fyrir 15—20 árum voru dún-
hreinsunarmál og gæðamat hér á
landi í molum. Á þeim tíma var
Æðarræktarfélag íslands stofnað
og lét það þessi mál strax til sín
taka. Árið 1970 voru sett lög um
gæðamat á æðardún og árið 1972
gaf landbúnaðarráðuneytið út er-
indisbréf fyrir matsmenn á æðar-
dúni. í lögunum er kveðið á um að
sýna þurfi vottorð frá lögskipuðum
dúnmatsmönnum til að fá útflutn-
ingsleyfi fyrir æðardún.
Nokkrir æðarbændur hreinsa
dún sinn sjálfir með góðum ár-
angri, en mikill hluti framleiðsl-
unnar er þó hreinsaður í Dún-
hreinsunarstöð SÍS á Kirkjusandi í
Reykjavík. Dúnhreinsunarstöðin
var um 1970 flutt frá Akureyri til
Reykjavíkur og þá um leið endur-
skipulögð og endurbætt mikið.
Áð gefnu tilefni skal hér minnt á,
að samkvæmt lögum um gæðamat
á æðardúni frá 1970 á allur æðar-
dúnn sem fluttur er úr landi að vera
veginn og metinn af lögskipuðum
dúnmatsmönnum. Þá er ráðherra
einnig heimilt að láta meta dún sem
fer á innlendan markað.
Æðardúnninn er verðmikil út-
flutningsvara. Því hlýtur það að
vera hagur bæði æðarbænda og
þeirra sem flytja út dún, að sem
allra best sé vandað til meðferðar og
hreinsunar á honum og að lögunum
um gæðamat sé fylgt, því að
skammt getur reynst í sölusamdrátt
og verðlækkun ef óorð kemst á vör-
una.
Það er eindregin krafa Æðar-
ræktarfélags íslands til útflytjenda
æðardúns að með allan æðardún,
sem fluttur er úr landi, verði farið
eins og lög segja til um svo að vöru-
gæðin verði sem best tryggð.
Tómlegt 4
arnar“ og hvað þetta allt er nú kall-
að til að slá ryki í augun á fólki á
meðan verið er að hirða af því þess-
ar fáu krónur sem þáð fékk, koma
svo til viðbótar öllu saman.
Allt tryggt — nema launin
Að sjálfsögðu spila þessar hækk-
anir og þær sem ókomnar eru inn í
allt vísitölu- og verðtryggingar-
farganið. Flest er nefnilega „okur-
verð- og vísitölutryggt“ nema laun-
in. Ekki mun hagur skuldara lagast
við það. Af er það sem áður var
þegar sparifjáreigendur voru reyttir
inn að skinni, nú hafa skuldarar
tekið við því hlutverki. Vandratað-
ur virðist hinn gullni meðalvegur.
Ef síðan er reynt að draga álykt-
anir af ofansögðu, þá geta þær ver-
ið þessar:
Það virðist skipta harla litlu máli
upp á hvað er samið i kjarasamn-
ingum, mikið eða lítið. Það er mjög
fljótlega hirt til baka með verðlags-
hækkunum og pólitískum belli-
brögðum. Ef miðað er við þá
slæmu stöðu sem þjóðarbúið er í
vegna þeirrar fjármálaóreiðu sem
ríkt hefur er sáralítil von til þess að
kaupmáttur hins almenna launþega
aukist í náinni framtíð.
„Hirðin“ borgar ekki
„versaladýrðina“
Þó gæti réttlátari skipting þess
sem til skiptanna er bætt eitthvað
úr, en réttlætið á erfitt uppdráttar
um þessar mundir. Að sjálfsögðu
mun svo koma í hlut hins almenna
launamanns að greiða fyrir „Ver-
saladýrðina" þrátt fyrir að hann
nyti aðeins reyksins og ómsins af
veislugleði „hirðarinnar". Ekki
mun „hirðin" greiða neitt frekar en
forðum á þeim bæ. Tómlegt verður
um að litast í veski launamannsins á
meðan þær greiðslur eru inntar af
hendi.
Tími „atkvæðaveiðaranna" er
liðinn við höfum einfaldlega ekki
þrek til að halda þeim lengur uppi.
Magnús Marísson
lyeholt 1
Þeir munu því væntanlega ekki
hætta við að verja mál Treholts fyr-
ir Hæstarétti en þeir höfðu Iátið í
veðri vaka að slíkt væri næsta til-
gangslaust ef grundvallarmannrétt-
inda væri ekki betur gætt en á
horfðist þegar skjölin voru gerð
upptæk.
Tvær bækur eru væntanlegar um
mál Treholts. Annars vegar mun
hann sjálfur hafa í hyggju að gefa út
bók um viðhorf sín til málsins og
hins vegar hefur blaðamaður einn
að nafni Jo Bech-Karlsen skrifað
bók um Treholt sem væntanleg er á
markaðinn á næstunni.
Móralskur sigur fyrir Arne Treholt. Hvorki lögregla rté saksóknari fá að
lesa það sem hann skrifaði hjá sér meðan á réttarhöldunum stóð.
9- ■
Hvað á aðgera við okkur meðan Pabbi og mamma eru í vinnunni? Þing-
flokkur Alþýðuflokksins hefur áhyggjur af flótta kvenna frá barnaheimil-
unum vegna lágra launa.
Alvarlegt ástand
í dagvistarmálum
— ályktun þingflokks Alþýðuflokksins
Þingflokkur Alþýðuflokksins
varar við því alvarlega ástandi sem
við blasir í dagvistunarmálum
barna, sem rekja má að verulegu
leyti til mikils vinnuálags og lágra
launa fóstra og annars starfsliðs
dagvistarheimila.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
skorar á menntamálaráðherra sem
fer með yfirstjórn mála er varða
dagvistarheimili, að beita sér fyrir
viðunandi frambúðarlausn í dag-
vistarmálum i samvinnu við borgar-
yfirvöld. Minnir þingflokkurinn í
því sambandi á kröfu Alþýðu-
flokksins um að endurmetin verði
láglaunastörfin og kjör láglauna-
hópanna í þjóðfélaginu.
Jafnframt telur þingflokkur Al-
þýðuflokksins að sá flótti sem haf-
inn er úr hefðbundnum kvenna-
starfsgreinum vegna lágra launa og
mikils vinnuálags svo sem í fisk-
vinnslu, kennara- og hjúkrunarstétt
og nú síðast af dagvistarheimilum
geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir
atvinnulífið og þjóðfélagið í heild,
— ef ekki verður brugðizt við í
tíma.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
telur brýnt að þegar í stað verði
skipuð samstarfsnefnd aðila vinnu-
markaðarins og stjórnvalda til að
leita viðunandi lausna vegna flótta
úr mikilvægum starfsgreinum.
Ríkisstjórnin ekki
starfinu vaxin
—Ályktun þingflokks Alþýðubandalagsins
Þingflokkur Alþýóubandalags-
ins hélt fund 26. og 27. ágúst. Þar
var einkum fjallað um efnahags- og
atvinnumál til undirbúnings lands-
fundi Alþýðubandalagsins, sem
haldinn verður í nóvembermánuði
næstkomandi. Á fundinum var
einnig rætt um stjórnmálaástandið
og í framhaldi af því gerði þing-
flokkurinn eftirfarandi ályktun:
„Þrjú mál hefur borið hæst I
sumar sem öll sýna að ríkisstjórnin
er ekki starfi sínu vaxin og að fyrir-
ætlanir hennar hafa að engu orðið.
1. Þvi var haldið fram strax sumarið
1983, að ríkisstjórnin hefði þá þeg-
ar ráðið niðurlögum verðbólgunn-
ar. Niðurstaðan er hins vegar sú að
þrátt fyrir svívirðilega lág laun er
verðbólgan enn á bilinu 40—50%
að mati opinberra stofnana. Á
sama tíma eru engar verðbætur
greiddar á laun og vandi heimil-
anna birtist i tilkynningum um
nauðungaruppboð dag frá degi.
2. Innan ríkisstjórnarinnar er háð
grimmt stríð um innflutning á hráu
kjöti til bandaríska hersins. Sjaldan
hefur viðurstyggð hernámsins birst
með lágkúrulegri hætti, á sama
tíma og herstöðvaframkvæmdir eru
meiri en nokkru sinni fyrr. í kjöt-
stríðinu kemur glöggt fram það
ráðleysi sem virðist ríkjandi innan
ríkisstjórnarinnar á flestum svið-
um. Ríkisstjórn sem getur ekki leyst
innri vandamál eins og kjötstríðið
getur ekki leyst stærri vandamál
þjóðfélagsins.
'3. Atvinnulífið í landinu öllu er á
brauðfótum. Sérstaklega á þetta við
um sjávarútveginn. Fiskveiðistefn-
an hefur ekki náð tilgangi sínum.
Heilu byggðarlögin eru ofurseld at-
vinnuleysinu á síðasta hluta ársins.
Kaup verkafólks í fiski er svo lágt
að ekki er unnt að halda þjálfuðu
starfsfólki í fiskvinnslu. Þannig er
hið lága kaup orðið ein meginorsök
þess að ekki tekst að auka þjóðar-
framleiðsluna. Sjávarútvegsráð-
herra hefur framkvæmt fiskveiði-
stefnuna með stífni en ekki sveigj-
anleika. Þess vegna mun Alþýðu-
bandalagið beita sér fyrir því að Al-
þingi taki fiskveiðistefnuna og sjáv-
arútvegsmálin í heild til meðferðar
strax í haust.
Ríkisstjórn sem stuðlar að
40—50% verðbólgu á sama tíma og
kauptaxtarnir eru jafnlágir og raun
ber vitni, ríkisstjórn sem afhjúpar
getuleysi sitt til þess að leysa úr innri
vanda, ríkisstjórn sem hefur sýnt
að stefna hennar gagnvart grund-
vallaratvinnuvegum þjóðarinnar er
röng — slík ríkisstjórn á að víkja.
Hún er ekki starfi sínu vaxin.
Stefna hennar er þjóðinni dýr og
háskaleg í bráð og lengd.
Borgarráð 1
flokkanna voru þó að engu höfð og
viðræðurnar samþykktar með
þrem atkvæðum sjálfstæðismanna
í ráðinu.
í viðræðunefndina voru síðan
kjörin þau Magnús L. Sveinsson
(D), Ragnar Júlíusson (D), Ingi-
björg Rafnar (D), Kristján Bene-
diktsson (B) og Sigurjón Pétursson
(G).
Kosningu útgerðarráðs, sem
frestað var í vor, meðan beðið væri
eftir skýrslunni sem áður er.getið,
var aftur frestað á fundi Borgarráðs
í gær, að þessu sinni þangað til nið-
urstöður eru komnar úr þeim við-
ræðum við ísbjörninn hf. sem
framundan eru.
Þau krefjast réttra viöbragða ökumanna. Þeir sem að jafnaði aka á
vegum meö bundnu slitlagi þurfa tíma til þess að venjast malarvegum
og eiga því að aka á hæfilegum hraða. Skilin þar sem malarvegur
tekur við af bundnu slitlagi hafa reynst mörgum hættuleg.
UUMFERtWt
rAd