Alþýðublaðið - 07.05.1990, Síða 1

Alþýðublaðið - 07.05.1990, Síða 1
JUfflMMB Sveitarstjórnar- kosningarnar Suðurlandi er umfjöllunarefni þessa aukablaðs Al- þýðubiaðsins og er blaðinu af því tilefni dreift í hús í þéttbýlisstöðum í kjördæminu. í blaðinu er fjallað um þéttbýlisstaði í kjördæminu, framboðsiistar kynntir, greint frá úrslitum sveitarstjórnarkosning- anna fyrir fjórum árum og sagt frá helstu kosning- baráttumálum. Þorlákshöfn____________________________ Ölfushreppur nær yfir býsna mikið landssvæði og þeir íbú- ar sem búa fjærst Þorlákshöfn eiga að sumu leyti meiri samleið með íbúum Selfoss eða Hveragerðis en Þorláks- hafnar. Sérstaðan hefur gert það að verkum að íbúar sveit- arinnar bjóða fram sérstakan lista til að tryggja áhrif sín i hreppsnefndinni. Selfoss________________________________ Á Selfossi gerðust þau tíðindi fyrir þessar kosningar að A-flokkarnir og Kvennalistinn sameinuðust um framboðs- lista. Þessi sameining á trúlega eftir að hafa áhrif á úrslit kosninganna því að ef lagt er saman fylgi listanna þriggja í síðustu kosningum, þá slagar það hátt upp í að nægja fyrir fimm bæjarfulltrúum í stað þeirra þriggja sem flokkarnir fengu. Hinn sameinaði K-listi gæti því e.t.v. átt möguleika á hreinum meirihluta í bæjarstjórn Selfoss. Fjárhagur Sel- fossbæjar telst afar traustur og samkvæmt skýrslum Sam- • bands íslenskra sveitarfélaga hefur bærinn lægstan fjá> magnskostnað allra bæjarfélaga á landinu. Eyrarbakki_____________________________ Framboðslistum á Eyrarbakka fækkar um einn frá síðustu kosningum. Þá voru þrír listar í boði en aðeins tveir nú. Listi almennra hreppsbúa hefur hins vegar traustan meiri- hluta, íimm af sjö fulltrúum í hreppsnefnd og ekki talið lík- legt að stjórnarskipti séu fram undan á Eyrarbakka. Hveragerði_____________________________ í Hveragerði virðist sem sú hefð sé að skapast að tveir list- ar séu boðnir fram. Sjálfstæðismenn bjóða fram lista í eigin nafni en hinir flokkarnir sameinast um einn lista. Fram að þessu hafa sjálfstæðismenn haft betur í þessu einvígi og í síðustu kosningum unnu þeir lítillega á. Stokkseyri_____________________________ Á Stokkseyri stóð til að fækka framboðum í tvö en samein- ingartilraunir mistókust. Sú breyting varð þó á að Alþýðu- flokksmenn sem í síðustu kosningum buðu fram í sam- vinnu við Framsóknarflokkinn bjóða nú fram í samstarfi við Alþýðubandalagið. A-flokkarnir og framsóknarmenn hafa starfað saman í sveitarstjórn. Hella__________________________________ Hella hefur löngum talist vera höfuðvígi Sjálfstæðisflokks- ins á Suöurlandi og E-listi sjálfstæðismanna og óháðra fékk fjóra af fimm hreppsnefndarmönnum í síðustu kosningum. Nú gæti hins vegar dregið til tíðinda í Rangárvallahreppi eins og sveitarfélagið heitir, þvi nú er komið fram klofn- ingsframboð undir forystu fyrrum formanns kjördæmis- ráðs Sjálfstæðisflokksins. Talið er víst að nýja framboðiö muni fá mann kjörinn en fái það tvo þýðir það að líkindum fall meirihlutans. Hvolsvöllur____________________________ Tveir listar eru í framboði í Hvolhreppi og má segja að komin sé á sveitarstjórnarpólitík en þetta er í þriðja sinn sem listar eru boðnir fram. Þarna eru það Áhugamenn um málefni Hvolhrepps sem bítast um völdin viö Sjálfstæöis- menn og aðra frjálslynda. Fram að þessu hafa áhugamenn- irnir haft betur og þrjá fulltrúa af fimm í hreppsnefnd Vík____________________________________ Talsverð óvissa ríkir um niðurstöður kosninga í Mýrdals- hreppi. Ástæðan er sú að það framboð sem fékk mest fylgi í síðustu sveitarstjórnarkosningum er ekki lengur til stað- ar. Stærsti flokkurinn sem sagt hættur í pólitík. Nú bjóöa fram Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur og menn bíða spenntir eftir aö sjá hvor hafi betur. Atvinnumálin eru mál málanna austur í Vík og frambjóðendur á einu máli um að bæði þurfi að treysta þann atvinnurekstur sem er fyrir hendi og eins að byggja upp atvinnu til viðbótar. Vestmannaeyjar_________________________ Sjálfstæðisflokkurinn tapaði meirihluta sínum í Vest- mannaeyjum í síðustu kosningum pg sjálfstæðismenn stefna nú að því að vinna hann aftur. í síöustu kosningum munaði afar litlu og munu flestir sammála um að allt geti gerst. í Vestmannaeyjum er hefð fyrir því að vinstri flokk- arnir stjórni saman þegar þeir hafa meirihluta. Samstjórnir Sjálfstæðisflokks og annarra eru sjaldséðar. Hjólabátarnir sem notaðir eru í Vík í Myrdal, eru allt að þvi jafnvigir til sjós og lands. Þeim er einfaldlega ekið út á sjó og þar taka skrúfublöðin við af hjólunum. Bátarnir eru notaðir bæði til fiskiróðra og þjónustu viö feröamenn og eru óneitanlega sniðug lausn á hafnleysinu. Sveitahrepparnir: Listaframboðum f jölgar Listaframboðum fjölgar í sveitahreppum. Fyrir fá- einum áratugum hefði það sjálfsagt þótt tíðindum sæta að boðnir væru fram Þstar við „venjulegar” hreppsnefndarkosningar en með hverju kjörtímabii- inu sem líður fjölgar lista- framboðunum og að sama skapi fækkar þeim sveit- arféiögmu þar sem kosið er upp á gamlan móð með því að rita á kjörseðiiinn nöfn þeirra sem kjósand- inn vill að skipi hrepps- nefndina. Auk þeirra sunnlensku sveitarfélaga sem fjallað er um sérstaklega í þessu auka- blaði, eru listar boðnir fram á allmörgum stöðum. í Bisk- upstungnahreppi eru núna þrír listar og er það raunar óbreytt frá því í síðustu kosn- „ör IHÖTT AÐ BJÓÐA FRAM IÞRENNU LAG!" segir Steingrímur Ingvarsson bæjarfulltrúi á Selfossi um sam- eiginlegt framboð K-anna þriggja, sem svo eru kölluð. K-in þrjú standa fyrir konur, komma og krata, en Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Kvennalisti sameinast nú um að bjóða fram á Selfossi. Steingrímur, sem setið hefur í bæjarstjórninni í 12 ár sem fulltrúi Alþýðuflokksins og skipar nú annað sæti á sameigin- lega listanum, segir í viðtali við Alþýðublaðið að hann telji lík- legt að K-listinn fái a.m.k. fjóra fulltrúa og sá fimmti sé í aug- sýn. ingum. í Hrunamannahreppi eru tveir listar. Það er líka óbreytt frá 1986. Breyting verður hins vegar á í Hraungerðishreppi, þar sem fallið var frá listakosn- ingum síðast. Nú eru þar tveir listar í boði og munu þeir vera svipaðs eðlis og listar sem þarna voru í kjöri 1982. í Grímsneshreppi verða þrír listar í kjöri að þessu sinni, jafnmargir og voru í síðustu kosningum. í einu sveitarfélagi sunnan- lands er kosningum í raun þegar lokið. Þetta er Skaftár- hreppur sem er nýtt sveitarfé- lag til orðið við samruna fimm hreppa austan Mýr- dalssands. Þarna kemur að- eins fram einn listi og verður hann því sjálfkjörinn. Engu að síður má segja að kosning- ar hafi farið fram, því skipan listans réðist í prófkjöri þar sem íbúar gömlu hreppanna kusu sína menn í ákveðin sæti eftir fyrirfram ákveðn- í tveimur sveitarfélögum í Suðurlandskjördæmi koma að þessu sinni fram framboðslistar með færri nöfnum en kjósa á. I Grímsneshreppi koma nú fram þrír listar en aðeins einn þeirra er í fullri lengd, þ.e. skipaður fimm aðaimönnum og jafnmörg- um til vara. Annar listi er einungis skipaður vara- mönnum og á þeim þriðja eru einungis 3 nöfn. um reglum. Nýja hrepps- nefndin er þannig eins konar samstarfsnefnd gömlu hrepp- anna fimm. Svipað þessu er uppi á ten- ingnum í Biskupstungna- hreppi. þar er einungis að finna þrjú nöfn á einum fram- boðslistanum. Þetta er listi Lýðræðissinna og tveir af þrem frambjóðendum eru íeðgar. Það má nefna til við- bótar að þessi listi hefur væg- ast sagt takmarkaða mögu- leika til að ná meirihluta í sveitarstjórn, jafnvel þótt fylgi skorti ekki, því þar sitja sjö manns. Stuttir listar

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.